Morgunblaðið - 08.01.2009, Qupperneq 34
34 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009
✝ Eufemía Krist-insdóttir, Ebba
eins og hún var köll-
uð, fæddist á Siglu-
firði 2. janúar 1930.
Hún lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 31. desember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Kristinn Zophanías
Jóakimsson verka-
maður á Siglufirði, f.
27.5. 1902, d. 2.9.
1967, og Sigurbjörg
Sigmundsdóttir hús-
móðir á Siglufirði, f. 3.3. 1907, d.
16.2. 1984. Systkini Ebbu voru
Stefán Anton Eysteinn, f. 31.5.
1933, d. 28.3. 1934, Sigurlína Erla,
f. 8.7. 1935, d. 3.8. 1999 og Halldór
Baldur, f. 4.8. 1939, d. 6.2. 1983.
Hinn 17. janúar 1948 giftist
Ebba Haraldi Axel Einarssyni frá
Hjalteyri við Eyjafjörð, f. 8.4.
1925, d. 15.7. 2004. Foreldrar hans
voru Einar Jónasson verkamaður
á Hjalteyri, f. 2.11. 1888, d. 23.2.
1969, og Kristín Margrét Krist-
jánsdóttir húsmóðir á Hjalteyri, f.
12.12. 1884, d. 22.6. 1977. Börn
Ebbu og Haraldar eru: 1) Kristján,
f. 20.10. 1947, kvæntur Halldóru S.
Magnúsdóttur, f. 7.2. 1950. Börn
þeirra eru: a) Ebba Áslaug, f. 3.9.
1971, gift Einari Hansen Tóm-
assyni, f. 6.1. 1971, dætur þeirra
eru Kristín Nanna, f. 8.9. 1995, og
Halldóra Elín, f. 2.6. 2002. b)
Magnús, f. 7.1. 1975, kvæntur
Önnu Rún Frímannsdóttur, f. 30.3.
b) Haraldur Axel, f. 8.7. 1981,
sambýliskona Oddný Þóra Krist-
jánsdóttir, f. 11.4. 1984. c) Einar
Trausti 7.7. 1989, unnusta Berg-
þóra Hulda Halldórsdóttir, f. 9.1.
1991. 5) Haraldur Axel, f. 23.6.
1959, kvæntur Sigrúnu Ástu
Gunnarsdóttur, f. 16.9. 1960.
Börn þeirra eru: a) Heiðrún
Tinna, f. 14.11. 1985. b) Hugrún
Tanja, f. 9.8. 1987, unnusti Hann-
es Sigurðsson, f. 27.4. 1984. c)
Haraldur Axel, f. 10.2. 1993. d)
Hafrún Erna, f. 7.6. 1995. 6)
Hrafnhildur, f. 2.8. 1960, gift
Snorra Olsen, f. 20.7. 1958. Dæt-
ur þeirra eru Helena Eufemía, f.
1.9. 1983 og Thelma Kristín, f.
21.9. 1987. 7) Stúlka, f. 27.9.
1968, d. 27.9. 1968. 8) Margrét
Ásdís, f. 27.9. 1968, gift Hlyni
Rúnarssyni, f. 11.12. 1968. Börn
þeirra eru Arnór Kristinn, f.
29.11. 1992 og Hafdís Katrín, f.
22.7. 1999.
Ebba ólst upp í foreldrahúsum
á Siglufirði. Hún fluttist ung að
árum til Hjalteyrar og stofnaði
þar heimili með Haraldi eig-
inmanni sínum. Þaðan lá leiðin til
Reykjavíkur og síðan í Garðabæ
þar sem hún bjó yfir 40 ár. Hún
helgaði heimili sínu, eiginmanni
og börnum starfskrafta sína en
þegar þau voru flest komin til
vits og ára hóf hún störf hjá
Garðabæ (Garðahreppi) og enn
voru það börnin sem áttu hug
hennar því þar starfaði hún sem
forstöðukona á gæsluvöllum og
leikskólum Garðabæjar það sem
eftir lifði starfsævinnar.
Útför Ebbu verður gerð frá
Vídalínskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
1976, börn þeirra
eru Daníel Hugi, f.
9.7. 2001 og Birta
Dís, f. 29.12. 2004. c)
Þórunn Arna, f.
17.11. 1983. 2) Ey-
steinn, f. 10.7. 1952,
kvæntur Finnborgu
Laufey Jónsdóttur,
f. 25.12. 1954. Börn
þeirra eru: a) Krist-
inn Jón, f. 6.10.
1975, kvæntur Inger
Rós Jónsdóttur, f.
3.4. 1976. Börn
þeirra eru Alex-
andra Rós, f. 2.7. 2005, d. 2.7.
2005, Sigurrós Elísa, f. 2.7. 2005,
d. 2.7. 2005 og Víkingur Atli, f.
24.8. 2006. b) Axel Þór, f. 15.12.
1979, kvæntur Hildi Gottskálks-
dóttur, f. 13.2. 1978, dóttir þeirra
er Dagný Björt, f. 17.11. 2006. c)
Bjarki Páll, f. 1.4. 1986. d) Eydís
Lilja 15.1. 1993. 3) Sigurbjörn
Kristinn, f. 29.10. 1953, kvæntur
Ingibjörgu Sigurbergsdóttur, f.
6.9. 1947. Synir Sigurbjörns eru:
a) Haraldur Kristinn, f. 27.4.
1975, móðir Gyða Hafdís Mar-
geirsdóttir, sonur hans er Aron
Kristinn, f. 15.7. 2006, móðir Elva
Rakel Sævarsdóttir. b) Kristinn, f.
10.9. 1986, móðir Katrín Jóns-
dóttir. 4) Einar, f. 26.12. 1956,
kvæntur Jóhönnu Kristínu Guð-
bjartsdóttur, f. 9.12. 1959. Börn
þeirra eru: a) Þóra Guðrún, f.
18.5. 1979, gift Jóni Grétari Herj-
ólfssyni, f. 8.8. 1978, dóttir þeirra
er Viktoría Kristín, f. 18.2. 2005,
Elsku tengdamamma.
Fréttin af andláti þínu kom á
óvart. Þegar þú varst lögð inn á
Landspítalann á Þorláksmessu
hafði ég þá trú að það þyrfti bara
að stilla lyfjagjöfina hjá þér eins og
var gert fyrr á árinu. Þegar ég
hugsa til baka eftir að hafa séð þig
við útskriftina hjá Einari Trausta
og þú hafðir ekki treyst þér til að
vera við athöfnina sjálfa, sem var
mjög ólíkt þér, þá fannst mér þú
ekki líta alltof vel út, virtist þreytt,
en á hörkunni komstu til að geta
glaðst með okkur. Innst inni
hvarflaði að mér að þú værir veik-
ari en þú lést uppi. Þú vildir taka
þátt í öllum gleðistundum með
gullmolunum þínum. Veit ég að
Einar Trausti huggar sig við þessa
stund, en það var mjög erfitt fyrir
hann að fá þessa frétt til Tenerife
þar sem hann var með fjölskyldu
unnustu sinnar um jól og áramót.
Ekki var ég mjög gömul þegar
ég kom fyrst á Tjarnarflötina, rétt
nýorðin 16 ára. Fyrstu skiptin var
maður mest inni í herbergi. Ebba
hafði miklar áhyggjur af því að ég
nærðist ekki. Mér var færður mat-
ur inn í herbergi þar til ég þorði að
koma fram og hitta hópinn smátt
og smátt. Var ég fljót að kynnast
öllum og fannst ég vera heppnasta
manneskja í heimi að fá að tilheyra
þessari stórfjölskyldu, ég varð svo
rík að eignast góða tengdamóður
og tengdaföður. Ég er elst fjögurra
systkina en það vantaði mömmu á
heimilið (móðir mín lést þegar ég
var á tólfta ári). Var því gott að
eignast Ebbu sem tengdamóður
sem var boðin og búin til að hjálpa
og ávallt var gott að leita til henn-
ar. Samverustundir okkar hafa
verið margar á stórhátíðum, ætt-
armótum og á merkum tímamótum
í lífi hvers og eins og ekki má
gleyma öllum frábæru ferðunum á
Kirkjuhól, Ísafjörð og nú síðustu
ár í Heydal. Mikið hefur verið
brallað í þessum samverustundum
okkar, spilað, gerðar stíflur á
ströndinni á Kirkjuhóli og farið í
boccia þar á túninu með netakúlum
úr plasti, þeim systkinum hefur
ekki leiðst að búa til keppni öllum
til skemmtunar. Ebba tók þátt í
flestu en hún hafði ást og yndi af
að ráða krossgátur. Stórfjölskyld-
an hefur verið með keilumót Har-
aldar til heiðurs tengdaföður mín-
um um páska sem endar með að
allur hópurinn kemur saman og
borðar, í lokin er farandbikarinn
afhentur.
Ebba hélt vel utan um alla gull-
molana sína þótt hópurinn væri
orðinn stór, fylgdist vel með öllum
(hún hafði oft orð á því hversu rík
hún væri að eiga allan þennan hóp)
og lenti það á henni að fræða okkur
um það helsta þegar við komum í
bæinn. Hún var farin að hvetja
barnabörnin til að vera ekki að
draga það lengur að gifta sig því
henni fannst svo gaman að upplifa
þann dag í lífi þeirra eða bara allar
gleðistundir í lífi þeirra. Ég mun
sakna fallega brossins þíns, hlýja
hlátursins og hins hlýja mjúka
faðmlags þíns. Hafðu þökk fyrir
allt elsku Ebba. Ég kveð þig með
söknuð í hjarta.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þín tengdadóttir
Jóhanna Kristín.
Heima á Ísafirði hangir uppi á
vegg ljósmynd af ungum og mynd-
arlegum hjónum með fríðan barna-
hóp í kringum sig. Þetta er mynd
af Ebbu ömmu og Halla afa. Á
myndinni er hún þrítug, hann fimm
árum eldri og börnin þá orðin sex
talsins. Þau kynntust á Siglufirði
þegar síldarævintýrið var í al-
gleymingi. Afi var við trésmíðanám
á Siglufirði og vann þar við að reisa
síldarverksmiðju. Hann hefur
sennilega ekki verið lengi að reka
augun í fallegustu stúlkuna á síld-
arplaninu en amma var þá sextán
ára. Það fylgir gjarnan sögunni
hvað amma var lagleg, dökk á brún
og brá, og afi mikið glæsimenni.
Það er skemmst frá því að segja að
fljótlega áttu þau von á barni og
amma hleypti þá heimdraganum og
fluttist á heimaslóðir afa, Hjalt-
eyri. Þar hófu þau búskap, korn-
ung, í skjóli foreldra afa.
Þessi fallega saga um kynni
ömmu og afa er í miklu uppáhaldi
hjá mér. Ekki bara vegna þess
hvað hún er rómantísk heldur sýn-
ir hún líka vel hvern mann amma
hafði að geyma. Það hefur þurft
sterk bein fyrir unga stúlku að fara
að heiman og takast á hendur
barnauppeldi og bústang. Það lýsir
henni vel að hafa viljað standa á
eigin fótum og bjarga sér sjálf. Afi
var mikið fjarri heimilinu vegna
vinnu og ábyrgðin á börnum og búi
hvíldi því á ömmu. Amma talaði
samt aldrei um erfiðleika eða basl.
Þvert á móti þá hjálpuðust allir að,
eldri börnin hjálpuðu með þau
yngri og allir lögðust á eitt til að
hlutirnir mættu ganga upp. Þetta
segir líka mikið um ömmu. Allt var
svo auðvelt og vandræðalaust. Hún
leit lífið og tilveruna jákvæðum
augum og fór brosandi í gegnum
lífið. Hún gerði lítið úr vanda-
málum og sigraðist á öllum erf-
iðleikum með bjartsýni og ein-
stakri lífsgleði. Hún var engin
venjuleg amma hún Ebba amma.
Mér fannst hún aldrei verða gömul.
Hún leit út fyrir að vera yngri en
aðrar ömmur, með hrafntinnusvart
hárið og blikandi augun, og hún
var svo sannarlega ung í anda. Hún
talaði alltaf við mig sem jafningja
og kynslóðabil var ekki til á milli
okkar. Hún ferðaðist mikið, fór í
leikhús og kvikmyndahús, fylgdist
með tíðarandanum og elskaði að
vera innan um fólk. Hún hafði oft
sterkar skoðanir á mönnum og
málefnum og lá ekkert á þeim. Hún
hafði líka mikinn húmor, ekki síst
fyrir sér og sínum, og hafði lag á
því að láta fólki líða vel í kringum
sig. Enginn hafði eins góða nær-
veru og Ebba amma. Allt frá því að
ég var lítil stelpa í heimsókn á
Tjarnarflötinni fannst mér svo gott
að vera í kringum hana og gaman
að spjalla við hana. Núna er það að
renna upp fyrir mér hvað hún var
stór partur af tilverunni og hvað
vantar mikið þegar hún er farin.
Ótal minningar skjóta upp kollin-
um, dýrmæt augnablik og sam-
verustundir sem ég vildi að hefðu
orðið miklu fleiri. Ebba amma dó
skyndilega aðfaranótt gamlárs-
dags. Ég var ekki tilbúin að kveðja
hana strax en svona held ég að hún
hefði sjálf viljað hafa það. Hún var
orðin miklu veikari en hún vildi
vera láta en ætlaði ekki að láta það
buga sig. Hún vildi standa á eigin
fótum og það hefði ekki átt við
hana að verða veikari og vanmátt-
ug. Hún kvaddi áður en kirkju-
klukkurnar hringdu inn nýja árið
og sá til þess að við munum hana
eins og hún var. Ebba amma sagði
alltaf að það yrði aldrei nema einn
maður fyrir hana. Nú hittast þau
aftur hún og Halli afi og halda á vit
nýrra ævintýra saman. Einmitt
þannig held ég að hún hafi hugsað
sér það.
Guð geymi þig elsku amma mín
og hafðu þökk fyrir allt.
Þín
Ebba Áslaug.
Amma mín var ofurhetja. Þegar
ég var lítil fannst mér ég svo hepp-
in að eiga svona flotta ömmu, hún
var allt öðruvísi en allar hinar
ömmurnar. Hún amma mín átti
nefnilega sjö börn, var alltaf hlæj-
andi og glöð, notaði aldrei orðið
nei, vann á róló og átti alltaf fullar
skúffur af súkkulaði sem oftast
nær kom frá útlöndum, svo eitt-
hvað sé nefnt. Núna þegar ég er
orðin eldri dáist ég ennþá að ömmu
minni, er með sama glampann í
augunum, en súkkulaðiskúffan og
veraldlegir hlutir hafa fengið að
víkja fyrir öðrum gildum. Ég dáist
að því hvernig hún valdi að lifa líf-
inu, hverig hún barðist fyrir sínu,
hvernig hún þraukaði í gegnum
erfiða tíma án þess að kvarta og
hvernig henni tókst alltaf að sjá
gleðina í öllum hlutum. Á endan-
um, eftir allt þetta ferðalag, stóð
hún uppi sem sigurvegari, sátt við
eigið líf. Það var eins og það væru
engar hindranir sem gætu staðið í
veginum fyrir henni ömmu. Þegar
lífið tók á sig óvænta stefnu heyrði
maður hana aldrei kvarta en þess í
stað var hún ávallt dugleg að
þakka fyrir allar þær gjafir sem líf-
ið hafði gefið henni, hún sá það
bjarta og jákvæða í hverjum hlut.
Þrátt fyrir það hvað fjölskyldan
okkar er stór var faðmur ömmu
alltaf nægilega stór til þess að
faðma allan þennan fjölda að sér og
gefa okkur alla sína ást og gleði.
Hún sparaði aldrei faðmlögin og
kossana, né það að minna okkur á
hversu mikið hún elskaði okkur.
Lífssýn Ebbu ömmu var alveg ein-
stök. Maður lifir bara einu sinni og
það er eins gott að nota lífið sem
okkur var gefið vel og njóta þess á
allan hátt sem maður getur meðan
maður lifir. Þessi boðskapur er
stærsta gjöfin sem hún amma mín
gaf mér og hann hef ég reynt að
taka með mér í gegnum mitt ferða-
lag í lífinu og hann á eftir að fylgja
mér alla tíð.
Ef amma væri ofurhetja í teikni-
mynd þá hefði hún þann eiginleika
að geta fyllt hjörtu fólks af birtu og
gleði bara með því að brosa. Elsku
amma mín ef ég verð amma ein-
hvern daginn þá pant verða alveg
eins amma og þú.
Þín
Þórunn Arna.
Elsku Ebba amma, það voru
blendnar tilfinningar sem fóru um
okkur síðastliðið gamlárskvöld
þegar við kvöddum liðna árið og
tókum á móti því nýja. Sorgmædd
Eufemía Kristinsdóttir
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Rauðuskriðu,
Byggðavegi 137,
Akureyri.
Gestur Hjaltason,
Hulda Gestsdóttir,
Sigurður Gestsson, Kristín Kristjánsdóttir,
Hjalti Gestsson, Aníta Júlíusdóttir,
Sverrir Gestsson, Hrefna Óladóttir,
ömmu- og langömmubörn.
Ég þekkti Indriða
nánast allt hans líf.
Æskuvinur bróður
míns og fjölskyldu-
vinur. Þegar ég
spurði Begga hvort
hann myndi eftir þeirra fyrsta
fundi, leit hann á mig hálf hneyksl-
aður og sagði „Nei, ég var tveggja
eða þriggja!“ Það er mjög líklegt
að þetta hafi verið í sandkassa og
umræðuefnið bíll. Ég var svo
heppinn að kynnast Inda nokkuð
vel síðustu ár þar sem hann var
tíður gestur á heimili okkar
Begga. Ef ég ætti að lýsa Inda
Indriði Ingi
Styrkársson
✝ Indriði IngiStyrkársson
fæddist í Reykjavík 9.
október 1977. Hann
lést 24. desember síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Bú-
staðakirkju 6. janúar.
með nokkrum orðum
þá væru þau hóg-
værð, kurteisi og
hjálpsemi. Það var
ekki annað hægt en
að kunna vel við
manninn. Við eydd-
um ófáum Þorláks-
messum, gamlárs-
kvöldum og
stórafmælum saman
þar sem gleðin var
við völd og þannig vil
ég minnast hans. Ég
vil eigna mér það að
kynna fyrir þeim tónlist gömlu
meistarana Dino, Frank og
Sammy. Það voru góðar stundir
þegar við félagarnir hittumst og
hlustuðum á RatPack „live from
Vegas!“ hlógum hátt á milli laga
með gestunum og upplifðum þetta
einsog við værum á staðnum.
Þetta átti vel við okkur enda gaml-
ar sálir í ungum líkama eða það
héldum við. Indriði var ekki þann-
ig maður að hann kveinkaði sér og
sýndi það allt fram á lokadag.
Hann var ekki maður margra orða
en þegar hann talaði hafði hann
eitthvað að segja. Hjálpsemin við
vini og fjölskyldu var einstök.
Vinátta er eitt það fallegasta
sem gerist á milli manna og ég
þakka þér fyrir hana, Indi minn.
Ég votta fjölskyldu þinni og vinum
samúð mína.
Böðvar Bergsson.
Elsku Ingi.
Ég get ekki trúað því að þú sért
farinn. Mig dreymdi þig svo oft á
síðasta árinu og fannst alltaf eins
og þú myndir komast út úr þessu.
Þó að við höfum ekki sést í nokkuð
mörg ár þá áttir þú greinilega
part af mínu hjarta. Þú varst einn
af mínum fyrstu vinum og held ég
að við höfum kynnst þegar við
vorum ca 2-3 ára. Þú áttir heima á
móti mér í Kvistalandinu og eydd-
um við allmörgum stundunum
saman. Þú varst eini vinur minn
sem ég gat sagt allt og sagði allt.
Ef það voru einhver vandamál
sem komu upp, áttum við yfirleitt