Árdís - 01.01.1947, Side 43

Árdís - 01.01.1947, Side 43
The waves and the wind in the trees and our prayer all went together”— svo þagði hann í augnablik og bætti svo við—“I felt that God was very near.” Þessi vitnisburður þessa einmana drengs sem mér virtist dálítið hörkulegur og erfiður þegar hann kom til okkar, var mér dýrmætt gleði- efni. Sunnudagaskólanefnd Bandalagsins hefur verið starfandi þetta ár, fyrir dugnað Mrs. Henrickson hafa nú nokkrir unglingar úr prestlausum bygðum byrjað að taka Correspondence Course í sunnudagaskólaverki hjá Miss Elenore Gillstiom. Vonum við að það eigi framtíð fyrir höndum. Á síðasta þingi var kosin milli-þinga nefnd til að yfirfara lög Banda- lagsins. Hefir sú nefnd lialdið nokkra fundi og leggur nú fyrir þetta þing árangur þess starfs. Bið eg ykkur að íhuga vandlega lögin sem hafa nú þegar verið útbýtt á meðal ykkar. Breytingar verða án efa gerðar á þessu þingi og lögin svo samþykt, verða þau svo prentuð á íslenzku og ensku og útbýtt á meðal kvennfélaganna. Á síðusta þingi var samþykt að hækka verð ársrits okkar upp í 50c. þar sem bæði pappír og prentun hafa hækkað í verði. Ritið mun hafa selst eins vel og áður ef ekki betur, engin rödd sem túlki óánægju út af þessari verð hækkun hefur mér borist. En eg hef heyrt nokkra óánægju yfir að ein ensk ritgjörð sem í ritinu er, tæki of mikið rúm. Á öllum svið- um erum við stödd í nokkrum vanda nú hvað tungumálin snertir, og óhugsandi að geta gert öllum til hæfis. Gott er að muna að það eru aðallega okkar góðu eldri íslenzku konur og menn sem Árdísi lesa, veit eg vel að vinsældir hennar aukast ekki við að hafa mikið lesmál þar á enskri tungu. Það var fyrir þremur árum síðan á þingi í Langruth að eg lét til- leiðast að taka við forseta embætti á ný. Útnefninga nefndin sem þar var að verki lofaði mér því þá, að eg mundi verða leyst frá því starfi áður en mjög langt liði, ef eg óskaði þess. Þessi ár hafa verið mér að öllu leyti til gleði. Þið kæru félagssystur hafið allar tekið höndum saman til að árangur yrði sem mestur. Nú finnst mér að nefndin sem íhugar útnefningar ætti alvarlega að hugsa um að nú er tími til að breyta til. Starfið er nú þannig statt að engin óhætta mun vera í því. Mér finnst eg hafi nú lokið þeim þætti starfsins sem eg ætlaði mér sérstaklega, sem var að hjálpa ykkur til að byggja þessar sumarbúðir. Eins lengi og eg lifi verður þetta starf mér hjartfólgið, en eg væri nú svo glöð að sjá einhverja aðra taka við leiðsögn.

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.