Árdís - 01.01.1947, Side 70

Árdís - 01.01.1947, Side 70
KRISTIN JÓNSDÓTTIR CHRISTOPHERSON. 1880 -1946. Það var veturinn 1899-1900 að eg var staddur á Skjaldbreið í Vestur- hluta Argyle byggðar. Þangað kominn til að horfa á leikinn “Æfintýri á GönguförY Eg sat einn mins líðs í bekk þar, og drógst athygli mitt að 2 ungum persónum er sátu fyrir framan mig, og syndust fram úr máta lukkulegar. Eg horfði á leikinn með aðdáun því fólkið lék prýðilega vel þennan fallega leik en jafnframt hafði eg augun á þessum ungu persón- um sem sýndust svo hamingjusöm og mér leist svo vel á. Eg hefi gleymt leiknum áð mestu en mynd þessara ungu hjóna hefur staðið mér skýrt fyrir hugs- kotssjónum til þessa dags. Var mér sagt að þetta væri William C. Christopher- son á Grund (sonur Sigurðar Christo- pherson frumherjans nafnkunna og hans ágætu hérlendu konu Caroline Taylor) og kona hans Kristín Jónsdóttir þá ný- gift. Þau giftust 29. maí 1899. Hann dó 28. sept. 1941 en hún dó á síðastliðnu hausti þann 24. nóv. og vil eg minnast hennar með fáum orð fyrir Árdísi. Krist- ín var fædd í Rauðuskriðu í S. Þingeyj- arsýslu 18. apríl 1880. Foreldrar hennar voru Jón Kristjánsson og Hólmfríður Ólafsdóttir. Faðir hennar mun hafa dáið á íslandi, en vestur kom hún með móður sinni 1893 og þá strax til Argylebyggðar. Þegar hún giftist settust þau að á höfuðbólinu Grund og þar áttu þau heimili til dauðadags. Kristin Jónsdóttir Christopherson Kristín var háttprúð og yfirlætislaus og af öllum vel metin. Hún var meðlimur Frelsissafnaðar og Kvenfélagsins og oftar en einu sinni forseti þess. Hún kendi í sunnudagaskólanum og var trygg við það starf, og hún vann með trú og dyggð að velferðarmálum í sinu umhverfi. Gestrisin var hún og góð heim að sækja, eg þekti hana og þau hjón vel um langa tíð. Eg kom aldrei svo að Grund að ekki stæði mér skýrt fyrir sjónun er eg sá þau í fyrsta sinni á Skjaldbreið. Þau breittust ekki þó árin liðu, þau virtust ætíð jafn glaðvær og hamingjusöm, eg held þau hafi lifað lífi 68

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.