Morgunblaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2009
STEFÁN Jón Hafstein, borg-
arfulltrúi Samfylkingarinnar, hef-
ur beðið um framlengingu leyfis frá
störfum sem
borgarfulltrúi.
Stefán Jón var
í lok árs 2006
ráðinn verkefn-
isstjóri Þróun-
arsamvinnu-
stofnunar
Íslands í Namibíu
til tveggja ára.
Hann fékk leyfi
frá borgarstjórn
í tvö ár en það leyfi rennur út 1.
febrúar nk. Í bréfi sem Stefán Jón
sendi borgarráði óskar hann eftir
framlengdu leyfi frá störfum sem
borgarfulltrúi um ótiltekinn tíma.
Borgarráð sendi erindi hans til
borgarstjórnar. sisi@mbl.is
Stefán Jón
Hafstein
Óskar eftir fram-
lengingu á leyfi
ABC barnahjálp er að hefja árlegt
söfnunarátak sitt Börn hjálpa börn-
um. Þetta er tólfta árið í röð sem ís-
lensk grunnskólabörn liðsinna
systkinum sínum sem minna mega
sín í þróunarlöndum. Í ár var
ákveðið að safna fyrir skóla-
máltíðum. Söfnunin hefst mánu-
daginn 2. febrúar og stendur út
mánuðinn. Íslensk grunnskólabörn
munu ganga í hús með sérmerkta
söfnunarbauka.
Söfnun fyrir
skólamáltíðum
ÞRÍR bæjarfulltrúar E-lista sem
haft hefur meirihluta í bæjarstjórn
Blönduóss frá síðustu kosningum en
klofnaði í vikunni, hafa leitað til full-
trúa minnihlutans um myndun nýs
meirihluta eða breiðs samstarfs um
stjórnun bæjarins. Fulltrúar minni-
hlutans hafa boðist til að taka tíma-
bundið við forystu í bæjarstjórn og
bæjarráði, á meðan farið verði í
saumana á ágreiningi fulltrúa E-
listans.
Blönduóslistinn – sameinað afl (E-
listi) er þverpólitískt framboð sem
fékk fjóra menn kjörna við bæjar-
stjórnarkosningarnar 2006. Jóna
Fanney Friðriksdóttir, þáverandi
bæjarstjóri, skipaði baráttusætið.
Upp úr samstarfi hennar og þriggja
félaga hennar slitnaði í vikunni þeg-
ar hún taldi að brotin hefðu verið
jafnréttislög á sér með ráðningu eft-
irmanns hennar, karlmanns, á hærri
launum. Ráðningarsamningurinn
var aldrei lagður fram í bæjarstjórn
og hefur Valgarður Hilmarsson,
oddviti E-listans og forseti bæjar-
stjórnar, viðurkennt það sem mis-
tök. Á bæjarstjórnarfundi í vikunni
var lögð fram krafa Jónu Fanneyjar
um tæplega þriggja milljóna króna
bætur vegna mismunar á launum
hennar og núverandi bæjarstjóra.
Bæjarstjórn samþykkti að fela
Ragnari H. Hall lögmanni að gæta
hagsmuna bæjarins.
Jóna Fanney hefur lýst því yfir að
hún starfi sem óháður bæjarfulltrúi
út kjörtímabilið. Er því ekki starf-
andi meirihluti í bæjarstjórninni.
„Við bíðum svara“
Þrír fulltrúar E-listans funduðu
með stuðningsfólki í gær og ákváðu
að ræða við fulltrúa úr gamla minni-
hlutanum en þar sitja tveir fulltrúar
D-lista Sjálfstæðisflokksins og einn
fulltrúi Á-lista. Hugmyndin er að
kanna fyrst möguleika á breiðri sam-
stjórn, að sögn Valgarðs, vegna erf-
iðra aðstæðna. Ágúst Þór Bragason,
fulltrúi D-listans, sagði að minni-
hlutaflokkarnir hefðu boðist til að
taka við forystu í bæjarstjórn og
bæjarráði, á meðan farið væri yfir
mál Jónu Fanneyjar og önnur
ágreiningsefni E-listans. „Við bíðum
svara við því,“ sagði Ágúst Þór og
bætti því við bæjarfulltrúar hefðu
hingað til starfað vel saman og von-
andi gerðu þeir það áfram.
Næsti reglulegi fundur bæjar-
stjórnar er áformaður 10. febrúar.
Ljóst er að línur þurfa að skýrast
fyrir þann tíma. helgi@mbl.is
Kanna landið hjá
minnihlutanum
Gamli minnihlut-
inn vill taka tíma-
bundið við forystu
Valgarður
Hilmarsson
Jóna Fanney
Friðriksdóttir
50-70%
afsláttur
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið í Bæjarlind laugard. 10-16
Opið í Eddufelli laugard. 10-14
Gallabuxur
Sparibuxur
Góð snið str. 36-56
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
Allt að 50% afsláttur af völdum vörum
Bjóðum úrval sængurvera, dúka, púða
ásamt ýmsu öðru á frábæru verði
Hjá Lín Design færðu vörur sem hannaðar eru á Íslandi og framleiddar úr sérvöldu
úrvals efni. Sængurfatnaðurinn frá Lín Design er
ofinn úr bómullardamask og er því mjúkur,
vandaður og einstaklega fallegur.
Komdu við og skoðaðu úrvalið
ÚTSÖLULOK
Lín Design l Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið l Sími 533 2220 l www.lindesign.is
Laugavegi 51 - sími 552 2201
Opið virka daga 10-18, lau 10-16
VERSLUNIN
FLYTUR
LAGERHREINSUN
31. JAN. - 7. FEB.
KOMIÐ OG GERIÐ GÓÐ KAUP
Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin - 104 Reykjavík
S: 58 58 900-www.jarngler.is
Fyrirtæki - Húsfélög
Við bjóðum upp á
sjálfvirkan hurða -
opnunarbúnað ásamt
uppsetningu og
viðhaldi.
Auðveldar aðgengi, hentar vel fyrir
aðgengi fatlaðra.
Áratuga reynsla af búnaði tryggir gæðin.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
ÚTSALAN
ENN Í FULLUM GANGI
MIKIÐ ÚRVAL AF
FRÁBÆRUM VETRAFATNAÐI
ALLT AÐ
70% AFSLÁTTUR
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 • Sími 562 3614
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
Harmleikur og farsi
Rangt var farið með tilvitnun í Karl
Marx í Staksteinum í gær. Vitaskuld
átti að standa að sagan endurtæki
sig, fyrst sem harmleikur, svo sem
farsi. Tilvitnunin vísar til valdatöku
stuðningsmanna Louis Bonaparte
1851. Napóleon var harmleikurinn
og Napóleon þriðji farsinn.
LEIÐRÉTT
ALGER einhugur kom í ljós á með-
al starfsmanna á einkareknum
skólum þegar niðurstöður lágu fyr-
ir úr atkvæðagreiðslu um nýjan
kjarasamning. Samkvæmt upplýs-
ingum Eflingar greiddu 123 at-
kvæði af 244 á kjörskrá. Já sögðu
122 og einn skilaði auðu.
Enginn á móti