Morgunblaðið - 08.01.2009, Síða 34

Morgunblaðið - 08.01.2009, Síða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 ✝ Eufemía Krist-insdóttir, Ebba eins og hún var köll- uð, fæddist á Siglu- firði 2. janúar 1930. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 31. desember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Kristinn Zophanías Jóakimsson verka- maður á Siglufirði, f. 27.5. 1902, d. 2.9. 1967, og Sigurbjörg Sigmundsdóttir hús- móðir á Siglufirði, f. 3.3. 1907, d. 16.2. 1984. Systkini Ebbu voru Stefán Anton Eysteinn, f. 31.5. 1933, d. 28.3. 1934, Sigurlína Erla, f. 8.7. 1935, d. 3.8. 1999 og Halldór Baldur, f. 4.8. 1939, d. 6.2. 1983. Hinn 17. janúar 1948 giftist Ebba Haraldi Axel Einarssyni frá Hjalteyri við Eyjafjörð, f. 8.4. 1925, d. 15.7. 2004. Foreldrar hans voru Einar Jónasson verkamaður á Hjalteyri, f. 2.11. 1888, d. 23.2. 1969, og Kristín Margrét Krist- jánsdóttir húsmóðir á Hjalteyri, f. 12.12. 1884, d. 22.6. 1977. Börn Ebbu og Haraldar eru: 1) Kristján, f. 20.10. 1947, kvæntur Halldóru S. Magnúsdóttur, f. 7.2. 1950. Börn þeirra eru: a) Ebba Áslaug, f. 3.9. 1971, gift Einari Hansen Tóm- assyni, f. 6.1. 1971, dætur þeirra eru Kristín Nanna, f. 8.9. 1995, og Halldóra Elín, f. 2.6. 2002. b) Magnús, f. 7.1. 1975, kvæntur Önnu Rún Frímannsdóttur, f. 30.3. b) Haraldur Axel, f. 8.7. 1981, sambýliskona Oddný Þóra Krist- jánsdóttir, f. 11.4. 1984. c) Einar Trausti 7.7. 1989, unnusta Berg- þóra Hulda Halldórsdóttir, f. 9.1. 1991. 5) Haraldur Axel, f. 23.6. 1959, kvæntur Sigrúnu Ástu Gunnarsdóttur, f. 16.9. 1960. Börn þeirra eru: a) Heiðrún Tinna, f. 14.11. 1985. b) Hugrún Tanja, f. 9.8. 1987, unnusti Hann- es Sigurðsson, f. 27.4. 1984. c) Haraldur Axel, f. 10.2. 1993. d) Hafrún Erna, f. 7.6. 1995. 6) Hrafnhildur, f. 2.8. 1960, gift Snorra Olsen, f. 20.7. 1958. Dæt- ur þeirra eru Helena Eufemía, f. 1.9. 1983 og Thelma Kristín, f. 21.9. 1987. 7) Stúlka, f. 27.9. 1968, d. 27.9. 1968. 8) Margrét Ásdís, f. 27.9. 1968, gift Hlyni Rúnarssyni, f. 11.12. 1968. Börn þeirra eru Arnór Kristinn, f. 29.11. 1992 og Hafdís Katrín, f. 22.7. 1999. Ebba ólst upp í foreldrahúsum á Siglufirði. Hún fluttist ung að árum til Hjalteyrar og stofnaði þar heimili með Haraldi eig- inmanni sínum. Þaðan lá leiðin til Reykjavíkur og síðan í Garðabæ þar sem hún bjó yfir 40 ár. Hún helgaði heimili sínu, eiginmanni og börnum starfskrafta sína en þegar þau voru flest komin til vits og ára hóf hún störf hjá Garðabæ (Garðahreppi) og enn voru það börnin sem áttu hug hennar því þar starfaði hún sem forstöðukona á gæsluvöllum og leikskólum Garðabæjar það sem eftir lifði starfsævinnar. Útför Ebbu verður gerð frá Vídalínskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. 1976, börn þeirra eru Daníel Hugi, f. 9.7. 2001 og Birta Dís, f. 29.12. 2004. c) Þórunn Arna, f. 17.11. 1983. 2) Ey- steinn, f. 10.7. 1952, kvæntur Finnborgu Laufey Jónsdóttur, f. 25.12. 1954. Börn þeirra eru: a) Krist- inn Jón, f. 6.10. 1975, kvæntur Inger Rós Jónsdóttur, f. 3.4. 1976. Börn þeirra eru Alex- andra Rós, f. 2.7. 2005, d. 2.7. 2005, Sigurrós Elísa, f. 2.7. 2005, d. 2.7. 2005 og Víkingur Atli, f. 24.8. 2006. b) Axel Þór, f. 15.12. 1979, kvæntur Hildi Gottskálks- dóttur, f. 13.2. 1978, dóttir þeirra er Dagný Björt, f. 17.11. 2006. c) Bjarki Páll, f. 1.4. 1986. d) Eydís Lilja 15.1. 1993. 3) Sigurbjörn Kristinn, f. 29.10. 1953, kvæntur Ingibjörgu Sigurbergsdóttur, f. 6.9. 1947. Synir Sigurbjörns eru: a) Haraldur Kristinn, f. 27.4. 1975, móðir Gyða Hafdís Mar- geirsdóttir, sonur hans er Aron Kristinn, f. 15.7. 2006, móðir Elva Rakel Sævarsdóttir. b) Kristinn, f. 10.9. 1986, móðir Katrín Jóns- dóttir. 4) Einar, f. 26.12. 1956, kvæntur Jóhönnu Kristínu Guð- bjartsdóttur, f. 9.12. 1959. Börn þeirra eru: a) Þóra Guðrún, f. 18.5. 1979, gift Jóni Grétari Herj- ólfssyni, f. 8.8. 1978, dóttir þeirra er Viktoría Kristín, f. 18.2. 2005, Elsku tengdamamma. Fréttin af andláti þínu kom á óvart. Þegar þú varst lögð inn á Landspítalann á Þorláksmessu hafði ég þá trú að það þyrfti bara að stilla lyfjagjöfina hjá þér eins og var gert fyrr á árinu. Þegar ég hugsa til baka eftir að hafa séð þig við útskriftina hjá Einari Trausta og þú hafðir ekki treyst þér til að vera við athöfnina sjálfa, sem var mjög ólíkt þér, þá fannst mér þú ekki líta alltof vel út, virtist þreytt, en á hörkunni komstu til að geta glaðst með okkur. Innst inni hvarflaði að mér að þú værir veik- ari en þú lést uppi. Þú vildir taka þátt í öllum gleðistundum með gullmolunum þínum. Veit ég að Einar Trausti huggar sig við þessa stund, en það var mjög erfitt fyrir hann að fá þessa frétt til Tenerife þar sem hann var með fjölskyldu unnustu sinnar um jól og áramót. Ekki var ég mjög gömul þegar ég kom fyrst á Tjarnarflötina, rétt nýorðin 16 ára. Fyrstu skiptin var maður mest inni í herbergi. Ebba hafði miklar áhyggjur af því að ég nærðist ekki. Mér var færður mat- ur inn í herbergi þar til ég þorði að koma fram og hitta hópinn smátt og smátt. Var ég fljót að kynnast öllum og fannst ég vera heppnasta manneskja í heimi að fá að tilheyra þessari stórfjölskyldu, ég varð svo rík að eignast góða tengdamóður og tengdaföður. Ég er elst fjögurra systkina en það vantaði mömmu á heimilið (móðir mín lést þegar ég var á tólfta ári). Var því gott að eignast Ebbu sem tengdamóður sem var boðin og búin til að hjálpa og ávallt var gott að leita til henn- ar. Samverustundir okkar hafa verið margar á stórhátíðum, ætt- armótum og á merkum tímamótum í lífi hvers og eins og ekki má gleyma öllum frábæru ferðunum á Kirkjuhól, Ísafjörð og nú síðustu ár í Heydal. Mikið hefur verið brallað í þessum samverustundum okkar, spilað, gerðar stíflur á ströndinni á Kirkjuhóli og farið í boccia þar á túninu með netakúlum úr plasti, þeim systkinum hefur ekki leiðst að búa til keppni öllum til skemmtunar. Ebba tók þátt í flestu en hún hafði ást og yndi af að ráða krossgátur. Stórfjölskyld- an hefur verið með keilumót Har- aldar til heiðurs tengdaföður mín- um um páska sem endar með að allur hópurinn kemur saman og borðar, í lokin er farandbikarinn afhentur. Ebba hélt vel utan um alla gull- molana sína þótt hópurinn væri orðinn stór, fylgdist vel með öllum (hún hafði oft orð á því hversu rík hún væri að eiga allan þennan hóp) og lenti það á henni að fræða okkur um það helsta þegar við komum í bæinn. Hún var farin að hvetja barnabörnin til að vera ekki að draga það lengur að gifta sig því henni fannst svo gaman að upplifa þann dag í lífi þeirra eða bara allar gleðistundir í lífi þeirra. Ég mun sakna fallega brossins þíns, hlýja hlátursins og hins hlýja mjúka faðmlags þíns. Hafðu þökk fyrir allt elsku Ebba. Ég kveð þig með söknuð í hjarta. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þín tengdadóttir Jóhanna Kristín. Heima á Ísafirði hangir uppi á vegg ljósmynd af ungum og mynd- arlegum hjónum með fríðan barna- hóp í kringum sig. Þetta er mynd af Ebbu ömmu og Halla afa. Á myndinni er hún þrítug, hann fimm árum eldri og börnin þá orðin sex talsins. Þau kynntust á Siglufirði þegar síldarævintýrið var í al- gleymingi. Afi var við trésmíðanám á Siglufirði og vann þar við að reisa síldarverksmiðju. Hann hefur sennilega ekki verið lengi að reka augun í fallegustu stúlkuna á síld- arplaninu en amma var þá sextán ára. Það fylgir gjarnan sögunni hvað amma var lagleg, dökk á brún og brá, og afi mikið glæsimenni. Það er skemmst frá því að segja að fljótlega áttu þau von á barni og amma hleypti þá heimdraganum og fluttist á heimaslóðir afa, Hjalt- eyri. Þar hófu þau búskap, korn- ung, í skjóli foreldra afa. Þessi fallega saga um kynni ömmu og afa er í miklu uppáhaldi hjá mér. Ekki bara vegna þess hvað hún er rómantísk heldur sýn- ir hún líka vel hvern mann amma hafði að geyma. Það hefur þurft sterk bein fyrir unga stúlku að fara að heiman og takast á hendur barnauppeldi og bústang. Það lýsir henni vel að hafa viljað standa á eigin fótum og bjarga sér sjálf. Afi var mikið fjarri heimilinu vegna vinnu og ábyrgðin á börnum og búi hvíldi því á ömmu. Amma talaði samt aldrei um erfiðleika eða basl. Þvert á móti þá hjálpuðust allir að, eldri börnin hjálpuðu með þau yngri og allir lögðust á eitt til að hlutirnir mættu ganga upp. Þetta segir líka mikið um ömmu. Allt var svo auðvelt og vandræðalaust. Hún leit lífið og tilveruna jákvæðum augum og fór brosandi í gegnum lífið. Hún gerði lítið úr vanda- málum og sigraðist á öllum erf- iðleikum með bjartsýni og ein- stakri lífsgleði. Hún var engin venjuleg amma hún Ebba amma. Mér fannst hún aldrei verða gömul. Hún leit út fyrir að vera yngri en aðrar ömmur, með hrafntinnusvart hárið og blikandi augun, og hún var svo sannarlega ung í anda. Hún talaði alltaf við mig sem jafningja og kynslóðabil var ekki til á milli okkar. Hún ferðaðist mikið, fór í leikhús og kvikmyndahús, fylgdist með tíðarandanum og elskaði að vera innan um fólk. Hún hafði oft sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og lá ekkert á þeim. Hún hafði líka mikinn húmor, ekki síst fyrir sér og sínum, og hafði lag á því að láta fólki líða vel í kringum sig. Enginn hafði eins góða nær- veru og Ebba amma. Allt frá því að ég var lítil stelpa í heimsókn á Tjarnarflötinni fannst mér svo gott að vera í kringum hana og gaman að spjalla við hana. Núna er það að renna upp fyrir mér hvað hún var stór partur af tilverunni og hvað vantar mikið þegar hún er farin. Ótal minningar skjóta upp kollin- um, dýrmæt augnablik og sam- verustundir sem ég vildi að hefðu orðið miklu fleiri. Ebba amma dó skyndilega aðfaranótt gamlárs- dags. Ég var ekki tilbúin að kveðja hana strax en svona held ég að hún hefði sjálf viljað hafa það. Hún var orðin miklu veikari en hún vildi vera láta en ætlaði ekki að láta það buga sig. Hún vildi standa á eigin fótum og það hefði ekki átt við hana að verða veikari og vanmátt- ug. Hún kvaddi áður en kirkju- klukkurnar hringdu inn nýja árið og sá til þess að við munum hana eins og hún var. Ebba amma sagði alltaf að það yrði aldrei nema einn maður fyrir hana. Nú hittast þau aftur hún og Halli afi og halda á vit nýrra ævintýra saman. Einmitt þannig held ég að hún hafi hugsað sér það. Guð geymi þig elsku amma mín og hafðu þökk fyrir allt. Þín Ebba Áslaug. Amma mín var ofurhetja. Þegar ég var lítil fannst mér ég svo hepp- in að eiga svona flotta ömmu, hún var allt öðruvísi en allar hinar ömmurnar. Hún amma mín átti nefnilega sjö börn, var alltaf hlæj- andi og glöð, notaði aldrei orðið nei, vann á róló og átti alltaf fullar skúffur af súkkulaði sem oftast nær kom frá útlöndum, svo eitt- hvað sé nefnt. Núna þegar ég er orðin eldri dáist ég ennþá að ömmu minni, er með sama glampann í augunum, en súkkulaðiskúffan og veraldlegir hlutir hafa fengið að víkja fyrir öðrum gildum. Ég dáist að því hvernig hún valdi að lifa líf- inu, hverig hún barðist fyrir sínu, hvernig hún þraukaði í gegnum erfiða tíma án þess að kvarta og hvernig henni tókst alltaf að sjá gleðina í öllum hlutum. Á endan- um, eftir allt þetta ferðalag, stóð hún uppi sem sigurvegari, sátt við eigið líf. Það var eins og það væru engar hindranir sem gætu staðið í veginum fyrir henni ömmu. Þegar lífið tók á sig óvænta stefnu heyrði maður hana aldrei kvarta en þess í stað var hún ávallt dugleg að þakka fyrir allar þær gjafir sem líf- ið hafði gefið henni, hún sá það bjarta og jákvæða í hverjum hlut. Þrátt fyrir það hvað fjölskyldan okkar er stór var faðmur ömmu alltaf nægilega stór til þess að faðma allan þennan fjölda að sér og gefa okkur alla sína ást og gleði. Hún sparaði aldrei faðmlögin og kossana, né það að minna okkur á hversu mikið hún elskaði okkur. Lífssýn Ebbu ömmu var alveg ein- stök. Maður lifir bara einu sinni og það er eins gott að nota lífið sem okkur var gefið vel og njóta þess á allan hátt sem maður getur meðan maður lifir. Þessi boðskapur er stærsta gjöfin sem hún amma mín gaf mér og hann hef ég reynt að taka með mér í gegnum mitt ferða- lag í lífinu og hann á eftir að fylgja mér alla tíð. Ef amma væri ofurhetja í teikni- mynd þá hefði hún þann eiginleika að geta fyllt hjörtu fólks af birtu og gleði bara með því að brosa. Elsku amma mín ef ég verð amma ein- hvern daginn þá pant verða alveg eins amma og þú. Þín Þórunn Arna. Elsku Ebba amma, það voru blendnar tilfinningar sem fóru um okkur síðastliðið gamlárskvöld þegar við kvöddum liðna árið og tókum á móti því nýja. Sorgmædd Eufemía Kristinsdóttir ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR frá Rauðuskriðu, Byggðavegi 137, Akureyri. Gestur Hjaltason, Hulda Gestsdóttir, Sigurður Gestsson, Kristín Kristjánsdóttir, Hjalti Gestsson, Aníta Júlíusdóttir, Sverrir Gestsson, Hrefna Óladóttir, ömmu- og langömmubörn. Ég þekkti Indriða nánast allt hans líf. Æskuvinur bróður míns og fjölskyldu- vinur. Þegar ég spurði Begga hvort hann myndi eftir þeirra fyrsta fundi, leit hann á mig hálf hneyksl- aður og sagði „Nei, ég var tveggja eða þriggja!“ Það er mjög líklegt að þetta hafi verið í sandkassa og umræðuefnið bíll. Ég var svo heppinn að kynnast Inda nokkuð vel síðustu ár þar sem hann var tíður gestur á heimili okkar Begga. Ef ég ætti að lýsa Inda Indriði Ingi Styrkársson ✝ Indriði IngiStyrkársson fæddist í Reykjavík 9. október 1977. Hann lést 24. desember síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Bú- staðakirkju 6. janúar. með nokkrum orðum þá væru þau hóg- værð, kurteisi og hjálpsemi. Það var ekki annað hægt en að kunna vel við manninn. Við eydd- um ófáum Þorláks- messum, gamlárs- kvöldum og stórafmælum saman þar sem gleðin var við völd og þannig vil ég minnast hans. Ég vil eigna mér það að kynna fyrir þeim tónlist gömlu meistarana Dino, Frank og Sammy. Það voru góðar stundir þegar við félagarnir hittumst og hlustuðum á RatPack „live from Vegas!“ hlógum hátt á milli laga með gestunum og upplifðum þetta einsog við værum á staðnum. Þetta átti vel við okkur enda gaml- ar sálir í ungum líkama eða það héldum við. Indriði var ekki þann- ig maður að hann kveinkaði sér og sýndi það allt fram á lokadag. Hann var ekki maður margra orða en þegar hann talaði hafði hann eitthvað að segja. Hjálpsemin við vini og fjölskyldu var einstök. Vinátta er eitt það fallegasta sem gerist á milli manna og ég þakka þér fyrir hana, Indi minn. Ég votta fjölskyldu þinni og vinum samúð mína. Böðvar Bergsson. Elsku Ingi. Ég get ekki trúað því að þú sért farinn. Mig dreymdi þig svo oft á síðasta árinu og fannst alltaf eins og þú myndir komast út úr þessu. Þó að við höfum ekki sést í nokkuð mörg ár þá áttir þú greinilega part af mínu hjarta. Þú varst einn af mínum fyrstu vinum og held ég að við höfum kynnst þegar við vorum ca 2-3 ára. Þú áttir heima á móti mér í Kvistalandinu og eydd- um við allmörgum stundunum saman. Þú varst eini vinur minn sem ég gat sagt allt og sagði allt. Ef það voru einhver vandamál sem komu upp, áttum við yfirleitt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.