Morgunblaðið - 08.01.2009, Side 15
HAGKAUP í Skeifunni verða áfram
opin allan sólarhringinn, sam-
kvæmt ákvörðun stjórnenda fyr-
irtækisins. Sex vikur eru síðan til-
raun var hafin með sólarhrings-
afgreiðslutíma í Skeifunni og þykir
það hafa gefist svo vel að framhald
verður á.
Sólarhringsþjón-
usta í Hagkaupum
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
telpurS onuK r
Allt að fyllast í TT,
síðustu innritunardagar!
Höfum bætt við tíma fyrir hádegi í TT aðhaldsnámskeiðunum
Nýr tími þrisvar í viku: kl. 10:15 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga - Barnapössun
Erum að selja ósóttar pantanir Sími 581 3730
Ekkert lát hefur verið á aðsókn í TT aðhaldsnámskeiðin
og er okkur því ánægja að bjóða þessa tíma sem henta sérlega vel heimavinnandi mæðrum.
Aðrir TT tímar í boði:
6:15 – mán, mið, fös
7:20 – mán, mið, fös
10:15 – mán, mið, fös - Barnapössun
12:05 – mán, mið, fös - Barnapössun
14:20 – mán, mið, fös
16:40 – mán, mið, fös - Barnapössun
17:40 – mán, þri, fös - Barnapössun
18:25 – TT3 mán, mið, fös
18:40 – TT3 mán, þri, fim
19:25 – mán, mið, fim (19:45)
Fundur fyrir alla flokka sunnudaginn 11. janúar kl. 15:00 og 16:00 - TT1
og kl. 17:00 - TT3.
Velkomin í okkar hóp!
Staðurinn - Ræktin
SKRÁÐ mál hjá
umboðsmanni
Aþingis á árinu
2008 voru alls
346 og þar af
voru kvartanir
340 og frum-
kvæðismál sex.
Málum fjölgaði
um rúm 12% frá
árinu 2007 og
þar af var fjölgun kvartana 16,4%.
Er þetta næstmesti fjöldi mála sem
skráð hafa verið á einu ári hjá um-
boðsmanni frá því að embættið hófs
störf árið 1988 en flest voru málin
árið 1997 eða 360.
Umboðsmaður afgreiddi á árinu
2008 alls 354 mál og er það mesti
fjöldi afgreiddra mála á einu ári frá
upphafi. Afgreidd mál á árinu 2007
voru 265 og er fjölgun afgreiddra
mála því milli ára rúm 33%. Auk
umboðsmanns störfuðu að jafnaði
níu starfsmenn á skrifstofu um-
boðsmanns við afgreiðslu mála á
árinu 2008 og er það sami fjöldi og
síðustu ár.
Kjörinn umboðsmaður Alþingis,
Tryggvi Gunnarsson, verður 1. jan-
úar til 1. nóv. 2009 í leyfi frá dag-
legum starfsskyldum umboðs-
manns vegna starfa sinna sem
umboðsmaður Alþingis í rannsókn-
arnefnd Alþingis sem fjallar um
rannsókn á aðdraganda og orsök-
um falls íslensku bankanna 2008 og
tengdra atburða.
Meðan Tryggvi er í leyfi hefur
Róbert Spanó, prófessor við laga-
deild HÍ, verið settur til að sinna
starfi umboðsmanns og tekur hann
við afgreiðslu þeirra mála sem
liggja fyrir hjá embættinu.
346 mál hjá
umboðsmanni
Róbert Spanó
EYGLÓ Harð-
ardóttir hefur
ákveðið að gefa
kost á sér sem
ritari Framsókn-
arflokksins á
flokksþinginu
16.-18. janúar.
Eygló var í 4.
sæti á lista Fram-
sóknarmanna í
Suðurkjördæmi
fyrir tvennar síðustu alþingiskosn-
ingar og sat um tíma á Alþingi sem
varaþingmaður. Í nóvember tók
hún sæti á Alþingi við afsögn
Guðna Ágústssonar.
Hún hefur starfað sem ritari
Landssambands Framsóknar-
kvenna, ritari Kjördæmissambands
Framsóknarfélaganna í Suður-
kjördæmi og gjaldkeri Framsókn-
arfélags Vestmannaeyja. Að auki
hefur hún gegnt fjölda trúnaðar-
starfa á vegum Vestmannaeyja-
bæjar.
Í tilkynningu um framboðið segir
Eygló meðal annars: Í þeirri stöðu
sem nú er uppi í samfélaginu er
ekki síður mikilvægt að standa vörð
um hinar dreifðu byggðir landsins.
Samþjöppun og fákeppni er ekki
bara af hinu slæma í atvinnulífinu,
heldur einnig í búsetu þjóðarinnar.
aij@mbl.is
Eygló býður sig
fram sem ritari
Eygló
Harðardóttir
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
BAKÁBYRGÐ á eftirlaunasjóði 100 starfsmanna
Glitnis og allt að fimm hundruð fyrrverandi
starfsmanna, þeirra sem komnir eru á eftirlaun,
varð eftir í gamla Glitni. Fimmtíu starfsmenn
bankans áttu rétt á að fara fyrr á eftirlaun, sam-
kvæmt svokallaðri 95 ára reglu, en nú er hætta á
að þeir fái það ekki.
Anna Berglind Þorsteinsdóttir er trún-
aðarmaður starfsmanna Glitnis og ein af þeim
sem áætlaði að hætta fyrr að vinna. Hún er 51
árs og hefði getað hætt að vinna sextug sam-
kvæmt umsömdum lífeyrisréttindum en sér nú
fram á að þurfa að vinna fimm til sjö árum leng-
ur. „Ég trúi því ekki að
ákvörðunin sé endanleg.“
Réttindi starfsmannanna
voru baktryggð, þannig að
ytri áhrif og staða eft-
irlaunasjóðsins hafði ekki
áhrif á greiðslur til þeirra. Þá
voru eftirlaunin miðuð við
lokalaun á starfsævinni en
ekki útreiknuð meðallaun, svo
eitthvað sé nefnt.
Hópurinn sem óttast nú
skert réttindi er elstu starfsmenn Glitnis, en allir
þeir sem ráðnir voru til fyrirrennara bankans
eftir 1. janúar 1994 fóru í nýtt kerfi. Friðbert
Traustason, framkvæmdastjóri Samtaka starfs-
manna fjármálafyrirtækja, segir skammarlegt
ætli ríkið að standa fyrir því að rýra réttindi
þessara starfsmanna. Hann segir samtökin líta
þannig á að um sjóðinn gildi kjarasamningar.
„Þannig að við teljum að svona einhliða ákvarð-
anir standist ekki.“ Verði réttindin skert komi til
málaferla.
Anna Berglind segir að verði ekki staðið við
bakábyrgð sjóðsins hræðist þau að hann standi
ekki undir réttindum fólksins. Það hafi sætt sig
við lægri laun vegna þessara góðu eftirlauna-
réttinda. „Fólk er hrætt. Hér eru konur sem fara
á eftirlaun á árinu. Þær vita ekki neitt um stöðu
sína. Við höfum ekki tíma til að vinna skerð-
inguna upp, því við erum fullorðin. En ég lifi í
voninni um að þessari ákvörðun verði breytt.“
Baktrygging tekin af starfsmönnum
Friðbert
Traustason