Morgunblaðið - 22.01.2009, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
Mótmæli almennings og óvissa í stjórnmálum
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
og Rúnar Pálmason
MÓTMÆLT var í Reykjavík gær
annan daginn í röð og var að þessu
sinni meiri hreyfing á hópnum. Þá
bar meira á hópi ungs fólks sem
kastaði eggjum, snjóboltum, flug-
eldum og fleira að lögreglu og átti í
stimpingum við hana en langflestir
mótmæltu með friðsamlegum hætti.
Mótmælin hófust við Alþingishúsið,
færðust þaðan að Stjórnarráðinu þar
sem aðsúgur var gerður að forsætis-
ráðherra. Síðan var haldið til baka að
Alþingishúsinu, þaðan upp að Þjóð-
leikhúsi um kvöldið þar sem að fél-
agsfundur Samfylkingarfélags
Reykjavíkur fór fram og loks enduðu
mótmælin aftur á Austurvelli fram á
nótt, þar sem til átaka kom milli lög-
reglu og mótmælenda.
Þó að langflestir mótmælendur
létu sér nægja að tjá óánægju sína
með taktföstum slætti og hrópum
var líka á svæðinu hópur ungmenna
sem ætlaði sér greinilega að reyna
verulega á þolinmæði lögreglunnar.
Mótmælt hafði verið við Alþingis-
húsið í rúma klukkustund er rödd
Snærósar Sindradóttur mennta-
skólanema kvað við í veikburða gjall-
arhorni. Hún sagði að ráðherrar
væru að funda í Stjórnarráðinu og
bætti síðan við: „Ég persónulega
ætla að berja mínar bumbur þar.“
Færði hópurinn sig í kjölfarið allur
frá Alþingishúsinu og að Stjórnar-
ráði.
Er fyrstu mótmælendurnir komu
að Stjórnarráðinu var Geir H.
Haarde forsætisráðherra á leið út úr
húsinu, bakdyramegin. Nokkrir
gerðu aðsúg að Geir sem komst
klakklaust inn í bílinn. Fleiri mót-
mælendur dreif að og var bíll Geirs
barinn að utan og í hann kastað snjó-
boltum og eggjum.
Sveifluðu kylfum
Nokkur löng andartök liðu áður en
óeirðasveit lögreglu stillti sér upp við
hlið bílsins og hóf að ryðja bílnum
braut út af bílastæðinu og að Hverf-
isgötu. Nokkrum sinnum sveifluðu
lögreglumenn kylfum á lofti og af
fasi þeirra mátti vera ljóst að högg-
um yrði beitt létu mótmælendur sér
ekki segjast. Blaðamaður sá engan
verða fyrir kylfuhöggum en kylf-
urnar voru notaðar til að ýta við
mönnum. Nokkrar mínútur tók að að
koma ráðherrabílnum af bílastæð-
inu.
Þegar Geir kom til þingflokks-
fundar Sjálfstæðisflokksins í Valhöll
seinna um daginn sagði hann að mót-
mæli væru eðlileg í öllum lýðræð-
isríkjum en ofbeldi væri ekki það
sama og mótmæli. „Fólk þarf að gá
að sér í þessu sambandi og ógnandi
framkoma við samborgara er ekki
við hæfi á Íslandi,“ sagði Geir.
Þegar fréttamenn spurðu Geir
hvort hann hefði talið sér vera ógnað
í dag, sagði hann: „Ég get ekki neit-
að því.“ Aðspurður hvort örygg-
isgæsla í kringum hann verði efld í
kjölfarið sagði Geir að ekkert væri
ákveðið í því efni.
Þögn vegna jarðarfarar
Mótmælin héldu áfram við Stjórn-
arráðið drjúga stund. Lítill hópur
ungmenna kastaði eggjum og snjó-
boltum að húsinu en langflestir létu
sér nægja að berja potta og pönnur,
klappa og hrópa. „Vanhæf rík-
isstjórn,“ var sem fyrr algengasta
slagorðið. Hópurinn færði sig síðan í
einu lagi að Alþingishúsinu eftir að
tilkynnt var um það í gjallarhorni að
blaðamannafundur væri um það bil
að hefjast í húsinu.
Búast hefði mátt við að mótmælin
héldu áfram með svipuðum takti en
þegar hópurinn kom inn á Austurvöll
datt skyndilega allt í dúnalogn. Skýr-
ingin var sú að í Dómkirkjunni fór
fram jarðarför og hafði dóm-
kirkjuprestur beðið nokkra for-
sprakka mótmælanna að hafa hljótt
við kirkjuna. Þetta kvisaðist hratt út
og í um 40 mínútur var allt með kyrr-
um kjörum á vellinum. Þegar jarð-
arförinni lauk hófust mótmælin á
nýjan leik. Að sögn Snærósar, sem
hafði hvatt til þess að fólk færði sig
Morgunblaið/RAX
Ryðja Lögregla varð að ryðja ráðherrabíl Geirs H. Haarde braut í gegnum hóp mótmælenda frá bílastæðinu við Stjórnarráðið.
Eggjum, snjóboltum og fleiru lauslegu var kastað í bílinn. Lögregla ýtti við mótmælendum með kylfum.
Brugðið Geir H. Haarde var ekki kominn inn í bíl sinn þegar mótm
þessu sambandi og ógnandi framkoma við samborgara er ekki við
Aðsúgur gerður að ráðherra
Erfitt fyrir lögreglu að sjá við færanlegum mótmælum Bíll forsætisráðherra barinn að
utan og kastað í hann eggjum Bálkestir reistir á Austurvelli og við Þjóðleikhúsið í gærkvöldi
Morgunblaðið/Golli
Mótmæli Kveikt var bál fyrir utan Þjóðleikhúsið í gærkvöldi á meðan fundur Samfylkingarfólks í Reykjavík fór
fram. Hópur mótmælenda ruddi sér leið inn á fundinn. Til stympinga kom í upphafi en ró komst á mannskapinn.
„ÉG er búinn að
fá nóg. Ég kaus
nú Samfylk-
inguna á sínum
tíma og hafði
miklar væntingar
en þessir þing-
menn voru ekki
kosnir til að fást
við þetta. Það eru komnir 110 dag-
ar en það er ekkert að gerast, ekk-
ert að frétta,“ sagði Sigurður
Haukur Gíslason.
Sigurður er stofnfélagi í Sam-
fylkingunni en sagði sig úr flokkn-
um fyrir tveimur mánuðum. Hann
sagði erfitt að vinna sig út úr reið-
inni, á hverjum degi væri sagt frá
nýju hneyksli. „Morgunblaðið slær
því upp að við skuldum 2.200 millj-
arða og engar upplýsingar um
hvernig eigi borga það. Svo ræða
þeir hvort ég geti keypt bjórinn úti
í ríki eða næstu búð!“
„Ekkert að gerast,
ekkert að frétta“
„ÞAÐ er ömurlegt að hafa búið við
þetta síðustu 100 daga. Þetta hefur
verið eilíf vanlíðan, svekkelsi og
bara martröð. Fólk er að vakna
núna og spyrna við fótunum. Fólk
er búið að fá nóg, loksins er fólk að
vakna af hundrað daga svefni,“
sagði Oliver Bergsson. Hann og
Friðrik Ómarsson notuðu gamlan
handknúinn þokulúður af togara til
að láta skoðun sína í ljós. „Við vilj-
um koma stjórninni frá, það er aug-
ljóst að hún hefur ekkert traust hjá
fólkinu,“ sagði Friðrik
Fólk að vakna af
100 daga svefni
Friðrik Ómarsson og
Oliver Bergsson.
ÁSDÍS Thorodd-
sen kvikmynda-
gerðarmaður
barði á pönnu af
miklum móð á
Austurvelli en
gerði á því hlé til
að ræða við
Morgunblaðið.
„Ég mæti hérna þar til búið er að
setja seðlabankastjórana af, fjár-
málaeftirlitið af og boða til kosn-
inga í vor,“ sagði hún. Vonandi
tæki það ekki of langan tíma því
hún hefði margt skemmtilegra að
gera. „En ég stend hérna þangað
til boðað verður til kosninga. Það
er ekki hægt að láta eins og ekk-
ert hafi gerst.“
Ásdís sagðist rétt ætla að vona
að mótmælin myndu skila árangri.
Það væri móðgun við alþýðuna að
láta sömu mennina sitja í sínum
stólum áfram.
Móðgun við alþýð-
una að enginn víki
MÓTMÆLENDUR voru á öllum aldri á Austurvelli í gær og meðal þeirra
þessi ungi drengur sem kom ásamt foreldrum sínum og barði taktföstum
slætti á trommuna. Fram eftir degi voru mótmælin að mestu friðsöm en
fjör fór að færast í leikinn eftir því sem leið á kvöldið og nóttina.
Morgunblaðið/Golli
„Litli trommuleikarinn“ sló taktinn