Morgunblaðið - 08.01.2009, Page 30

Morgunblaðið - 08.01.2009, Page 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 ✝ Friðfinnur Krist-jánsson fæddist í Reykjavík 26. júní 1942. Hann lést á Landspítalanum laugardaginn 27. desember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Kristján Fr. Guðmundsson, f. 14. júní 1909, d. 16. maí 1999, og Anna Sigríður Sigurjóns- dóttir, f. 6. ágúst 1914, d. 3. sept- ember 1975. Hann var yngstur fimm systkina, hin eru; Birgir, Agatha, Bóas og Sigurjón. Friðfinnur kvæntist 9. júlí 1977 Þórunni Ólafsdóttur, f. 9. nóvember 1947. Hún er dóttir hjónanna Ólafs Guðjónssonar, f. 16. september 1922, og Jóhönnu Gísladóttur, f. 6. maí 1926. Dæt- ur Friðfinns eru: 1) Margrét Eyjólfsdóttir, f. 1. júní 1966, maki Sigurjón Kristinsson, f. 16. mars 1964, börn; Arnar Finnur, f. 1990, Eik, f. 1993, og Ólafur, f. 2007. 2) Jóhanna Eyjólfsdóttir, f. 20. janúar 1969, maki Jón Ólafur Magnússon, f. 19. október 1967, börn; Þórunn Björk, f. 1992, og María Dögg, f. 1998. 3) Anna Karen Frið- finnsdóttir, f. 24. október 1974, maki Atli Viðar Thorstensen, f. 8. janúar 1974. 4) Fanney Sigríður Friðfinnsdóttir, f. 10. mars 1976, maki Jóhann Örn Bjarnason, f. 8. janúar 1971, börn: Ronja Rán, f. 2005, og Jóhann Nói, f. 2006. 5) Jana Friðfinns- dóttir, f. 24. júlí 1978, maki Ein- ar Þór Bogason, f. 2. september 1978, börn: Tandri, f. 2002, og Ýrr, f. 2007. 6) Birna Friðfinns- dóttir, f. 17. desember 1980, maki Andri Már Ólafsson, f. 4. apríl 1981, dóttir þeirra er Katrín Inga, f. 2007. Friðfinnur lærði blómaskreyt- ingar í Englandi og Þýskalandi, hann stofnaði Blómastofu Frið- finns árið 1968 og rak hana til ársins 2001. Eftir að hann lét af störfum ferðaðist hann mikið ásamt konu sinni, spilaði golf og naut lífsins. Útför Friðfinns fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Við viljum hér í örfáum orðum minnast mágs okkar og svila, Frið- finns Kristjánssonar, en á þriðja degi jóla lauk baráttu hans við erf- iðan sjúkdóm. Í þessari baráttu komu glögglega fram sterk per- sónueinkenni hans en hann var ein- arður og heilsteyptur maður, ein- staklega duglegur, athugull og skipulagður og vissi ætíð hvað hann ætlaði sér. Það vakti aðdáun hvern- ig hann tókst á við veikindi sín og sýndi ótrúlegt æðruleysi. Sterkur lífsvilji og barátta skilaði lengri og betri tíma en við mátti búast. Í öllu sem Friðfinnur tók sér fyrir hend- ur sýndi hann sömu eljuna, ná- kvæmnina og vandvirknina en hann var naskur að sjá möguleika sem aðrir komu ekki auga á. Við rekst- ur á Blómastofu Friðfinns naut hann almennrar virðingar allra sem unnu í starfsgreininni. Hann var mjög agaður, stundaði alla tíð leik- fimi, var grannur og óvenjulega vel á sig kominn alla ævi. Gaman er að minnast þess þegar við fjögur fórum eitt sinn saman til Jótlands á sýningu og enduðum í Kaupmannahöfn. Á nýtísku veitingastað við Grá- bræðratorg pöntuðum við dýrindis dádýrasteik. Þegar Friðfinnur vildi ræða steikartímann við þjóninn svaraði hann því til að það væri kokkurinn sem ákvæði steikinguna en ekki gestirnir. Við lá að Frið- finnur gengi á dyr þar sem það var andstætt lífsviðhorfi hans að aðrir tækju slíkar ákvarðanir fyrir hann. Hann stundaði lengi skíði en síð- ustu tíu árin átti golfið hug hans allan og náði í því góðum árangri. Það var gott að vera með honum í golfi og hann var óþreytandi að segja til og miðla af reynslu sinni og þekkingu. Þrátt fyrir veikindin og missi á auga hélt hann áfram að spila golf af fullum krafti og það var stór stund fyrir rúmu ári á Hamarsvelli við Borgarnes þegar Friðfinnur fór holu í höggi á sjö- undu braut við mikil fagnaðarlæti okkar sem spiluðum með honum þennan dag. Eftir að hann kom inn í líf Þór- unnar kynntumst við Friðfinni hægt og bítandi og áttum við hann góð samskipti sem ætíð voru hrein og bein og mjög ánægjuleg. Hann var léttur og kátur, hafði mjög ákveðnar skoðanir en afar sann- gjarn og hófsamur í garð annarra. Þau voru samhent hjón, samband þeirra fallegt og unnu saman að öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur, en þar má nefna blóma- stofurekstur, rekstur á leiguíbúð- um, hús á Spáni og sumarhús í Borgarfirði. Þórunn stóð eins og klettur við hlið Friðfinns í veik- indum hans og annaðist hann af natni og blíðu svo aðdáun var á að horfa. Að leiðarlokum þökkum við hjón- in fyrir að hafa notið þess að vera samferða Friðfinni í gegnum lífið og kynnst honum náið. Við vottum þér, Tóta mín, og fjölskyldunni allri samúð okkar en við munum öll varðveita minninguna um einstakan mann. Birna og Viðar. Friðfinnur mágur minn er fallinn fyrir skæðu krabbameini á besta aldri. Það er erfitt að sætta sig við þessa staðreynd lífsins sem dauðinn er, en það er huggun harmi gegn að minnast þess sem Friðfinnur var okkur sem þekktum hann. Við sjáum hvert okkar hlið á samferðamönnum okkar. Í mínum huga var Friðfinnur eljusamur dugnaðarmaður. Hann var mjög meðvitaður um að ekki er stólandi á að allt hið góða í lífinu fáist á silf- urfati án fyrirhafnar. Hann vann í málunum og leysti það sem hann tók að sér þannig að af bar. Jafn- framt var hann jákvæður að eðl- isfari og sá það góða í fari annarra frekar en að dvelja við það sem miður fór. Lífsstarf Friðfinns var árangursríkt sem þakka má eðl- islægum dugnaði og ósérhlífni ásamt glöggskyggni og varfærni í fjármálum. Hann var ráðdeildar- maður, en jafnframt örlátur og kunni að njóta lífsins ávaxta. Í seinni tíð hafa samskipti okkar, utan fjölskyldusamkomna, helst verið á golfvellinum. Þar komu allir hans frábæru eiginleikar fram. Eljusemin og þá ekki síður sjálf- stjórnin sem hann sýndi við æfing- ar og leik var tilefni aðdáunar með- spilaranna. Það eru til margar góðar reglur um hvernig bera skal sig að við golfiðkun og allir golfarar reyna sitt besta til að fara eftir þeim, en Friðfinnur sló aldrei af. Hann var keppnismaður en þó ein- ungis þannig að hann vildi standa sig sem best en alls ekki að öðrum gengi illa. Hann var ávallt reiðubú- inn að leiðbeina, þó varð maður að fara fram á það, því það er óleyfi- legt samkvæmt reglum leiksins að gefa leiðbeiningar sem ekki hefur verið farið fram á. Hann var einnig óspar á hrós ef maður slysaðist til að gera eitthvað þokkalega, eða allavega að sýna framför. Hann hvatti mann til að gera betur og benti á það sem betur mátti fara, enda vinur sá er til vamms segir. Ekki var hægt að hugsa sér betri félaga á vellinum. Það er erfitt að sjá á eftir góðum dreng alltof fljótt. Hann átti að eiga langt og ánægjulegt líf fyrir hönd- um, en ekki dugar að deila við dóm- arann. Við samferðamenn Friðfinns söknum vinar og félaga, en missir Þórunnar systur minnar og afkom- endanna er mestur og hugurinn er hjá þeim. Blessuð sé minning Frið- finns Kristjánssonar. Sveinn Ingi Ólafsson. Á tímum ljóss og friðar þegar eftirvæntingin liggur í loftinu ber skugga á hjá sumum. Hjá mér hvíldi skuggi yfir jólunum vegna andláts náins frænda míns, Sissa frænda eins og ég kallaði hann allt- af. Sissi frændi lést að morgni 27. desember eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Hetjulega segi ég því aldrei var bilbug á honum að finna allan þann tíma sem baráttan stóð yfir. Þannig var einmitt Sissi frændi. Margar minningar leita á hugann og allar eru þær góðar. Sissi var 16 ára gamall þegar ég kom í heiminn og þá strax tókst með okkur náið samband, að mig minnir. Ég man eftir þeim frændum, Sissa, Kidda bróður og Helga frænda, úti í bíl- skúr að dást að bílunum sínum, bónandi þá og hreinsandi með tann- burstum. Sissi var náttúrlega mesti töffarinn og átti flottasta bílinn, rauðan Mustang. Hann var mikill heimilisvinur meðan ég ólst upp og alltaf var stutt í stríðnina. Hann var óspar á að segja mér sögur frá ferðalögunum sem við fórum í sam- an og ein var í sérstöku uppáhaldi. Hún var á þá leið að þegar ég var lítil prinsessa þá vorum við fjöl- skyldan að ferðast saman á Skód- anum hans pabba og Sissi var með. Svo þurfti sú litla að kúka og neit- aði algerlega að gera það úti, enda mikil frekjudós. Hún fékk því að fara á koppinn inni í bílnum og fnykurinn hékk í honum allan dag- inn öllum til mikillar armæðu. Auð- vitað gerði hann stólpagrín að þessu öllu því þannig var jú Sissi frændi. Sissi var mikill fagurkeri og dugnaðarforkur og ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna hjá hon- um í Blómastofu Friðfinns um helg- ar. Hann kenndi mér ótrúlega margt og alltaf var hann til í að kasta mér út í djúpu laugina. Hann kenndi mér að gera alvöru skreyt- ingar og nýta allt eins og best varð á kosið því þannig var hann. Þess vegna farnaðist honum vel í lífinu. Hann eignaðist yndislega konu og yndislegar dætur. Hjónaband þeirra Sissa og Þórunnar hef ég alltaf tekið mér til fyrirmyndar enda voru þau yndislega samheldin hjón. Nú birtir í lofti og þótt skugga beri á verður minning elsku Sissa frænda alltaf ljósgeisli í mínu lífi. Elsku Þórunn og fjölskylda, Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Anna Birgitta Bóasdóttir. Vinur okkar í tæp 50 ár er nú lát- inn. Við kynntumst Friðfinni fyrst á skíðum í skíðaskála ÍK í Skálafelli. Upp frá því höfum við verið vinir þar sem aldrei bar skugga á vinátt- una. Friðfinnur fór ungur að vinna fyrir sér. Fljótlega hóf hann stöf í gróðrarstöðinni Alaska þar sem grunnur var lagður að framtíðar- starfi Friðfinns sem blómaskreyt- ingar- og verslunarmanns. Til þess að mennta sig frekar fór Friðfinnur í nám bæði til Þýskalands og Eng- lands þar sem hann lærði blóma- skreytingar. Hann var verslunar- maður af bestu gerð og hafði ávallt hag viðskiptavina sinna í huga. Friðfinnur var kurteis að eðlis- fari, þægilegur maður í umgengni með létta lund. Tók þátt í allri um- ræðu, þar sem hann var alltaf tilbú- inn að hlusta á skoðanir annara án þess að troða sínum skoðunum upp á aðra. Hann hafði mikið jafnaðar- geð og man ég ekki eftir að hafa séð hann missa stjórn á skapi sínu. Friðfinnur var maður spengileg- ur vexti enda hugsaði hann vel um líkama sinn og heilsu. Stundaði leikfimi frá unga aldri og sló ekki slöku við, hann var einnig skíða- maður góður og áhugamaður um knattspyrnu. Fyrir nokkrum árum fórum við félagarnir að stunda golf. Fékk hann mikinn áhuga á golf- íþróttinni og náði fljótt góðum ár- angri í henni, þar kom í ljós að Friðfinnur var mikill keppnismað- ur. Þá hafði hann gaman af lax- og rjúpnaveiði og fórum við margar ferðir saman til veiða ásamt vinum. Bera fór á veikindum Friðfinns fyrir tæpu ári, allan tímann sem hann var að glíma við sjúkdóminn gerði hann svo lítið úr veikindum sínum að maður nánast gleymdi að hann átti í mikilli baráttu. Þrátt fyrir veikindi sín dró hann sig ekki í hlé og stundaði áhugamál sín af krafti ásamt félagslífinu með vin- um. Friðfinnur vissi að veikindin voru eitthvað sem hann fengi ekki breytt, en tók á þeim með karl- mennsku og tillitssemi við vini og vandamenn. Friðfinnur og Þórunn voru mjög samhent hjón og ákveðin í að njóta lífsins. Áttu sumarbústað og hús á Spáni þar sem þau dvöldu löngum. Þau áttu stóran vinahóp, þar á meðal vini sem þau hafa ferðast með á hverju ári og hafa ferðir í Þórsmörk orðið nokkurs konar tákn fyrir hópinn. Friðfinns verður nú sárt saknað í þeim hópi. Höfum við hjónin farið margar ferðir utan með þeim hjónum jafnt að vetri til og sumri og hafa þær ferðir verið okkur til mikillar ánægju. Þá höfum við dvalið nokkr- um sinnum hjá þeim Friðfinni og Þórunni í sumarhúsinu þeirra á Spáni svo og sumarbústað og þar hefur manni ávallt liðið eins og heima hjá sér. Að eiga góðan vin til margra ára getur orðið til þess að maður líti á það sem sjálfsagðan hlut. Þegar vinurinn fellur frá verður manni ljóst að það er ekki sjálfgefið að eiga góðan vin og maður áttar sig á hve mikinn þátt hann hefur átt í lífi manns og hve mikið maður hefur misst. Um leið og við kveðjum Friðfinn viljum við þakka fyrir öll árin sem við áttum saman og allar þær góðu minningar sem munu ylja okkur á komandi árum. Nú söknum við vin- ar í stað. Blessuð sé minning Frið- finns Kristjánssonar. Guðný og Hinrik. Í dag, 8. janúar, kveðjum við góð- an vin og nágranna, Friðfinn Krist- jánsson, sem lést eftir langvarandi veikindi. Fyrstu kynni okkar hjóna af Friðfinni og hans góðu konu Þór- unni voru þegar þau keyptu neðri hæðina á Flókagötu 63, þar sem við bjuggum á efri hæð. Það er mikið lán að fá svo góða nágranna í litlu sambýli enda sýndi það sig þegar árin liðu að þetta urðu ekki síður vinir okkar en nágrannar. Það var oft glatt á hjalla þegar við tókum til hendinni við að laga til á lóðinni eða þegar þurfti að mála húsið og var unnið saman í þessu eins og um eina fjölskyldu væri að ræða og svo jafnan sest niður og fengið sér kaffi saman í pásunum heima hjá öðrum hvorum eða grill- að saman í restina. Þetta voru ljúfir dagar sem seint gleymast og við þökkum fyrir að hafa átt. Á þessum tíma ráku Friðfinnur og Þórunn verslun sína, Blómastofu Friðfinns, af miklum myndugleika ásamt góðri aðstoð frá dætrum sín- um. Það var nú ekki verra að vera með mann sem var sérfræðingur í blómum og skreytingum í garð- ræktinni á Flókagötu og lærðum við margt af honum. Seinna seldu þau þennan rekstur og nutu þess að ferðast meira en þau höfðu áður gert bæði hérlendis og erlendis. Þau áttu stóran og góðan stelpu- hóp ásamt tengdasonum og barna- börnum sem þau nutu að eyða tíma með, það er gott til þess að hugsa að Þórunn á góða að nú á þessari erfiðu stundu. Það var aðdáunarvert að fylgjast með Friðfinni fara í gegnum þann tíma sem hann var veikur þar sem hann tók þessu öllu með stakri ró og bjartsýni á betri heilsu, hann sannaði það enn og aftur, að við eigum að njóta dagsins sem er, því enginn okkar á morgundaginn vís- an. Friðfinnur var góður golfari og náði hann að bæta forgjöf sína eftir að hann veiktist sem segir allt um einbeitinguna og viljann sem hann bjó yfir hvað sem á bjátaði. Hér er farinn góður drengur sem við mun- um öll sakna sem urðum honum samferða um lengri eða skemmri tíma. Elsku Þórunn og fjölskylda, við vottum ykkur okkar einlægu sam- úð. Ragnhildur og Guðmundur. Fallinn er frá kær vinur okkar sem nú er kvaddur með söknuði. TBK er félagsskapur nokkurra vaskra kvenna sem fyrir hartnær aldarfjórðungi ákváðu að koma saman í líkamsrækt og gera fleira skemmtilegt. Fyrst í stað var þetta hreinn kvennaklúbbur en síðar bættust makarnir við og saman höf- um við átt ótal góðar stundir. Síðustu 12 árin hefur hópurinn farið í 4-7 daga gönguferðir á hverju sumri, bæði innanlands og utan, en jafnframt eru sköpuð til- efni til að hittast og eiga góðar stundir þess á milli. Þessar ferðir hafa alltaf tekist frábærlega vel og tilhlökkun mikil til þeirrar næstu, enda hópurinn einstaklega sam- stilltur og skemmtilegur. Í þessum ferðum höfum við kynnst mörgum náttúruperlum Íslands. Friðfinnur átti stóran þátt í því hve vel hefur tekist að stilla saman svo marga ólíka strengi að úr hefur orðið einn tær samhljómur. Hann var manna glaðastur og skemmti- legastur og hlátur hans var afar smitandi. Hann var oftar en ekki fyrstur til ef taka þurfti til hend- inni, eins og t.d. að draga og ýta stóra farangursvagninum í Horn- víkinni. Hann var líka betur á sig kominn líkamlega en flestir hinir, tágrannur og léttur á fæti og gat hlaupið upp fjallshlíðar sem margir aðrir þurftu að taka í áföngum. Einmitt fyrir það hvað Friðfinnur var hraustur, í góðu formi og ein- beittur, voru miklar vonir bundnar við það að honum tækist að sigrast á því alvarlega krabbameini sem á hann lagðist, öllum til skelfingar. Og víst var barátta hans hetjuleg. Það var með fádæmum hve vel hann stóðst allar þær meðferðir sem hann gekk í gegnum og hve lif- andi hann lifði lífinu meðan á þessu mikla stríði stóð. Hann var alltaf jafn glaður og jákvæður á manna- mótum, lék golf af kappi með góð- um árangri, lækkaði í forgjöf og fór meira að segja holu í höggi. Í öllu þessu naut hann Þórunnar, konu sinnar, sem stóð með honum í gegnum þykkt og þunnt eins og alltaf. Hjónaband þeirra var frá fyrstu tíð ákaflega farsælt og sam- heldnin slík að allir tóku eftir. Má segja að þau hafi haldist í hendur í öllu sem þau gerðu í starfi og leik. Þau nutu mikils barnaláns og áttu falleg heimili þar sem gott var að koma og njóta gestrisni sem var þeim báðum í blóð borin. Friðfinnur var harðduglegur, traustur og áreiðanlegur, enda átti hann, auk hamingjuríks fjölskyldu- lífs, góðri veraldlegri velgengni að fagna í lífinu sem alltof snemma var frá honum tekið. Hann skilur eftir sig stórt skarð í hinum samhenta hópi TBK vina en um leið og hann er sárt syrgður leita á hugann fjöl- margar minningar um góðan dreng og ánægjulegar samverustundir. Minningar frá gönguferðinni sem Þórunn og Friðfinnur skipulögðu fyrir hópinn til Spánar í fallega húsið þeirra þar; minningar um all- ar fallegu skreytingarnar sem þau settu saman við ýmis tækifæri úr blómum og hvers konar gróðri sem tiltækur var á hverjum stað; minn- ingar um dillandi hlátur hans; já, og svo margt og margt. Við biðjum góðan Guð að styrkja Þórunni okkar og alla fjölskylduna í þeirra miklu sorg og kveðjum góð- an vin að ferðalokum. F.h. TBK-hópsins Ragna María. Friðfinnur Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.