Morgunblaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 52
52 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2009 Þ O R R A B L Ó T I N E R U F R A M U N D A N VERTU GLEÐIGJAFINN SIÐIRNIR SAGAN SÖNGVARNIR VÍSURNAR MINNIN www.forlagid.is Eitt tryggðatár er þyngra en allur Eiríksjökuls ís og snjár! Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is ÞEGAR ég var barn að aldri var vinsæll leikur að gramsa í skáp í kjallaranum þar sem móðir mín geymdi gömlu fötin sín. Ég og systkini mín hlógum mikið að asnalegum víðum buxum, rósóttum kjól- um og þykkbotna skóm sem okkur fannst fáránlegt til að hugsa að móðir okkar hefði klæðst í eina tíð. Fáeinum árum síðar var ég farin að skoða þessi föt með öðru viðhorfi, fannst þau mjög flott og óskaði þess heitast að hafa ekki vaxið móður minni langt yfir höfuð svo ég passaði í þau. En löngun minni í „vintage“-fatnað var svarað þegar verslanir með slík föt fóru að spretta upp eins og gor- kúlur í miðborg Reykja- víkur. Í óformlegri athugun eru nú starfandi ellefu slíkar verslanir í miðborginni sem selja gömul eða gamaldags föt, og er þá Kolaportið með sinn fjölbreytileika um helgar ekki talið með. Þegar gengið er niður Laugaveg- inn er hægt að skoða, máta og kaupa „vintage“-föt í verslununum; Spútnik, Rokki og rósum, Rauða krossinum á tveimur stöðum, Herra- fataverslun Kormáks og Skjaldar, Vintage, Foxy Gold, Einveru og Glamúr, þegar komið er niður í Austurstræti má finna Gyllta kött- inn og við Vesturgötuna eru Fríða frænka og Hjálpræðisherinn. Flestar þessar verslanir eru með bæði gömul ónotuð og notuð föt í bland við ný. Nýr tíðarandi „Ég held að þessar búðir sæki frekar í miðbæinn en annað vegna þess að hér er leigan nokkuð hag- kvæm. Þetta eru líka verslanir sem eiga betur heima í menningarlífi miðbæjarins heldur en í versl- unarkjörnum,“ segir Hildur Sím- onardóttir í Vinnufatabúðinni spurð hvers vegna hún telji þessar versl- anir sækja í miðbæinn. Hún hefur fylgst náið með lífinu á Velvild Rauði krossinn er með tvær verslanir á Laugaveginum, við upphaf hans og enda, þar sem seld eru notuð föt frá Íslendingum. Skart Ekki eru aðeins gömul og notuð föt í vintage-búðunum heldur má finna þar mikið úrval aukahluta; skartgripi, töskur og hárskraut. Fyrir karlinn Í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar í Kjörgarði kennir ýmissa grasa og þar er flottur fatnaður fyrir sanna herramenn. Notað, gamalt og nýtilegt í miðbænum Gamalt og gott Gyllti kötturinn selur notuð og ný föt fyrir gellur á öllum aldri. Þar er mikið af kjólum og blússum, skóm og skarti. Laugaveginum enda búin að vera með Vinnufatabúðina þar síðan 1986. Hildur telur fjölgun vintage- verslana í miðbænum líklega til- komna vegna tíðarandans. „Unga fólkið kallar á þetta gamla, kallar á nýtnina. Nýtísku glamúr er líka á undanhaldi og í þessum verslunum er t.d. hægt að finna flotta kjóla sem eru ekki fjöldaframleiddir fyrir minni pening,“ segir Hildur sem trú- ir því að nú sé tími miðborgarinnar að renna upp með breytingum í þjóðfélaginu. Breiður kúnnahópur Hafdís Þorleifsdóttir, eigandi Gyllta kattarins, hefur verið í þrjú og hálft ár í Austurstræti. Hún segir þennan fjölda vintage-búða líklega koma til vegna eftirspurnar eftir ódýrari fatnaði úr vönduðum efn- um. „Fólk sækir í að kaupa föt sem eru ekki fjöldaframleidd til að vera ekki eins og hinir. Gæðin í þessum fötum eru líka oft mikil, það var vandað til alls áður fyrr,“ segir Haf- dís sem telur þessar verslanir ekki eiga heima með sína sérstöðu í verslunarkjörnum. „Fólkið sem sækir í miðbæinn sækir líka í þessar verslanir.“ Spurð út í viðhorf Íslendinga til vintage-fatnaðar segir hún það hafa breyst. „Það var svolítið viðhorf þegar þessi vintage-tíska kom hing- að til lands að sumir vildu ekki fara í föt sem aðrir hefðu gengið í en sú hugsun er ekki lengur. Kúnnahópur okkar er líka orðinn mjög breiður og stækkar alltaf. Hingað koma fermingarstelpur og allt upp í átt- ræðar konur.“ Hafdís segist finna fyrir aukinni aðsókn í búðina með minnkandi góð- æri. „Þessar búðir koma til með að lifa, sérstaklega á þessum tíma, þar sem verð og gæði spila saman.“  Ellefu vintage-búðir eru starfræktar í miðbæ Reykjavíkur  Eiga betur heima í menningarlífi miðbæjarins en í verslunarkjörnum Glamúr Glæsilegur gamall kjóll í Rokk og rósum. Tilvalinn á árshátíðina og ekki skemmir fyrir að það verður mjög heitt í ár að hafa aðra öxlina bera. Morgunblaðið/Heiddi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.