Morgunblaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2009
Ljósmynd/Elvar Páll
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
„ERU ekki til nein pólitísk orðatiltæki?“ spyrja
skipverjar á Ásgrími Halldórssyni, SF 250, á
heimasíðu sinni. „Þessir stjórnmálamenn eru
alltaf að „stela“ okkar orðum. Spyr sá sem ekki
veit,“ segir þar ennfremur.
Áhafnir um tuttugu stórra fiskiskipa halda úti
heimasíðum og eru margar þeirra mjög líflegar.
Aflabrögð, gulldepla, loðnukvóti og mataræði
koma oft við sögu, en hér verður gripið niður í
nokkrar þessara síðna. Á heimasíðu LÍÚ eru
tenglar á síðurnar.
Ýmislegt er á döfinni hjá skipverjum á Áls-
eynni VE. Þar ber hæst heilsueflingu og gull-
depluveiðar. Þeir segja frá því að verið sé að
koma upp þrekaðstöðu á millidekki og auk hreyf-
ingar ætli skipverjar að taka sig á í mataræði.
Matur skiptir miklu máli og á heimasíðu Faxa
var sagt frá því að „ofninn hjá kokknum“ var bil-
aður í brælutúr á kolmunna við Færeyjar. Tekið
er fram að kokkurinn hafi staðið „sig býsna vel í
að sjóða og pönnusteikja.“ Áhöfnin á Þorsteini
ÞH heldur úti bloggsíðu undir heitinu Gullmol-
inn og þar sagði m.a. í vikunni: Stefnan tekin á
Halann, en þar hafa skipin verið að fá gott af ýsu
og við viljum taka þátt í því... Eitt að lokum: Einn
veikleiki aldar okkar er augsýnilega vangeta
okkar til þess að greina á milli þarfa okkar og
græðgi.“
Núna erum við á guðs vegum
Fyrir viku sögðu þeir Faxamenn frá því að
messa var haldin um borð: „Núna erum við á
guðs vegum hér úti því að það var haldin lítil og
góð messa hér um borð í inniverunni. Áhöfninni
á Lundey var boðið að koma í messuna og var
mæting nokkuð góð.“
Þór HF 4 var við veiðar í Barentshafi fram eft-
ir mánuðinum og í lok veiðiferðarinnar mátti lesa
á heimasíðu Þórs: „Þá er sá guli kominn allur
niður í lest og fullunninn eins og það á að vera.
Áður en við fengum að fara varð norska strand-
gæslan að koma um borð og sjá hvernig við fór-
um eiginlega að þessu. Og viti menn, það voru 3
sem komu um borð og það voru Rip, Rap og Rup.
Eða eru þeir danskir?
Nú, svo að ég geri langa sögu stutta þá komu
þeir um borð og skoðuðu allt, þá meina ég allt,
Valdi stóð vaktina uppi í brú með allt sitt á
hreinu eins og vanalega. Fundu þeir félagar ekk-
ert að hjá okkur nema að Valdi mætti laga ensk-
una sína aðeins. Nú eða þeir!“
Loðnukvóta strax
Skipverjar á Faxa RE mæra sjávarútvegs-
ráðherra: „Erum við nokkuð ánægðir með hann
varðandi hvalveiðarnar og hvetjum við hann ein-
dregið til að gefa út loðnukvóta áður en hann
hættir störfum.“
Sá sem skrifar á heimasíðu Lundeyjar kallar
sig heildsalann og um loðnuveiðarnar segir
hann: „Er það einlæg von mín að næsti sjáv-
arútvegsráðherra láti það verða sitt fyrsta verk
að úthluta 100.000 tonna leitarkvóta á loðnu. Ef
velja á um hvort þjóðin eða loðnustofninn á að
njóta vafans, þá hlýtur svarið að vera mjög ein-
falt: Veiðum loðnu!“
Eru alltaf að „stela“ okkar orðum
Skiptar skoðanir Huginsmenn
gæddu sér á gulldeplu nýlega. Á
heimasíðu þeirra kemur fram að
skiptar skoðanir voru á matnum.
Ómari Steins fannst þetta svipað
og sardínur í dós, Bjössa þótti gull-
deplan vera svipuð gellum og
Ágúst Gísla sagði þetta vera eins
og súr hvalur.
ÁLFTIRNAR búa sig til lendingar á Elliðavatni í
kyrrlátri fegurð vetrarins. Stillur undanfarinna
daga hafa gert það að verkum að drifhvítur
snjórinn helst dúnmjúkur og léttur og þyrlast
um fætur göngumanna. Ísland er stundum kallað
landið bláa og það geta verið orð að sönnu.
Morgunblaðið/Ómar
Svifið inn til lendingar á landinu bláa
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
BORGARRÁÐ hefur synjað ósk
bílaumboðsins Brimborgar um að fá
að skila atvinnulóð að Lækjarmel 1 á
svokölluðum Esjumelum á Kjal-
arnesi. Brimborg vildi skila lóðinni
og fá endurgreidd gatnagerðargjöld
að upphæð 113 milljónir með verð-
bótum. Að óbreyttu stefnir í mála-
ferli vegna synjunar borgarráðs á
erindi Brimborgar.
„Við hrun bankanna í byrjun októ-
ber sáum við að forsendurnar að
byggja á lóðinni væru brostnar enda
varð nánast 100% samdráttur í
greininni,“ segir Egill Jóhannsson,
forstjóri Brimborgar.
Egill segir að lögmaður Brim-
borgar hafi haft samband við emb-
ættismann hjá Reykjavíkurborg og
spurt hvernig ætti að skila lóðinni og
honum verið sagt að útbúa einfalt
bréf og skila lóðinni, eins og tíðkast
hafi í áratugi. Fulltrúar Brimborgar
hafi svo farið í Ráðhúsið 9. október
með bréfið og skilað lóðinni.
Egill segir að í lögunum standi að
sveitarfélagið hafi 30 daga til að end-
urgreiða gatnagerðargjöldin en sá
frestur hafi liðið án þess að nokkuð
hafi gerst.
„Síðan gerist það 20. nóvember,
41 degi eftir að við skilum lóðinni, að
borgarráð samþykkir breyttar regl-
ur um að ekki sé hægt að skila lóð-
um. Það sé hægt að óska eftir því að
skila lóðum og aðstæður hvers og
eins verði metnar. Okkur skilst að
einhverjum, en ekki öllum, hafi tek-
ist að skila lóðum undir íbúðarhús en
ekki hafi verið hægt að skila neinni
atvinnulóð,“ segir Egill
Hann segir að Brimborg hafi ósk-
að eftir rökstuðningi en aðeins feng-
ið almennt svar. Brimborg hafi hald-
ið áfram bréfaskiptum við borgina
vegna málsins. Borgarráð hafi svo
tekið endanlega ákvörðun um synj-
un á fundi sínum á fimmtudaginn,
tæpum fjórum mánuðum eftir að
Brimborg skilaði lóðinni.
Egill segir að Brimborg ætli með
málið lengra, enda telji lögmaður
fyrirtækisins að ekki sé hægt að
beita fyrir sig reglum sem settar eru
eftir á, eins og gert hafi verið í þessu
tilfelli.
Fyrirtækið muni fara í mál við
borgina ef þurfi til að fá gatnagerð-
argjöldin endurgreidd, enda telji
það að lóðinni hafi verið skilað með
lögmætum hætti.
Dregnir á asnaeyrunum
„Það hefði verið eðlilegt ef borgin
hefði sagt nei við okkur eftir að 30
daga fresturinn var liðinn og þá
hefðum við strax getað farið laga-
lega leið. Þess í stað höfum við verið
dregnir á asnaeyrunum í tæpa 4
mánuði. Þetta er því miður vanda-
mál, sem hefur afhjúpast á sérlega
sterkan hátt í hruninu, að fram-
kvæmdavaldið og embættis-
mannakerfið gerir það sem því sýn-
ist. Virðingin fyrir einstaklingum og
fyrirtækjum er engin,“ segir Egill
Jóhannsson.
Fá ekki að skila lóðinni
Brimborg hyggur á málaferli gegn Reykjavíkurborg vegna synjunar borgarráðs
Borgin neitar að taka við lóðinni og endurgreiða fyrirtækinu 113 milljónir
Að sögn Egils Jóhannssonar, for-
stjóra Brimborgar, sótti fyrirtækið
um 34 þúsund fermetra lóð á Esj-
umelum á Kjalarnesi og fékk lóð-
ina úthlutaða hjá Reykjavíkurborg.
Brimborg hugðist flytja þangað
vinnuvélasvið fyrirtækisins, þ.e.
sölu og þjónustu á vinnuvélum,
vörubílum og öðrum slíkum tækj-
um. Var búið að teikna 4.000 fer-
metra byggingu, sem átti að rísa á
lóðinni undir þessa starfsemi, með
möguleika á stækkun síðar.
Einnig voru uppi áform um að
vera með sölu á notuðum bílum á
svæðinu, enda lóðin stór og getur
rúmað mikinn fjölda bíla.
Aðalstöðvar Brimborgar verða
áfram á Bíldshöfða 6-8 í Reykjavík.
Þar er sala á nýjum og notuðum
bílum, auk vinnuvéla og verkstæð-
isþjónustu.
Í kjölfar bankahrunsins varð al-
gert hrun í sölu á nýjum bílum og
vinnuvélum. Nýskráningar öku-
tækja í fyrra voru 17.509, borið
saman við 30.034 árið 2007. Þetta
er 42% fækkun milli ára. Mestur
varð samdrátturinn á seinni hluta
ársins 2008.
Hugðist reisa 4.000 fermetra hús á lóðinni
KONAN sem varð fyrir bíl á Hverf-
isgötu fyrir rétt rúmri viku lést af
völdum áverka sinna um síðustu
helgi. Hún var á gangi nærri Ing-
ólfsstræti þegar ekið var á hana og
var hún flutt alvarlega slösuð á
slysadeild þar sem henni var haldið
sofandi í öndunarvél. Hún var 35
ára gömul.
Lést af völd-
um áverka
HINIR banda-
rísku Curtis
Cheek og Joe
Grue stálu
sigrinum í tví-
menningnum á
bridshátíðinni
sem lauk í
gærkvöldi.
Þeir voru aldr-
ei í forystu
nema þá er
upp var staðið í mótslok. Guð-
mundur Sv. Hermannsson og
Björn Eysteinsson urðu í öðru
sæti eftir að hafa leitt mótið síð-
ustu umferðirnar. Þeir tóku for-
ystu í mótinu í 17. umferð og
stefndi í sigur þeirra en þeir
héldu forystunni þar til loka-
uppgjör fór fram.
Eftir fyrri dag höfðu Jón Bald-
ursson og Þorlákur Jónsson af-
gerandi forystu en þeim fataðist
nokkuð flugið í gærdag. Þeir
réttu nokkuð úr kútnum í síðustu
umferðunum og enduðu í 3. sæti í
mótinu.
Í dag kl. 11 hefst sveitakeppni
þar sem u.þ.b. 70 sveitir taka
þátt.
Bandaríkja-
menn unnu
Brids Björn Ey-
steinsson varð annar.
VERULEG fækkun varð í nýskrán-
ingum ökutækja frá 1.-23. janúar
2009 miðað við sama tímabil í fyrra.
Samtals voru nýskráðir bílar nú
193 talsins en eftir jafn marga
skráningardaga árið 2008 voru
1.806 ökutæki nýskráð hér á landi,
samkvæmt upplýsingum frá Um-
ferðarstofu. Þetta er því 89,3%
fækkun nýskráninga milli ára.
Um er að ræða nýskráningu og
eigendaskipti allra ökutækja en
ekki bara bifreiða. Þá fækkaði einn-
ig eigendaskiptum á bílum en þó
ekki eins mikið og í nýskráningum.
Eigendaskipti ökutækja á fyrr-
greindu tímabili voru nú 3.751 en
þau voru alls 5.639 á sama tímabili í
fyrra. Hlutfallsleg fækkun eig-
endaskipta var því 33,5% milli ára.
Nýskráning-
um bíla fækk-
aði um 89,3%