Árdís - 01.01.1947, Side 65
allt það gagn er hún mátti og þá var hún ekki síður góður meðlimur
kvenfélagsins Stjaman, sem hún tilheyrði lengi og vann mikið gagn.
Elisabet var ein af þessum góðu konum, sem ekkert mátti aumt sjá
án þess að gera allt sem í hennar valdi stóð, til að hjálpa og líkna. Mun
fáir kunna að meta að fullu og skilja það hugarfar aðrir en fmmbyggja
konurnar. Börn og gamalmenni hafði hún oft hjá sér svo árum skifti og
var þeim með afbrygðum góð og umhyggjusöm. Sem eiginkona og móðir
reyndist hún framúrskarandi vel. Margir Ný-lslendingar og Winnipeg-
búar kannast vel við litla húsið á Centre Street á Gimli þar sem hún
dvaldi síðustu æfiárin. Þar var gott að koma og þar mættu þeir mikilli
gestrisni og góðvild og munu fáir sem þar komu gleyma hinni góðu
konu sem þar bjó.
Hún var lengi heilsuveil og síðustu 10 mánuðina lá hún rúmföst
bæði í Winnipeg General Hospital og Johnson’s Memorial Hospital,
Gimli, þar sem hún andaðist 12. mars 1947. Hún bar sjúkleik sinn sem
hetja og var hennar bjargfasta og einlæga trú, henni óumræðilegur
styrkur, þá sem endranær í lífinu.
Elisabet sáluga var jarðsett að Gimli af sóknarprestinum, séra S.
Sigurgeirson 17. mars og flutti séra S. Ólafsson þar einnig kveðjuorð.
Fjöldi fólks fylgdi henni til grafar.
Guð blessi okkur öllum dýrmætar endurminningar um þessa góðu
konu.
Fyrir hönd kvenfélagsins “Stjarnan”, Arnes, Man.
V. L. S.
ELINBORG HANSON.
Elinborg Hanson dó 6. júní 1946, 93 ára gömul. Hún var meðlimur
Fyrsta lút. safnaðar og kvenfélagsins í fjölda mörg ár. Einnig var hún
meðlimur Jón Sigurðsson Chapter I.O.D.E. í meir en fjórðung aldar.
Hún var frábærlega félagslynd kona, vinföst og gaf dygga þjónustu þar
sem hennar starfsvíð lá. Þegar eg kyntist henni fyrst á stríðsárunum
fyrri, varð eg var við gæzku hennar og hlýhug gagnvart íslenzkum stúlk-
63