Árdís - 01.01.1947, Page 33
Forest Lawn, Los Angeles.
Fyrir rúmu ári síðan átti eg því láni að fagna að ferðast til drauma-
landsins, Californíu. Þar sá eg margt sem heillaði andann og vakti að-
dáun. Undursamleg tíð, engin vetur, aðeins nokkur rigninga tíð til að
vökva og frjóvga jörðina.
Þegar eg kom til Los Angeles í febrúar var sól og sumar, allar rign-
ingar búnar, og alt stóð í blóma; þegar ein tegund hætti að blómga tóku
aðrar við, og heltu sér yfir girðingar og grænar gmndir svo að hvar sem
augað eygði voru blóm, skrautleg og dýrðleg.
Los Angeles er eins og perla við strendur hins volduga Kvrrahafs,
umkringd af bláum fjöllum, og í hlíðunum raðir af alskyns litum húsum
sem sýnast eins og dúkku hús í fjarlægðinni.
Á þeim fimm mánuðum sem eg dvaldi í Los Angeles gafst mér tæki-
færi að sjá töluvert af þessu draumalandi sem hefir að geyma svo marga
söguríka staði frá því Spánverjar fyrst bvgðu það. Santa Barbara Mission,
Ventura—hin elzta af mörgum Kathólskum “Missions”, Riverside Mis-
sion Inn, Huntington Art Gallery og Library, Knott’s Berrv Farm, og
síðast en ekki sízt—Forest Lawn Memorial Park, og það er Forest Lawn
sem mig lángar til að minnast stuttlega, því það gagntók huga minn og
hjarta.
Forest Lawn var hugsjón nokkurra manna, og er þar skráð í steini
játning bygginga meistarans: “The Builder’s Creed”, og í þeirri hugsjón
var innifalin sú hugmynd að látinna ástvina legstaður ætti að vera hugg-
unarríkur staður þar sem dauðinn yrði eins og Jakobína Johnson segir:
“dagrenning ein”.
Hugsjónin var því innifalin í því að safna saman á þennan stað alt
sem var helgast og háleitast og sem hafði að geyma það fegursta og
bezta í lífinu.
Alstaðar í þessum listigarði dauðans var fegurð og líf og eilíf von.
Engir bauta steinar utan þeirra sem hvíla á hinni græna grundu og letrað
var á nafn til minningar. Ein stór bygging er “mausoleum” þar sem
jarðneskjar leifar hvíla í klefum með áletruða nafni, og blóma vösum.
Alstaðar eru gosbrunnar og höggmyndir, stórar og smáar. Við hliðina
á Wee Kirk o’ the Heather” er eftirliking af höggmynd Thorvaldsens
31