Árdís - 01.01.1947, Blaðsíða 55
Menn voru fengnir til að riðja skóg og hreinsa landið og plægja
leikvöllinn og slétta, svo í sumar verður góð braut i kringum minningar-
skálann. Það þarf margt enn að gera kringum byggingamar, og um-
bætur verða gerðar árlega. Girðing var keypt í vor frá War Assets Corp.
og verður það verk hafið eins fljótt og unt er.
Þetta fyrirtæki mun blessast og þroskast í framtíðinni ef fólk vort
vill gera sér grein fyrir þeim mögulegleikum sem í því er fólgið. Tæki-
færi til fræðslu í kristindómi undir unaðslegum kringumstæðum, og
tækifæri að kenna hinum ungu að starfa saman með bróðurhug og í
einingu þann tíma sem hver hópur dvelur á þessu sumarheimili undir
leiðsögn hæfra leiðtoga.
Bandalag lúterskra kvenna biður ykkur að koma og sjá staðinn,
biður ykkur að kynnast starfinu þar. Biður ykkur að finna til þess að
þetta fyrirtæki tilheyrir öllum sem bera hag okkar lútersku kirkju fyrir
brjósti. Áhugi ykkar fyrir þessu fyrirtæki getur gefið starfinn byr undir
vængi. Kuldi og áhugaleysi getur eyðilagt framtíð þess. Eg vil minna
ykkur á nafnið: Sunrise—sólar upprás—hin hækkandi sól æskunnar. Guð
gefi að þar megi takast að hrifa huga hinna ungu, svo að í hjörtun
streymi kærleiki til Guðs og manna. Birta og ylur hinnar hækkandi
sólar umvefji alla er þar dvelja og greiði leið að fögrum og björtum frið-
ardegi framtíðarinnar. Bandalag lúterskra kvenna biður um bænir ykkar,
biður um samúð og samvinnu í þessu starfi.
Vil eg enda þessa skýrslu með innilegu þakklæti til Mrs. Ingibjargar
J. Ólafsson, forseta B.L.K því það er hennar framúrskarandi dugnað og
leiðtoga hæfileika að þakka hvað lángt á leið þetta starf er komið. Það
hefir verið hennar draumur og óskabarn sem margra annara meðlima
B.L.K., er hafa sýnt áberandi áhuga svo að þetta fyrirtæki kæmist í
framkvæmd. Við biðjum Guð að blessa hennar starf og allra sem hlynna
að sumarbúðum Bandalagsins.
53