Árdís - 01.01.1947, Síða 42

Árdís - 01.01.1947, Síða 42
SKÝRSLA FORSETA. Kæru félagssystur:— Það er mér gleðiefni að mega nú ávarpa ykkur á okkar eigin heimili sem þið hafið allar hjálpað til að byggja. Eg vona að þær stundir sem við eyðum hér saman verði okkur öllum gleðiríkar og lífi okkur í minni sveipaðar sólskini og sumarblæ. Þetta ár sem liðið er síðan við mættumst síðast hefur verið viðburð- aríkt í sögu Bandalagsins að því leyti að á fót komst ákveðið sumarstarf hér á þessum stað. f skýrslu minni síðastliðið sumar dvaldi eg við vonir okkar í því efni og skýrði frá hinu mikla starfi byggingarnefndarinnar. Eins og ykkur mun öllum kunnugt, voru þessar sumarbúðir starfandi í 6 vikur, aðsókn mátti heita góð og allt gekk slysalaust og ánægjulega. Nú er þreytan gleymd en ánægjulegar endurminningar vara. Síðastliðið haust eftir að búðum var lokað var gert mikið verk hér á staðnum: minningarskálinn bygður að mestu leyti fyrir hina ötulu frammistöðu Sveins Pálmassonar—skógarrjóðrið niður við vatnið hreins- að og slett o.fl. Verkið var unnið af Ditchfield and Sons frá Winnipeg undir umsjón S. O. Bjerring. Gerði hann sér margar ferðir hingað í sam- bandi við það starf. Áður en eg lýk ummælum um þennan þátt starfsins vildi eg aðeins segja þetta, eg þakka af hjarta öllum þeim sem hafa unnið svo vel og aðstoðað Bandalagið á einn eða annan hátt. Árangurinn væri ekki sá sem orðið er ef fjöldin hefði ekki verið með í gjafir, áhugi, ráðleggingar, hlýhugur og bænir fjöldans hafa verið hér að verki. Við höfum sannfærst um að Guð væri með í þessu verki þess vegna er framtíð þess örugg. Starfið á þessum stöðvum er nú rétt að byrja, við megum ekkert láta ógjört til þess að það verði blessunarríkt og göfugt. Megi hér verða sáð mörgum frækornum í sálir hinna ungu sem beri mikin ávöxt. Eg átti tal við dreng sem dvaldi hér í fyrra nú fyrir nokkrum dögum, hann var fremur sver í lund, hafði mist báða foreldra sína og átt óbliða æsku, kom hingað ókunnugur okkur öllum fyrir tilstilli félags er sendi nokkra unglinga hingað í fyrra. Hann var ekki íslenzkur að ætt. Hann sagðist aldrei mundi gleyma þessum dögum sem hann dvaldi hér, og eg spurði, hvað hefði nú hrífið hann mest, hann svaraði. “I like to think of Vesper Hour, when you called us to evening prayer, and it was getting dark. 40
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Árdís

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.