Morgunblaðið - 08.01.2009, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
YES MAN kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára
FOUR CHRISTMASES kl. 8 B.i. 7 ára
PRIDE & GLORY kl. 10 B.i. 16 ára
YES MAN kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára
BOLT m/ísl. tali kl. 8 LEYFÐ
THE DAY THE EARTH STOOD STILL kl. 10:20 B.i. 12 ára
SKOPPA OG SKRÝTLA Í BÍÓ m/ísl. tali Sýnd fös., lau., og sun. (700 kr.) LEYFÐ
BOLT m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
YES MAN kl. 8 - 10 B.i. 7 ára
MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
THE SPIRIT kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
„..BESTA DISNEY-TEIKNIMYNDIN
Í ÁRARAÐIR“
L.I.B. – FRÉTTABLAÐIÐ
SÝND MEÐ Í
SLENSKU
OG ENSKU
TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
- S.V., MBL
EKKERT GETUR
UNDIRBÚIÐ ÞIG FYRIR
SÝND Á SELFOSSI SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND FÖS., LAU., OG SUN.
YRI
SÝND Í KEFLAVÍK
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
NÝTT ár – nýtt Evróvisjón! Manni líður þann-
ig um þessar mundir að tilhugsunin um þessa
blessuðu keppni er hlý, góð og mun sterkari en
oftast áður. Undanfarið ár, með sínum hag- og
stjórnkerfishörmungum og þessir fyrstu jan-
úardagar, með sinni grámósku og tómlegheit-
um fá mann til að mæna bláum, vonbjörtum
augum til þessarar litríku, fáránlegu en jafnan
stórskemmtilegu keppni. Kallið mig mann
geðshræringa en Guði sé lof fyrir Evróvisjón!
Undankeppnin hér á landi hefst núna á laug-
ardaginn. Spennandi verður að sjá hvaða
straumar renna í gegnum lagasmíðarnar í
þetta sinn. Verða ættbálkatrommur málið eða
einbeita menn og konur sér að sykursætum,
ógleðisvaldandi ballöðum líkt og rússneska
mafían sigraði með í fyrra? Og skítt með það
hvernig framlag okkar verður fagurfræðilega
– hvaða taktík ætlum við að beita? Það er aðal-
málið. Gleymum því ekki að þetta er keppni og
það að lesa leikinn rétt er ekki síður mik-
ilvægt. Gott dæmi um þetta er t.a.m. þegar
Selma Björnsdóttir tók þátt fyrir Íslands hönd
öðru sinni árið 2005 með laginu „If I Had Your
Love“. Höfundurinn, Þorvaldur Bjarni, gæddi
lagasmíðina arabískum blæ sem var lenska um
þær mundir. Þetta var snjallt hjá Þorvaldi en
hann hafði hins vegar ekki erindi sem erfiði.
Bestum árangri í keppninni náði Ísland hins
vegar sex árum fyrr og þá fyrir tilstilli þessara
sömu aðila. En þá reyndist lykillinn að góðu
gengi einfaldur – lagið var einfaldlega gott.
Ísland átti lagrænt blómaskeið í keppninni
fram að og með „Nínu“ (1991), datt þá niður í
dal andleysis en var híft upp þaðan af meistara
Páli Óskari árið 1997. Gengið hefur verið
brokkgengt síðan.
Meira flipp og hananú!
Páll Óskar sendi inn snilldarlegt lag, með
snilldarlegu „sjói“ sem gerði nett grín að
keppninni. En um leið fór Páll inn í þetta af al-
vöru, með virðingu fyrir keppninni, punktur
sem margir virðast flaska á.
Á síðasta ári fór nefnilega fram harðvítug,
og eftir á að hyggja einkar athyglisverð glíma
á milli þeirra sem taka keppnina „alvarlega“
og þeirra sem líta svo á, að það sé í góðu lagi að
leika sér dálítið að henni.
Gjörningurinn í kringum Silvíu Nótt árið
2006 var mögnuð snilld, eitt það flottasta sem
Ísland hefur skilið eftir sig í keppninni. Eirík-
ur Hauksson stríddi hins vegar við það hróp-
andi (öskrandi?) vandamál ári síðar að keppa
með rokklag sem rokkaði ekki baun.
Og að minni hyggju, svo ég stígi nú fram
með ráð og visku, voru það reginmistök á síð-
asta ári að senda Eurobandið út í stað „flipp-
aranna“, þeirra Barða og Dr. Gunna. Að senda
út ferkantað og holt Evróvisjónlag sem hljóm-
aði eins og milljón önnur var að sjálfsögðu
uppáskrift að sneypuför. Ég mælist því til þess
að þveröfugur háttur verði hafður á í ár. Mér
er nett sama um gæði viðkomandi lags – bara
að það sé nógu andsk… flippað og fíflagang-
urinn við flutninginn fari helst fram úr vel-
sæmismörkum. Góðar Evróvisjónstundir.
Höfum við gengið til góðs?
Morgunblaðið/Ásdís
Næstum því Selma hafnaði í öðru sæti úti í Ísrael árið 1999 en frakkarnir flæktust fyrir.
Hvað hefurðu verið að gera síðastliðið ár?
Ég og Friðrik höfum haft nóg að gera með
Eurobandinu. Svo gifti ég mig á síðast ári og
ákvað í kjölfarið að taka lífinu með aðeins
meiri ró en undanfarin ár.
Hvers konar lag heldurðu að muni sigra í
undankeppninni hér heim?
Það er ómögulegt að segja. Ég er á móti
staðalímyndum hvað Evróvisjón varðar og
þetta fer algjörlega eftir flytjandanum og
hvernig lagið er útsett. Heildarpakkinn verð-
ur að virka. Allt verður að vera til staðar og
ganga upp.
Hefurðu einhver heilræði fyrir keppend-
urna í ár?
Ég á fullt af heilræðum til en mikilvægast
er að æfa sig nógu asskoti mikið. Ef fólk lang-
ar að komast út þá verður það að hugsa þetta
niður í smæstu smáatriði.
Frá hverju
myndirðu ráða
keppendum?
Það er ekki
hægt að mæla
gegn einhverju því
það fer alveg eftir
því hver flytjand-
inn er.
Hvað er næst á
döfinni?
Næstu helgi för-
um við til Münc-
hen þar sem
Sandra Kim mun
troða upp á sömu tónleikum. Sömu helgi
fljúgum við til Minsk í Hvíta-Rússlandi þar
sem við komum fram í beinni útsendingu á
úrslitakvöldi undankeppninnar þar í landi.
Regína Ósk
Óskarsdóttir
Á fleygiferð um Evrópu
Hvað er það eftirminnilegasta frá und-
ankeppninni í fyrra?
Lokakvöldið stendur upp úr þrátt fyrir að
maður hafi svolítið týnt sér sökum þess hvað
keppnin var löng. Ég fagna því að hún skuli
vera styttri í ár.
Voruð þið viss um að þið mynduð sigra?
Maður er aldrei viss því þetta snýst bara
um þessar þrjár mínútur á sviðinu, hvernig
maður stendur sig þar.
Hvað er ekki „in“ í búningatískunni í ár?
Bleikt og svart! hehe. Það væri „off“ að sjá
sömu liti og hjá okkur. Hvítur er alltaf sterk-
ur á sviði svo ég mæli með honum.
Áttu þér uppáhaldsatriði í sögu Söngva-
keppni Sjónvarpsins?
Ómar Ragnarsson flutti lag eftir sig ásamt
Ruth Reginalds, Skúla Gautasyni og Lilju
Guðrúnu leikkonu. Þau áttu stórleik í und-
ankeppninni árið
1993 með eróbikk-
atriði.
Hvaða heilræði
áttu handa flytj-
endum sem keppa
í fyrsta skipti?
Það fer eftir
hverjum og einum
en það skiptir
miklu máli að
syngja fyrir fólkið
heima í stofu,
þ.e.a.s. horfa í
myndavélina.
Heldurðu að þú eigir eftir að keppa aftur?
Það verður erfitt eftir að „This is my life“
gekk svona glimrandi vel. Ég skal hugsa mál-
ið ef ég fæ lag sem ég trúi jafnmikið á og það.
Mikilvægar þrjár mínútur
Friðrik Ómar
Hjörleifsson
!
"#$ !
% % & $ ' !
('
)* $
+ ,
-#
!"
- $ $.
+ ,
# $/ &
%&'( 01234&2
52
56$
)78 '$ ',
5 , 18
*+
54
'
+ #
, !"7, # 9
0:
&-(6# # 1:
)./; ,3
01
22
0
3
40
54
6
13
410
45
34
64
17
1
58
0
41
8
8
5
47
0#< 1& # 06=
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2009 hefst í
Sjónvarpinu á laugardagskvöldið kemur.
Fjögur lög keppa í hverjum þætti og kom-
ast tvö lög áfram úr hverjum þeirra, alls
átta lög, en áhorfendur kjósa lögin með
símakosningu. Laugardagskvöldið 7. febr-
úar verður upprifjunarþáttur og hinn 14.
febrúar keppa svo lögin átta í úrslitaþætt-
inum. Vinningslagið verður síðan framlag
Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva sem fram fer í Rússlandi í maí.
Undankeppnin