Morgunblaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 44
44 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 Fólk Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „OKKUR hefur aldrei staðið svona mikið til boða. En á sama tíma erum við ekki í aðstöðu til að láta verða af neinu,“ segir tónleikahaldarinn Ísleifur Þórhallsson, en fjölmargar erlendar stórstjörnur hafa lýst áhuga á að halda tónleika á Íslandi. „Það er verið að bjóða manni ýmislegt sem mann dreymdi ekki um að geta gert hérna áður fyrr. Þannig að við erum að segja nei við ýmsu sem við hefðum stokkið á í fyrra.“ Að sögn Ísleifs hefur heimskreppan haft sín áhrif í tónleikabransanum líkt og annars staðar. „Í stað þess að við séum að ganga á eftir tónlist- armönnum þurfa þeir að hafa meira fyrir hlut- unum núna. Verðið er að lækka og það eru allir í gengisvandræðum, við erum ekkert þeir einu sem eru í þeim.“ En kemur þá ekki til greina að halda bara eina stóra tónleika? „Það er það sem við erum að skoða, að hafa færri en stærri tónleika, og jafn- vel bara eina stóra tónleika sem kostar aðeins meira inn á. En það er verið að tala um svo háar upphæðir, og það þarf að borga 99% af kostn- aðinum beint til útlanda, og þar erum við að tala um tugi milljóna,“ segir Ísleifur sem hefur verið í sambandi við fjölmarga umboðsmenn. „Við er- um í sambandi við alla sem eru á túr, og höfum meðal annars rætt við umboðsmenn AC/DC, Tinu Turner og U2. Þannig að allar sveitir sem eru á tónleikaferðalögum koma til greina.“ Stórstjörnurnar vilja halda tónleika á Íslandi Reuters U2 Spilar kannski á Íslandi áður en langt um líður. Þá kæmi varla annað en Egilshöll til greina.  Ásmundur Ásmundsson mynd- listarmaður skrifar meinfyndna samantekt á myndlistargóðærinu á vefritinu Nei (this.is/nei). Ásmund- ur skýtur föstum skotum að Klink og Bank og öðrum listaverkefnum sem áttu það sameiginlegt að leita fast á náðir fjármálastofnana og ljóst má vera að kjánahrollurinn hríslast upp eftir baki einhverra listamanna þegar góðæristíð und- anfarinna missera er rifjuð upp. Ás- mundur segir á einum stað: „[Lands]bankinn fjármagnaði heimildarmynd um Klink og Bank, þar sem Björgúlfur (sic) fer á kost- um sem yndislegi kallinn sem hann er og listamenn í hlutverkum skap- andi villibarna. Myndin minnir á auglýsingamyndband sem sjá má í flugvélum Flugleiða, þó það sé í villtari kantinum, og kemur sköp- unarkrafturinn umtalaði, kraft- urinn góði og fyrrnefnd gredda mikið við sögu. Myndin verður lengi í minnum höfð og gefur ágæta mynd af menningarlegu ástandi ungra listamanna. Áhorfandinn hefur á tilfinningunni að Klink og Bank hafi iðað af lífi en jafnframt sér hann að glamorinn og athyglin, ekki síst þessi frá útlöndum, hafi verið drifkrafturinn frekar en myndlistin sjálf og myndin er eig- inlega eitt stórt „name drop“.“ Var góðærið lista- mönnum til góðs?  Það er nóg að gera hjá sjónvarps- og útvarpskonunni Evu Maríu Jónsdóttur um þessar mundir. Við- talsþættirnir Sunnudagskvöld með Evu Maríu hafa nú lagt upp laup- ana í bili, en í staðinn mun hún hafa umsjón með Söngvakeppni Sjón- varpsins sem hefst á laugardaginn. Henni til halds og trausts verður engin önnur en Ragnhildur Stein- unn Jónsdóttir. Um leið og Söngva- keppninni lýkur tekur svo Gettu betur við, en Eva María er nýr spyr- ill og stjórnandi þáttanna. Þar fyrir utan er Eva María stöðugt í útvarp- inu, að ógleymdum forsíðum helstu slúðurblaða landsins … Eva María og Ragnhild- ur kynna Evróvisjón Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „VIÐ erum ennþá eitthvað að pæla í þessu. En við ætlum nú bara að gera það sem okkur finnst skemmtilegt og það sem við erum góðir í – það er að segja að fíflast eitthvað í sjónvarpinu,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi, um nýjan sjónvarpsþátt sem hann sér um ásamt Auðuni Blöndal, Audda. Þátturinn verður á Stöð 2 og fer sá fyrsti í loftið föstudaginn 23. janúar, strax að loknum frétt- um. Skemmtilegra í beinni Aðspurður segir Sveppi þá fé- laga hafa nokkuð frjálsar hendur í þáttunum, en þeir hafi þó þroskast töluvert frá fyrri sjónvarpsþáttum sínum, 70 mínútum og Strákunum. „Það má kannski segja að þetta verði svona 70 mínútur í jakkaföt- um. Við förum kannski svolítið yf- ir stöðuna, skoðum fréttir vik- unnar með okkar hætti og svona,“ segir Sveppi og bætir því við að þeir muni eflaust fá góða gesti í heimsókn til sín í myndverið. Þá verður eitthvað um innslög í þátt- unum, sem verða líklega í beinni útsendingu að öðru leyti. „Ég væri allavega til í að hafa þetta í beinni, það er alltaf svo miklu skemmtilegra að gera hluti í beinni en að taka þá upp fyrirfram því það er ekki hægt að taka neitt til baka. Það er oft svo mikil snilld sem gerist í beinni.“ Á sama tíma og fréttir Athygli vekur að Pétur Jóhann Sigfússon verður ekki með í þátt- unum, en þeir þrír hafa nánast myndað heilaga þrenningu í huga landsmanna. „Við erum ekki með hann núna, það er svo brjálað að gera hjá honum,“ útskýrir Sveppi. En eruð þið ekkert farnir að sjá eftir að hafa tekið hann upp á ykkar arma, og gert hann að þeim „risa“ sem hann er í dag? „Jú vá maður, við drógum hann út úr útvarpinu inn í sjónvarpið, og núna sitjum við Auddi bara eft- ir með sárt ennið,“ segir Sveppi og hlær. „En nei nei, hann er á fullu með Jóni Gnarr í Fangavakt- inni, auk þess sem hann er að setja upp leiksýningu og svona. En hver veit nema hann detti inn í þátt hjá okkur.“ Hver þáttur verður 20 mínútna langur og að sögn Sveppa hefur ekki verið tekin ákvörðun um hversu margir þættirnir verða, þótt þeir verði líklega eins margir og þeir félagar hafa getu og nennu til. Af tímasetningu þáttanna er hins vegar ljóst að þeir fá verðuga samkeppni, nefnilega kvöldfréttir Sjónvarpsins. „Já já, ég gleymi alltaf því sem er í gangi á hinum stöðvunum. En maður getur ekkert verið að pæla í því – þá væri maður löngu dauð- ur. En þetta er mikil áskorun,“ segir Sveppi að lokum. 70 mínútur í jakkafötum  Sveppi og Auddi fara af stað með nýjan sjónvarpsþátt á Stöð 2  Hafa frjálsar hendur en segjast þó hafa þroskast  Pétur Jóhann er fjarri góðu gamni Morgunblaðið/Golli Þáttarstjórnendur „Það er oft svo mikil snilld sem gerist í beinni,“ segja þeir Auddi og Sveppi. Hver hinna nýju þátta verður 20 mínútna langur. Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is ÞESSA dagana er unnið hörðum höndum á efri hæð Tryggvagötu 22 að því að klára innréttingar nýs tón- leikastaðar er verður opnaður í byrj- un mars. Nafn staðarins hefur ekki verið ákveðið ennþá, en hugsanlega mun það á einhvern hátt vísa til goð- sagnarinnar Rúnars Júlíussonar. Einnig er uppi orðrómur um að nafnið muni vísa í þekkta íslenska kvikmynd en öruggt þykir að ekki verði endurvakið nafn eldri staðar, eins og hefur verið lenska hér upp á síðkastið. Tunglið, er var opnað í húsinu eft- ir að Gauknum var lokað, er nú hætt starfsemi en ekki er vitað hvað verð- ur á neðri hæð staðarins þótt líkleg- ast sé að þar verði opnaður annar staður, ótengdur nýja tónleikastaðn- um. „Við erum bara á fullu hérna að mála og gera allt klárt,“ segir Össur Hafþórsson, annar eigandi stað- arins, en hann á ennfremur Bar11 á Laugavegi. „Hérna verður allt gert fyrir kúnnann og hljómsveitirnar sem koma hér fram,“ segir hann. Staðurinn mun taka 250 manns og verður opinn öll fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagskvöld fyrir tón- leikahald. Þrátt fyrir nafnleysið er þegar byrjað að bóka tónleika á staðnum en það verða engir aðrir en Langi-Seli og nýju Skuggarnir sem sjá um að vígja plássið opnunar- kvöldið, hinn 4. mars næstkomandi. Sveitin er með nýja breiðskífu í far- teskinu, sína fyrstu í tæp 20 ár, er kemur út í febrúar. Það er því útlit fyrir að rokkið í Reykjavík eignist brátt nýtt heimili. Rokkið í Reykjavík eignast bráðlega nýtt heimili Morgunblaðið/Golli Gamli Gaukur Á efri hæðinni verður bráðlega opnaður nýr tónleikastaður. Nýr tónleikastaður í hjarta borgarinnar opnaður bráðum Þeir Sveppi og Auddi vöktu fyrst athygli þegar þeir stýrðu sjónvarpsþættinum 70 mínútur á Popptíví ásamt þeim Simma og Jóa Idol-kynnum, auk þess sem Pétur Jóhann Sigfússon gekk síðar til liðs við þáttinn. Þeir hafa komið víða við í sjón- varpi upp frá því, t.d. séð um sjónvarpsþáttinn Strákarnir á Stöð 2 og leikið í Svínasúpunni. Þá sá Auddi um sjónvarpsþátt- inn Tekinn, auk þess sem Sveppi hefur haft umsjón með barnaefni, svo fátt eitt sé nefnt. Sjónvarpsgrín

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.