Morgunblaðið - 08.01.2009, Side 22

Morgunblaðið - 08.01.2009, Side 22
22 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 Hvenær á maður jarðveg og hvenær á maður ekki jarðveg? Þetta er stóra spurningin á Ak- ureyri um þessar mundir, eftir að deilur bloss- uðu upp á milli tveggja verktakafyrirtækja. Sparisjóðurinn á Siglufirði kemur einnig að málinu en þó ekki, eða hvað? Og Akureyr- arbær. Þó varla. Er nema von að sumir klóri sér í höfðinu?    Nánar um jarðveginn aftast í pistlinum, ef það verður pláss.    Fregnir herma að knattspyrnumenn hafi lík- lega aldrei verið fleiri í höfuðstað Norður- lands. Bæði KA og Þór tefla fram tveimur lið- um í árlegu móti, Soccerade-mótinu, sem hefst í Boganum annað kvöld, og nýtt Akureyrarlið verður líka með – það er svo nýtt að ég man ekki einu sinni hvað það heitir!    Þórsarinn og landsliðsmaðurinn fyrrverandi, Hlynur Birgisson, sem lagði spari-knatt- spyrnuskóna á hilluna í haust, ku vera einn fjörutíu „stráka“ í nýja liðinu. Þar verður líka að finna ýmsa sem ekki komast í meistaraflokk eða 2. aldursflokk félaganna. Þetta mun fyrsta knattspyrnumót ársins hérlendis og það eru Þórsarar og Magnamenn sem hefja leikinn annað kvöld kl. 19.45.    Einhver hvíslaði því að mér að skíðasvæðið í Hlíðarfjalli yrði lokað á þriðjudögum það sem eftir er vetrar, í sparnaðarskyni. Það er allt í lagi, fólk gerir bara eitthvað annað á þriðju- dögum. Fer til dæmis í heimsóknina sem það lofaði á jólakortinu.    Þeir sem ekki ætla að hafa jólatréð í stofunni fram að næstu jólum geta hent því út að lóð- armörkum í dag eða á morgun því þá munu starfsmenn framkvæmdamiðstöðvar bæjarins fjarlægja þau. Þeir verða reyndar aftur á ferð- inni strax eftir helgi, fyrir þá sem vilja hafa jól- in aðeins lengri en aðrir.    Einhverjir kunna að vilja hnykla vöðvana meira en við hin og bera trén aðeins lengra; með þá í huga voru settir gámar fyrir jólatrén við Kaupang, Hagkaup, Hrísalund og versl- unarmiðstöðina í Sunnuhlíð.    Við hér í höfuðstað Norðurlands kveðjum jólin reyndar ekki fyrr en á morgun. Þá verða Þórs- arar með Þrettándagleði sína – eiginlega Sext- ándagleði – á svæðinu við Réttarhvamm, þar sem áramótabrennan var á gamlárskvöld. Álfakóngur og drottning hans, tröll, púkar og jólasveinar verða á svæðinu og flugeldasýning í eftirrétt. Aðgangseyrir verður enginn; það er sem sagt ókeypis inn.    Aðeins aftur að jarðveginum. Tveimur lóðum við Fossatún í Naustahverfi var á sínum tíma úthlutað, eins og vera ber. Samkvæmt úthlut- unarreglum Akureyrarbæjar er óheimilt að framselja lóðir fyrr en búið er að steypa sökkla en eigendur virðast þó þegar orðnir nokkrir. Þegar sökklarnir sjást mun byggingafulltrúi bæjarins gefa út lóðasamning á nöfn þeirra sem lóðunum var upphaflega úthlutað en þeir eiga þær reyndar ekki lengur.    Eigandi lóðanna er nú fyrirtækið SE vélar á Akureyri. Það keypti lóðirnar af Sparisjóði Siglufjarðar í desember, en hann eignaðist þær þegar byggingaverktaki, sem hugðist reisa tvö einbýlishús á lóðinni, guggnaði.    Jarðvegsmálið er þannig til komið að GV gröf- ur á Akureyri sáu um jarðvegsskipti fyrir byggingaverktakann og átti inni hjá honum 8,5 milljónir króna þegar Sparisjóðurinn eignaðist lóðirnar. Forráðamenn sparisjóðsins segjast hafa eignast lóðirnar án nokkurra kvaða, og Stefán Einarsson, eigandi SE véla, segist ekk- ert vita um málið; GV eigi að snúa sér til verk- takans sem fyrirtækið vann fyrir. Málið komi sér a.m.k. ekki við.    Í vikunni hugðust þeir hjá GV ná í jarðveginn sem þeir settu ofan í grunninn í haust; alls fimm þúsund rúmmetra. Þeir telja sig eiga efnið þar til greitt hefur verið fyrir verkið, en þegar eigandi SE véla frétti af því að GV-menn væru byrjaðir að moka kölluðu þeir til lögreglu og byggingafulltrúa bæjarins. SE kærði gjörninginn til lögreglu og þar stendur nú hnífurinn í kúnni. Eða kannski frekar grafan í mölinni. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Deila Nóg er af vinnuvélum, frá GV og SE, á lóðinni við Fossatún en ekkert hægt að vinna. AKUREYRI Skapti Hallgrímsson Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Þ að er ómetanlegt að hafa tvennskonar menntun á mjög ólíkum sviðum. Þá hefur maður alltaf val og er ekki bundinn við eitt svið á vinnumarkaðinum. Það kemur sér vel núna í þessu árferði, þar sem fólk missir vinnuna nánast fyrirvaralaust, eins og raunin var með mig,“ segir Anna Rósa Ró- bertsdóttir viðskiptafræðingur og grasalæknir. Hún var í góðu starfi sem fjármálastjóri á alþjóðasviði hjá Glitni þegar kreppan brast á og deildin hennar var lögð niður. En hún lætur ekki deigan síga og hefur stofnað fyrirtækið Grasalækningar ehf. „Ég lærði grasalækningar í fjögur ár í The College of Phyto- therapy í Bretlandi á sínum tíma og starfaði sem grasalæknir í tólf ár, eða fram að því að ég skellti mér í nám í viðskiptafræði,“ segir Anna Rósa sem fór að læra viðskipta- fræði af því að það truflaði hana alltaf að hún vissi ekki hvað vextir voru. „Mér fannst ég þurfa að læra það almennilega, allir virtust vera með þetta á hreinu nema ég,“ segir hún og hlær þegar hún er spurð að því hvers vegna hún fór í nám sem var svo gjörólíkt grasalækningum. Tínir sjálf sínar jurtir Nú er miður vetur og Anna Rósa getur ekki gengið út í gjöfula ís- lenska náttúru til að sækja sér lækningajurtir. „Þess vegna panta ég jurtirnar núna að utan, en þær eru allar lífrænt ræktaðar. Þegar vorið kemur þá fer ég og tíni ís- lenskar jurtir úti í íslenskri náttúru og þær duga mér að mestu, enda eru til áttatíu íslenskar lækn- ingajurtir og ég þarf ekki að nota nema hluta af þeim. Mjaðjurt er ein þeirra,“ segir Anna Rósa sem vill þekkja jurtirnar mjög vel sem hún vinnur með. „Ég lærði að þekkja ís- lenskar jurtir vel þegar ég byrjaði í graslækningum af því að þá var bannað að flytja inn margar þeirra jurta sem notaðar eru í þessu fagi. Ég þurfti því að tína jurtirnar sjálf og ég bý ævinlega til öll meðul og krem sjálf,“ segir Anna Rósa sem vann um tíma hjá fyrirtækinu Ís- lenskum fjallagrösum og hannaði og framleiddi meðal annars fjalla- grasakrem. Viðhorfið hefur breyst Anna Rósa býr líka til svokallaðar tinktúrur, sem eru sérblandaðar fyrir hvern og einn sem á þarf að halda. Tinktúra er gamalt orð yfir blöndu sem búin er til með því að láta jurtir liggja í ákveðinn tíma í vínanda. Þann- ig dragast virku efnin úr jurtunum og geymast mjög vel. „Áður fyrr var hefð fyrir tinktúrum hér á landi og þessi hefð er rík í öðrum löndum. Tinktúrur eru fljótvirk- andi og ég læt fólk ávallt fá bæði tinktúrur og jurtaseyði þegar það leitar til mín.“ Hún segir viðhorf til grasalækn- inga hafa breyst heilmikið frá því hún byrjaði í þeim. „Kolbrún grasa- læknir hefur rekið verslun sína Jurtaapótekið á Laugaveginum lengi og það eitt hefur haft áhrif á viðhorf fólks. Núna finnst fólki grasalækningar sjálfsagður hlutur, þetta er orðið þekktara og algeng- ara. Á Alþingi voru sett lög um græðara árið 2005 og það breytti líka miklu. Græðarar eru fólk með allskonar menntun í óhefðbundnum lækningum. Fram að því að þessi lög voru sett, þá voru óhefðbundnar lækningar í raun bannaðar og því var ég strangt til tekið að starfa ólöglega hér áður sem grasalæknir. Núna er þetta hins vegar löglegt á allan hátt og það breytir öllu. Nú get ég til dæmis keypt ábyrgð- artryggingu og það skiptir líka máli.“ Tarantúlur í eldhúsinu Anna Rósa segir grasalækningar hafa lengi verið viðurkenndar og löglegar í mörgum löndum, sér- staklega í Bretlandi og Þýskalandi. „Þetta er líka að breytast mikið í Bandaríkjunum, þar er þetta stundað mikið meðfram hefð- bundnum lækningum. Ég tek það fram að ég gef mig ekki út fyrir að lækna eitt eða neitt. Ég er fyrst og fremst að veita aðstoð. Ég vinn ekki með krabbameinssjúka eða neitt slíkt, en ég gæti unnið sam- hliða læknum í slíkum tilfellum. Grasalækningar hafa sannast mann fram af manni og kynslóð fram af kynslóð. Þetta er elsta lækn- ingaaðferð mannsins. Vissulega eru grasalækningar að hluta til vís- indalega sannaðar, það eru til greinar um það hjá Alþjóða heil- brigðisstofnuninni WHO.“ Anna Rósa er ævintýrakona og bjó í Suður-Ameríku í tvö ár. „Fyrst fór ég til Perú á vegum breskra samtaka og vann við grasa- lækningar í frumskóginum í Ama- son. Þar lærði ég af frumbyggj- unum og ég kenndi þeim líka það sem ég kunni. Þeir voru með allt aðrar jurtir en ég var vön að vinna með og þeir meðhöndluðu þetta líka á ólíkan hátt enda er menningin allt önnur þarna en á Vesturlöndun. Þetta var mjög gaman og athygl- isverður tími, þarna mætti maður stundum í eldhúsinu ókræsilegum köngulóm eins og tarantúlum. Eftir nokkra mánuði í Perú ferðaðist ég svo um Bólivíu og vann þar seinna sem nuddari um tíma,“ segir Anna Rósa sem er lærður nuddari. Henni finnst gaman að takast á við eitt- hvað nýtt, núna er hún til dæmis að læra kínversku en hún er í sambúð með kínverskum manni. „Ég er sannfærð um að Kína á eftir að verða stórveldi og þá verður gott að kunna kínversku.“ Hún var fjármálastjóri hjá Glitni á alþjóðasviði og missti vinnuna við upphaf kreppunnar. Hún stofnaði því nýtt íslenskt fyrirtæki, enda geta æv- intýrakonur sem hafa unnið í frumskógum Perú næstum hvað sem er. Grasalækningar hafa öldum saman verið notaðar gegn ýmsum tegundum sjúkdóma. Algengt er að leitað sé til grasalæknis vegna langvarandi veik- inda sem illa hef- ur gengið að ráða bót á með hefðbundnum lækningum. Grasalæknir getur ekki lofað lækningu en margar lækningajurtir eru taldar geta hjálpað til við eft- irfarandi sjúkdóma:  hormónaójafnvægi, hita- kóf, svitaköst, óreglulegar blæðingar og fyrirtíða- spenna  magabólga, magasár, hægðatregða, niðurgangur, uppþemba og vindgangur  exem, psoriasis, þrálát sár og sveppasýkingar  liðagigt, vefjagigt og vöðvabólga, höfuðverkir og mígreni  streita, kvíði, svefnleysi, þreyta og vægt þunglyndi  bjúgsöfnun, góð- kynja stækkun blöðruhálskirtils, blöðrubólga  astmi, kvef, háls- bólga, flensa og hósti  ofnæmi og óþol Jurtir geta hjálpað úr bæjarlífinu Tímapantanir í síma 662 8328 www.grasalaekningar.is Ótrauð Anna Rósa lætur bankahrunið ekki stoppa sig. Úr bankanum og aftur í grösin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.