Morgunblaðið - 08.01.2009, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009
UTANRÍKISMÁL Pertti Torstila,
ráðuneytisstjóri í finnska utan-
ríkisráðuneytinu, þar sem hann
er næstráðandi á eftir utanríkis-
ráðherra Finnlands.
É
g er ekki einn um þá
skoðun í Finnlandi að
leggja beri áherslu á
samstarf ríkjahópa í al-
þjóðasamtökum, hvaða nafni sem
þau nefnast. Ríkin í ríkjahóp-
unum hafa sem hópur meira að
segja en hvert fyrir sig. Saman
erum við sterkari. Það vantar tvö
mikilvæg brot í norrænu mynd-
ina, ykkur Íslendinga og Norðmenn,“ segir
Pertti Torstila, fyrrverandi sendiherra Finn-
lands í Svíþjóð, sem telur þörf á framlagi
ríkjanna tveggja í samstarfi ESB.
„Við þurfum á ykkur að halda. Hin Norður-
löndin þurfa á ykkur að halda. Innganga ykkar
myndi um leið styrkja vægi Norðurlandanna í
ESB. Suður-Evrópuríkin eru mjög áhrifamikil
í sambandinu. Þetta er vitaskuld ekki sam-
keppni á milli norðurs og suðurs [...] Sögulega
séð hefur ESB verið stofnun þar sem þunga-
miðjan hefur legið í suðri. Við vilj-
um breyta því. Áhrif Norður-
landanna hafa aukist verulega á
síðustu tíu árum með inngöngu
Svía, Dana, Finna og Eystrasalts-
ríkjanna í sambandið.“
Af hverju myndi vægi Norður-
landanna aukast með inngöngu
Íslands í Evrópusambandið? Af
hverju myndi innganga jafn lít-
illar þjóðar hafa þessi áhrif?
„Sérhvert aðildarríki hefur jafn
mikið að segja. Þau eru 27 í dag.
Það eru ýmis mál þar sem ákvarð-
anir eru teknar í sameiningu og
þar gæti rödd Íslands vegið afar
þungt. Ég held að hugarfar okkar
og Íslendinga sé svipað,“ segir
Torstila, sem bendir á að í hugum margra Mið-
Evrópumanna liggi endimörk Evrópu til norð-
urs í Danmörku. Handan hennar byrji túndr-
an, há-norðrið, sem hann nefnir svo.
Norðrið komið á kortið
Á hvaða sviðum gæti Ísland lagt sitt af
mörkum til ESB?
„Okkur hefur tekist að setja norðurhluta álf-
unnar á kortið í hugum Mið-Evrópuþjóðanna.
Með inngöngu Íslands yrði sú mynd skýrari,
fullkomnari. Þið Íslendingar vitið betur en við
Finnar hvað þið hafið fram að færa.“
Hver yrði hagur Íslendinga af inngöngunni?
„Miðað við reynslu Finna af aðildinni á síð-
ustu þrettán árum geng ég út frá því að Íslend-
ingar myndu hafa mikinn hag af inngöngunni.“
Af hverju?
„Við höfum lært marga lexíuna. Öryggis-
hliðin, að tilheyra einhverju ábyggilegu, hefur
haft mikla þýðingu. Fyrir fall Berlínarmúrsins
og hrun kommúnismans höfðum við alltaf verið
milli tveggja heima, austurs og vesturs [...]
Þegar við gengum í Evrópusambandið skil-
greindum við okkur ekki lengur sem hlut-
lausa,“ segir hann og vísar til að böndin hafi
verið treyst til vestursins til langframa.
Öryggishliðin vó þungt
Ekki þarf að ræða við marga Finna um að-
ildina að Evrópusambandinu til að heyra um
mikilvægi sambandsins við grannann í austri.
Torstila rifjar þetta upp þegar hann segir
önnur rök hafa verið fyrir aðildinni í Finnlandi
en í Svíþjóð. Í Finnlandi hafi öryggishliðin veg-
ið þungt, þótt ESB sé að sjálfsögðu ekki varn-
arbandalag.
„Frá sjónarhóli einingar eru þetta gríð-
arlega mikilvæg samtök. Þjóðríki verða ekki
látin ein á báti. Við treystum á það.“
Hann minnir á návígi Finna og Rússa þegar
hann er spurður um það sjónarmið að hættan
af Rússum sé ofmetin, í ljósi minni slagkrafts á
sviði hernaðar en á dögum Sovétríkjanna.
„Við Finnar sjáum ekki fram á aukna hern-
aðarógn úr austri og við eigum fjórtán hundr-
uð kílómetra landamæri að Rússlandi.“
Spurður um framlag Finna til Evrópusam-
bandsins vitnar Torstila aftur til þessa návígis.
„Ég verð að segja að þekking Evrópusam-
bandsins á málefnum Rússlands risti ekki
djúpt. Það liggur í augum uppi að Finnar vita
meira um rússneska menningu og þjóðarsál en
til dæmis Möltubúar eða Portúgalir. Jafnframt
hefur granninn okkar í austri svo mikil áhrif í
Evrópu. Finnar hafa verið brúarsmiðir milli
Rússa og ESB.“
Inntur eftir því sjónarmiði að sambandið sé
að þróast í átt til heimsveldis kveðst Torstila
sjá þess „engin merki“. Hann telur eðlilegt að
margir Finnar gagnrýni sambandið.
„Ég er sannfærður um að á sama tíma og 50
prósent Finna segja aðspurð að aðildin að ESB
hafi verið til ógagns myndu yfir 70 prósent
vera andvíg því að ganga úr sambandinu, ef
spurningunni yrði snúið við. Þegar ríki hefur
fengið aðild er eðlilegt að af stað fari umræður
um hvort betra sé að standa innan sambands-
ins eða utan þess.“
Ráðuneytisstjóri finnska utanríkisráðuneytisins telur tvö mikilvæg brot vanta í norrænu myndina í ESB
Með Noregi og Íslandi yrði til öflug eining Norðurlandanna í sambandinu sem yrði mótvægi við suðrið
Pertti Torstila
Vill að Noregur og Ísland verði með
„Nei“
43%
„Já“
57%
Atkvæðagreiðsla Finna um inngöngu í ESB
Af þeim sem kusu svöruðu
43% „Nei“ en 57% „Já“.
Kjörsókn í Finnlandi var
74% og 10,7% hjá Finnum
búsettum erlendis.
Kjörsókn
Búsettir
í Finnlandi
Búsettir
erlendis
10,7%
74%
Telur þú að þátttaka Finnlands í ESB sé almennt ... ?
Af hinu góða
Hvorki góð
né slæm
Slæm
Veit ekki
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Haust
1999
Vor
2006
Þegar Finnar greiddu atkvæði um hvort landið ætti að ganga í Evrópusambandið árið 1994 litu margir svo
á að með inngöngu væru böndin treyst við V-Evrópu, þremur árum eftir fall Sovétríkjanna. Nú, 14 árum
síðar, eru hin efnahagslegu áhrif aðildarinnar og evruupptöku árið 1999 umdeild, þótt fæstir sjái eftir
finnska markinu, eins og Baldur Arnarson komst að í Helsinki.
Böndin treyst til vesturs
Á móti
„Lýðræðishallinn í Evrópusam-
bandinu væri spaugilegur ef við
byggjum ekki við hann.“
Thomas Wallgren, einn stofnenda
Græningjaflokksins í Finnlandi.
„Það sem ESB leggur áherslu á í
aðildarríkjunum er í mótsögn við
hugmyndina að baki félags-
hyggju í Evrópu.“
Mikko Sauli, meðlimur í
finnska jafnaðarmannaflokknum.
Með
„Ég held að inngangan hafi verið
mikil lyftistöng fyrir ferða-
þjónustuna.“
Pekka Mäkinen, framkvæmdastjóri
Icelandair í Finnlandi.
„Í dag hefur reynslan af
aðildinni hins vegar að flestu
leyti verið góð.“
Johanna Iivanainen, jazzsöngkona.
„Innganga í Evrópusambandið
myndi fela í sér ýmis tækifæri
fyrir hönnun og nýsköpun á
Íslandi.“
Kristjana Aðalgeirsdóttir, starfsmaður hjá
Landic Property í Helsinki.
„Ég lít svo á að innganga í ESB
myndi leiða til aukinnar erlendrar
fjárfestingar á Íslandi.“
Pia Michelsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri
Kaupþings í Finnlandi.
Evrópusambandið | Finnland