Morgunblaðið - 08.01.2009, Síða 11

Morgunblaðið - 08.01.2009, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 www.solskinsdrengurinn.is Verkefnið er styrkt af Upplifðu sólina í hjarta þínu H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Laugavegi 63 • Sími 5514422 STÓRÚTSALA HAFIN ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR LEIÐANDI Í KÁPUSÖLU Í 70 ÁR Laugavegi 54, sími 552 5201 Útsala Glæsilegir síðkjólar Verð frá 9.990 kr. M bl 10 78 44 4 Eftir Alfons Finnsson MJÖG góð aflabrögð hafa verið hjá bátum á Snæfellsnesi að und- anförnu og tíð verið góð frá ára- mótum. Afli línubáta hefur verið mjög góður og hafa aðkomubátar streymt vestur. Gunnar Bergmann, uppboðshald- ari hjá Fiskmarkaði Íslands, segir að aflinn sem fiskmarkaðurinn hafi tekið á móti sé um 800 tonn frá ára- mótum en á sama tíma á síðasta ári hafi aflinn verið 407 tonn. Aflaverð- mæti núna er 166 milljónir og með- alverð 208 krónur á kílóið en á sama tímabili í fyrra var aflaverð- mætið 95 miljónir og meðalverð 200 krónur. Gunnar segir ennfremur að fisk- verð hafi hækkað um 4% á milli ára. „Meðalverð á ýsunni núna er 145 krónur en var í fyrra 155 krónur. Skýringin á þessari lækkun er að núna er mikið framboð af fiski,“ segir Gunnar. Fiskmarkaður Íslands rekur slægingarþjónustu og hefur verið mikið að gera að undanförnu hjá starfsmönnum hennar. „Okkur sár- vantar starfsfólk í slæginguna og við höfum fengið fólk úr Grund- arfirði okkur til aðstoðar,“ segir Gunnar og bætir við að hann hafi haft spurnir af því að starfsfólk vanti í fiskvinnslufyrirtækin í Snæ- fellsbæ. „Kreppan er ekki enn kom- inn hingað,“ segir Gunnar. Engin kreppa á Snæfellsnesi „Sárvantar fólk í slæginguna“ Morgunblaðið/Alfons Gaman Guðmundur Magnússon á Kóna ll SH er ánægður með aflabrögðin. VEGNA umfjöllunar Morgunblaðs- ins um leiguverð hjá Byggingafélagi námsmanna og ólgu á leigumarkaði vegna hækkandi neysluvísitölu vill Sigurður Páll Harðarson, fram- kvæmdastjóri BN, koma því á fram- færi að félagið er sjálfseignarstofnun og leggur því ekki upp með að skila sérstökum hagnaði eða arði. Mark- mið BN sé þvert á móti að leigja íbúð- ir eins ódýrt og kostur sé hverju sinni til námsmanna. Þá segir Sigurður ljóst að leiga fé- lagsins sé enn í dag töluvert undir meðalverði á markaði, eins og sjá má í könnun Neytendasamtakanna um leiguverð. Þar kemur m.a. fram að meðalverð á tveggja herbergja íbúð á markaði er nú 110.988 kr. á mánuði, en 88.409 kr. hjá BN. Leigjandi sem rætt var við í Morg- unblaðinu í gær sagðist ekki sjá sér fært að flytja, m.a. vegna þriggja mánaða uppsagnarfrests á leigu- samningi. Sigurður bendir á að þarna sé um eðlilega viðskiptahætti að ræða en félagið hafi jafnframt þá stefnu að leigjandi þurfi ekki að greiða allan uppsagnarfrestinn ef tekst að finna nýja leigjendur áður en honum lýkur. Reyna ekki að græða á stúdentum RÚMLEGA 56 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnun Capacent Gall- up um hvort þeir vildu taka upp nýja mynt hér á landi eða ekki, sögðust hlynnt einhliða upptöku alþjóðlegrar myntar. Tæplega 22 prósent voru andvíg þeirri hugmynd og 22 pró- sent sögðu hvorki né. Könnunin var unnin fyrir óform- legan hóp einstaklinga, en fyrir hópnum fór Birgir Tjörvi Pétursson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöð- ar um samfélags- og efnahagsmál. Einnig var spurt hvenær fólk vildi að ný mynt yrði tekin upp. Tæplega 70 prósent þeirra sem vilja taka upp aðra mynt vildu sjá það gerast á næstu sex mánuðum. Samanlagt vildu 85,3 prósent þeirra sem vilja gjaldmiðilsbreyt- ingu að það yrði gert á næstu 7 til 12 mánuðum. Meirihluti vill nýja mynt skv. könnun  $"( )$  $ * + ( , +$ $ $ $ " $&& , - $%$!$  *$+$   -        <           $%$ $ $ $  &&$+$  $ - /012< 341/< 5615< 217< (         !         BRYNHILDUR Guðjónsdóttir, leikkona og leikskáld, hlaut í gær Ís- lensku bjartsýnisverðlaunin 2008. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin, áletr- aðan verðlaunagrip úr áli og verð- launafé að upphæð 1 milljón króna. Brynhildur Guðjónsdóttir lauk leiklistarnámi frá Guildhall School of Music and Drama í London vorið 1998. Áður hafði hún útskrifast með BA gráðu í frönsku frá Háskóla Ís- lands. Hún hlaut fastráðningu hjá Þjóðleikhúsinu árið 1999 og hefur leikið þar fjölmörg hlutverk. Hún hlaut Grímuna 2006 sem besta leik- kona í aukahlutverki fyrir hlutverk Sólveigar í Pétri Gaut, og tvenn Grímuverðlaun 2008 fyrir einleikinn Brák, það er sem leikskáld ársins og leikkona ársins í aðalhlutverki. Dómnefnd verðlaunanna skipa Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, sem er formaður nefndarinnar, Rannveig Rist, Sveinn Einarsson og Örnólfur Thorsson. Alcan á Íslandi hf. verið bakhjarl verðlaunanna frá árinu 2000. Brynhildur fékk bjartsýnis- verðlaun forseta Íslands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.