Morgunblaðið - 08.01.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009
Vinstri menn halda því fram að efútsvar sveitarfélaga er ekki í há-
marki séu „tekjustofnar vannýttir“.
Þeir sem aðhyllast frekar hóflegtríkisvald kalla það að lágmarka
álögur sem lagðar eru á herðar fjöl-
skyldna í landinu.
Þessi munurkristallaðist
meðal annars í
viðtali við Svan-
dísi Svavars-
dóttur, borg-
arfulltrúa Vinstri
grænna, í tíu-
fréttum Sjón-
varpsins í fyrrakvöld.
Þá var fjárhagsáætlun Reykjavík-urborgar til umræðu. Hanna
Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri
hefur barist fyrir því að A-hluti
borgarsjóðs verði hallalaus, útsvar
óbreytt og fasteignaskattar hækk-
aðir.
Svandís vill hins vegar að borginhirði eins mikið og hægt er af
launum borgarbúa. Hún vill fullnýta
útsvarið.
Þar gætum við átt 680 milljónirkróna í tekjur sem Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur bara svona rétt
eins og hægri flokkar yfirleitt gera
ekki viljað nýta, það er svona rétt
eins og gert er í Garðabæ og eins og
gert er á Seltjarnarnesi,“ sagði
Svandís í sjónvarpsfréttum.
Vondu sjálfstæðismennirnir í
Reykjavík eru að berjast við að
halda álögum á borgarbúa í lág-
marki eins og tekist hefur í Garðabæ
og Seltjarnarnesi.
Á Svandísi má skilja að fólkið sjálfteigi ekki þessa peninga heldur
stjórnmálamenn. Á máli skatt-
heimtumanna er þetta kallað „van-
nýttir tekjustofnar“.
Svandís
Svavarsdóttir
Vinstri menn og vannýttar tekjur
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
#
$
#
#
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
%
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
" % ! % " " "
*$BC
! " # $
*!
$$B *!
&
' (
'#
)
<2
<! <2
<! <2
&
(*
+
,- .
2
D
*
B
%
"
% &'
(
)
*
/
+ % ,
"
&'
" - "
. . // % ! %
%
<7
" 0
$
1 (
2'
/0 11
2#
*
+
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
FARÞEGUM sem fóru um
Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar á Keflavíkur-
flugvelli fækkaði um 8,8%
árið 2008 miðað við 2007,
eða úr 2.182.232 farþeg-
um í 1.990.476 farþega.
Farþegum til og frá Ís-
landi fækkaði um rúm-
lega 7% milli ára, en far-
þegum sem millilentu hér
á landi á leið yfir Norður-
Atlantshafið fækkaði um
rúmlega 18% milli áranna
2008 og 2007.
Farþegum um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar fækkaði
um rúmlega 26% í desem-
ber síðastliðinn miðað við sama tíma í fyrra, úr 121 þúsund farþegum árið
2007 í 91 þúsund farþega nú. Farþegum til og frá Íslandi fækkaði um tæp-
lega 26% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norð-
ur-Atlantshafið fækkaði um rúm 21%.
Farþegum um Keflavíkurflugvöll hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin
ár með einni undantekningu. Í kjölfar hryðjuverkaárásanna í New York í
september 2001 var umtalsverð fækkun það ár og árið 2002. Farþegum fór
síðan aftur fjölgandi og náði fjöldinn hámarki árið 2007 eða tæplega 2,2
milljónir. Til samanburðar má nefna að 567.236 farþegar fóru um Kefla-
víkurflugvöll árið 1985.
Framan af síðasta ári benti ekkert til annars en farþegum myndi halda
áfram að fjölga. Fyrstu þrjá mánuði ársins var fjölgun farþega meira en
10% miðað við árið áður. En í apríl fór fyrstu áhrifa heimskreppunnar að
gæta og farþegum fækkaði um 14,9%. Fækkun hefur orðið í öllum mán-
uðum síðan, mest í nóvember eða 36%. Um áramótin varð sú breyting að
Keflavíkurflugvöllur ohf. tók yfir rekstur Keflavíkurflugvallar og Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar. Innan fyrirtækisins hefur verið unnið að sparn-
aði í rekstri í ljósi stöðunnar. sisi@mbl.is
Fækkun Þeim fækkar farþegunum sem innrita
sig í flug í Flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli.
Morgunblaðið/Jim Smart
Farþegum Leifs-
stöðvar fækkar
UMFERÐ í Hvalfjarðargöngum var 2,7% minni í
desember 2008 en í sama mánuði árið þar á undan.
Samdrátturinn var umtalsvert meiri í október og
nóvember en í jólamánuðinum miðað við sama
tímabil 2007.
Einkabílum á ferð undir Hvalfjörð fækkaði lítið
sem ekkert í desember en samdráttur í umferð-
inni stafar hins vegar af fækkun flutningabíla og
annarra atvinnuökutækja. Það er reyndar mark-
verð breyting og hennar varð greinilega vart líka í
nóvember, segir á vef Spalar, sem rekur göngin.
Alls fóru 130.650 ökutæki um göngin í desember
2007 en 127.200 í desember 2008, sem er sam-
dráttur upp á tæplega 2,7% eins og fyrr segir. Til
samanburðar má geta þess að umferðin í nóvem-
ber 2008 dróst saman um 6% og um 10,5% í októ-
ber. Einkenni kreppunnar voru því að þessu leyti
minna áberandi á jólaföstunni en mánuðina þar á
undan. Samdráttur umferðar um Hvalfjarðargöng
hófst að marki um mitt ár í fyrra, í kjölfar stór-
hækkunar á eldsneyti. Í árslok 2008 voru 14.750
áskriftarsamningar um ferðir í gildi við Spöl og
alls 36.600 veglyklar í notkun hjá áskrifendum.
Alls hafa um 15 milljónir bíla farið um Hval-
fjarðargöng síðan þau voru tekin í notkun sumarið
1998. Að jafnaði fara um 5.500 bílar um göngin á
sólarhring. Árið 2007 var metár í umferð um göng-
in en árið 2008 kemur næst á eftir. sisi@mbl.is
Lítill samdráttur í jólamánuðinum
Morgunblaðið/Árni Sæberg