Morgunblaðið - 08.01.2009, Síða 12

Morgunblaðið - 08.01.2009, Síða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 Suðurlandsbraut 4, 7. hæð • Sími 414 1200 Netfang: kontakt@kontakt.is • www.kontakt.is Sérverslun óskast Traustur aðili óskar eftir að kaupa þekkta sérverslun með heimilisvörur, s.s. gjafavörur, búsáhöld eða tæki. Skilyrði að um eigin innflutning og traust viðskiptasambönd sé að ræða og að ársvelta sé a.m.k. 100 mkr. Stór kostur ef hægt er að flytja fyrirtækið í húsnæði sem kaupandinn hefur yfir að ráða. Áhugasamir vinsamlega hafið samband við Jens Ingólfsson hjá Kontakt í símum 414 1200 og 820 8658. DIESELRAFSTÖÐ Til sölu lítið notuð Cummings rafstöð CUMC38-05G árgerð 2007 Rafallinn er 30,4 KW Allar upplýsingar veitir Þórhallur í síma 893 8535 Eftir Andra Karl andri@mbl.is FERÐAMENN frá löndum und- anþegnum vegabréfsáritun til Bandaríkjanna þurfa frá og með næstkomandi mánudegi að sækja um rafræna ferðaheimild (ESTA). Með tíð og tíma mun hún leysa af hólmi I94W-eyðublaðið – græna blaðið sem afhent er í flugvélum á leið til Bandaríkjanna – en á næstu mánuðum þarf að fylla út hvort tveggja. Rafræna leiðin mun með tím- anum auðvelda skráningu enda gildir heimildin í tvö ár. Eftir árin tvö þarf að endurnýja á ný, eða þegar vegabréf viðkomandi rennur út, hvort sem kemur fyrst. Þó þarf að uppfæra ferðaupplýsingar fyrir hverja tiltekna ferð, s.s. brottfar- arstað, flugnúmer og heimilisfang í Bandaríkjunum. Sæki tímanlega um heimild Rafræna umsóknin er í flestu sambærileg græna eyðublaðinu – spurningar hinar sömu – og tekur um fimmtán mínútur að ljúka skráningu. Í flestum tilvikum berst svar við umsókninni innan tveggja mínútna. Ef meiri tíma þarf til að skoða umsóknina berst svar þó innan 72 klukkustunda. Því er mælt með að umsækjendur sæki um heimildina þremur sólar- hringum fyrir áætlaðan brottfar- artíma. Fái umsækjandi höfnun er ekki þar með sagt að hann fái ekki að sækja Bandaríkin heim. Þeir þurfa einfaldlega að snúa sér til sendiráðsins til að greiða úr sínum málum. Ef ferðalangur gleymir að skrá sig í gegnum ESTA verður honum ekki hleypt um borð í flugvél á leið til Bandaríkjanna. Á kynningu ESTA í sendiráði Bandaríkjanna í gær kom þó fram í máli ræð- ismanns bandaríska sendiráðsins á Íslandi, Amiee R. McGimpsey, að komi upp sú staða að ferðamaður hafi gleymt að sækja umsókn í gegnum ESTA er sá möguleiki fyrir hendi að gera það á flugvell- inum, þ.e. í gegnum tölvu eða í gegnum þriðja aðila, enda taki það í langflestum tilvikum ekki nema örfáar mínútur að fá svar. McGimpsey tók ennfremur fram að á degi hverjum berist um 15 þúsund umsóknir og eru 98,44% samþykktar samstundis. Að öllu jöfnu er þó mælst til þess að far- þegar hafi með sér prentaða ESTA-kvittun fyrir flug. Skráning einfölduð Frá 12. janúar þurfa ferðamenn á leið til Bandaríkjanna að sækja um rafræna ferðaheimild á vef bandarískra yfirvalda TIL AÐ fá landgöngu í Bandaríkjunum með rafrænni heimild þarf að upp- fylla öll þau skilyrði sem bandarísk stjórnvöld setja. Og þó svo að rafræna heimildin (ESTA) hafi verið samþykkt, er ekki þar með sagt að viðkomandi fái landgöngu. Við komuna til landsins eru ferðamenn rannsakaðir af toll- og landamæra- vörðum. Ef upp koma atriði sem ekki komu fram í ESTA-umsókninni, s.s. ef viðkomandi er á sakaskrá í landinu eða hefur einhvern tíma verið lengur í Bandaríkjunum en honum var heimilt, er landgöngu hafnað. Ef ferðamenn hafa vitneskju um eitthvað slíkt sem gæti meinað þeim inngöngu í landið er þeim bent á að hafa samband við sendiráðið áður en lagt er í hann. Ekki alltaf nóg að fá heimild Morgunblaðið/Árni Sæberg Skráning Guðlaug Rún Margeirsdóttir, starfsmaður sendiráðs Bandaríkjanna, sýnir hversu auðvelt er að fylla út rafræna umsókn um ferðaheimild til Bandaríkjanna. Fimmtán mínútur tekur að fylla út og tvær mínútur að fá svar. TENGLAR .............................................. https://esta.cbp.dhs.gov SKILANEFND gamla Glitnis er að ganga frá samningi við Seðlabanka Lúxemborgar, fyrir hönd Seðlabanka Evrópu, vegna lánasafna sem m.a. innihalda lán tiltekinna íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja og tryggð eru með veði í þeim. Árni Tómasson, for- maður skilanefndar gamla Glitnis, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að gamli Glitnir fengi fullan umsýslu- rétt yfir þessum kröfum. Þannig væri hægt að forða þeim frá því að lenda í höndum aðila sem hugsanlega myndu kaupa þær á lágu verði og nýta alla möguleika til að gjaldfella þær. Skilanefndin sendi frá sér tilkynn- ingu í gær vegna umfjöllunar fjöl- miðla um að þessi veð hefðu komist í eigu erlendra banka. Hún segir að lánasöfnin sem hér er vísað til séu á forræði gamla Glitnis. Hann sjái um umsýslu og innheimtu þeirra. Í tilkynningunni kemur fram að hjá gamla Glitni hafi þrjú lánasöfn verið sett að veði gegn lánveitingu í Seðla- banka Evrópu fyrir milligöngu Seðla- banka Lúxemborgar. Það hafi færst í vöxt á síðustu misserum að fjármála- stofnanir heimsins hafi tryggt sér að- gengi að lausu fé með því að setja slík lánasöfn að veði hjá seðlabönkum. Í umræddum þremur lánasöfnum voru m.a. lán nokkurra íslenskra fyrir- tækja, þar á meðal sjávarútvegsfyr- irtækja. „Var það gert að höfðu sam- ráði og að fengnu samþykki viðkomandi fyrirtækja,“ eins og segir í tilkynningunni. Í uppnám við fall bankanna Gjaldeyrismarkaður lokaðist hér á landi í kjölfar hruns á fjármálamark- aði. „Til að fyrirbyggja vanskil vegna þessa ástands var þeim tilmælum beint til viðkomandi fyrirtækja að þau greiddu beint til móttökuaðila Seðla- banka Evrópu, sem er Deutsche Bank. Nú hefur greiðslufyrirmælum verið komið í fyrra horf og er inn- heimta og forræði þessara lánasafna eftir sem áður á höndum gamla Glitn- is. Áréttað skal að Deutsche Bank er eingöngu milligönguaðili um greiðslu og á enga kröfu á viðkomandi fyrir- tæki.“ Skilanefnd gamla Glitnis segir að við fall íslensku bankanna hafi um- rædd lánasöfn komist í uppnám þar sem Seðlabanki Evrópu öðlaðist rétt til að ganga að veðum sínum og leysa lánin til sín. „Skilanefnd gamla Glitnis hefur á síðustu vikum unnið að sam- komulagi við seðlabankann sem er nú á lokastigi. Í því felst m.a. að gamli Glitnir hefur svigrúm í 3-5 ár til þess að vinna úr þessari stöðu. Á næstu árum er því mikilvægt að þau félög sem um ræðir lendi ekki í vanskilum og tryggi sér endurfjár- mögnun um leið og aðstæður á fjár- magnsmörkuðum leyfa. Til viðbótar hefur skilanefnd Glitnis samið um að andvirði fasteignalánasafns sem er í eigu dótturfélags bankans í Lúxem- borg renni til niðurgreiðslu lána hjá Seðlabanka Evrópu. Sú ráðstöfun mun flýta fyrir því að hægt verði að leysa þessi mál.“ gudni@mbl.is Lánin aftur komin í umsjá gamla Glitnis Samið við Seðlabanka Lúxemborgar Morgunblaðið/RAX Veðlán Lán útvegsfyrirtækja voru sett að veði í Seðlabanka Evrópu. Í HNOTSKURN »Gamli Glitnir setti lána-söfn að veði fyrir lánveit- ingu í Seðlabanka Evrópu. Í þeim voru m.a. lán nokkurra íslenskra fyrirtækja, þar á meðal sjávarútvegsfyrirtækja. »Við fall bankanna fékkSeðlabanki Evrópu rétt á að ganga að veðunum og leysa lánin til sín. Lánin eru nú á forræði gamla Glitnis. Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is FÆRA má rök fyrir því að innleið- ing nýrra komugjalda við innlögn á sjúkrahús sé grundvallarbreyting á íslensku heilbrigðiskerfi sem Íslend- ingar hafa hingað til getað státað sig af að sé laust við slík gjöld ólíkt sum- um nágrannaþjóðum. Aðgerðirnar hafa verið gagnrýnd- ar, m.a. af talsmönnum öryrkja og eldri borgara enda ljóst að hækkun gjalda getur verið þung byrði þeim sem eru við bága heilsu. Í reglugerð um hlutdeild sjúklingsins í kostnaði er þó að nokkru leyti komið til móts við þá sem þurfa reglulega að nýta sér heilbrigðisþjónustu. Þannig er hægt að vinna sér inn rétt til afsláttarskírteinis nái sjúkra- kostnaður upp fyrir ákveðið viðmið á almanaksárinu. Fyrir hinn almenna, sjúkratryggða Íslending er miðað við að hann hafi greitt 25.000 kr. í ýmsan sjúkrakostnað áður en hann á rétt á skírteini sem veitir eftir það 50% afslátt af innlögn á sjúkrahús. Í tilfelli öryrkja og aldraðra þarf sjúkrakostnaður að ná 6.100 kr. og greiða þeir þá 1.000 kr. eftir það við innlögn á sjúkrahús. Þar sem miðað er við almanaksárið þýðir þetta þó að þeir sem veikjast t.d. í nóvember og þurfa að leggjast nokkrum sinnum inn á sjúkrahús á næstu 12 mánuð- um eftir það eiga ekki rétt á afslátt- arkorti jafnvel þótt sjúkrakostnaður fari yfir 25.000 kr. Afsláttur við 25.000 kr. Hækkun gjalda í heilbrigðisþjónustu og innleiðing nýrra komugjalda er mörgum erfið þrátt fyrir afsláttarkort Morgunblaðið/Sverrir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.