Morgunblaðið - 08.01.2009, Síða 21
Fréttir 21INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009
MARSEILLE á Miðjarðarhafs-
strönd Frakklands er þekktari fyrir
suðræna blíðu en vetrarhörkur en
eins og hér má sjá lentu borgarbúar
í erfiðleikum á götunum í gær
vegna snjókomu. Fjöldi árekstra
varð til þess að langar bílaraðir
mynduðust á sumum umferð-
aræðum. Hraðbrautum í grennd við
Marseille var lokað og fólk hvatt til
að halda sig heima.
Miklar truflanir urðu á umferð
víða í Evrópu í gær vegna kulda-
kastsins sem nú herjar á mikinn
hluta álfunnar. Gripið var til ým-
issa ráða; simpansarnir í dýragarð-
inum í Róm fengu hitaeiningaríkar
súkkulaðismákökur, heitan hafra-
graut og smjördeigshorn til að verj-
ast kuldanum. Víða á Ítalíu var
skólum lokað og lestum seinkaði
um tvær stundir í norðvesturhér-
uðunum. Flugvöllunum Malpensa
og Linate við milljónaborgina Míl-
anó var lokað um hríð en í gær var
30 sentimetra jafnfallinn snjór í
borginni sem er helsta fjármála-
miðstöð landsins. kjon@mbl.is
Reuters
Smákökur og smjördeigshorn handa simpönsunum
AUGLÝSINGAR sem guðleysingjar
hyggjast setja upp á strætisvögnum
í Barcelona á Spáni hafa valdið
miklum deilum og verið kallaðar
árás á öll trúarbrögð, að sögn vef-
síðu breska blaðsins Guardian.
„Sennilega er ekki til neinn Guð.
Hættið að hafa áhyggjur og njótið
lífsins,“ segir á auglýsingaborð-
unum.
Auk Barcelona er ætlunin að
hefja svipaða herferð í Madríd, Val-
encia og fleiri borgum Spánar en
kaþólsk trú er þar ríkjandi og
kirkjan mjög öflug. En kirkjusókn
fer þó heldur dvínandi eins og víðar
í Evrópu, margir segjast vera kaþ-
ólskir en „ekki virkir“.
Dawkins ein fyrirmyndin
Fyrirmyndin er sótt til Bretlands
en þar hafa þekktir guðleysingjar
eins og líffræðingurinn Richard
Dawkins notað slagorð af þessu
tagi. Þeir sem standa fyrir herferð-
inni segja að 20% Spánverja segist
vera guðleysingjar og því sé kom-
inn tími til að sjónarmið guðleys-
ingja séu rædd í landinu. Þeir hafi
rétt til að vera stoltir af þeim.
En biskupar í Barcelona eru
ósammála slagorðunum. „Trú á
Guð er ekki eitthvað sem veldur
áhyggjum og ekki heldur þrösk-
uldur á vegi þess að njóta lífsins,“
segja þeir í yfirlýsingu.
Strætisvagnar eru í opinberri
eigu og því líklegt að pólitísk valda-
hlutföll á hverjum stað stýri því
hvort leyft verður að láta vagnana
aka um með auglýsingar af þessu
tagi. kjon@mbl.is
Guðleysi
boðað á
strætó
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | notadir.brimborg.is
`
çÜå
C
t
çäÑÉ
m
ìÄäáÅ
o
Éä~íáçåë
ðëä~åÇá
báåÖ∏åÖì Ä∞ä~ê ëÉã ë¨êÑê‹ðáåÖ~ê cçêÇ ã‹ä~ ãÉð
Farðu á netið og skoðaðu Ford á notadir.brimborg.is
Skoðaðu notaða úrvalsbíla í sýningarsal Ford, Bíldshöfða 6, í dag.
Komdu í kaffi og kleinur í sýningarsal Ford, Bíldshöfða 6.
kýíìãåçí~ð~å cçêÇ
kýíìãåçí~ð~å cçêÇ
kýíìãåçí~ð~å cçêÇ
kýíìãåçí~ð~å cçêÇ
kýíìãåçí~ð~å cçêÇ
kýíìãåçí~ð~å cçêÇ
1,6 bensín beinskiptur 5 dyra
Fast númer ZZU61
Skrd. 04/2008. Ek. 4.600 km.
Ásett verð 3.060.000 kr.
Afsláttur 410.000 kr.
Tilboðsverð 2.650.000 kr.
5,4 V8 bensín sjálfskiptur 8 manna
Leður, loftp.fjöðrun, rafdr.afturhleri ofl.
Fast númer JSZ84
Skrd. 06/2008. Ek. 17.000 km.
Ásett verð 8.390.000 kr.
Afsláttur 540.000 kr.
Tilboðsverð 7.850.000 kr.
1,6 bensín sjálfskiptur 5 dyra
Fast númer MU365
Skrd. 07/2007. Ek. 15.500 km.
Ásett verð 2.270.000 kr.
Afsláttur 280.000 kr.
Tilboðsverð 1.990.000 kr.
2,0 bensín sjálfskiptur 5 dyra
Leður, 16” álfelgur ofl.
Fast númer LL191
Skrd. 06/2007. Ek. 12.000 km.
Ásett verð 3.450.000 kr.
Afsláttur 570.000 kr.
Tilboðsverð 2.880.000 kr.
4,6 V8 bensín sjálfskiptur
Leður, dráttarbeisli, bakkskynjari ofl.
Fast númer TDR40
Skrd. 03/2008. Ek. 11.000 km.
Ásett verð 6.350.000 kr.
Afsláttur 480.000 kr.
Tilboðsverð 5.870.000 kr.
1,6 bensín sjálfskiptur 5 dyra
15” álfelgur ofl.
Fast númer SU016
Skrd. 02/2006. Ek. 24.000 km.
Ásett verð 1.890.000 kr.
Afsláttur 300.000 kr.
Tilboðsverð 1.590.000 kr.
Ford Explorer Limited Ford Fiesta Trend Ford Mondeo Ghia
Ford Focus TrendFord Expedition Limited EL Ford Fusion Trend
Ford Genuine Design.
Ford leggur áherslu á fjölskyldugildin,
gegnheila og einlæga hönnun.Vertu í hópi
þeirra bestu. Veldu Ford. Spurðu um
Fyrirmyndarþjónustu Brimborgar.