Morgunblaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 43
Fréttir á SMS Krossgáta 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2009 LÁRÉTT 3. Sekt beitt gegn vanskilamönnum, ákveðin upp- hæð dag hvern. (7) 6. Bóndabýli þar sem búrekstur byggist aðallega á sauðfjárrækt. (10) 9. Það að taka lítinn hluta eða skammt af einhverju til að sýna eðli þess og eiginleika. (ft.) (9) 10. Sterk sýra, HCl. (8) 11. Megnið af klassískum tónbókmenntum saxófóns- ins er skrifað fyrir ___saxófón. (3) 12. Geislavirkt frumefni með skammstöfunina Np. (8) 14. = er _____merkið. (7) 17. Douglas ____, breskur rithöfundur sem samdi Hitchhikers Guide to the Galaxy (5) 19. Íslenskur fugl af snípuætt, rauðbrúnn á hálsi og bringu, með langt beint nef. (8) 21. Frjálslynd guðfræðistefna sem ruddi sér til rúms um og eftir 1900 (10) 22. Lífrænt efnasamband, byggingareining prótína. (9) 25. ______ Rögnvaldsdóttir, höfundur matreiðslu- bóka. (5) 27. Íslenskt heiti núkleótíðs, byggingareining kjarn- sýru. (5) 28. Ópera eftir Verdi um eþíópíska prinsessu sem er fönguð og hneppt í þrældóm í Egyptalandi. (4) 29. Veiðimaðurinn mikli sem veiðigyðjan Artemis setti á himinhvelið. (5) 30. Tækni sem felst í því að lesa nokkur orð saman til að ná mikilvægustu upplýsingunum úr efninu. (10) 34. Eldra heiti Eþíópíu. (9) 35. Óperetta eftir Johann Strauss yngri. (11) 39. Ættbálkur fiska með vel þroskaða beinagrind. (10) 40. Lægra sett yfirvald sem fer með minni háttar af- brotamál og gefur saman hjón. Slíkt yfirvald var m.a. í villta vestrinu. (10) 41. Nýtt heiti Hótel Íslands-plansins. (þgf.) (12) 42. Sú tunga sem töluð var á Norðurlöndum að fornu. (7) LÓÐRÉTT 1. Annað stærsta landið í heiminum að flatarmáli (6) 2. Gras, algengt við hús og bæi í sveitum, meðfram vegum, í kartöflugörðum og víðar. (10) 4. Móðir H.C. Andersen vildi að hann gerðist iðn- aðarmaður, nánar tiltekið ________. (9) 5. Immanuel ____, prússneskur heimspekingur. (4) 7. Mynd Steven Spielbergs, Saving Private ____. (4) 8. Hormón sem myndast í briskirtlinum og lækkar magn blóðsykurs. (7) 13. Frumefni sem er aðalefni lofthjúpsins. (5) 15. Hin byggða jörð samkvæmt Ásatrúarmönnum. (9) 16. Slysavarnadeild í Vestmannaeyjum. (9) 18. Lína á hafsvæði sem afmarkar fiskveiðilögsögu tveggja landa ef styttra er á milli þeirra en nemur óheftri lögsögu beggja. (7) 20. Opið á nasaholi sem snýr fram. (5) 23. Land milli Frakklands og Spánar. (7) 24. Land í Afríku, fyrrverandi portúgölsk nýlenda og mikill demantaframleiðandi. (6) 26. Hvirfilvindur sem er með miklu magni af jarðvegi í sér. (11) 30. Þýskur endurreisnarmálari þekktur fyrir andlits- myndir sínar og vann lengi í Englandi. (7) 31. Vestfirskur maður sem gaf Sveini Danakonungi lifandi ísbjörn. (5) 32. Sölt af kísilsýru. (7) 33. Strengjahljóðfærið. (8) 36. Ber fram ákæru. (5) 37. Ör á kviði sem allir menn hafa. (5) 38. Gyðja í norrænni goðafræði sem hefur það hlut- verk að gæta gulleplanna sem tryggja goðunum eilífa æsku. (5) MIKIL spenna myndaðist við þau fremur óvæntu úrslit áttudundu um- ferðar Skákþings Reykjavíkur þeg- ar Hjörvar Steinn Grétarsson tapaði með hvítu fyrir Þorvarði Ólafssyni sl. miðvikudagskvöld. Hjörvar Steinn var með vinnings forskot fyr- ir umferðina og stýrði hvítu mönn- unum en varð á yfirsjón í vænlegri stöðu og tapaði. Við það komst Þor- varður upp að hliðinni á honum og einnig Lenka Ptacnikova. Í gærkvöldi fór fram síðasta um- ferð mótsins og þá átti Lenka, sem hefur verið á mikilli siglingu eftir tapið fyrir Hallgerði, hvítt gegn Hjörvari en Þorvarður var með svart gegn Atla Frey Kristjánssyni. Talsvert hefur verið um óvænt úrslit á mótinu og ýmsir ágætir skákmenn hafa ekki náð að blanda sér í barátt- una um sigurinn, t.d. Sigurbjörn Björnsson, Ingvar Þór Jóhannesson og Halldór Brynjar Halldórsson. Ýmsir ungir skákmenn hafa náð góðum árangri auk Hjörvars þeir Atli Freyr Kristjánsson, Sverrir Þorgeirsson, Ingvar Ásbjörnsson og Patrekur Maron Magnússon og af stúlkunum hafa þær Hallgerður Helga og Sigríður Björg staðið sig vel, sú síðarnefnda hefur hækkað meira á stigum en nokkur annar keppandi. Staða efstu manna fyrir lokaumferðina var þessi: 1.-3. Hjörvar Steinn Grétarsson, Lenka Ptacnikova og Þorvarður Ólafsson 6½ v. (af 8) 4. Atli Freyr Kristjánsson 6 v. 5.-10. Hrannar Baldursson, Halldór Halldórsson, Sverrir Þorgeirsson, Ingvar Þór Jó- hannesson, Daði Ómarsson og Sverrir Örn Björnsson 5½ v. 11.-20. Sigurbjörn Björnsson, Kristján Eð- varðsson, Hallgerður Helga Þor- steinsdóttir, Torfi Leósson, Ingvar Ásbjörnsson, Siguringi Sig- urjónsson, Jóhann Ragnarsson, Pat- rekur Maron Magnússon, Sævar Bjarnason og Sigríður Björg Helga- dóttir 5 v. Þær Jóhanna Björg Jóhanns- dóttir og Tinna Kristín Finn- bogadóttir hafa báðar staðið sig vel og voru með 50% vinningshlutfall fyrir lokaumferðina. Það er smágalli á mótinu í ár hversu mikið styrk- leikabil er á milli keppenda, eins og vanti einhverja miðju í mótið. Tinna Kristín mætti stöllu sinni Hallgerði í 7. umferð og þar var tekin til með- ferðar byrjun sem oft kemur upp í viðureignum stúlknanna. Skákþing Reykjavíkur; 7. umferð: Hallgerður Helga Þorsteins- dóttir – Tinna Kristín Finn- bogadóttir Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. c3 Leið Alapin er ágæt tilbreyting frá margþvældum afbrigðum Sikil- eyjarvarnarinnar og er mun hættu- legri en margur hyggur. 2. … d5 3. exd5 Dxd5 4. d4 Rf6 5. Rf3 e6 Annar góður möguleiki er 5. … Bg4. 6. Ra3 cxd4 7. Rb5 Dd8 8. Dxd4 a6 9. Dxd8+ Kxd8 10. Re5! Í stað þess að hörfa með ridd- arinn ræðst hvítur a f7-peðinu. Eftir 10. … axb5 11. Rxf7+ og 12. Rxf8 fengi hvítur sæg af peðum jafnvel þó svo riddarinn á h8 félli. 10. … Ke7 11. Rc7! Ha7 12. Be3 Skyndilega er hrókurinn á a7 í miklum vanda. 12. … b6 13. Bxb6 Hb7 14. Bc5+ Kd8 15. Bxf8 Hxf8 16. Rxa6 Rxa6 17. Bxa6 Hxb2 Staða svarts er töpuð hverju svo sem leikið er. 18. 0-0-0+! Vinnur hrókinn! Eftirleikurinn er auðveldur. 18. … Kc7 19. Kxb2 Bxa6 20. Hd4 Rd5 21. Kc2 f6 22. Rd3 Ha8 23. Rb4 Rxb4+ 24. cxb4 Bb7 25. Kb2 Bxg2 26. Hg1 Bd5 27. Hxg7+ Kc6 28. a3 h5 29. Hh7 Bf3 30. Hf4 Bg4 31. Hxf6 Hd8 32. f3 Bf5 33. Hxh5 Hd2+ 34. Kc1 Hd5 35. Hhxf5 Hxf5 36. Hxf5 – og svartur gafst upp; baráttan við frípeð hvíts dæmd til að tapast. Aronjan efstur í Wijk aan Zee Ermski stórmeistarinn Levon Ar- onjan hefur náð forystunni á Corus- mótinu í Wjk aan Zee sem lýkur um helgina. Aronjan hafði sig lítið í frammi í fyrstu umferðunum en náði að vinna Gata Kamsky með svörtu í 9. umferð og Michael Adams í þeirri tíundu. Eftir að hafa gert jafntefli í níu fyrstu skákum sínum tókst Magnúsi Carlssyni loksins að vinna skák og gæti með góðum enda- spretti náð efsta sæti. En staðan þegar þrjár umferðir eru eftir er þessi: 1. Levon Aronjan (Armeníu ) 6½ v. (af 10) 2. Sergei Karjakan (Úkra- ínu) 6 v. 3.-6. Magnús Carlsen (Nor- egi), Lenier Dominguez (Kúbu), Teimour Radjabov (Aserbadsjan) og Sergei Movsesian (Slóvakíu) 5½ v. 9. – 12. Vasilí Ivantsjúk (Úkraínu), Gata Kamsky (Bandaríkjunum), Michael Adams (Englandi) og Yue Wang (Kína) 4½ v. 13. Daniel Stellwagen (Hollandi ) 4 v. 14. Alex- ander Morosevits (Rússlandi) 3½ v. helol@simnet.is Þrjú á toppnum fyrir lokaumferðina SKÁK TR, Faxafeni 11.-29. janúar 2009 Skákþing Reykjavíkur Hjörvar Steinn Grétarsson Þorvarður Ólafsson Morgunblaðið/ Lenka Ptacnikova Helgi Ólafsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.