Morgunblaðið - 22.01.2009, Blaðsíða 42
42 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
ÞÝSKI Mozart-tenórinn Christoph
Prégardien kom, sá og sigraði þeg-
ar klassísku Midem-verðlaunin
voru veitt á Midem-tónlistarstefn-
unni í Cannes í Frakklandi í fyrra-
kvöld. Prégardien var í aðal-
hlutverki á plötu ársins með
Malarastúlkunni fögru eftir Schu-
bert, en meðleikari hans á plötunni
er Michael Gees.
Fiðluleikarinn Julia Fischer var
valin hljóðfæraleikari ársins og
söngvaraverðlaun ársins hlaut
kontratenórinn Philippe Jaroussky.
Finnska tónskáldið Kaja Saariaho
hreppti verðlaun fyrir bestu sam-
tímatónlistina.
Sérstök heiðursverðlaun voru
veitt fyrir farsælt ævistarf í tónlist-
inni, og þau hlaut ítalski tenór-
söngvarinn Carlo Bergonzi. Út-
gáfuverðlaunin hlaut Sony, fyrir
undirútgáfu sína Masterworks.
Midem-stefnan er alþjóðleg sýn-
ingar- og sölustefna útgefenda og
tónlistarfólks í öllum greinum tón-
listar og verðlaun eru veitt í ýmsum
greinum. Klassísku Midem-
verðlaunin eru nú fimm ára.
Í dómnefnd Midem-verðlaunanna
eru fulltrúar klassískra útvarps-
stöðva og tímarita um allan heim.
Dómnefndin valdi sigurvegarana
eftir að hafa hlýtt á mörg hundruð
plötur frá 127 útgáfufyrirtækum í
23 löndum.
Prégardien
og Malara-
stúlkan best
Klassísku Midem-
verðlaunin í Cannes
Bestur Christoph Prégardien.
Á LAUGARDAG kl. 18
verður opnuð sýning á
nýjum málverkum Eyj-
ólfs Einarssonar í Lista-
safni Reykjanesbæjar og
ber sýningin heitið Sökn-
uður/Wistfulness. Eyjólf-
ur ákvað ungur að helga
sig myndlistinni og innan
við fermingu var hann farinn að sækja námskeið
hjá Ásmundi Sveinssyni. Eftir nám í Myndlista-
og handíðaskóla Íslands hélt hann til Danmerkur
og útskrifaðist árið 1966 frá Den Kongelige
danske Kunstakademi. Listasafn Reykjanes-
bæjar er opið virka daga frá kl. 11-17 og um helg-
ar frá 13-17. Aðgangur er ókeypis.
Myndlist
Söknuður Eyjólfs
í Reykjanesbæ
Eitt verka Eyjólfs.
MINJASAFNIÐ á Akureyri
heldur kvöldvöku í kvöld í
Gamla presthúsinu í Laufási.
Þór Sigurðsson safnvörður
og Hólmfríður Erlingsdóttir,
staðarhaldari í Laufási, munu
fjalla um ýmsa þætti sem for-
feður okkar notuðust við til að
spá fyrir um hlutina. Þjóðlegur
fróðleikur um fyrirboða,
drauma, hegðun dýra til að spá
fyrir um veður og gestakomur
og margt fleira. Gestir geta látið spá fyrir sér á
staðnum og eru hvattir til að taka spábollann sinn
með sér. Kvöldvakan hefst kl. 20, 1000 kr. kostar
inn og er innifalið kaffi og með því.
Hugvísindi
Spádómar og fyrir-
boðar í Laufási
Laufás í Eyjafjarð-
arsveit.
TÓNLISTARKONAN Áslaug
Helga Hálfdánardóttir og
hljómsveit spila á Rósenberg á
Klapparstíg 25 í kvöld.
Flutt verða lög af nýútkomn-
um diski Áslaugar, Lögmálið,
ásamt vel völdum amerískum
negrasálmum í rokkuðum út-
setningum.
Diskur Áslaugar er gefinn út
af mmusic.is og rennur allur
ágóði af sölu hans til félags
Einstakra barna.
Lögmálið er fyrsti sólódiskur Áslaugar en öll
lög og textar á diskinum eru eftir hana.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Tónlist
Tónleikar Áslaugar
Helgu á Rósenberg
Áslaug Helga
Hálfdánardóttir
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
VETRARHÁTÍÐ verður haldin í
áttunda sinn í Reykjavík dagana 13.
og 14. febrúar. Hátíðin klípur ekki í
budduna, því frítt er inn á alla við-
burði hennar. Eins og undanfarin ár
verða Safnanótt á föstudagskvöldinu
og Heimsdagurinn á laugardeginum
stærstu viðburðirnir. Skúli Gauta-
son er verkefnisstjóri Vetrarhátíðar
hjá Höfuðborgarstofu og hann segir
Vetrarhátíð þarfari nú en oft áður.
„Við sem að skipulagningu hátíð-
arinnar störfum finnum að hún nýt-
ur mikils velvilja, þótt það sé erf-
iðara nú en áður að fá bein
fjárframlög til hennar. SPRON og
OR styðja þó vel við hana. Hins veg-
ar eru allir tilbúnir til að leggja sitt
af mörkum og á því byggist hátíðin.
Það er gríðarmikið starf sem lagt er
til í sjálfboðavinnu.“
Ratleikur ratar til Óslóar
Hátíðin verður sett kl. 19 á föstu-
dagskvöldi og um leið hefst Safna-
nótt þegar öll söfn borgarinnar opna
dyr sínar fyrir gestum til miðnættis.
„Hugsunin er sú að gera söfnin lif-
andi. Það ætti ekki að þurfa að vera
hátíðlegur viðburður að heimsækja
söfn, heldur eitthvað sem fólk gerir
að jafnaði.“ Safnarútan býður upp á
ókeypis rúnt milli safna og ratleikur,
sem felst í því að leysa þrautir á
nokkrum safnanna, ætti að gera
kvöldið spennandi en í verðlaun er
ferð á Menningarnótt í Ósló. Þema
hátíðarinnar í ár er vatn og ljós, en
að sögn Gauta varð sjálfsprottið
hliðarþema til þegar ljóst var að há-
tíðin hæfist föstudaginn þrettánda.
„Það er dulúðin og hryllingurinn og
mörg söfnin hafa nýtt sér það. Í
Norræna húsinu verður til dæmis
draugaráðstefna, þar sem norrænir
draugar láta til sín taka og stofna
formlega samtök norrænna drauga.“
Heimsdagurinn verður haldinn í
Gerðubergi og þar verður menning
ólíkustu heimshorna kynnt í ýmiss
konar smiðjum og verkefnum. „Arna
Valsdóttir verður með lífræna
kviksjá sem er mjög áhugaverð.
Gestir fá að upplifa barnið í sér við
að skapa sína töfraheima í myrkv-
uðu rými.“
Brúðuleikhúshátíð verður í Ráð-
húsinu báða dagana, þar sem sýndir
verða munir frá Leikminjasafninu
og brúðuleikhússýningar. Á laug-
ardeginum verður eldriborgarahátíð
í Ráðhúsinu. Esjuljósaganga,
skautasýning, kærleiksganga og
ljósasjósund í Nauthólsvík verða líka
á dagskrá. Skúli segir tónleika Vo-
ces Thules verða kynngimagnaða.
„Þeir leita í Sturlungu og syngja fyr-
irboða og drauma fyrir Örlygsstaða-
bardaga við ævaforn lög.“
Vetrarhátíð í Reykjavík verður haldin í 8. sinn 13. og 14. febrúar með fjölbreyttri dagskrá
Forneskja og
dulúð á Safnanótt
Morgunblaðið/Ómar
Heimsdagur Fjöldi viðburða, uppákoma og ævintýra verður í Gerðubergi á
Heimsdaginn, þar sem kynnast má menningu ýmissa heimshorna
Nánar um dagskrána á:
www.vetrarhatid.is
EYÞÓR Ingi Jónsson, orgelleikari í
Akureyrarkirkju, verður einleikari á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands í Akureyrarkirkju
næstkomandi sunnudag.
Á efnisskrá tónleikanna er Org-
elkonsert í a-moll op. 100 eftir
Marco Enrico Bossi og Sinfónía nr. 4
eftir Ludwig van Beethoven.
Marco Enrico Bossi (1861-1925)
gat sér gott orð sem orgelleikari og
kennari en stundaði einnig tón-
smíðar af kappi og er hvað fræg-
astur fyrir orgelverk sín. Konsert
fyrir orgel og hljómsveit í a-moll op.
100 samdi hann fyrir hljómsveit án
blásara að undanskildum hornum.
Með því að sleppa blásturshljóðfær-
unum vildi Bossi ef til vill fyrir-
byggja að blæbrigði blásturshljóð-
færanna skyggðu á fjölbreytt lit-
brigði orgelsins.
Um 4. sinfóníu eftir Ludwig van
Beethoven (1770-1827) sagði Robert
Schumann að hún væri eins og
grannvaxin grísk gyðja á milli
tveggja norrænna risa. Með þessu
átti hann ef til vill við að sú fjórða
væri ekki eins átakamikil og þær
sem komu á undan og eftir. En þó
hún hafi heldur klassískara og hóg-
værara svipmót en margar aðrar
sinfóníur Beethovens leynir hand-
bragð meistarans sér hvergi.
Eyþór Ingi Jónsson hefur haldið
hátt í 100 einleikstónleika hér á landi
og erlendis. Hann starfar nú sem
organisti við Akureyrarkirkju, kenn-
ir við Tónlistarskólann á Akureyri
og Tónskóla þjóðkirkjunnar. Einnig
er hann stjórnandi kammerkórsins
Hymnodiu. Guðmundur Óli Gunn-
arsson stjórnar hljómsveitinni á tón-
leikunum, sem hefjast kl. 16.00.
Eyþór Ingi Jónsson með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Sunnudagur með Bossi
og Beethoven á Akureyri
Morgunblaðið/Jim Smart
Orgel Eyþór Ingi Jónsson er ein-
leikari í orgelkonsert Bossi.
LJÓÐSKÁLDIÐ Anton Helgi Jóns-
son hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör sem
var afhentur í gærkvöldi.
Sigurljóð Antons ber heitið „Ein-
söngur án undirleiks“ og í rök-
stuðningi dómnefndar segir að ljóð-
ið sé kraftmikið og frumlegt og
skilji eftir sterka tilfinningu hjá les-
andanum.
„Það er alltaf gaman að fá við-
urkenningu. Mér þykir mjög vænt
um þessi verðlaun því ég hef alltaf
haldið mikið upp á Jón úr Vör og
svo er vel að þeim staðið,“ segir
Anton Helgi.
Það er lista- og menningarráð
Kópavogs sem stendur nú í áttunda
sinn fyrir Ljóðstafnum sem er um-
fangsmesta samkeppni sinnar teg-
undar á landinu, en 300 ljóð bárust í
hana í ár. Markmiðið með keppn-
inni er að vekja athygli og auka
áhuga á íslenskri ljóðagerð.
Anton er bjartsýnn á stöðu ljóðs-
ins á Íslandi. „Ég verð nú að segja
það að á undanförnum árum hefur
mér fundist vera mikil gerjun í
gangi í ljóðaheiminum. Það eru að
koma fram mörg mjög góð skáld og
það er mikil breidd almennt,“ segir
Anton, sem er með það á stefnu-
skránni að gefa út ljóðabók á þessu
ári. Spurður út í verðlaunaljóðið
segir hann það vera einhvers konar
blús sem passi mjög vel við tímana
akkúrat núna.
Vinningsljóðið birtist í Lesbók
Morgunblaðsins um næstu helgi.
Anton Helgi hlaut
Ljóðstaf Jóns úr Vör
Jón úr Vör Anton með Ljóðstafinn.
Vetrarhátíð verður sett kl. 19
föstudaginn 13. febrúar í Fóg-
etagarðinum á horni Aðalstrætis
og Kirkjustrætis. Strax eftir form-
lega setningu hefst opnunaratriði
hátíðarinnar sem alla jafna hefur
verið stórt og mikið í sniðum. Í ár
er fólk beðið að mæta í fornum
fatnaði og því fornari því betra.
Þorleifur Eggertsson er liðsmaður
Norðanbáls sem skipuleggur opn-
unaratriðið. „Við ætlum í fortíð-
arflakk um Grjótaþorpið. Þar verða
persónur úr fortíðinni á vappi. Við
ætlum að nota lýsingu og hljóð-
gjafa til að skapa stemningu og
draga fram fortíðina. Við stefnum
líka að því að sýna gömlu myndina
um Bakkabræður á bakhlið gamla
Morgunblaðshússins. Þannig ætl-
um við að reyna að pilla aðeins of-
an af mannkynssögunni og laða
hana fram eina kvöldstund,“ segir
Þorleifur Eggertsson í Norðanbáli.
Fortíðarflakk í Grjótaþorpinu
„Selma Björnsdóttir
er til dæmis mjög hátt
skrifað nafn í þessum
heimi.“ 44
»