Morgunblaðið - 08.01.2009, Page 35

Morgunblaðið - 08.01.2009, Page 35
hugsuðum við til þess að þú yrðir ekki með okkur áfram og næðir ekki að upplifa 79 ára afmælisdag- inn þinn, hinn 2. janúar. Hvernig yrði eiginlega lífið án þín? Þú hafð- ir svo einstaklega sterka og góða nærveru, frábæra kímnigáfu og stundum örlaði á stríðni sem þó alltaf var meinlaus. Mikið gátum við hlegið oft saman og margar eru þær orðnar stundirnar sem við höf- um átt og deilt með þér í gegnum árin. Þú hafðir svo mikla ást og al- úð að gefa og vildir allt fyrir alla gera. Þú varst inni í öllum málum, varst oft fyrst með fréttirnar og með allt þitt á tæru. Þú sýndir þinni stóru fjölskyldu einstakan áhuga enda var hún stolt þitt og yndi og skemmtilegastar voru þær stundir þegar stórfjölskyldan kom saman, hvort sem það var á Garða- torginu eða á eftirminnilegu ætt- armótunum þar sem þú fórst gjarnan með þeim síðustu í háttinn því ekki vildir þú missa af fjörinu. Þú varst svona nýmóðins amma og langamma, áttir alltaf nýjustu spólurnar og leikföngin, lang- ömmubörnunum til mikillar skemmtunar. Með jákvæðnina í farteskinu tókstu á við raunir lífsins, nú í seinni tíð veikindi Halla afa og frá- fall hans sem og í kjölfarið þín eig- in veikindi en aldrei léstu bilbug á þér finna enda sannkölluð Pol- lýanna út í gegn. Við viljum þakka þér fyrir allt sem þú gafst okkur og kenndir, minningin um dásamlega ömmu og langömmu verður ávallt í hjörtum okkar geymd. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Við kveðjum þig elsku amma eins og þú kvaddir okkur alltaf þegar þú sagðir: „Ég elska ykkur öll.“ – Við elskum þig líka. Þín Magnús, Anna Rún, Daníel Hugi og Birta Dís. Ebba, kær vinkona, er öll. Ebba var ein sú jákvæðasta manneskja er ég hef hitt um dagana, alltaf kát og glöð sama hvað bjátaði á. Við fórum saman í ferðalag til Borgundarhólms í maí 2004. Þar áttum við góðar stundir í yndislegu umhverfi ásamt fleira góðu fólki. Einnig minnist ég allra fundanna hjá kvenfélagi Garðabæjar, Ebba alltaf sparibúin og glöð. Ebba var alltaf á leiðinni í heim- sókn til mín, „… kem í næstu viku“, sagði hún er við hittumst síðast, vongóð um að sér liði betur þá. Ég sendi börnum hennar og ætt- ingjum mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Far þú í friði, Ebba mín. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Ásta Hávarðardóttir. Minningar 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 ✝ Ragnheiður Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 12. mars 1926. Hún lést á Landspít- alanum 2. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Sigríð- ur Vilhjálmsdóttir frá Húnakoti í Þykkvabæ, f. 16.1. 1885, d. 7.2. 1981, og Guðmundur Krist- jánsson frá Borg- artúni í Þykkvabæ, f. 23.6. 1882, d. 23.7. 1950. Systkini Ragnheiðar voru Sigurður Kristinn, f. 28.1. 1910, d. 30.10. 1981, Guðbjörg Hulda, f. 22.10. 1914, d. 2.2. 1998, Jón, f. 17.6. 1919, d. 30.12. 2002, Krist- jana Vilhelmína, f. 20.10. 1927, d. 27.6. 2008, og Guðmundur Rafn, f. 19.9. 1929, d. 15.9. 2003. Ragnheiður giftist 28. mars 1959 Jóhannesi Vilhelm Hansen Ólafssyni frá Akranesi, f. 1.9. 1922, d. 7.6. 2007. Sonur Ragn- heiðar og Jóhanns Magnússonar f. 10.11. 1988. 2) Sigríður Jó- hannesdóttir, f. 10.11. 1958. Maki Ronald Alexander Miller, þau skildu. Börn þeirra eru: a) Jó- hannes, f. 22.2. 1982, b) Christina, f. 10.11. 1988, sam- býlismaður Ágúst Bjarnason, f. 23.3. 1984, og c) Andri, f. 30.12. 1991. 3) Jón, f. 30.5. 1961, maki Heiða Björk Norðdahl, f. 8.11. 1962. Börn þeirra eru: a) Sal- björg Þóra, f. 17.9. 1983, sam- býlismaður Atli Þór Ásgeirsson, f. 15.1. 1985, dóttir þeirra er Katla, f. 2008, og b) Matthías Ás- geir, f. 5.11. 1992. Ragnheiður vann ýmis störf á sínum yngri árum, m.a. í Fé- lagsprentsmiðjunni og einnig við verslunarstörf hjá tengdaföður sínum Ólafi Jóhannessyni. Hún starfaði um árabil hjá Póstinum í Hafnarfirði en síðasti vinnu- staður hennar var Droplaug- arstaðir. Ragnheiður og Jóhann- es hófu búskap á Grundarstíg í Reykjavík og fluttu síðan til Þor- lákshafnar þar sem þau áttu heima í nokkur ár. Árið 1964 fluttu þau til Hafnarfjarðar, þar sem þau bjuggu lengst af. Síðustu árin bjuggu þau á Sólvangsvegi 1. Ragnheiður verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 13. frá Tálknafirði, f. 7.6. 1927, d. 5.8. 1952, er Guðmundur, f. 30.1. 1950, kvænt- ur Herdísi Sig- urjónsdóttur, f. 10.2. 1949. Dætur þeirra eru: a) Ragnheiður, f. 11.4. 1970, gift Sigtryggi Klemenz Hjartar, f. 30.7. 1970, börn þeirra eru Hjörtur Páll, f. 10.9. 1993, Herdís Helga, f. 1995, og Halldór Klemenz, f. 2000. b) Kristín, f. 12.11.72. Börn Ragnheiðar og Jóhannesar eru: 1) Ólafur Davíð Stefán, f. 30.6. 1957, kvæntur Guðnýju Haraldsdóttur, f. 22.2. 1957. Börn þeirra eru: a) Davíð Örvar, f. 20.2. 1977, sonur hans og Sunnu Dísar Magn- úsdóttur er Dagur Óli, f. 7.7. 2997. Sonur Davíðs og Hildar Árnadóttur, sambýliskonu hans, er Haraldur Breki, f. 17.10. 2008. Dætur Hildar eru Valdís Bríet og Melkorka, f. 23.9. 2002. b) Guðný, Í dag er borin til moldar tengda- móðir mín, Ragnheiður Guðmunds- dóttir, 82 ára gömul og var því af þeirri kynslóð kvenna sem sinntu börnum og búi auk þess að vera úti- vinnandi. Hún átti því ekki margar frístundir fyrr en börnin fimm voru farin að heiman. Hún hélt þá áfram að hafa fjölskylduna í fyrirrúmi og átti endalaust af hjálpsemi og um- hyggju, allir skyldu hafa nóg að borða og öllum átti að vera hlýtt. Þetta átti líka við um þá sem bjuggu tímabundið erlendis, þar sem lofts- lagið var þó hlýrra, þeir fengu samt send teppi, hlýjar flíkur og eitthvað matarkyns. Hún bað mig sérstaklega um að passa að hann Óli sinn fengi nóg að borða þegar við fórum að búa saman. Í þau þrjátíu ár sem ég þekkti hana gaf hún sér þó alltaf tíma í bók- lestur, ævisögur, ljóðabækur og bækur um trúarleg efni eða ættfræði voru alltaf við höndina, svo og guðs- orðið. Biblían var í sérstöku uppá- haldi, í henni var lesið daglega, enda átti hún þær margar, sumar lúnar af lestri, undirstrikaðir kaflar eins og í námsbókum. Síðustu dagana var hún að bera saman texta í nýjustu útgáf- unni við eldri útgáfur. Við barna- börnin sín átti hún gott samband, hverju og einu þeirra fannst þau vera í sérstöku uppáhaldi og nutu umhyggju hennar og hlýju. Ammsa, við kölluðum hana aldrei annað, full- orðna fólkið ekki heldur, var einlæg- ur aðdáandi þeirra allra, hún átti hrós og falleg orð handa þeim öllum. Það var alltaf gaman að spjalla við hana og heyra frásagnir hennar af lífinu í Reykjavík þegar hún var ung. Mannlýsingarnar voru bestar, hún mundi eftir svo mörgum skemmti- legum karakterum og hún var ótrú- lega minnug á löngu liðin atvik og jafnvel samtöl. Nú sér maður mest eftir að hafa ekki skráð eitthvað af þessu niður, því ekki man ég helm- inginn af sögunum núna, en minn- ingin um þessar samverustundir er allavega góð. Síðasta árið var henni erfitt vegna heilsubrests, hún sagðist verða hvíldinni fegin og ég öfunda hana af hve trúin virtist gera henni allt létt- bærara. Þessi jólin gaf hún öllum ljóðabók Páls Ólafssonar, þar fann ég ljóðið Kvöldbæn og læt fylgja með. Styttu, draumadrottinn, mér dimmar vökunætur úr því fást hjá einum þér allra meina bætur. Hjá þér öllu get ég gleymt, gremju og raunum hrundið og til sælli daga dreymt og dáinn ástvin fundið. Skyldi Ástu minnar mynd mér fyrir sjónir bera mig að vekja er mesta synd, það máttu ekki gera. Nú um lúið líf og önd leggðu mjúka arma og þrýstu hægt með þýðri hönd á þreytta sjónarhvarma. Guð geymi þig. Guðný Haraldsdóttir. Elsku ammsa. Við þökkum þér fyrir tímann sem við fengum með þér, þú varst alltaf svo góð við okkur. Það var gaman að fá þig í heim- sókn til okkar til Danmerkur. Það var svo skemmtilegt að elda fyrir þig því þú varst alltaf svo glöð og þakklát fyrir allt sem við gerðum fyrir þig. Þú varst alltaf svo dugleg að baka fyrir okkur og gerðir bestu pönnsur í heimi. Við eigum eftir að sakna þín mjög mikið. Langömmubörnin þín, Hjörtur Páll, Herdís Helga og Halldór Klemenz. Elsku ammsa. Við þökkum þér fyrir allt það sem þú hefur kennt okkur, leynt eða ljóst. Þú sagðir hlutina ávallt eins og þeir voru. Það má segja að þú hafir verið okkar fyrsti vinnuveitandi. Þú kenndir okkur röggsemi og ábyrgð þegar við hlupum á eftir þér um göt- ur Hafnarfjarðar við póstútburðinn, í öllum veðrum og vindum. Þú lést okkur óspart heyra það ef þér fannst skrefin vera hæg. En í lok dags upp- skárum við ávallt árangur erfiðis. Ósjaldan vorum við í pössun hjá þér, þar sem þú sinntir okkur af alúð. Þú kenndir okkur ófáar bænirnar og ljóðin sem við þuldum saman. Við minnumst sunnudagssteikar- innar og alls sem því fylgdi. Þú bak- aðir heimsins bestu pönnsur og gast alltaf dregið fram bakkelsi þegar við birtumst óvænt. Þú opnaðir ávallt heimilið þitt fyr- ir okkur, hvar og hvenær sem var og fengum við ósjaldan að gista hjá þér í lengri eða skemmri tíma á unglings- árunum. Þú bjóst yfir hlýju og væntum- þykju fyrir okkur öllum og alltaf var gaman að tala við þig. Það leyndi sér ekki hvað þú varst stolt af okkur barnabörnunum og langömmubörn- unum þínum. Elsku ammsa, við kveðjum þig í hinsta sinn og þökkum aftur fyrir allt það sem þú hefur gefið okkur. Ragnheiður og Kristín. Ragnheiður Guðmundsdóttir ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SKÚLI AXELSSON frá Bergsstöðum, Miðfirði, sem lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi á nýársdag, verður jarðsunginn frá Melstaðarkirkju laugar- daginn 10. janúar kl. 14.00. Árný Kristófersdóttir, Jónína Skúladóttir, Níels Ívarsson, Axel Skúlason, Erna Stefánsdóttir, Guðmundur Rúnar Skúlason, Hrafnhildur Svansdóttir, Elín Anna Skúladóttir, Ari Guðmundur Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HARALD M. ÍSAKSEN rafvirkjameistari, Blásölum 13, Kópavogi, lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 6. janúar. Ingibjörg Þorgrímsdóttir, Guðbjörg Conner, Hagerup Ísaksen, Guðríður Helga Benediktsdóttir, Guðríður H. Haraldsdóttir, Steinþór Haraldsson, Þorgrímur Ísaksen, Kristín Erla Gústafsdóttir, Margrét Haraldsdóttir, Ágúst H. Sigurðsson, Harald H. Ísaksen, Kolbrún A. Sigurðardóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, FJÓLA HELGADÓTTIR, Aðalstræti 22, Bolungarvík, lést á Heilbrigðisstofnun Bolungarvíkur sunnu- daginn 4. janúar. Útförin fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn 12. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna. Helgi Jónsson, Ásdís Valdimarsdóttir, Kristinn Helgason, Hafsteinn Helgason, Jón Bergþór Helgason. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, unnusta, dóttir, systir og amma, FREYJA SIGURÐARDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Burknavöllum 17b, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstu- daginn 9. janúar kl. 13.00. Birna Sólveig Ragnarsdóttir, Sæmundur Árnason, Hulda Rut Ragnarsdóttir, Zbigniew Waldimar Prochera, Einar Ólafur Sigurjónsson, Birna Guðfinna Þorsteinsdóttir, Magnús Sigurðsson, Gunnfríður Sigurðardóttir, Þorgerður Arndal Sigurðardóttir og barnabörn. bæði við þau vandamál að stríða og gátum því rætt þau og þú veist alveg hvað ég er að tala um. Við vorum líka yfirleitt kölluð „kær- ustuparið“, en okkur fannst það nú ekkert fyndið. Mig langar til að rifja eina skemmtilega sögu upp, mér fannst hún reyndar ekkert svo skemmtileg þegar hún gerðist. Mamma mín og pabbi voru í út- löndum og amma mín var að passa mig. Við fórum bak við skóla að leika okkur við lækinn en í þessum læk var altaf mikil drulla. Þér datt allt í einu í hug að vera rosalega fyndinn og ýttir mér út í lækinn og ég sökk upp fyrir miðju í drullu. Þú þurftir að hafa þig allan við að hjálpa mér upp úr og ég hljóp svo grátandi heim. Eftir á var þetta ofsalega fyndið og við urðum aftur vinir innan klukku- tíma. Ingi, guð blessi þig. Þín verður sárt saknað. Laila, Alfreð, Sigurður og fjöl- skyldur, megi guð vera með ykkur á þessari sorgarstund. Vona að þér líði betur núna. Þín æskuvinkona Kristín Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.