Morgunblaðið - 08.01.2009, Side 43

Morgunblaðið - 08.01.2009, Side 43
Menning 43FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is ■ 7.-10. janúar 2009 Vínartónleikar í kvöld Stjórnandi: Markus Poschner Einsöngvari: Dísella Lárusdóttir Í kvöld 8. janúar kl. 19.30 - (Græn röð) Á morgun 9. janúar kl. 19.30 Laugardag 10. janúar kl. 17.00 - Örfá sæti laus Nýtt ár hefst með hátíðarbrag á Vínartónleikum þar sem hljóma sígrænar perlur eftir Strauss, Lehár og fleiri meistara óperettunar. Vínartónleikarnir hafa um árabil verið vinsælustu tónleikar hljómsveitarinnar og vissara að tryggja sér miða í tíma. Húsið opnað klukkutíma fyrir tónleika. Strengjatríó leikur Vínarvalsa í anddyri. Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda- og tæknisamfélagsins. Í vörslu Rannís eru opinberir samkeppnissjóðir s.s. Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og nýsköpun á Íslandi og gerir áhrif rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag og hagvöxt sýnilegan. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins. Tækniþróunarsjóður kynnir nýjar áherslur í starfsemi sinni og sprotafyrirtæki kynna nýsköpun á sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina. og nýsköpun Vaxtarsprotar Kynning í Ráðhúsi Reykjavíkur, 9. og 10. janúar. Dagskrá föstudag 9. janúar 14:00 - 17:00 14:00 Ávarp iðnaðarráðherra Össurar Skarphéðinssonar 14:15 Nokkur verkefni styrkt af Tækniþróunarsjóði, kynning og sýning Dagskrá laugardag 10. janúar 12:00 - 17:00 12:00 Sýning sprotafyrirtækja opnuð 13:00 Brúarsmíði sjóða og sprota, Tækniþróunarsjóður, Nýsköpunarsjóður, Impra og Innovit Þátttakendur Marorka • Mentor • Mentis Cura • ORF • Kine • Stjörnu-Oddi • Handpoint • Eff2 Clara • TellmeTwin • Matís • Nýsköpunarmiðstöð Íslands Almenningur er hvattur til að kynna sér starfsemi sprotafyrirtækja og opinberan stuðning við nýsköpun. Tónlistar- og kvikmyndaútgef-endur óttast netið eins ogpestina og kenna því um allt sem miður fer í þeirra starfsemi. Hingað til hafa bókaútgefendur un- að vel við sitt, enda dafnar stærsta bókabúð heims, Amazon,com, vel á netinu og setti sölumet fyrir jólin 2008; frá 28. nóvember til jóla, seldi Amazon 6,3 milljónir hluta (bækur, matvöru, geisladiska, DVD-myndir, raftæki, leikföng og svo má lengi telja). Hvað varðar bókaverslanir í kjötheimum er útlitið þó ekki eins bjart – bókabúðir á Vesturlöndum eiga í erfiðleikum og kenna netinu um.    Í skemmtilegri samantekt í NewYork Times fyrir stuttu var ein- mitt fjallað um þann vanda sem hefðbundnar bókabúðir standa frammi fyrir og felst í því að netið hefur gert það auðveldara en nokkru sinni að selja gamlar bæk- ur. Fyrir vikið kaupi færri þær bækur í verslunum sem leggja nú upp laupana hver af annarri.    Meðal bóka á metsölulista Ama-zon fyrir árið 2008 er kiljuút- gáfa bókarinnar Twilight eftir Stephenie Meyer (Meyer á einnig mest seldu bók ársins, Breaking Dawn, og þá tíundu mest seldu, The Host). Hjá Amazon kostar hún 6,04 dali með 45% afslætti (fullt verð 10,99 dalir), að viðbættum sending- arkostnaði, en á abebooks.com, sem er vefsetur fornbókaverslana, er ódýrasta eintakið á einn dal að við- bættum sendingarkostnaði.    Um leið og maður fer að leitalengra aftur í tímann og að bókum sem hafa ekki notið jafn mikillar hylli lækkar verðið enn og ég hef keypt bækur á netinu á allt niður í 10 sent (að viðbættum send- ingarkostnaði). Varla þarf að taka fram að höfundurinn fær ekkert út úr hverri sölu, fékk sinn hlut þegar bókin var seld ný, en þegar bæk- urnar eru svo ódýrar er hvort eð er lítið sem ekkert til skiptanna.    Þegar myndlist er seld áuppboði leggst á hana höfund- arréttargjald eftir ákveðnum reglum og reikniform- úlum. Ekkert slíkt er í gildi þegar bækur eru annars vegar og enginn hef- ur hreyft því að leggja slíkt á. Eins og getið er fékk höfundurinn sitt þegar bók- in var seld ný og á ekki kröfu á meiru þó verð hennar hækki hugs- anlega (áritað eintak af frumútgáfu Twilight kostar 6.500 dali, um 800.000 kr., á abebooks.com).    Í áðurnefndri grein í New YorkTimes og víðar hafa menn gert mikið úr þessum vanda, en að mínu viti er langt seilst að kenna forn- bókabúðum um samdrátt í bóksölu. Eðlilega er mestur áhugi á nýjum bókum en minni á eldri, eða í það minnsta er það sú þróun sem maður sér víðast hvar; eldri bókum er ýtt út úr búðum til að gefa meira og betra pláss fyrir nýja titla (og reyndar fyrir nýja vöru líka, en það er önnur saga). Fyrir vikið leitar maður á náðir abebooks.com og álíka vefja til þess að ná í eldri bæk- ur, að ekki sé talað um þegar bæk- ur eru einfaldlega ekki til hjá út- gefanda sem verður sífellt algengara. arnim@mbl.is Gulnuð blöð og gamlar skræður »Netið hefur gert þaðauðveldara en nokkru sinni að selja gamlar bækur. Fyrir vikið kaupa færri þær bækur fullu verði. AF LISTUM Árni Matthíasson JK Rowling Áritað eintak af Harry Potter seldist á hálfa aðra milljón. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is S.L.Á.T.U.R., Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík, standa fyrir nýárstón- leikum í Fríkirkjunni í Reykjavík á föstudagskvöld kl. 20. Þar leika tíu fagottleikarar ný, fjölskrúðug verk eftir jafnmörg ung tónskáld. Áki Ásgeirsson tónskáld er tals- maður „slátraranna“. „Hugmyndin er komin frá sláturfélaginu sem er hópur ungra tónskálda. Við höfum áður haldið nýárstónleika, en þá með lúðrum. Við höfum áhuga á að búa til hefðir. Eina slíka erum við að skapa á Menningarnótt þar sem við vorum með keppni og veittum farandbikar. Við fengum gamlan sláturkepp, fór- um með hann í Járnsteypuna í Garðabæ og fengum þá til að steypa verðlaunabikarinn fyrir okkur úr gegnheilu járni. Bikarinn heitir því Keppurinn, og það má búast við harðri keppni um hann í sumar.“ Áki segir enga sérstaka dulspeki á bak við það að velja fagott til að fagna árinu 2009. „Fagottin eru oft ein á báti og fáir sem spila á þau. Það er blanda af nemendum og kenn- urum sem spila á tónleikunum. Fa- gottin leynast þó víða, þótt ekki séu nema einn, tveir nemendur í hverj- um tónlistarskóla, ef einhver. Ekki veit ég hvort er hænan og hvort egg- ið, en fagotthljómurinn er líka mjög ólíkur öðrum hljóðfærum. Svo verð- ur til alveg sérstakur hljómur við að blanda þeim mörgum saman.“ Tíu fagott fagna árinu með Slátri SLÁTUR Tvö kontrafagott eru í fagottsveit Sláturs. Þau eru helmingi lengri en venjuleg fagott og ná þar af leiðandi helmingi dýpri tónum. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.