Morgunblaðið - 22.01.2009, Side 44
44 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
Fólk
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
EINS og fram kom í blaði gærdagsins hyggst
myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson gera
sitt til að fríska upp á Sjálfstæðisflokkinn, en
nýverið tilkynnti hann um framboð sitt til for-
manns flokksins. Snorri ætlar ekki að láta þar
við sitja og ætlar hann að láta gott af sér leiða
á fleiri stöðum en á Fróni. Þannig er mál með
vexti að þegar landsfundi Sjálfstæðisflokksins
lýkur, þar sem gengið verður frá formanns-
kjöri, mun hann fara út til Palestínu með ást-
arpýramídann svokallaða eða Pyramid of Love.
Verk þetta felst í því að Snorri situr í lótus-
stellingu inni í pýramída úr plexígleri þar sem
hann hugleiðir fyrir ást og kærleika mannkyni
til handa. Snorri dvelur jafnan tímunum saman
inni í pýramídanum en hann var fyrst settur
upp á nokkrum stöðum í Reykjavík árið 2006
og ári síðar tók Snorri hann með sér á Fen-
eyjatvíæringinn.
„Þetta er ekki beint eftir bókinni, að drífa
sig af landsfundi Sjálfstæðisflokks út til Palest-
ínu,“ segir Snorri sposkur. Snorri hyggst
ferðast um Palestínu með pýramídann og senda
heilandi orku frá sér sem mest hann má.
„Ég er nú að safna fjármagni til ferðarinnar.
Mér ofbauð eins og svo mörgum ástandið þarna
úti og var búinn að ákveða þetta löngu áður en
vopnahléið varð. Ætli þetta sé ekki bara ein-
hvers konar frekja, maður stígur fram af of-
forsi þegar manni er ofboðið og maður vill
bara stoppa stríðið, einn og sjálfur.“
Pýramídinn til Palestínu
Ást og kærleikur Snorri Ásmundsson lætur til
sín taka í pýramídanum á Lækjartorgi.
Stemningin á Austurvelli í fyrra-
dag var með miklum ólíkindum.
Einstök, óraunveruleg, spennandi,
hættuleg, styrkjandi og losandi.
Allt þetta og meira til. Margir Ís-
lendingar voru að upplifa eitthvað
glænýtt og blað var brotið í sögu
þjóðarinnar. Hún rétti ærlega úr
bakinu í fyrsta skipti eftir hrun og
árið 0 gekk í garð með stæl.
Þegar líða tók á nóttina var
stemningin lík karnivali, varðeld-
urinn og möntrusöngurinn við Al-
þingishúsið minnti helst á lokadag
Hróarskelduhátíðarinnar.
Vertarnir í kringum völlinn
sættu lagi og þreyttir og þvældir
mótmælendur áttu þess kost á að
svala þorstanum með svaladrykkj-
um langt fram eftir nóttu.
Miðaldra verkfræðingar til
hægri og ungstúdentar til vinstri
ræddu saman sem bræður, en
álengdar stóð lögreglan grá fyrir
járnum, líkt og stormsveitarmenn
úr Stjörnustríði.
Nýir og annars konar tímar, svo
sannarlega…
Árið 0 er runnið upp
…og fleiri sættu lagi en vert-
arnir. Einn öflugasti mótmælandi
og aðgerðarsinni landsins, Erpur
Eyvindarson eða Blazroca, nýtti
kvöldmatarpásu frá mótmælunum
í að dúndra upp lagi; einn, tveir
og þrír. Vinnuheiti lagsins er
„Landráð“ og urðu margir þess
heiðurs aðnjótandi að fá smá for-
smekk að því frá höfundinum
sjálfum, þar sem hann stóð uppi
við styttuna af Sóma Íslands,
sverði þessi og skildi. Jón gamli
hefði ábyggilega lagt til pumpandi
takt, hefði hann átt þess kost.
Lagið ratar að öllum líkindum
inn á öldur ljósvakans með ein-
hverjum hætti nú á næstunni, Erp-
ur hefur t.a.m. nýtt sér youtube.-
com til þess háttar hluta og
geymir vefurinn sá ýmis myndbrot
frá mótmælunum en netið hefur
verið nýtt óspart hina síðustu
daga til að koma lýsingum á því
sem er að gerast milliliðalaust til
fólks.
Skyndibyltingarsöngur
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„Á TÍMABILI var helvíti mikill
gauragangur og mér stóð ekki alveg
á sama, hvorki um Svövu né Steina
og myndavélina,“ segir Jón Ársæll
Þórðarson, umsjónarmaður sjón-
varpsþáttarins Sjálfstæðs fólks, sem
lenti í nokkrum hremmingum í mót-
mælunum á Austurvelli í fyrradag.
Þar var Jón ásamt tökumanni sín-
um, Steingrími Þórðarsyni, að taka
viðtal við Svövu Johansen, sem oft-
ast er kennd við 17, en hún er næsti
viðmælandi þáttarins.
„Hún vildi fá að fylgjast með mót-
mælunum og þar sem við erum að
gera um hana þátt þótti okkur þetta
upplagt, að fylgja henni eftir þar,“
segir Jón Ársæll og bætir því við að
þótt á ýmsu hafi gengið hafi þeir fé-
lagar aldrei þurft að hætta tökum.
„En á endanum skolaði okkur inn
á kaffihús þar sem við þurrkuðum af
okkur svitann og jöfnuðum okkur.“
Dró fram Jägermeister
En finnst Jóni Ársæli ekki svolítið
skrítin tilfinning að taka viðtal við
viðskiptamann á borð við Svövu á
þessum undarlegu tímum, og það á
vettvangi mótmæla? „Öll erum við
nú vinir í skóginum, og Svava er ein
af þeim manneskjum sem hafa sett
svip á samtíma sinn. Og þetta er jú
samtíminn, það eru mótmæli og það
loga eldar við Alþingishúsið. En það
er rétt, hún hefur fylgt Sjálfstæð-
isflokknum að málum og fer ekkert í
launkofa með það. Kannski má
segja sem svo að Sjálfstæðisflokk-
urinn eigi stóran hlut að máli. En
allt er þetta samofið, og Svava er
ekkert eyland í þessu samfélagi
okkar,“ segir Jón Ársæll sem vill þó
ekki segja til um hvort Svava hafi
sjálf verið að mótmæla. „Það var
allavega forvitnin sem rak hana nið-
ur á Austurvöll. En hver er að mót-
mæla og hver er að fylgjast með?“
spyr hann. „Það skal þó tekið fram
að á einum tímapunkti dró Svava
fram Jägermeister-pela og gaf með
sér, eins og sönnum verkalýðs-
leiðtoga sæmir.“
Að sögn Jóns Ársæls létu þeir fé-
lagar sig hverfa áður en eldar fóru
að brenna á Austurvelli, en hann fór
þó sjálfur niður í bæ um kvöldið og
fylgdist með því sem fyrir augu bar.
„Það var rosalega mikil upplifun.
Þetta var bara eins og að vera í
frönsku byltingunni,“ segir hann og
hlær.
Viðtalið við Svövu verður í Sjálf-
stæðu fólki sem sýnt verður á Stöð 2
næstkomandi sunnudagskvöld.
Sjálfstætt fólk í mótmælum
Jón Ársæll Þórðarson tók viðtal við Svövu í 17 í miðjum mótmælum
„Svava er ekkert eyland í þessu samfélagi okkar,“ segir sjónvarpsmaðurinn
Fjör á Austurvelli „Á tímabili var helvíti mikill gauragangur og mér stóð ekki alveg á sama, hvorki um Svövu né Steina og myndavélina,“ segir Jón Ársæll.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA er viss heimur, vist sam-
félag svona Evróvisjón-nörda,“ seg-
ir Regína Ósk Óskarsdóttir, annar
helmingur Eurobandsins, sem var
nýverið valið besta hljómsveitin í
síðustu Evróvisjón-keppni. Það
voru hlustendur útvarpsstöðvar-
innar ESC Radio sem völdu, en
þetta er þriðja árið í röð sem
keppnin er haldin. „Við vorum til-
nefnd í sjö flokkum en sigruðum í
þremur. Við fengum samt aðal-
verðlaunin, að vera valin besta
hljómsveitin,“ segir Regína, en
verðlaunin voru veitt við hátíðlega
athöfn í München í Þýskalandi um
helgina.
Sárabætur
Aðspurð segir Regína að mikill
áhugi sé á Evróvisjón um alla Evr-
ópu, óháð árstíma. „Allt árið er ver-
ið að halda svona litlar Evróvisjón-
hátíðir, við erum til dæmis nýkomin
frá Þýskalandi og Svíþjóð, og höf-
um fengið boð um að fara víðar, en
við höfum bara ekki getað farið út
um allt út af kreppunni,“ segir Reg-
ína. „Þannig að þetta hættir ekkert,
við erum enn að, næstum ári eftir
keppnina.“
En eru þetta sárabætur fyrir að
hafa ekki unnið í aðalkeppninni?
„Já af hverju ekki? Málið er hins
vegar það að þeir sem vinna aðal-
keppnina eru ekkert endilega í
uppáhaldi hjá þessum eldheitu Evr-
óvisjón-aðdáendum. Þeir velja sér
alltaf einhverja aðra. Selma Björns-
dóttir er til dæmis mjög hátt skrif-
að nafn í þessum heimi,“ segir Reg-
ína að lokum.
Friðrik Ómar og Regína Ósk
sigruðu eftir allt saman
Ljósmynd/ESC Radio
Ánægð Regína Ósk og Friðrik Ómar með verðlaunagripina í Þýskalandi
Eurobandið valið besta hljómsveitin í kosningu ESC Radio