Morgunblaðið - 08.01.2009, Side 8
ÁTVR lokar
vínbúð í
Spönginni
Morgunblaðið/Kristinn
ÁTVR hefur ákveðið að loka Vín-
búðinni í Spönginni í Grafarvogi í
Reykjavík og tekur lokunin gildi
frá og með 19. janúar. Allir fast-
ráðnir starfsmenn munu flytjast yf-
ir í aðrar verslanir. Fleiri lokanir
eru ekki áformaðar.
Meginástæða þess að Vínbúðinni
í Spönginni er lokað er að rekstur
hennar hefur verið undir vænt-
ingum síðustu árin, segir á vef
ÁTVR. Leigusamningur um hús-
næðið rann út um áramótin og var
ákveðið að framlengja hann ekki.
Húsnæðið hafi verið óhentugt og
leitað verði eftir hentugra húsnæði
á svæðinu þegar aðstæður leyfa.
sisi@mbl.is
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
ALLIR 12 sjúklingarnir af hjúkrunardeildinni
Seli við Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA) hafa nú
verið fluttir á öldrunardeild stofnunarinnar í
Kristnesi, 10 km sunnan Akureyrar. Nokkrir
fóru þangað í fyrradag og þeir síðustu í gær,
sumir með tárin í augunum, að sögn starfs-
manna.
Forráðamenn FSA tilkynntu um fyrirhug-
aðar breytingar í lok nóvember og var þeim þá
mótmælt, bæði af starfsfólki og aðstendendum
sjúklinga.
Talið er að 100 milljónir króna sparist með
því að færa fólkið á Kristnes en að sögn for-
stjóra FSA á sínum tíma tengjast breyting-
arnar ekki þeim niðurskurði í heilbrigðiskerf-
inu sem rætt er um þessa dagana, heldur benti
hann á að í framtíðarsýn spítalans væri gert
ráð fyrir því að hjúkrunardeildir yrðu ekki
reknar í húsnæði stofnunarinnar á Akureyri.
Flest herbergi höfðu verið tæmd þegar
blaðamaður kom við í Seli í gær, en persónu-
legir munir nokkurra sjúklinga voru enn á
staðnum. Dætur eins þeirra, sem voru að
sækja eigur föður síns, sögðust hryggar. Ljóst
væri að heimsóknir til gamla mannsins yrðu
öðruvísi en áður; hingað til hefði sú sem býr á
Akureyri gjarnan komið við í Seli á leið heim
úr vinnu, en nú yrði meira mál að fara í heim-
sókn. Þá hefði verið mikill kostur hve Sel væri
lítið, andrúmsloftið heimilislegt og starfsfólkið
yndislegt. Ekki væri verið að kasta rýrð á
starfsfólk í Kristnesi með gagnrýninni á breyt-
ingarnar heldur „nauðungarflutninga“ og að
hver og einn fengi ekki sérherbergi. Fólkið
virtist þó æðrulaust og segðist verða að taka
því sem að höndum bæri. Margir sjúklinganna
voru kvíðnir, að sögn starfsmanns sem blaða-
maður ræddi við.
Sumir kvöddu með tárin í augunum
Sjúklingarnir tólf eru farnir af Seli inn á Kristnes, þrír verða áfram í einbýli Hundrað millj-
ónir króna sparast vegna breytinganna Ný geðdeild FSA tekur til starfa í Seli næsta haust
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tómlegt Persónulegir munir sumra sjúklinga voru enn á Seli í gær en flest herbergin voru tóm.
Í HNOTSKURN
»Ráðgert er að nota húsnæðið í Seli,sem er á lóð FSA, fyrir nýja og
sameinaða göngudeild og dagdeild
geðdeildar stofnunarinnar sem taka á
til starfa í haust
»Allir sjúklingarnir voru í einbýli áSeli, þrír fá sambærilega aðstöðu í
Kristnesi.
»Tólf af rúmlega 30 starfsmönnum íSeli hafa fengið vinnu í Kristnesi,
nokkrir á dvalarheimilinu Hlíð á Ak-
ureyri, nokkrir fara á aðrar deildir
FSA en fáeinir starfsmenn hafa ekki
enn fengið aðra vinnu.
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
SAMKEPPNISEFTIRLIT gerði í
gærmorgun húsleit í höfuðstöðvum
fjarskiptafyrirtækjanna Teymis,
Tals og Vodafone. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Samkeppniseftirlitinu
var leitin liður í rannsókn á því hvort
brotið hefði verið gegn skilyrðum
sem sett voru fyrir sameiningu Hive
og Sko, sem nú starfa undir merkj-
um Tals.
Skilyrðin miðuðu að því að tryggja
samkeppnislegt sjálfstæði Tals og að
full og óskoruð samkeppni ríkti á
milli m.a. Tals og Vodafone, sem er í
eigu Teymis. Þá miðar rannsóknin
einnig að því að kanna hvort Tal og
Vodafone hafi haft með sér samráð á
markaði.
Í dómsúrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur kemur fram að Sam-
keppniseftirlitið hafi grun um að
Teymi hafi ætlað að reka Tal í þrot
með ólöglegum hætti til að tak-
marka samkeppni á markaði. Auk
þess taldi eftirlitið að grunur léki á
því að lög hefðu verið brotin við gerð
þjónustusamnings milli Vodafone og
Tals sem gerður var í fyrra.
Þórdís Sigurðardóttir, stjórn-
arformaður Teymis, sendi í gær frá
sér yfirlýsingu þar sem því er vísað á
bug að fyrirtækið hafi brotið sam-
keppnislög. Til staðfestingar þess,
að Teymi hafi ekki viljað keyra Tal í
þrot, segir Þórdís í tilkynningu að
Teymi hafi lagt umtalsverða fjár-
muni inn í Tal í október í fyrra til
þess að bjarga félaginu. Þetta hefði í
raun bjargað félaginu.
Þá er því enn fremur hafnað að
ekki hafi verið farið eftir þjónustu-
samningi sem væri í gildi milli Tals
og Vodafone. Byggist samningurinn
meðal annars á afnotum Tals af fjar-
skiptakerfi Vodafone, þar sem Tal á
ekki slíkt kerfi. „Þeir sérfræðingar
sem Teymi leitaði til fyrir undirritun
samningsins töldu ótvírætt, að
samningurinn samræmdist fyllilega
þeim skilyrðum sem Samkeppniseft-
irlitið setti samrunanum. Stjórn
Teymis tekur undir þá skoðun, enda
var málið kannað ítarlega áður en
umræddur samningur var gerður,“
segir Þórdís í tilkynningu.
Forsvarsmenn Vodafone fögnuðu
aðgerðunum og sögðu virka sam-
keppni á fjarskiptamarkaði vera
grundvallarforsendu í rekstri Voda-
fone. „Án slíkrar samkeppni væri
fyrirtækið ekki til og rannsókn Sam-
keppniseftirlitsins mun staðfesta að
fjarskiptafyrirtækin á Íslandi eiga í
harðri samkeppni,“ sagði í tilkynn-
ingu frá Vodafone vegna húsleit-
arinnar. Kveikja rannsóknar eft-
irlitsins var kvörtun Símans vegna
gruns um að þjónustusamningur
Tals og Vodafone fæli í sér lögbrot.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Málin rædd Árni Pétur Jónsson, forstjóri Vodafone, sést hér í viðtali við RÚV-sjónvarp í gærmorgun, skömmu eftir húsleit Samkeppniseftirlitsins.
Rannsaka meint samráð
Samkeppniseftirlitið gerði húsleit í höfuðstöðvum Teymis, Tals og Vodafone
Ekkert ólöglegt við starfsemina segja forsvarsmenn Teymis og Vodafone
RANNSÓKN á láti 38 ára karl-
manns í sumarbústað í Grímsnesi
aðfaranótt 8. nóvember sl. er á
lokastigum. Málið verður að öllum
líkindum sent ríkissaksóknara fyrir
lok mánaðarins. Ákæra verður gef-
in út í kjölfarið en óvíst er hversu
margir verða ákærðir. Einn karl-
maður situr enn í gæsluvarðhaldi
vegna málsins og þrír einstaklingar
eru í farbanni.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Selfossi leikur grunur á
að maðurinn sem sætir varðhaldi
hafi veitt hinum látna áverka sem
leiddu til dauða hans. Sá hefur ját-
að að hafa átt í átökum við hinn
látna en neitar að öðru leyti sök.
Aðrir sem að málinu komu kynnu
að verða ákærðir fyrir brot á 221.
gr. almennra hegningarlaga. Þar
segir: „Láti maður farast að koma
manni til hjálpar, sem staddur er í
lífsháska, þótt hann gæti gert það
án þess að stofna lífi eða heilbrigði
sjálfs sín eða annarra í háska, þá
varðar það [...] fangelsi allt að 2 ár-
um.“ andri@mbl.is
Rannsókn
manndráps á
lokastigum
Hvað leiddi til húsleitar
Samkeppniseftirlitsins?
Haft var eftir Þórdísi Sigurðardóttur,
stjórnarformanni Teymis, í fjölmiðlum
að Tali væri óheimilt að ganga til
samninga við önnur fyrirtæki en
Vodafone í fimm ár. Þetta töldu for-
svarsmenn Símans fara gegn sam-
keppnislögum og kærðu í kjölfarið.
Hver er forsagan?
Atburðarásin fór af stað með því
að Hermann Jónasson, forstjóri
Tals, var rekinn á gamlársdag fyrir
að ganga frá samningi við Símann
um notkun á fjarskiptakerfi. Jó-
hann Óli Guðmundsson, stjórn-
armaður í Tali, var mjög ósáttur
við það.
S&S