Morgunblaðið - 08.01.2009, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 08.01.2009, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 LÝÐRÆÐIÐ Thomas Wallgren, heimspek- ingur, baráttumaður fyrir hag þróunarríkja og einn stofnenda Græningjaflokksins í Finnlandi. H ugsjónamaðurinn Thomas Wallgren fyllir flokk þeirra Finna sem eru gagn- rýnir á samstarfið við Evrópusam- bandið. Hann nálgast gagnrýni sína öðrum þræði frá vinstri. Meðal þess sem hann telur ámælisvert er að ESB standi fyrir „landtöku“. Það hugtak vísar í þessu tilviki til þess þegar land er tekið af fólki í þriðja heiminum til að tryggja þar kolefnisbind- ingu í loftslagssamningum. Til lengri tíma litið metur Wallgren það svo að ESB muni beita aflsmunum í þriðja heim- inum í því skyni að tryggja aðildarríkjunum að- gang að auðlindum og vísar til þess að ljóst sé að aðgangur að auðlindum muni verða bitbein í al- þjóðakerfinu á næstu áratugum. Wallgren lítur einnig svo á að Lissabon- sáttmálinn sé einstakur að því leyti að þar sé meira gert úr réttindum stórfyrirtækja en ein- staklinga. Sem stjórnarskrá sé sáttmálinn ein- stakur hvað þetta varði og brjóti í bága við lýð- ræðishefð síðustu tveggja alda. Þrátt fyrir hugmyndafræðilega andstöðu sína við ýmislegt í stefnu Evrópusambandsins er Wallgren engu að síður ánægður með eitt og annað í stefnu þess. Hitt sé ljóst að ef hann stæði frammi fyrir tveimur valkostum, að vera eða vera ekki í ESB, þá kysi hann að vera ekki í sambandinu. Málið snúist um að halda uppi gagnrýni á ESB og þannig hafa um það að segja hvaða stefnu það taki. Hann fer hins vegar ekki ofan af þeirri skoð- un sinni að sambandið sé ólýðræð- islegt í eðli sínu. Sambandið sé víti fyrir Ísland til að varast. „Ég tel að það yrði afar leitt ef Ísland myndi ganga í ESB. Sam- bandið hefur verið lykilþátttakandi í að viðhalda hinu alþjóðlega hag- kerfi sem átt hefur þátt í falli ís- lenska hagkerfisins og annarra hagkerfa. Sambandið er ein- staklega lint þegar kemur að gagnsæi fjármálamarkaða og lýð- ræðislegri stjórn yfir mörkuðunum almennt. Sambandið er því hluti af vandamálinu á heimsvísu, ekki hluti lausnarinnar. ESB er að grunni til ólýðræðisleg stofnun. Af því leiðir að ef við viljum koma á nýju regluverki um fjármálamarkaðina í Íslandi, jafnt sem í öðr- um löndum, þá má ekki veita sambandinu meiri völd. Ég væri mjög ánægður ef ESB væri valda- mikið, lýðræðislegt samband sem beitti sér með ábyrgum hætti við smíði regluverksins um fjármálamarkaðina. Það sama gildir í loftslags- málum. Ef svo væri þá myndi ég vel við una. Það er hins vegar svo að Evrópusambandið sem við búum við á lítið sameiginlegt með Evrópusambandi drauma okkar. Það er mjög ólýðræðislegt og hefur ekki komið fram sem sá þátttakandi í alþjóðamálum sem það gæti ver- ið.“ Auðvaldið fær sama rétt og fólkið Wallgren telur Lissabon-sáttmálann lýsandi fyrir þá stefnu sem sambandið hafi tekið. „Í sáttmálann skortir ákvæði um að valdið til- heyri fólkinu. Í 200 ár hefur það verið grundvallarregla hins stjórnmálalega umhverfis að valdið tilheyri fólkinu [...] Það er útilokað fyrir allan almenning að hafa eftirlit með því valdaafsali sem hlýst af inngöngu í ESB.“ Inntur eftir afstöðu sinni til framlags sambandsins til mann- réttindamála telur Wallgren það skilgreina þau á framsækinn hátt, þó með síður afgerandi hætti en hefð sé fyrir á Norður- löndum. Sama eigi við um réttindi launþega. „Það sem Lissabon-sáttmálinn gerir, og það er sögulegt, er að þar er réttindum stórfyrirtækja og atvinnulífsins gert jafn hátt undir höfði og réttindum einstaklinga [...] Lýðræðishallinn í Evrópusambandinu væri spaugilegur ef við byggjum ekki við hann.“ Sýndarmennska í mannréttindamálum Wallgren telur sem fyrr segir að ESB sé ólýðræðislegt bandalag og að margt í mannrétt- indastefnu þess sé sýndarmennska. Hann telur ekki mikinn mun á stefnu ESB almennt, þar með talið í efnahagsmálum, og í stefnu Finna. Hans mat er að það sé mjög erfitt að meta áhrif- in á finnskan efnahag af inngöngunni í ESB. Hvað varðar velgengi Nokia og áhrifin af ver- unni í ESB á starfsemi fyrirtækisins, sem talið er hafa á sínum tíma notið góðs af regluverki ESB í fjarskiptum, kveðst Wallgren þeirrar hyggju að illt sé fyrir Finna að reiða sig í svo miklum mæli á eitt fyrirtæki. Hann metur það svo að ESB sé ekki sá afl- vaki félagshyggju sem af sé látið. „Ég tel að það liggi í augum uppi að ESB- aðild er neikvæð fyrir viðgang félagslegs rétt- lætis [...] Aðildin leiðir þvert á móti til þess að erfiðara er að viðhalda stefnumálum í anda slíks réttlætis í álfunni.“ Wallgren víkur því næst að efnahagsstefnu ESB sem hann telur að miði frekar að því að halda verðbólgu niðri en að því markmiði að sporna gegn atvinnuleysi. Að öllu samanlögðu kýs Wallgren „ESB a la carte“, það er lauslegra bandalag þar sem hver þjóð velur það sem henni býður og hentar eigin hagsmunum. Fjölmiðlamenn bregðast skyldum sínum Wallgren setur gagnrýni sína í heimspekilegt samhengi þegar hann víkur að þeirri skoðun sinni að við hrærumst í samfélagi þar sem lítil virðing sé borin fyrir sannleikanum. Fjölmiðla- menn og stjórnmálamenn hafi brugðist þeirri skyldu sinni að benda á gagnrýniverðar hliðar Evrópusambandsins. Mikið bil sé á milli skoð- ana stjórnmálamanna og blaðamanna og hins almenna borgara gagnvart sambandinu. Wallgren hefur nú gengið til liðs við finnska jafnaðarmenn og það liggur því beinast við að spyrja hvort hann styðji ekki samvinnuhugsjón- ina að baki sambandinu, líkt og svo margir jafn- aðarmenn í Evrópu. Það stendur ekki á svarinu. Að hans mati stríðir ESB-aðild gegn hugsjón- inni að baki alþjóðlegri samvinnu, enda hafi að- ild það í för með sér að aðildarríkin verði upp- tekin af sambandinu og þeirri bandalagsrembu (samanber þjóðernisrembu) sem það kalli fram í aðildarríkjum. Sögubækur séu endurskrifaðar til að örva loga þjóðerniskenndar innan ESB, líkt og í Bandaríkjunum. Óttinn við lýðræðið hafi fært Finna nær ESB. Ólýðræðislegt og í þágu auðvaldsins  Einn stofnenda Græningjaflokksins í Finnlandi fer hörðum orðum um ESB og ýmsar áherslur þess  Telur einboðið að Lissabon-sáttmálinn hygli stórfyrirtækjum á kostnað alls almennings í Evrópu Thomas Wallgren RÖKIN Á MÓTI Mikko Sauli, ung- liði í finnska jafnaðarmanna- flokknum og alþjóðasamtök- unum Attac, sem berjast gegn útbreiðslu nýfrjálshyggjunnar. A ð minni hyggju felur Evr- ópusambandið í sér marg- ar þversagnir þegar það er borið saman við hið hefðbundna skandinavíska vel- ferðarmódel, velferðarkerfið sem ég styð sjálfur […] Allt tal um sameiginleg evrópsk gildi og hvernig við kunnum að meta vel- ferðarkerfið eru innantóm orð ef framkvæmd þeirra er falin í hend- ur hinum frjálsa markaði. Það sem ESB leggur áherslu á í aðildarríkjunum er í mótsögn við hugmyndina að baki félagshyggju í Evrópu,“ segir Mikko Sauli, sem var áður formaður ung- liðahreyfingar jafnaðarmanna í Finnlandi. „Sjálfur hef ég meiri efasemdir gagnvart Evrópusamstarfinu en flestir Finnar. Afstaða mín miðast ekki við að horfið verði frá samstarf- inu heldur miklu frekar við að staðið verði fyrir umbótum á sambandinu.“ Inntur eftir því hverju hann vilji breyta segir Sauli ESB hafa stigið of langt til hægri með inn- leiðingu frjálshyggjunnar, en ját- ar hins vegar aðspurður að áherslur sambandsins í efnahags- málum taki mið af því hvaða efna- hagsstefna hljóti mestan hljóm- grunn hverju sinni. Hitt liggi fyrir að ESB hafi hallað á þriðja heims ríki í framgöngu sinni á al- þjóðavettvangi. Tími umbóta runninn upp Sauli vill sjá umbætur í Evrópu og á þá við að Evrópusambandið færist í átt frá nýfrjálshyggjunni og til meiri félagshyggju. Nú sé rétti tíminn að móta nýja Evrópu. Margir Finn- ar séu gagnrýnir á sambandið og þær raddist heyrist frá áberandi fólki að leggja beri ESB niður með öllu. Hvaða finnska jafnaðarmenn varði séu margir forystumanna flokksins mjög fylgjandi samstarfinu við sambandið. Meirihluti Finna sé einhvers staðar þarna mitt á milli og mikill minnihluti þeirrar hyggju að ganga beri úr sambandinu. Inntur eftir afstöðu sinni til grunnhugmynd- anna að baki stofnun sambandsins segir Sauli þá hugsjón að baki stofnun ESB, að halda frið í álfunni um aldur og ævi, fallega. Veruleikinn á bak við sambandið í dag sé hins vegar flóknari. „Evrópusambandið boðar einkavæðingu á næstum öllum sviðum þjóðlífsins, í nánast öllum geirum samfélagsins. Megináherslan í efna- hagsmálum hefur áhrif á alla stefnugerð sam- bandsins, þar með talið á sviði félagslegrar þjónustu,“ segir Sauli, í rökstuðningi fyrir þeirri skoðun að ESB grafi undan velferðinni. Þá taki evrópski seðlabankinn þá áhættu að vinna gegn atvinnusköpun í álfunni með því að halda evrunni svo sterkri. „Þetta er ekki rétti tíminn fyrir slíka stefnu,“ segir hann. Sauli lítur svo á að sambandið sé orðið að handhægum blóraböggli sem grípa megi til þeg- ar þurfi að réttlæta ákvarðanir sem enginn myndi ella vilja bera pólitíska ábyrgð á. „Sambandið þrengir mjög að þeim kostum sem okkur standa til boða á sviði stjórnmál- anna, því mikið af ákvörðunum og lagasetn- ingum þessa dagana kemur nú frá Brussel. ESB er fyrirbæri sem er auðvelt fyrir stjórn- málamann að skýla sér á bak við,“ segir Mikko Sauli, sem kveðst þó vera ánægður með utan- ríkisstefnu sambandsins og áherslu þess á fjöl- þjóðlegar lausnir í alþjóðamálum. Bandalag nýfrjálshyggjunnar  Ungliði í finnska jafnaðarflokknum telur ESB vega að velferðarkerfinu  Sambandið færist á ný í átt til félagshyggju  Jafnaðarmenn fylgjandi ESB Mikko Sauli MENNING Johanna Iivanainen söngkona. J ohanna Iivanainen stóð frammi fyrir erfiðu vali fyrir þjóðaratkvæðagreiðsl- una 1994. Áttu Finnar að gerast aðilar að ESB eða standa utan við sambandið? Á endanum kaus hún inngöngu. Iivanainen, sem þykir ein efnilegasta djass- söngkona Finnlands, er af landsbyggðinni og segir fólk þaðan hafa verið tortryggið gagn- vart inngöngunni, enda hafi það ekki haft mikla þekkingu á Evrópusamstarfinu. Íbúar Helsinki hafi almennt verið hlynntari aðild. Nú séu flestir kollegar hennar hlynntir aðildinni, en sjálf segist Iivanainen vera ánægð með hversu auðvelt sé orðið að ferðast til Evrópu- sambandslandanna. Ferðahliðin mikilvæg Johanna Iivanainen.  Erfið aðildarspurning Margir íbúa Helsinki telja sig hafa færst nær Evrópu eftir inngönguna í ESB. Ljósmyndir | Baldur Evrópusambandið | Finnland

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.