Morgunblaðið - 22.01.2009, Page 26

Morgunblaðið - 22.01.2009, Page 26
26 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 LANDSFUNDUR Sjálfstæðisflokksins verður haldinn í lok þessa mánaðar undir sérkennilegum kring- umstæðum. Erfiðleikar hafa verið í efnahagslífi heimsins en algjört hrun hefur orðið í efna- hagslífi Íslands. Sjálf- stæðismenn geta ekki skorast undan ábyrgð í þessu ferli en á grundvelli hugmynda sjálfstæðis- manna hefur íslenskt samfélag tekið stakkaskiptum undanfarinn áratug. Sjálfstæðismenn hafa staðið fyrir því að fella höft, auka svigrúm einstak- linga og fyrirtækja en einnig borið ábyrgð á að byggja upp eftirlitsstofn- anir og tryggja að frelsið yrði ekki misnotað. Verkstjórinn hefur brugðist Þótt gefið hafi illilega á bátinn verður því ekki haldið fram að grunn- hugmyndir sjálfstæðismanna séu rangar. Frelsi einstaklinga til at- hafna og viðskipta er grunnþáttur öflugs velferðarþjóðfélags. Við sjálfstæðismenn veljum á landsfundi og í prófkjörum þá menn og konur, leiðtoga okkar, er við treystum best til að koma hug- myndum okkar og lífs- sýn í framkvæmd á sem skynsamlegastan máta. Á landsfundi veljum við formann flokksins, verkstjóra hópsins, for- sætisráðherraefni og þann er við viljum að verði leiðtogi þjóðar- innar. Við sjálfstæðis- menn berum ábyrgð á þessum verkstjóra og nú er ljóst að sá verkstjóri sem við höfum valið okkur og treyst síðustu árin hefur brugðist. Frelsi hefur verið skapað en nauðsynlegt regluverk ekki sett eða fylgt eftir. Viðvörunarljós hafa blikkað án þess að eftir þeim hafi ver- ið tekið eða við þeim hafi verið brugð- ist. Ekki þarf að fjölyrða um þær hamfarir sem átt hafa sér stað en þúsundir Íslendinga hafa tapað sparnaði sínum. Geir H. Haarde verður að víkja Ljóst er að við sjálfstæðismenn verðum að byrja ærlega tiltekt á landsfundi og halda svo áfram í próf- kjörum. Endurnýjun þarf að eiga sér stað í Sjálfstæðisflokknum og best er að sjálfstæðismenn taki frumkvæði um slíkt og sýni ábyrgð frekar en að bíða þess að þjóðin hafni flokknum í kosningum. Nauðsynleg tiltekt hlýtur að byrja á forystusveitinni en þar liggur stærsti hluti þeirrar pólitísku og mór- ölsku ábyrgðar sem nú þarf að axla. Geir H. Haarde hefur verið í farar- broddi okkar sjálfstæðismanna, hann hefur tekið virkan þátt í að móta og hanna það kerfi er nú hefur fallið eins og spilaborg. Geir verður ekki frýjað reynslu eða menntunar og því er ábyrgð hans stór. Burtséð frá þeirri pólitísku ábyrgð sem Geir hlýtur að bera á atburðarásinni þá er borð- leggjandi að hann hefur ekki staðið sig nógu vel í starfi. Sem fjármálaráð- herra brást Geir varðandi að halda aftur af vexti ríkisútgjalda eða nota ríkisfjármálin á skynsamlegan hátt á þenslutímum, sem forsætisráðherra brást hann í að hafa eftirlit með og halda aftur af áhættusæknum fjár- málafyrirtækjum en þjóðarhagur og sparnaður Íslendinga var undir. Sem efnahagsmálaráðherra brást hann í að verja gjaldmiðil þjóðarinnar, sem verkstjóri ríkisstjórnar hefur Geir brugðist í aðdraganda hrunsins en einnig á fyrstu mánuðum eftir áfallið. Upplýsingagjöf til þjóðarinnar hefur verið léleg og of margt er yfir vafa hafið varðandi hvað er að gerast inn- an bankanna. Íslendingar standa ekki uppréttir gagnvart öðrum þjóð- um heldur láta þegjandi kúga sig. Það er eitt að geta ekki staðið á móti ofureflinu en að gefa út yfirlýsingu líkt og Geir gerði um að Íslendingar myndu ekki láta kúga sig, en láta svo það sem menn varast vildu ganga yf- ir Íslendinga án mótmæla er óhæfa og yfirhylming. Á heildina litið hefur tíð Geirs ekki reynst happadrjúg og við sjálfstæðismenn berum ábyrgð á því að bjóða Íslendingum upp á öfl- ugri leiðtoga svo þjóðin treysti sér áfram til að fylkja sér að baki okkar lífssýn. Hvernig leiðtoga viljum við? Sjálfstæðismenn verða að sjá til þess að þeir leiðtogar sem þeir velja sér og bjóða fram til að leiða þjóðina axli ábyrgð. Íslenskt þjóðfélag hefur lagst á hliðina en því miður er engin tilfinning fyrir því að landinu sé yfir- höfuð stjórnað. Það sem nú hefur gerst er í raun mannanna mistök, teknókratískt skipbrot. Það var ekki síldin sem hvarf. Stjórnleysi og lausatök voru látin viðgangast á öll- um sviðum.Við sjálfstæðismenn þurfum að gera ríka kröfu til þeirra leiðtoga sem við veljum okkur. Við skulum velja okkur aðila sem finnur til sinnar pólitísku og mórölsku ábyrgðar, aðila sem sýnir auðmýkt í samskiptum við fjölmiðla og umbjóð- endur sína og veit hvaðan valdið sprettur, aðila sem er verkstjóri og bregst við hættum en er ekki að því er virðist forlagatrúar, aðila sem stendur í ístaðinu en fórnar ekki mál- stað gærdagsins þótt gefi á bát- inn.Við sjálfstæðismenn skulum hefja tiltektina á landsfundi nú í lok janúar. Ég skora á landsfundarfull- trúa að velja ekki Geir H. Haarde til áframhaldandi forystu. Ég skora jafnframt á sjálfstæðismenn að hefja umsvifalaust leit að nýjum formanni og forystu en ljóst er að nóg er til af frambærilegu fólki í Sjálfstæð- isflokknum. Sjálfstæðismenn velji nýja forystu á landsfundi Steinþór Jónsson skrifar um Sjálf- stæðisflokkinn » Á heildina litið hefur tíð Geirs ekki reynst happadrjúg og við sjálfstæðismenn berum ábyrgð á því að bjóða Íslendingum upp á öflugri leiðtoga. Steinþór Jónsson Höfundur er sjálfstæður atvinnurekandi, landsfundarfulltrúi og situr í stjórn hverfafélags Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík SÁ ER hér skrifar las af stakri athygli pistil Árna Johnsens í blaðinu á dögunum, til- efnið meint skruggu- leg uppsögn teikn- arans Sigmunds nú fyrir skömmu. Ekki er þetta eini óvænti gjörningurinn á blaðinu, fleira fólk sem af dugnaði og trúmennsku hefur þjónað því í ára- tugi og lengstum talist ómissandi hefur einnig fengið reisupassann, si sona, einkum af eldri kynslóð. Má nefna þetta uppsagnir á ameríska vísu, nema að vestan hafs og austan tíðkast þetta síður þegar um er að ræða lausafólk á andlega sviðinu og telst enn í fullu fjöri. Hugtakið lausa- fólk á þó ekki fullkomlega við þar sem viðkomandi hafa iðulega verið reglulegir gestir á síðum blaðsins um árafjöld en eru þó ekki fastráðnir né með skriflegan samning, um nokkurs konar heiðursmannasamkomulag að ræða. Viðkomandi blað eða tímarit þó yfirleitt með einkarétt á birtingu framlags þeirra, þannig ekki á ferð- inni svonefndir free lance blaða- menn. Og ef um vinsæla teiknara/ skrifara er að ræða leitast flest blöð/ tímarit við að halda þeim sem lengst og kveðja þá með eftirsjá og þakk- læti við starfslok og kann skrifari mörg dæmi þess af erlendum vett- vangi. Í tilfelli Sigmunds mun teiknarinn mjög sár út af snubbóttri uppsögn gegnum síma og láir það honum eng- inn og trúlega kann meirihluti les- enda blaðsins viðkomandi yfirmönn- um litlar þakkir. Það er nefnilega ekki sama hvernig uppsögn ber að í slíkum tilvikum og lakara ef hún heldur engan veginn vatni rök- fræðilega séð. Viðtekin regla á blaðinu að fastir starfsmenn hætti í síðasta lagi um sjötugt eins og tveir mætir ritstjórar hafa einmitt gert en engin ákvæði eiga hér við um laus- ráðna og réttindalausa starfsmenn og væri viturlegt að athuga þau mál og ganga betur frá ráðningu þeirra, eðlilegum mannréttindum um leið. Sigmund er 77 ára gamall og hefur haldið úti daglegu framlagi í 44 ár sem eitt sér er afrek, þá sannaði hann á sýningu nor- rænna blaðateiknara hér í borg fyrir nokkr- um árum að hann stæði þeim ekki að baki, þótt grunnmenntunin væri kannski ekki jafn gagn- ger. Nú vill svo til, að teiknarinn margfrægi er jafnaldri þess sem hér kveður sér hljóðs, einnig mikilvirkur við blaðið í meira en fjóra áratugi, og fékk sömu- leiðis að vita á svipuðum tíma að þjónustu hans væri ekki óskað leng- ur. Dálítið ólíku saman að jafna því hinn sami hefur verið að minnka við sig skrif sl. áratug og lýst því marg- sinnis yfir að hann væri á leiðinni að hætta að fullu, einungis tímaspurs- mál. Blaðið ekki lengur sá fjölmiðill sem hann sættist við að þjóna í upp- hafi, og þá fyrir drjúga eftirgangs- semi. Er því alls ekki sár yfir að vera hættur, frekar léttir, eiturörvarnar óumflýjanlega margar á slóð listrýna á þessu fámenna útskeri. Hefði þó viljað að hátturinn hefði verið nokkuð annar og síður gert af því er virtist taugatrekktum þáverandi ritstjóra og þó öðrum þræði drengskap- armanni, líkast til heilaþvegnum. Um þakklæti fyrir brautryðjendastörf sem stækkuðu blaðið að mati skáld- ritstjórans, þá hann kvaddi skrifara um árið, ekki að ræða. Hefði viljað sjá blaðið þróast öðru- vísi, á safaríkan jarðbundinn og heimsmenningarlegri hátt, og að enn væri rými fyrir stóra drauma um Ís- land fata morgana. Minni áhersla lögð á hörðu gildin; girnd/ græðgi/ hégóma/ ágirnd/ leti/ öfund; ytra byrði, umbúðir og þynnku, einsýni hlutdrægni og nepotisma í frétta- flutningi, sér í lagi varðandi mynd- listarviðburði. Öllu meir í átt að djúpu og mjúku gildunum, hlutlægni, skilvirkni, gagnsæi, metnaði og visku. Nokkur orð til Morgunblaðsins Bragi Ásgeirsson skrifar um starfs- lok manna á Morgunblaðinu Bragi Ásgeirsson »Hefði viljað sjá blaðið þróast öðru- vísi, á safaríkan jarð- bundinn og heimsmenn- ingarlegri hátt... Höfundur er listamaður. MORGUNBLAÐIÐ hefur verið með úttektir á kostum og göllum aðildar að Evrópusambandinu. Blaðið hefur fjallað um reynslu Finna. Áhugavert í þessu samhengi væri að skoða reynslu Nýfundlend- inga af inngöngu í kanadíska ríkja- sambandið fyrir sextíu árum nú þegar Íslendingar standa frammi fyrir stærstu ákvörðun sinni frá því þjóðin sótti sjálfstæði. Því er gjarn- an haldið fram að utan Evrópusam- bandsins einangrist Ísland en getur verið að hin raunverulega ein- angrun felist í aðild að Evrópusam- bandinu? Að þjóðin einangrist inn- an Evrópu nú þegar álfan stefnir að sameiningu í risaríki með forseta, utanríkisstefnu, varnarstefnu, þing, framkvæmdastjórn, gjaldmiðil, dómskerfi, fána, þjóðsöng, þjóðhá- tíðardag og sinn Lissabon- samning.Verður sýn Íslendinga ein- skorðuð við Evrópu þegar fram líða stundir? Í þessu samhengi er fróð- legt að skoða reynslu nágranna okkar í vestri, Nýfundlendinga sem hafa einangrast frá umheiminum innan Kanada. Þann 31. mars næst- komandi eru sextíu ár liðin síðan Nýfundnaland gekk í kanadíska ríkjasambandið eftir umdeildar þjóðaratkvæðagreiðslur og of- urþrýsting frá Bretlandi og Kan- ada. Ísland í austri og Nýfundna- land í vestri eru sitt hvorum megin við Hvarf – syðsta odda Grænlands. Íslendingar eru liðlega 300 þúsund, Nýfundlendingar liðlega fimm hundruð þúsund, 25 þúsund á Labrador. Árið 1980 voru Íslend- ingar 230 þúsund en íbúar Ný- fundnalands 568 þúsund. Á ald- arfjórðungi hefur Íslendingum fjölgað um 75 þúsund en Nýfund- lendingum fækkað um 60 þúsund; voru 508 þúsund árið 2008. Eyjan Nýfundnaland er svipuð að stærð og Ísland. Landlægt atvinnuleysi, fólksfækkun og mótmæli Það er viðvarandi landlægt at- vinnuleysi á Nýfundnalandi – er nú 13,7%, þar eru tekjur á mann einna lægstar innan Kanada, hæstu skatt- ar og landflótti tugþúsunda síðasta aldarfjórðung. Sam- skipti stjórnvalda í St. John’s annars vegar og Ottawa hins vegar einkennast af stirfni og tortryggni þrátt fyrir sameiginlegan uppruna. Í árslok 2004 var kanadíski fáninn tekinn niður við op- inberar byggingar á Nýfundnalandi að skipan stjórnvalda í St. John’s. Það var drama- tísk gjörð – mótmæli gegn kan- adísku valdi vegna deilna um arð af olíuvinnslu á Miklabanka. Forsætis- ráðherra Nýfundnalands sakaði kanadísk stjórnvöld um svik. Árið 1992 lýstu yfirvöld í Ottawa yfir banni á þorskveiðum á Miklabanka. Þorskurinn hefur ekki náð sér á strik eftir áratuga veiðar útlendra ryksugutogara meðan kanadísk stjórnvöld litu undan en Íslend- ingar háðu sín þorskastríð. Á 15 ár- um var átta milljón tonnum af fiski mokað um borð í ryksugutogara. Virtir vísindamenn hafa líkt eyð- ingu sjávarbotnsins á Miklabanka við eyðingu regnskóganna; tog- ararnir hafi raskað svo sjávarbotni og gróðri að ekki verði aftur snúið. Hrun þorsksins var þungur kross að bera, draugabæir eru algeng sjón. Þegar sjávarútvegsráðherra Kanada lagði bann við þorskveiðum á Miklabanka og Lawrenceflóa árið 2003 lýsti forsætisráðherra Ný- fundnalands því yfir að St. John’s myndi gefa út eigin þorskkvóta í Lawrenceflóa. Enginn yrði sóttur til saka fyrir að brjóta fisk- veiðibann alríkisstjórnarinnar! Hvernig munu íslenskir sjómenn taka tilskipunum frá Brussel í hörðu ári? Nýfundlendingar rekast illa innan kanadíska ríkjasambands- ins og bölva gjarnan stjórnvöldum í Ottawa í sand og ösku. Þeir telja valdið fjarlægt og andæfa gjarnan. Þeir krefjast aukins for- ræðis eigin mála auk þess sem þeir telja að sig hafa verið hlunn- farna í mikilvægum málum þó ríkin í kan- adíska ríkjasamband- inu hafi mikið sjálf- stæði. Stórir málaflokkar eins og heilbrigðis-, velferðar- og menntamál eru á könnu einstakra ríkja. Rómuð náttúrufegurð, St. John’s höfuðborg Nýfundnaland er rómað fyrir náttúrufegurð. St. John’s með 180 þúsund íbúa er breiddargráðu sunnar en París – talsvert sunnar en Dyflinni. Meðahiti í júlí er 20 gráður en einnar gráðu frost í jan- úar sem gerir hana hlýjustu borg Kanada að vetrarlagi. St. John’s státar af því að hafa haldið knatt- spyrnukappleik í undankeppni HM árið 1985 þegar Kanada komst í úr- slit í Mexíkó. Frá 1991 til 2005 tók íshokkílið St. John’s þátt í svokall- aðri AHL-deild; nokkurs konar 2. deild N-Ameríku en liðið var selt til Montreal 2005. Stærsti flugvöll- urinn á Nýfundnalandi er við St. John’s þar sem árlega fara um 1,2 milljónir farþega – um 500 þúsund ferðamenn heimsækja landið ár- lega. Frá St. John’s er flogið til nokkurra næstu borga Kanada en ekkert áætlunarflug er milli St. John’s og Evrópu. Stærsta flug- félag Kanada, Air Canada, býður ekki upp á beint áætlunarflug til útlanda frá St. John’s; boðið er upp á flug til Halifax, Ottawa, Toronto og Montreal. Frá 2004 hefur hið ameríska Continental Airways boð- ið upp á flug til New York fjórum sinnum í viku allt árið, daglega yfir sumarið. Það eru einu beinu sam- skiptin við útlönd. Samskipti Ný- fundnalands við útlönd eru afar einsleit og takmörkuð. Getur þjóð verið stórhuga með þessa sýn út? Nýfundnaland hefur innan Kanada einangrast frá umheiminum. Geta Íslendingar lært af reynslu Nýfundlendinga? Meira: mbl.is/esb. Á Ísland á hættu að einangr- ast líkt og Nýfundnaland? Hallur Hallsson fjallar um reynslu Nýfundlendinga af inngöngu í kanadíska ríkjasambandið » Sextíu árum eftir inngöngu í Kanada hefur Nýfundnaland einangrast frá umheim- inum. Geta Íslendingar lært af reynslu Nýfund- lendinga? Hallur Hallsson Höfundur er blaðamaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.