Morgunblaðið - 08.01.2009, Side 1
F I M M T U D A G U R 8. J A N Ú A R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
6. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Leikhúsin
í landinu >> 45
ÍÞRÓTTIR
ARON EINAR GUNNARS-
SON Í SIGTI STÓRLIÐA
UPPTAKTUR AÐ EVRÓVISJÓN
Segir tilhugsunina um
keppnina hlýja og góða
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
FLJÓTLEGA eftir að heilbrigðisráð-
herra kynnti í gær uppstokkun á
stjórnun heilbrigðisstofnana í landinu
fór að bera á gagnrýni og mikilli and-
stöðu við breytingarnar.
St. Jósefsspítali í Hafnarfirði verð-
ur lagður niður í núverandi mynd og
heilbrigðisstofnunum á landsbyggð-
inni fækkað úr 22 í 6. Verkefni og yf-
irstjórn færist því til og búast má við
nokkrum uppsögnum stjórnenda.
Óljóst er hver áhrifin verða í heild á
starfsmannafjölda en með skipulags-
breytingunum hyggst heilbrigðisráð-
herra spara um 1.300 milljónir króna,
þar af um 750 milljónir á suðvestur-
horninu.
Guðlaugur Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra segir við Morgun-
blaðið að hann skilji vel áhyggjur
starfsfólks heilbrigðisstofnana.
Óvissa sé aldrei af hinu góða en breyt-
ingarnar verði kynntar áfram á næstu
dögum með hagsmunaaðilum. Hann
segir að öllum steinum verði velt við,
hvort sem það er í yfirstjórn heil-
brigðismála eða eftirlitsstofnunum.
Lítill tími til samráðs
Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar
Þingeyinga ályktuðu í gær þar sem
vinnubrögð við kynningu og innleið-
ingu breytinga voru átalin harðlega.
Lítill tími væri gefinn til samráðs en
vinnuhópar eiga að skila tillögum til
ráðherra um útfærslu á breytingun-
um fyrir 19. janúar nk. Sameiningar
stofnana eiga að taka gildi 1. mars.
Fjölmörg sveitarfélög hafa óskað
eftir viðræðum við heilbrigðisráðu-
neytið vegna þessa, m.a. Hafnarfjörð-
ur og Vestmannaeyjar, en síðar-
nefnda sveitarfélagið vill taka yfir
rekstur Heilbrigðisstofnunarinnar í
Eyjum, sem fara á undir Heilbrigð-
isstofnun Suðurlands á Selfossi.
BSRB hefur einnig óskað eftir
fundi í ráðuneytinu. Ögmundur Jón-
asson, formaður BSRB, segir það
ámælisvert að breytingarnar hafi ver-
ið kynntar á fréttamannafundi án
þess að rætt hafi verið við samtök
starfsfólks á viðkomandi vinnustöð-
um. Óvissan sé mikil hjá starfsfólki og
sjúklingum.
Stofnunum fækkar | 6
Morgunblaðið/Golli
Mótmælt Um 50 starfsmenn St. Jósefsspítala í Hafnarfirði komu í fullum starfsskrúða á Hilton-hótelið og sýndu samstöðu í mótmælum sínum.
Öllum steinum velt við, segir ráðherra St. Jósefsspítali verður öldrunarstofnun
Sameining stofnana
mætir harðri andstöðu
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ var alltof fámenn stofnun,
starfsmannaveltan var mikil og starfsmönnum fjölgaði
ekki samhliða aukinni ábyrgð og nýjum verkefnum, að
sögn fyrrverandi sérfræðings hjá FME. Starfsmönnum
FME var mætt af fullri hörku í bönkunum.
„Ég man eftir fundum þar sem maður sat við langborð
í stórum fundarherbergjum og á móti manni var þétt-
skipaður hópur af lögfræðingum og yfirmönnum bank-
ans, allir rauðir í framan af reiði vegna afskiptasemi
Fjármálaeftirlitsins,“ segir Elín Jónsdóttir, sem var lög-
fræðingur á verðbréfasviði FME í fjögur ár. Sérfræð-
ingar bankanna beittu jafnan af fullum þunga reglum
stjórnsýslulaga í tilvikum þar sem þær áttu ekkert sér-
staklega vel við. „Valdajafnvægið er allt annað en það
sem haft var í huga þegar reglurnar voru settar, enda
stjórnsýslureglunum ætlað að vernda einstaklingana
gagnvart stjórnvöldum,“ segir Elín.
Fyrir nokkrum árum hafi laun starfsmanna FME ver-
ið samkeppnishæf, en síðan hafi ekki reynst unnt að
keppa við bankana. Því hafi ekki tekist að halda lyk-
ilstarfsmönnum. Elín segir að eftir á að hyggja hefði átt
að vera hægðarleikur að láta eftirlitsgjaldið, sem bank-
arnir greiða, fylgja vexti í fjármálageiranum. | Viðskipti
„Rauðir í framan af reiði“
FME var alltof fáliðað og starfsmannavelta mikil Misstu lykilstarfsmenn
Hefði verið auðvelt að láta eftirlitsgjald hækka samhliða vexti bankanna
Í HNOTSKURN
»Bankarnir og önnur eft-irlitsskyld fyrirtæki greiða
sérstakt eftirlitsgjald sam-
kvæmt lögum og standa þann-
ig straum af kostnaði FME.
»Forstjóri og stjórn FMEleggja fram tillögu um eft-
irlitsgjaldið ár hvert, sem Al-
þingi samþykkir eða hafnar.
INNGANGA
Íslands í Evr-
ópusambandið
yrði til hagsbóta
fyrir íslenska
ferðaþjónustu,
að mati Pekka
Mäkinen, for-
stöðumanns Ice-
landair í Finn-
landi. Reynsla
ferðaþjónust-
unnar í Finnlandi af ESB sé góð.
Pia Michelsson, formaður finnsk-
íslenska viðskiptaráðsins, telur
einnig að Finnar hafi haft hag af
inngöngunni og metur það svo að
erlend fjárfesting ykist á Íslandi ef
landið gengi í ESB. »16-19
Innganga í ESB yrði góð
fyrir ferðaþjónustuna
Pekka Mäkinen
Glitnir veitti Baugi Group fimmtán
milljarða króna víkjandi lán á árinu
2007 og Kaupþing veitti félaginu
sambærilegt lán upp á 4,8 milljarða
króna. Víkjandi lán mæta afgangi
geti fyrirtæki ekki greitt skuldir.
Viðskipti
Baugur fékk millj-
arða víkjandi lán
Ríkissjóður mun taka yfir lán sem
Seðlabanki Íslands veitti smærri
fjármálafyrirtækjum og hafa verið
í uppnámi frá því að gömlu bank-
arnir féllu í október sl. Um er að
ræða allt að 300 milljarða króna.
Velta áhættunni
yfir á ríkissjóð
Forsætisráðherra og fjármála-
ráðherra studdu báðir tillögu um
uppkaup á bréfum Stoða, áður FL
Group, úr tveimur sjóðum Glitnis,
Sjóði 1 og Sjóði 9. Kemur þetta
fram í fundargerð stjórnar Glitnis.
Studdu uppkaup á
bréfum FL Group
Starfsfólki St. Jósefsspítala,
sem beið heilbrigðisráðherra eft-
ir blaðamannafundinn í gær var
heitt í hamsi. Sveinn G. Ein-
arsson, yfirlæknir á svæf-
ingadeild, sagði starfsfólkið vera
sárt. Unnið hefði verið að breyt-
ingunum með mikilli leynd og
verið væri að leggja niður öflugar
og afkastamiklar skurðdeildir og
flytja þær suður til Keflavíkur.
„Þetta er ekki hagræði heldur
hagsmunapólitík,“ sagði Sveinn.
Starfsfólkið á fund með heil-
brigðisráðherra í dag.
„Hagsmunapólitík“