Morgunblaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 38
38 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Bækur Bækur til sölu Dalamenn 1-3, Strandamenn, Deil- dartunguætt 1-2, Sýslumannaævir 1- 5, Ólafur Snóks-dalin ættartölur 1-3, Íslenskir sjávar-hættir 1-5, Íslensk myndlist 1-2, Islendischer Wortebuch - Alexander Jóhannesson, Ættir Þingeyinga 1-4, Íslensk-Rússnesk orðabók 1962, Ódáðahraun 1-3. Upplýsingar í síma 898 9475. Heilsa REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI STREITU- OG KVÍÐALOSUN. Notuð er m.a. dáleiðsla og EFT (Emotional Freedom Techniques). Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur, sérfræðingur í EFT, sími 694-5494, www.EFTiceland.com. Léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuðum Aldrei verið auðveldara að losna við aukakílóin. Aukin orka, vellíðan og betri svefn. Engin örvandi efni. Uppl. Dóra 869-2024. www.dietkur.is Hljóðfæri Klassískur gítar óskast Óska eftir að kaupa klassískan gítar í stærð 3/4 helst Raimundo eða Strunal. Uppl. í síma 849-2649. Húsnæði í boði Íbúð til leigu Góð 3 herb., 94 fm íbúð til leigu í Grafarholti. Einstaklega flott og glæsileg íbúð í nýlegu lyftuhúsi. Eingöngu reyklaust og reglusamt fólk kemur til greina. Uppl. í síma 848-0231. Til leigu Glæsilegar 2ja og 3ja herbergja íbúðir miðsvæðis. www.leiguibudir.is Til leigu 3 herbergja íbúð í 101 Reykjavík Til leigu falleg 84 fm, 3 herbergja íbúð í gamla Vesturbænum með eða án húsgagna. Íbúðin er laus, nánari upplýsingar í síma 892 0267. Stúdíóíbúð - Miðbær Laus strax. sara.petursdottir@mk.is Meðleigjandi óskast Kvk meðleigjandi óskast með tvítugri stúlku. Íbúðin er fullbúin og staðsett í Bryggjuhverfinu í Grafarvoginum . Nánari upplýsingar í s: 892-9846. EINBÝLI TIL LEIGU - 101 RVK. Hús til leigu á Njálsgötu. Gott 120 fm steinhús.Stutt í alla þjónustu, skóla, sund, banka, verslanir, allt í göngufæri.Má vera með gæludýr. Uppl. í síma 862 1197. Húsnæði óskast Óska eftir 3 h. íbúð í Miðbænum Er 22 ára maður með dóttur mína og vinkonu minni. Vantar 3 herbergja íbúð í Miðbænum, helst í Hlíðunum! Er í síma 696-2682, Fannar. Bílskúr Lítill bílskúr (geymsla) til leigu í Rimahverfinu í Grafarvogi. Leiga ca 30.000kr. Uppl. í síma 892-9846 Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Iðnaðarmenn Vantar þig rafvirkja?? Rafvirki getur bætt við sig vinnu, tek að mér nýlagnir, breytingar, viðhald o.fl. Sími 821-1334, Helgi. Námskeið Microsoft kerfisstjóranám Bættu Microsoft í ferilskrána. Nýtt kerfisstjóranám Rafiðnaðarskólans hefst 2. feb. Skráning hafin. Upplýs. á www.raf.is, hjá jonbg@raf.is og í síma 863-2186. Frábært, rafrænt námskeið í netviðskiptum. Notaðu áhugamál þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að skapa þér góðar og vaxandi tekjur á netinu. Við kennum þér hvernig! Skoðaðu málið á http://www.menntun.com Til sölu Innrétting, keramik helluborð, eyjuháfur og uppþvottavél til sölu allt saman eða í sitthvoru lagi. Upplýsingar í síma 894 3340. Óska eftir Flatskjár Er ekki einhver sem vill selja mér 37” flatskjá? Bráðvantar einn slíkan. Upplýsingar í síma 694 2326. Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Innréttingaefni til sölu Til sölu efni í nokkrar eldhúsinnrétt- ingar, spónlagður hlynur. Uppsetning getur fylgt. Einnig fataskápahurðir úr eik og hlyni. S. 899 9228. Ýmislegt ÚT AÐ GANGA! Eigum úrval af vönduðum götuskóm úr leðri, skinnfóðraða, fyrir dömur og herra. Mjúkir og þægilegir leðurskór á góðum gúmmísóla fyrir dömur. Stærðir: 36 - 42. Litir: Rautt og svart. Verð: 11.900.- Mjúkir og þægilegir leðurskór með stömum sóla fyrir dömur. Stærðir: 36 - 42. Litir: svart. Verð: 11.900. Vandaðar og góðar herramokka- síur úr leðri. Stærðir: 40 - 46. Litir: Svartir og ljósir. Verð: 6.885.- Flottir og sportlegir leðurskór fyrir alvöru menn. Stærðir: 40 - 48. Litir: Svart, brúnt og mislitt. Verð: 9.985.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is People wanted to pose for photo project People wanted to pose for photo- graphy project. Must be available some weekends. Aged 21-100 every- body welcome. tony@icelandaurora.com NÝTT LÍF - HREYFUM OKKUR Á NÝJU ÁRI Íþróttahaldarinn sívinsæli í BCD skálum Í SVÖRTU OG HVÍTU á kr. 3.850,- og aðhaldsbuxur í stíl í stærðum S,M,L,XL á kr. 1.950,-- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Bátar Réttindanám fyrir skemmtibáta Réttindanám fyrir báta undir 12 metrum og skemmtibáta. Fjarnám við Framhaldsskólann í Austur- Skaftafellssýslu. Skráning á vefnum: www.fas.is og í síma 470-8070. Umsóknarfrestur til 14. janúar 2009. Bílar Suzuki jimny árg. '04 ek. 78 þ. km Vel með farinn, eyðir litlu, hátt og lágt drif, er á 31" dekkjum, næsta skoðun mars 2010. Verð 850 þús. Endilega hafið samband, s: 862-7180, Atli. Bílar óskast 4x4 bíll óskast Óska eftir vel með förnum fjórhjóla- drifnum bíl á verðbilinu 250-500 þ. Guðrún sími 696-1368. Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Öruggur í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Húsviðhald Eruð þið leið á baðherberginu? Breytum, bætum og flísaleggjum. Upplýsingar í síma 899 9825. Þjónustuauglýsingar 5691100 Félagslíf Samkoma í kvöld kl. 20. Söngur: Miriam Óskarsdóttir. Anne M. Reinholdtsen talar. Umsjón: Harold Reinholdtsen. j Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7 og fatabúð í Garðastræti 6, opin alla virka daga kl. 13-18. Opið laugardaga á Eyjarslóð. Landsst. 6009010819 VII I.O.O.F. 5  189818 *9.0 I.O.O.F. 11  189188  ✝ Ólöf Kristín Árna-dóttir fæddist á Lýtingsstöðum í Vopnafirði 9. febrúar 1918. Hún andaðist á Landspítalanum 26. desember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Árni Árnason bóndi á Hró- aldsstöðum, f. 22.7. 1883, d. 16.7. 1942, og Arnbjörg Stef- ánsdóttir, f. 17.6. 1885, d. 26.5. 1932. Ólöf átti sex systkini og komust þrjú á legg, Sólveig, f. 4.9. 1913, d. 5.1. 1975, Lára, f. 14.9. 1921, d. 9.7. 1989, og Elín, að líkindum fædd 1923 og dáin 1936, en bræður hennar dóu í frum- bernsku, Ásgrímur og tvíburarnir Ás- grímur og Brynj- ólfur. Ólöf flutti ung frá Vopnafirði til Reykja- víkur. Hún vann lengst af á Landspít- alanum. Útför Ólafar fer fram frá Fossvogs- kapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Okkur systkinin langar til að minnast Ólafar frænku okkar með fáeinum orðum. Hún fluttist ung stúlka frá Vopnafirði heim til ömmu og afa á Fjölnisvegi þegar móðir hennar lést. Faðir hennar var bróð- ir ömmu. Hún vann lengi í Skógerðinni og eftir það á Landspítalanum, m.a. í býtibúrinu, þar til hún hætti að vinna fyrir aldurs sakir. Þegar hún vann á Landspítalanum leit hún alltaf inn á Fjölnisveginn, hafði lykil að okkar heimili og kom og fór eins og hver annar heimilismaður. Móðir okkar, Úlla Sigurðardóttir, sem lést árið 2006, var tíu árum yngri en Ólöf. Þær fylgdust alltaf að, stund- uðu saman félagsstörf og höfðu fé- lagsskap hvor af annarri, líkast því að þær væru systur. Jólahald og aðrar veislur á Fjöln- isveginum voru óhugsandi án Ólaf- ar. Ólöf var einstaklega vönduð til orðs og æðis. Hún giftist aldrei, bjó lengst af í Hellusundi eftir að hún komst á fullorðinsár, en síðustu árin í þjónustuíbúð fyrir aldraða við Lindargötu. Ólöf hélt ávallt tryggð við fjöl- skylduna, var traust og vinföst. Hún hafði yndi af ferðalögum, ferðaðist mikið bæði innanlands og utan og fór marga ferðina með vinkonum sínum Diddu og Ellu. Hún fór jafn- framt ótal ferðir á Vopnafjörð það- an sem hún var ættuð. Við kveðjum Ólöfu frænku okkar með hlýhug og þakklæti. Kristín, Sigríður, Magnús og Halla, börn Úllu og Harðar. „Þetta er hún Ólöf, sambýliskona mín,“ sagði ég jafnan við kunningja mína sem komu í heimsókn í Hellu- sund 6. Við hentum gaman að þessu saman, við kunningjarnir og ekki síður Ólöf. Ég var rétt rúmlega tví- tugur námsmaður í Reykjavík en Ólöf sextug. Þetta átti ekkert að vera fyndið, þetta var það bara. Hún hafði svo lengi sem ég mundi eftir mér verið leigjandi ömmu minnar sem nú var dáin fyrir mörg- um árum. Hún hafði leigt tvö her- bergi í íbúðinni en eldhús, bað og fleira var sameiginlegt. Eftir að amma dó var íbúðin notuð í kaup- staðarferðum fjölskyldunnar og seinna meir bjó annar okkar bræðra, ég eða Obbi, í Hellusundinu á meðan við vorum í námi. Það var einhvern veginn svo sjálfsagt að Ólöf yrði áfram í herbergjunum sín- um og byggi með okkur bræðrum. Hún fylgdi eins og húsgögnin sögð- um við stundum og ekki stóð til að skipta um húsgögn. Það var gott að búa með Ólöfu. Ljúf og góð í viðmóti, þakklát fyrir allt sem fyrir hana var gert og hafði góða nærveru. Pínulítil og heyrði orðið illa. Við borðuðum oft saman og sá ég þá jafnan um matargerð, hafði gaman af því að elda en þótti verra að sitja einn yfir diskunum. Það var alltaf eins og Ólöfu væri boðið í stórsteik, slíkar voru þakk- irnar og blessunarorðin. Þá skipti engu hvort á borðum var soðin ýsa eða hryggur með öllu. Mér er einkar minnisstætt hvað Ólöfu þótti mikið til koma þegar ég hringdi eft- ir uppskrift að soðkökum til að hafa með saltkjöti, kartöflum og rófum. Mér fannst ekkert sjálfsagðara í stöðunni en soðkökur hafði hún ekki bragðað í fjörutíu ár. Allar mínar minningar um Ólöfu Árnadóttur eru ljúfar og lág- stemmdar. Það verða ekki skraut- sýningar eða stórsveitir sem taka á móti henni við hliðið hjá Lykla- Pétri, það væri satt að segja úr takti við þá hæglátu konu sem gengi inn varfærnum skrefum og þakkaði fyrir að fá setjast niður. Þar verða blessunarorðin væntan- lega flutt á báða bóga. Ég þakka þér Ólöf mín sam- veruna hér á árum áður. Ólafur Týr Guðjónsson, Vestmannaeyjum. Alltaf var Óla frænka jafn indæl, gestrisin og góðhjörtuð og ætíð var gaman að hitta hana í afmælum og heimboðum þar sem ekkert var til sparað. Börnin fengu það sem þeim þótti best og við hin líka. Hún var heilsuhraust í gegnum tíðina en ef eitthvað var að tók hún því af miklu æðruleysi. Hún veiktist þó illa þrenn síðustu jólin sem hún lifði. Hún náði sér á strik eftir fyrri skiptin og náði þeim áfanga sem hún hafði óskað sér. Að verða ní- ræð. Við hittum Ólu á aðfangadag, tveimur dögum áður en hún lést, og erum við öll þakklát fyrir að hafa fengið að kveðja hana. Ásgeir, Karen, Arnbjörg Mist og Ísold Gunnur. Ólöf Kristín Árnadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.