Morgunblaðið - 22.01.2009, Page 35

Morgunblaðið - 22.01.2009, Page 35
Minningar 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 ✝ Anna Georgsdótt-ir fæddist á Laug- arbökkum í Ölfusi hinn 20. febrúar 1928. Hún lést á Landspít- alanum, Landakoti, hinn 17. janúar síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Margrét Kjartansdóttir, f. á Efri-Húsum í Önund- arfirði 2. ágúst 1896, d. 5. apríl 1960 og Georg Jónsson, f. á Strýtu í Hamarsfirði 24. febrúar 1895, d. 24. mars 1981. Bróðir Önnu er Kjartan, f. 7. maí 1933, maki Sigríð- ur Pétursdóttir, f. 3. október 1934, þau eiga þrjú börn. Fóstursystir Önnu var Jóna Sigurjónsdóttir, f. 13. febrúar 1942, d. 6. maí 2005, maki Þórður M. Adólfsson, þau eignuðust 5 börn. Anna giftist hinn 2. júlí 1955 Gunnari Má Péturssyni, f. í Dan- mörku 16. október 1919. Foreldrar hans voru Lára Eggertsdóttir, f. á þeirra er Davíð Georg. Fyrir átti Aldís tvö börn, a) Jóhönnu Sigurð- ardóttur, maki Pétur Sigurðsson, sonur þeirra er Hinrik Frank, og b) Brynjar Elí Pálsson, dóttir hans er Embla Sól. 4) Pétur, f. 8. mars 1963, maki Dóra Eydís Pálsdóttir, f. 1. mars 1966. Þau eiga tvö börn, Gunnar Má og Ólöfu Þorbjörgu. 5) Margrét, f. 2. júní 1972, maki Eyj- ólfur Gunnarsson, f. 28. nóvember 1972. Þau eiga fjögur börn, Gunn- ar Trausta, Atla Má, Magnús Daða og Láru Ósk. Anna ólst upp í Skerjafirði, bjó þar frá 3 ára aldri til æviloka. Hún var stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1948 og stundaði nám í ensku og dönsku við Háskóla Íslands. Hún vann hjá Viðskipta- nefnd þar til börnin fæddust og var heimavinnandi þar til yngsta barn- ið var komið í gagnfræðaskóla. Þá hóf hún störf á Landsbókasafni Ís- lands, síðar Þjóðarbókhlöðunni, þar til hún lét af störfum árið 1998. Á árunum sem hún var heimavinn- andi vann hún sjálfboðastörf fyrir Rauða kross Íslands. Útför Önnu fer fram frá Nes- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Papósi við Álftafjörð 17. júlí 1892, d. 27. febrúar 1949 og Pét- ur Magnússon, f. á Gilsbakka í Hvít- ársíðu í Borgarfirði 10. janúar 1888, d. 25. júní 1948. Börn Önnu og Gunnars eru: 1) Lára, f. 27. janúar 1956, maki Ólafur K. Ólafsson, f. 22. maí 1956. Þau eiga þrjú börn, Georg Pétur, Önnu Margréti og Jón Óskar. 2) Kjartan Georg, f. 24. janúar 1957, maki Ól- ína Á. Jóhannesdóttir, f. 3. sept- ember 1957. Þau eiga tvær dætur, Oddnýju Önnu og Láru Margréti. Dóttir Kjartans og Petrínu Sæunn- ar Úlfarsdóttur er Ásdís, maki Andri Úlriksson. Þau eiga tvo syni, Ármann og Kjartan Úlrik. Andri átti fyrir tvö börn, Gabríel (d. 1997) og Agnesi. 3) Gunnar Már, f. 5. nóv- ember 1959, maki Aldís Bára Ein- arsdóttir, f. 13. ágúst 1953. Sonur Fyrir mömmu var Skerjafjörð- urinn paradís á jörð. Hún áleit sig sæla að hafa flust þangað lítið barn og búið þar æ síðan. Við rifjuðum það upp á síðustu göngu okkar í Skerjafirði skömmu áður en hún lést að nú væri hún líklega sá Sker- firðingur sem lengst hefði búið þar. Mamma var staðráðin í að yfirgefa ekki Skerjafjörðinn til að taka upp „þægilegri“ búsetu í öðru borgar- hverfi. Hún var flutt á spítala 5. janúar sl. og banalegan var stutt, hún kvaddi södd lífdaga 17. janúar. Mamma ólst upp á sveitabæ í Reykjavík. Faðir hennar var Georg Jónsson bóndi og móðir hennar Margrét Kjartansdóttir húsfreyja. Margrét var menntuð kona, hafði gengið í Kennaraskólann. Þau voru komin á fertugsaldurinn þegar móðir mín fæddist. Mamma kom örugglega eins og sólargeisli inn í líf þeirra. Fimm árum síðar eign- aðist hún bróður, Kjartan bónda, sem lifir systur sína. Fóstursystur eignuðust þau systkinin síðar, Jónu Sigurjónsdóttur, sem er látin. Ég held að æska og uppvöxtur móður minnar hafi verið eitt æv- intýri. Yndislegra umhverfi en Skerjafjörðinn er vart hægt að hugsa sér, góðir foreldrar og sam- hent fjölskylda. Mamma átti marg- ar góðar æskuvinkonur og sá vin- skapur entist ævina á enda. Hún gekk menntaveginn, var stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1948 og átti þaðan góðar minn- ingar. Hún lagði áherslu á að við, börnin hennar, gengjum sama veg. Við komumst ekki upp með að kvarta undan „námsleiða“ og vilja gera hlé á námi. Ljúka stúdents- prófinu fyrst og svo má gera hlé! Og það varð sem hún vildi. Öll börnin fimm eru stúdentar frá Menntaskólanum í Reykjavík. Mamma las dönsku og ensku í Há- skóla Íslands að stúdentsprófi loknu. Hún vann síðan skrifstofu- störf hjá Viðskiptanefnd. Mamma var sigld kona, fór oft með Gullfossi til Kaupmannahafnar og sagði gjarnan um fólk að það hefði verið samskipa henni á Gullfossi. Það var í einni slíkri ferð sem hún hitti ást- ina sína, hann pabba minn. Þau giftu sig eina sólardaginn rigninga- sumarið 1955. Það var 2. júlí og á hverju ári síðan var ekið til Þing- valla þann dag. Alvara lífsins tók við. Pabba og mömmu fæddust fjögur börn á átta árum og svo eitt til níu árum seinna, fimm börn alls. Þá var lífið enginn leikur lengur, stoppað og stagað frá morgni til kvölds. Það hefur oft verið erfitt hjá móður minni að annast okkur öll auk alls annars sem til féll á stóru heimili. Hún hafði engar ömmur til að leita til, tengdamóðir hennar dó áður en þau pabbi kynntust og móðir hennar langt um aldur fram árið 1960. Móðir mín talaði alltaf fallega um þær báðar og saknaði þess örugglega að hafa ekki fengið að kynnast tengdamóð- ur sinni. Ég á margar yndislegar minningar frá æsku minni þar sem mamma var kjölfestan. Það er dýr- mætt veganesti að hafa átt áhyggjulausa æsku í skjóli góðra foreldra, fyrir það þakka ég þér, mamma mín, á kveðjustund. Þín dóttir Lára. Þakklæti er mér ofarlega í huga þegar ég minnist móður minnar, þakklæti fyrir að hafa verið mér besta mamma sem ég get hugsað mér. Ég er yngst systkinanna og hef alltaf verið mjög náin mömmu og pabba. Mamma var heimavinn- andi og áður en ég hóf skólagöngu man ég eftir okkur mömmu saman í Vesturbæjarlauginni á hverjum degi og eftir að ég byrjaði í Mela- skóla naut ég þess að koma heim úr skólanum vitandi að mamma beið eftir mér. Þegar ég var komin í MR og mamma var farin að vinna á Lands- bókasafninu gerði ég að vana mín- um að læra fyrir öll próf í lestrarsal bókasafnsins. Með því móti gat ég farið með mömmu í kaffi í pásum og þegar ég fór í Háskólann og bú- ið var að sameina Landsbókasafnið Háskólabókasafninu svo úr varð Þjóðarbókhlaðan þá lærði ég þar. Og fór í kaffi og mat með mömmu. Svona leið æskan, mamma alltaf í kringum mig og ég í kringum hana. Eftir að við Eyjó kynntumst fest- um við kaup á okkar fyrstu íbúð í Kópavogi við Fossvogsdalinn. Við eignuðumst Gunnar Trausta og á hverjum einasta degi gekk ég heim til mömmu og pabba með Gunnar Trausta í vagni og alltaf gengu mamma og pabbi á móti mér. Við mættumst í Nauthólsvík og geng- um saman út í Skerjó. Við fluttum síðan í Vesturbæinn, Atli Már fæddist og enn gekk ég á hverjum degi til mömmu og pabba. Síðan fluttum við í Skerjafjörðinn og Magnús Daði fæddist. Amma og afi voru enn heimsótt daglega og amma las fyrir drengina og afi spil- aði við þá. Loks fæddist Lára Ósk og líkt og strákarnir varð hún sól- argeislinn hennar ömmu. Við fórum ófáar ferðirnar saman í Þjórsárdalinn, um landið þvert og endilangt og til útlanda. Þessar ferðir eru okkur ómetanlegar. Betri ömmu og afa er ekki hægt að finna. Við munum áfram heim- sækja afa daglega en ömmu er sárt saknað. Ég mun halda minningu hennar á lofti og börnin mín munu áfram fá að heyra um ömmu sem gerði allt fyrir þau. Mamma er mín fyrirmynd. Margrét. Ég kynntist konu minni Láru 1972, þá 16 ára gamall, og skömmu síðar foreldrum hennar, Önnu og Gunnari. Ekki er óeðlilegt að for- eldrar okkar hafi tekið sambandi 16 ára unglinga með hæfilegum fyr- irvara þótt aldrei hafi það verið lát- ið í ljósi. Mér, 16 ára stráknum, var tekið með velvild af Önnu og Gunn- ari. Tímar liðu, sambandið varð nánara, og alla tíð hefur samband okkar Láru verið í skjóli foreldra okkar beggja. Anna var menntakona; hún las mikið og sótti myndlistarsýningar. Eftir að börnin fluttu að heiman fjölgaði ferðum þeirra Gunnars til útlanda, þar sem þau sóttu sýn- ingar og fóru í leikhús. Sú mynd af tengdaforeldrum mínum, sem alltaf verður í huga mér, er myndin af þeim í stofunni á Bauganesi, lesandi og heimilishund- urinn liggjandi undir stofuborðinu. Um leið og við komum í heimsókn með börnin breyttist heimilið í barnaheimili, amma las fyrir börnin og afi spilar við þau tímunum sam- an. Barnabörnin tóku því miklu ást- fóstri við ömmu og afa. Þegar við Lára vorum að koma börnum okkar á legg þurftum við oft að leita til þeirra um pössun vegna náms okk- ar eða annars. Ávallt var það auð- sótt mál og börnin nutu ástar og natni afa og ömmu. Anna hafði ver- ið veik í langan tíma fyrir andlát sitt og heilsu hennar hrakaði smátt og smátt. Þennan tíma hugsaði Gunnar um hana allan sólarhring- inn. Oft var umönnunin honum erf- ið; stundum mjög erfið, en alltaf þegar við Lára komum til þeirra á Bauganesið frá Stykkishólmi heils- aði hann okkur með sömu glað- værðinni og væntumþykjunni yfir því að við værum komin. Í þau 32 ár, sem ég hef þekkt Gunnar, hefur glaðværðin verið hans aðalsmerki og erfið veikindi Önnu náðu ekki að svipta hann glaðværðinni þótt stundum hafi veikindin gengið nærri honum. Ég veit að þegar sorgin hefur linað tak sitt mun gamla góða glaðværðin blómstra á ný þegar hann hittir öll sín börn, barnabörn og barnabarnabörn. Og ekki má gleyma hundunum. Þegar ég kynntist Önnu og Gunnari var hundurinn Bobbý á heimilinu og síðar kom Glói. Hin síðari ár hafa þau verið án félagsskapar hunds. En þó ekki alveg. Fjögur barna þeirra eiga hunda og eftir að Anna lagðist banaleguna inni á spítala fékk Gunnar hundinn Bassa til að vera hjá sér. Við Lára vorum hjá Önnu þegar hún skildi við þennan heim. Hafi ég efast um það, að eitthvað betra tæki við eftir dauðann, hvarf sá efi við það að fylgjast með síðustu and- artökum hennar. Lífið fjaraði sífellt hraðar úr þreyttum líkamanum og loks sleppti hún takinu á okkar heimi. Á þessum tíma sá ég frið- sældina færast hægt og rólega yfir Önnu og þegar hún hafði loks gefið upp öndina var yfir henni friðsæld Guðs. Öll syrgjum við Önnu og veitum hvert öðru stuðning í sorginni og þá ekki síst Gunnari. En allt hefur sinn tíma; sorgin einnig. Við tekur Anna Georgsdóttir SJÁ SÍÐU 36 Látinn er góðvinur okkar hjóna, Helgi Halldórsson. Eflaust hefur hvíldin verið honum kærkomin eftir erfiðan sjúkdóm er hann átti við að stríða síðustu ár. Kynni okkar hafa staðið í tugi ára. Er Helgi lauk skólagöngu í Vél- stjóraskólanum er okkur það minn- isstætt að á prófum var Helgi ætíð hæstur og var það umtalað hvað honum gekk vel að læra. Hann var vélstjóri hjá Eimskip í nokkur ár eftir skólagöngu. Helgi var athafnasamur mjög, hætti sjómennsku fljótlega, fór í land og setti á stofn fyrirtækið Stál- iðjuna og hóf smíði á ýmsum hlutum fyrir markaðinn hér svo sem borð- um, stólum, rúmum o.fl. fyrir heim- ili, sjúkrahús, skóla o.fl. og hann hafði um tíma marga tugi manna í vinnu. Ekki nægði Helga íslenski markaðurinn eingöngu. Hann flutti með fjölskyldu sína til Skotlands á tímabili og reyndi þar framleiðslu á vörum Stáliðjunnar. Þannig að Helgi var einn af fyrstu útrásar- mönnunum. Samhliða framleiðslunni í Stáliðj- unni var rekin verslun í Reykjavík sem Beta stjórnaði og var til fyr- irmyndar samvinna þeirra hjóna á því sviði. Frá því að við kynntumst þeim hjónum hófum við fljótlega að ferðast saman, bæði innanlands og erlendis. Ferðirnar urðu fjölda- margar í gegnum áratugi. Samskiptin skilja eftir ógleyman- legar og skemmtilegar minningar sem að við hjónin erum ákaflega þakklát fyrir. Beta mín, Hjartanlegar samúðar- kveðjur til þín og barnanna. Með þakklæti kveðjum við Helga vin okkar með virðingu. Karen og Víðir. Með nokkrum orðum vil ég minn- ast vinar míns Helga Halldórssonar. Kynni okkar hófust á árunum uppúr 1960 þar sem ég ungur maður starf- aði hjá innflutningsfyrirtæki sem sá um að leysa út vörur fyrir viðskipta- vini og einn þeirra var Helgi. Þar hófst áratuga vinátta okkar. Nokkru áður hafði hann hætt störfum sem vélstjóri til sjós og ásamt konu sinni Elísabetu stofnað lítið fyrirtæki sem framleiddi nytjahluti í gamla fjósinu í Melbæ í Sogamýrinni. Starfsemi fyrirtækisins jókst, og flutt var í hentugra húsnæði í Súð- arvogi þar sem framleiðsla á stál- húsgögnum hófst. Auka þurfti véla- og tækjabúnað, sumt varð að sér- smíða á staðnum því ekki var á þeim tíma hægt að treysta á að skreppa í búðina eftir því sem á vantaði, og þannig var því einnig varið með framleiðsluna, ósjaldan hannaði og útfærði Helgi hlutina sjálfur enda hagleiksmaður í höndum og afar laginn við alla hönnun og sérsmíði. Það var greinilegt að hann var stór- huga og hugmyndaríkur og hafði hæfileika til að sjá fyrir þróun mála. Um áratuga skeið var vart til það heimili á Íslandi þar sem ekki fyr- irfundust hlutir sem smíðaðir voru hjá Stáliðjunni. sem varð eitt stærsta fyrirtæki á sínu sviði hér- lendis. Þá lagði hann líka land undir fót og starfrækti samhliða um tíma framleiðslu á stálhúsgögnum í Skot- landi og var um skeið einnig með út- flutning á húsgögnum til Bandaríkj- anna. Skömmu áður en við kynntumst hafði ég lokið námi í Verzlunarskól- anum og nefndi við hann gamalt áhugamál mitt á öðru starfi sem tengist fluginu, og svarið og hvatn- ingin lét ekki standa á sér: Þú drífur í þessu, og við skiptum bara fyrsta flugtímanum á milli okkar! Með því var grunnurinn lagður að nýju fram- tíðarstafi því í kjölfarið fór ég í flug- nám og ný áætlun varð til í lífi mínu. Um tíma sátum við líka saman á nokkrum námskeiðum í fornsögun- um, og ráð hans varðandi undirbún- ing fyrir námskeið í Sturlungu reyndust vel eins og önnur ráð hans. Helgi átti ýmis áhugamál. Um árabil stunduðu þau hjónin og börn þeirra hestamennsku af kappi, farið var í lengri og skemmri útreiðartúra með góðum félögum. Seinna tók golfið við þar sem bæði voru vel lið- tæk og ósjaldan var komið heim af golfvellinum með verðlaunabikar dagsins í hendi. Þá höfum við Lauf- ey notið einstakra stunda með þeim hjónum á ferðalögum vítt og breitt um landið og margar góðar steikur voru snæddar í sumarhúsinu þeirra í Öndverðarnesi þar sem þau hjónin höfði búið sér einstakan sælureit. Helgi var vel lesinn og hafði skýra sýn á þjóðfélagsmál og var ákaflega skemmtilegt að ræða við hann um menn og málefni líðandi stundar, kímni hans var einstök og oft var hlegið þannig að undir tók í húsinu. Erfiður sjúkdómur hrifsaði til sín allt of fljótt vininn sem nú er sárt saknað. Við Laufey og dætur okkar þökkum samfylgdina og vottum Betu og börnum þeirra samúð. Guð blessi minningu Helga Hall- dórssonar. Sverrir Þórólfsson. Helgi Halldórsson og Jóhann fað- ir minn ólust báðir upp í Hrútafirð- inum og þessi átthagabönd sem þeir áttu sameiginleg gerðu það að verk- um að sterk tengsl voru ætíð við fjölskyldu okkar. Mín fyrstu kynni af Helga Halldórssyni voru 1959, þegar ég kom í fjósið á Melbæ við Sogaveg þar sem hann byrjaði starf- semi með fyrirtækið sitt sem síðar varð Stáliðjan. Ég var þá að elta pabba, sem vann hjá honum í auka- vinnu. Mér var mikið í mun að fylgj- ast með því sem fór fram í smiðjunni og þóttist sjálfur vinna líka, sjö ára gutti. Þetta varð að meiru, því ég byrjaði hjá Helga í sumarvinnu strax og ég hafði aldur til eða um 15 ára aldur. Síðar fór ég á samning hjá honum í rennismíði og endaði með meistarabréf. Mér er minnis- stætt þegar ég hafði lokið við sveinsstykkið að Helgi bauð mér í bíltúr niður á Grensásveg þar sem hann hafði þá opnað verslunina Króm Húsgögn. Við gengum um verslunina og Helgi benti á stól og sagði, viltu eigan þennan stól? Svona var Helgi. Það var oft fjörugt að vinna í Stáliðjunni, margt skrafað og hlegið og ekki síst þegar forstjór- inn rifjaði upp sögurnar úr Hrúta- firðinum. Ég byrjaði með kústinn og endaði sem verkstjóri og gerðist bóndi. Helgi var glöggur og greind- ur, hafði hvasst augnaráð, en alltaf var stutt í brosið og dynjandi skelli- hlátur. Þegar Stáliðjan var á Hlað- brekkunni, var Gulli sonur Helga eitthvað að gutla með hljómsveit og æfa inni á skrifstofu. Úr varð mikill hávaði og skrítinn söngur barst það- an út, svo okkur starfsmönnunum stóð ekki alveg á sama. Helgi var al- veg pollrólegur, sá á okkur svipinn og sagði, bíðið bara strákar, þessi stúlka sem er að syngja þarna inni á eftir að verða heimsfræg söngkona. Þetta var Björk Guðmundsdóttir að byrja ferilinn. Svona glöggur var forstjórinn í Stáliðjunni. Ég á góðar minningar frá þeim tíma sem Helgi kom austur til mín, með gömlu vinnufélagana, þá Ketil Ingimarsson og Sófus Hólm. Ég ók með þá um sveitina mína þá helgi og fórum við meðal annars að Skaftárósvita. Margs var að minnast og skemmt- um við okkur vel, gömlu vinnufélag- arnir. Hjá Helga Halldórssyni störfuðu margir af okkar ættmennum. Allt mitt nánasta ættfólk hefur unnið hjá Helga um lengri eða skemmri tíma. Ég lærði margt af Helga sem hef- ur reynst mér vel sem bónda. Nú eru flestir gömlu vinnufélagarnir látnir og líklega smíða þeir saman á Borðeyri núna. Römm er sú taug stendur einhversstaðar, það sann- aðist á Helga Halldórssyni, sem uppalinn var í Hrútafirðinum þar sem faðir hans var sýslumaður á Borðeyri. Átthagaböndin áttu sterk- ar rætur í Helga og aldrei slitnaði sú taug. Honum þótti óskaplega vænt um Borðeyri og alla Hrútfirð- inga. Ljósið að handan, logabjarta lýsir af átthagahlýju Minning þín lifir í þakklátu hjarta þar til öll hittumst að nýju. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Ég mun ætíð minnast Helga Hall- dórssonar með virðingu og þakk- læti. Guð blessi minningu hans. Helgi Vilberg Jóhannsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.