Morgunblaðið - 08.01.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
BOÐAÐAR breytingar heilbrigð-
isráðherra á skipan heilbrigðisþjón-
ustu í landinu hafa strax vakið hörð
viðbrögð stjórnenda og starfsfólks
heilbrigðisstofnana, sem og fleiri
hópa. Ráðherra kynnti breytingarnar
í gær en vegna skipulagsbreytinga
þarf að skera niður um 1,3 milljarða
króna. Alls þarf heilbrigðisráðuneytið
að hagræða í heilbrigðiskerfinu um
6,7 milljarða króna frá upphaflegu
fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2009.
Heildarútgjöld ársins eru áætluð um
116 milljarðar króna.
Ekki var upplýst á fundi með
fréttamönnum hve starfsfólki mun
fækka mikið með breytingunum en
ljóst má vera að þær munu snerta
fjölmarga, einkum stjórnendur.
Hlutirnir munu gerast hratt á
næstunni. Stjórnendum stofnana er
ætlað að útfæra breytingar og til-
færslur starfsfólks með skipan vinnu-
hópa. Er þeim ætlað að skila útfærslu
til heilbrigðisráðherra fyrir 19. jan-
úar nk. Sameiningar stofnana eiga að
hafa tekið gildi 1. mars nk. en alls
mun stofnunum fækka úr 22 í 6.
St. Jósefs nú öldrunarstofnun
Helstu breytingar eru þær að St.
Jósefsspítali í Hafnarfirði leggst nið-
ur í núverandi mynd og er honum
ætlað að taka að sér öldrunarlækn-
ingar og hvíldarinnlagnir. Sérfræð-
ingum og fagfólki spítalans, sem hafa
gert skurðaðgerðir, verður boðið að
byggja upp skurðstofurekstur í nýrri
aðstöðu á Suðurnesjum en meltingar-
sjúkdóma- og lyflækningadeild flyst
til Landspítalans. Landspítalinn mun
taka yfir skurðstofurekstur á Selfossi
og þar verða vaktir á skurðstofum
lagðar af, sem og í Keflavík. Alls eiga
þessar breytingar á suðvesturhorn-
inu að skila um 750 milljóna króna
hagræðingu eða niðurskurði.
Helstu breytingar á landsbyggð-
inni eru þær að heilbrigðisstofnanir
og heilsugæslustöðvar verða samein-
aðar í eina í hverju heilbrigð-
isumdæmi, líkt og kom fram í Morg-
unblaðinu í gær. Er þeim breytingum
ætlað að spara 550 milljónir króna.
Ráðherra lagði á það áherslu á
fundi með fréttamönnum í gær að
ekki aðeins breytt efnahagsástand
hefði kallað á hagræðingu í heilbrigð-
iskerfinu. Vinna hefði staðið yfir í
ráðuneytinu um skipulagsbreytingar
undanfarna mánuði, eða allt frá því að
ný lög um heilbrigðisþjónustu tóku
gildi haustið 2007.
Gjöldin hefðu hækkað meira
Hefði ekkert verið aðhafst, og engu
breytt, myndi það hafa bitnað af full-
um þunga á notendum heilbrigð-
isþjónustu með enn meiri greiðslu-
þátttöku en verið hefur. Með
breytingunum sagði Guðlaugur Þór
að verið væri að færa til verkefni og
auka sérhæfingu á sumum stöðum.
Stjórnsýslan yrði jafnframt einfölduð
verulega.
Stofnunum fækkað í sex
Heilbrigðisráðherra boðar gjörbreytta stjórnun heilbrigðisstofnana í landinu Spara á um 1,3 millj-
arða króna með skipulagsbreytingum St. Jósefsspítali í Hafnarfirði lagður niður í núverandi mynd
! "#
$
%
&
%
&
%
&
'
&
(
) #&
*+
,* * *
- (* *( .
&
)/ * * * * * ** * * &
)% * * * ,*
* *
0*1 ) 0*1# * *
,*
* *" **/
#
& * * #*2334
* 0
/
*
*5
/ **"0
/
& 6
5*&0 7
&0* *&
0 8
9
*
5*
5
* *:
;*
! "
# $$%
&' '!
Í HNOTSKURN
»Yfirstjórn allra heilbrigð-isstofnana og heilsugæslu-
stöðva á Vesturlandi færist til
Akraness og á Norðurlandi til
Akureyrar.
»Stjórnunin í Vest-mannaeyjum og á Höfn
færist til Selfoss.
»Heilbrigðisstofnun Pat-reksfjarðar sameinast
nýrri Heilbrigðisstofnun Vest-
fjarða á Ísafirði.
»Auka á samstarf milli Heil-brigðisstofnunar Austur-
lands og nýrrar Heilbrigð-
isstofnunar Norðurlands á
Akureyri.
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra segir
í samtali við Morgunblaðið, aðspurður, að samfara boð-
uðum breytingum á heilbrigðisstofnunum verði haldið
áfram að hagræða í yfirstjórn heilbrigðismála.
„Við höfum verið að skera niður og munum halda því
áfram. Það verður öllum steinum velt við, hvort sem það
er í yfirstjórn eða eftirlitsstofnunum.“ Guðlaugur Þór
segist vel skilja starfsfólk heilbrigðisstofnana og áhyggj-
ur þess, óvissa sé aldrei góð. Varðandi gagnrýni starfs-
fólks St. Jósefsspítala og þingmanna á skort á upplýs-
ingum segir hann að ekki sé hægt að halda öðru fram en að málið hafi
verið unnið eins hratt og mögulegt var. Aðeins séu sex virkir dagar síðan
fjárlögin voru samþykkt. „Við munum kynna þetta áfram fyrir þeim að-
ilum sem hagsmuna eiga að gæta,“ segir heilbrigðisráðherra sem mun eiga
fund með heilbrigðisnefnd Alþingis á morgun. Hann segir það ekki hafa átt
að koma þingmönnum í nefndinni á óvart að heilbrigðisstofnanir yrðu sam-
einaðar og verkefni flutt til milli stofnana og landshluta.
Öllum steinum verður velt við
BJÖRN Zoëga, starfandi forstjóri Landspítalans, segir
ljóst að starfsemi spítalans muni aukast á vissum sviðum,
eins og skurðaðgerðum og fæðingum. Hægt verði að ná
meiri hagkvæmni vegna stærðaráhrifanna.
„Skortur hefur verið á starfsfólki hjá okkur og við
þekkjum vel margt af því ágæta fólki sem unnið hefur á
St. Jósefsspítala. Sumir læknarnir hafa unnið hjá okkur
líka, þó að það eigi ekki við um hjúkrunar- og umönn-
unarfólk,“ segir Björn sem reiknar með að Landspít-
alinn ráði til sín fólk af St. Jósefsspítala. Starfsfólki
Landspítalans geti því fjölgað af þeirri ástæðu eingöngu, en unnið verði að
hagræðingu á ýmsum öðrum sviðum á spítalanum.
Ráða fólk frá St. Jósefsspítala
ÁRNI Sverrisson, forstjóri St. Jósefsspítala, segir mörg-
um spurningum enn ósvarað um breytingarnar á spít-
alanum. Skiljanlega sé uggur og ótti í hans fólki. Um-
ræðan hafi skapað vaxandi óróleika en þegar
staðreyndir liggi betur fyrir verði hægt að ræða efn-
islega og faglega við starfsfólk á næstu dögum og vik-
um. Árni telur að skipta megi starfsmönnum í fjóra
hópa. Í fyrsta lagi þá sem fari til Keflavíkur, í öðru lagi
þá sem verði áfram á St. Jósefs, í þriðja lagi þá sem
hugsanlega velji að hætta og leita sér að nýrri vinnu og í
fjórða lagi þá sem mögulega verður sagt upp störfum. Enn sé ekki vitað
hve mörgum þarf að segja upp, það komi betur í ljós eftir 19. janúar nk.
Mörgum spurningum ósvarað
ELSA B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, segir í sérstöku ávarpi til fé-
lagsmanna að breytingarnar muni reyna mjög á hjúkr-
unarfræðinga og aðra heilbrigðisstarfsmenn við að
tryggja áframhaldandi góða þjónustu um allt land við
mikið breyttar aðstæður. Sameining stofnana muni einn-
ig leiða til þess að fjöldi stjórnenda í hjúkrun muni missa
stöður sínar. Elsa spyr sig jafnframt hvað verði um þann
mannauð sem sé á St. Jósefsspítala, þar hafi verið rekin
metnaðarfull starfsemi. Hún gagnrýnir heilbrigðisyf-
irvöld fyrir að hafa gefið fyrirmæli um hvar fyrst skuli skera niður. Nið-
urskurðurinn komi því mjög misjafnlega niður á sjúklingum og starfsfólki.
Reynir á hjúkrunarfræðinga
UM 50 af 140 starfsmönnum St. Jósefsspítala komu á
Nordica Hilton hótelið, þar sem heilbrigðisráðherra
kynnti breytingarnar. Mikil óánægja er á spítalananum
með vinnubrögð ráðherra og boðaðar breytingar. Hef-
ur Guðlaugur Þór boðað starfsfólkið til fundar við sig í
dag. Sveinn G. Einarsson, yfirlæknir á svæfingadeild,
sagði starfsfólkið vera sárt. Unnið hefði verið að þessu
í mikilli leynd. Verið væri að leggja niður góðar og af-
kastamiklar skurðdeildir og flytja þær til Keflavíkur.
„Þetta er ekki hagræði heldur hagsmunapólitík,“ sagði
Sveinn. Benedikt Sveinssyni kvensjúkdómalækni, sem
unnið hefur í 17 ár á St. Jósefs, leist illa á áformin. Frá-
bært og samhæft starfsfólk væri á spítalanum sem nú
ætti að sundra. Kristín Ólafsdóttir deildarstjóri tók
undir það. Stór hópur sjúklinga væri líka óttasleginn.
„Þetta er hagsmunapólitík“
Morgunblaðið/Golli
Mótmælt Guðlaugur Þór Þórðarson ræddi við starfs-
fólk St. Jósefsspítala og boðaði það til fundar í dag.
GUNNAR K. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigð-
isstofnunar Vestmannaeyja, kvaðst í gær ekki vita hvað
fælist í áformum um sameiningu heilbrigðisstofnana á
Suðurlandi nema að sameina ætti yfirstjórnir þeirra.
„Mest af þeirri samþættingu sem á að ná fram á ekki
við um okkur. Hvorki samvinna um rannsóknarstöður,
sjúkraflutninga né vitjanir heilsugæslulækna. Það er
ljóst að 11 km af sjó milli lands og Eyja gera það erfitt.
Bestu samgöngur okkar eru við Reykjavík og engar
samgöngur við Selfoss,“ sagði Gunnar. Bæjarstjórn
Vestmannaeyja ætlar að óska eftir viðræðum við heilbrigðisráðuneytið um
að taka við rekstri heilbrigðisstofnana í Eyjum. gudni@mbl.is
Samþætting á ekki við Eyjar
FJÖLMENNUR starfsmannafundur Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, sem
haldinn var í gær, átaldi harðlega vinnubrögð við kynningu og innleiðingu
fyrirhugaðra breytinga á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar og undraðist
þann mikla hraða sem er á málinu. Lítill tími sé gefinn til samráðs þar eð
vinnuhópar eigi að skila tillögum sínum 19. janúar.
„Í ljósi fyrri reynslu af sameiningu heilbrigðisstofnana setjum við fram
efasemdir um fjárhagslegan ávinning af fyrirhugaðri sameiningu á Norð-
urlandi. Um er að ræða gríðarlega stórt landsvæði, miklar vegalengdir og
óáreiðanlegt veðurfar. Við höfum miklar áhyggjur af gæðum þjónustu og
öryggi skjólstæðinga á okkar svæði. Við teljum að áform um að fækka
sjúkradeildum og vaktsvæðum geti aukið kostnað fyrir sjúklinga og dregið
úr öryggi þeirra,“ segir m.a. í samþykkt fundarins. gudni@mbl.is
Efast um fjárhagslegan ábata