Morgunblaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2009 30 - 70% afsláttur Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ÍSLAND fengi hraðferð í gegnum umsóknarferlið að að- ild að Evrópusambandinu ef það legði inn umsókn, sem yrði vel tekið í Brussel. Aðildarviðræður sem standa venjulega í mörg ár myndu ganga svo hratt fyrir sig að Ísland gæti orðið 29. aðildarríki sambandsins á mettíma. Mögulega strax á árinu 2011. Þetta er fullyrt í breskum fjölmiðlum í gær. Þeir vitna m.a. í ónafngreinda háttsetta embættismenn hjá ESB. Vefútgáfa Guardian hefur eftir Olli Rehn, sem fer með stækkunarmál hjá framkvæmdastjórn ESB, að ef Ísland legði fljótlega inn umsókn og samningaviðræður gengju hratt fyrir sig gætu Ísland og Króatía gengið í sambandið á sama tíma. Gert hefur verið ráð fyrir að Króatía, sem hefur átt í aðildarviðræðum í fimm ár, fái inngöngu 2011. Fleiri fjölmiðlar fjalla um mögulega aðild Íslands í gær. Vefútgáfur BBC og fleiri miðla staðhæfa að Ísland geti orðið aðildarríki sambandsins á árinu 2011. Krisztina Nagy, talsmaður stækkunarskrifstofu ESB, vill ekki tjá sig um þá staðhæfingu fjölmiðla að Ísland gæti fengið aðild 2011 en segir í svari til Morgunblaðsins í gær að Ísland hafi þegar tekið upp stóran hluta af reglu- verki sambandsins í gegnum EES. Ef Íslendingar ákvæðu að sækja um myndu samningaviðræðurnar „þróast hratt“. „Framkvæmdastjórnin er hugarfarslega tilbúin að taka á móti umsókn um aðild að ESB frá Ís- landi,“ segir hún. Times segir að möguleg aðild Íslands sé nú rædd á æðstu stigum ESB. Ekki sé við því að búast að væntanleg ríkisstjórn á Íslandi leggi fram umsókn en búist sé við að þingkosningar verði í maí og Evrópumálin verði eitt stærsta kosningamálið. Haft er eftir Rehn í frétt Guardian að „strategísk“ og efnahagsleg staða Íslands geri landið eftirsóknarvert í augum ESB. Spurð nánar út í þessi ummæli segir Kriszt- ina Nagy að lega landsins, sérstaklega nálægð þess við norðurskautið, sé mjög þýðingarmikil, því mikilvægi þess muni væntanlega aukast í framtíðinni. Grænt ljós á hraðbraut  Framkvæmdastjórn ESB er „hugarfarslega tilbúin“ að taka við aðildarumsókn frá Íslandi  Breskir fjölmiðlar segja Ísland geta orðið aðildarríki ESB árið 2011 Í HNOTSKURN »Olli Rehn hefur sagt að efÍsland sækti um í vor gæti ferlið hafist um mitt næsta ár og viðræðurnar tækju ekki endilega langan tíma. » Í frétt Deutsche Welle ígær segir að ólíklegt sé að ESB-ríki víki frá reglum sam- bandsins um úthlutun fisk- veiðikvóta og hvalveiðibann- inu í aðildarviðræðum við Ísland. Íslendingar þyrftu því að hætta hvalveiðum ef þeir gengju í sambandið. ÞEIR Egill Sigurðsson og Magnús Pétursson öttu kappi undir vökulu auga Úlfars Steindórs- sonar á hraðskákmóti skákdeildar Félags eldri borgara og Toyota í gær. Alls tóku 28 kepp- endur þátt, en á endanum fór Jóhann Örn Sig- urjónsson með sigur af hólmi með 8 vinninga af 9 mögulegum. Tíu efstu keppendur fengu verð- laun í boði Toyota á mótinu sem haldið var í ann- að sinn en til stendur að það verði árleg hefð. Hart barist á hraðskákmóti Félags eldri borgara Morgunblaðið/RAX ÞESSI bílferð hér til hliðar endaði ekki vel þegar árekst- ur varð milli tveggja bíla á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar um hádegisbil í gær. Ekki er vitað með vissu hvernig áreksturinn bar að en afleiðingarnar voru þær að annar bíllinn endaði uppi á hljóðmön talsvert frá. Má ætla að kröftugt högg hafi þurft til að koma bíln- um í þessa stöðu og því mildi að ekki urðu alvarleg meiðsl á fólki. Töluverðar tafir urðu á umferð í um klukkustund eftir áreksturinn, að sögn lögreglu. Rétt er að minna bílstjóra á varkárni við aksturinn enda er færð- in ekki með besta móti í höfuðborginni þessa dagana. Snjó kyngdi niður á fimmtudag en í gær frysti og var því töluverð hálka á götunum. Þrátt fyrir þetta urðu aðeins þrjú umferðaróhöpp í Reykjavík í gær samkvæmt dagbók lögreglunnar. Ástæða er þó til að fara áfram með gát því búast má við að færð verði með svipuðu móti næstu daga þar sem spáð er áframhaldandi snjókomu og hita undir frostmarki yfir helgina og út næstu viku. Í tíð sem þessari er ekki síst mikilvægt að skafa vel af rúðum bílsins til að tryggja að skyggni sé sem best og má minna á það að lögreglan á Selfossi sá ástæðu í gær til að sekta ökumann sem van- rækti þetta mikilvæga atriði. una@mbl.is Þungfært í Reykjavík Morgunblaðið/RAX BANDARÍSKA tímaritið Time birti í vefútgáfu sinni í gær ít- arlega úttekt á stjórnmálaferli og stöðu Jóhönnu Sigurðardóttur, verðandi forsætis- ráðherra. Time segir einnig að ástand efnahags- mála á Íslandi sé svo bágborið, að nú sé líklegt, að landið sem hafi til þessa staðið utan ESB til að vernda fisk- veiðiauðlind sína, fái að fara hrað- brautina inn í ESB. Allra augu bein- ist að Jóhönnu sem takist von bráðar á við það tröllaukna verkefni að bjarga efnahagslífinu. Telegraph í Bretlandi fjallar einnig um Jóhönnu. Segir hana Evrópu- sinna og að spurningin um ESB-aðild verði stærsta kosningamálið í vor. Allra augu á Jóhönnu Jóhanna Sigurðardóttir „ÞESSI frétt tengist á engan hátt Rauða krossi Íslands. Eftir samráð við lögfræðinga skilst okkur að hver sem er geti skráð „beneficial own- er“ án þess að viðkomandi fái endi- lega vitneskju um það,“ segir Sól- veig Ólafsdóttir, talsmaður Rauða kross Íslands. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að Rauði krossinn væri skráður eig- andi (beneficial owner) sjálfseign- arsjóðsins Aurora. Sjóðurinn átti fé- lagið Zimham í Panama, sem meðal annars keypti hlutabréf í Lands- bankanum til að eiga þegar starfs- menn innleystu kauprétti sína. Í yfirlýsingu frá Rauða kross- inum á Íslandi segir að hérlend samtök hafi engin tengsl við Lands- bankann í gegnum sjálfseignarsjóð- inn Aurora. Vísað er á bug dylgjum um að Rauði krossinn hjálpi fjár- festum að hylja slóð sína gegn þóknun. Tekið er fram að ekkert lögskráð félag sé til í heiminum sem beri ein- ungis nafn Rauða krossins. Við- urkennd landsfélög beri öll nöfn þjóðlands síns. Í fréttatilkynningunni eru vinnu- brögð Morgunblaðsins gagnrýnd þar sem orðstír félagsins og þeirra sem því tengjast sé lagður að veði. Rauða krossi Íslands óviðkomandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.