Morgunblaðið - 31.01.2009, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 31.01.2009, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is FYRIR hádegi í gær voru fylg- ismenn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar byrjaðir að skipuleggja kynningarfund um rík- isstjórnarsamstarf flokkanna. Kynn- ingin á því átti að fara fram við stytt- una af Jóni Sigurðssyni á Austurvelli, táknrænt fyrir byrj- unarstað mótmælanna sem grasrót flokkanna telur að hafi leitt til stjórnarskiptanna. En babb kom í bátinn. Drög að stjórnarsáttmála sem send höfðu verið út til þingmanna Samfylkingar og Vinstri grænna í fyrrinótt, eftir fund formannanna Steingríms J. Sigfússonar og Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur, komu inn á borð framsóknarmanna rétt fyrir hálf tvö í gær. Þá hittist þing- flokkurinn og ræddi um efnisatriði draganna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins urðu þingmenn Framsóknar, og formaðurinn Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, undr- andi á því hversu „innihaldslítil“ fimm síðna drögin voru. Öðru fremur vildu framsóknarmenn fá tímasetta áætlun um hvernig ætti að koma heimilum og fyrirtækjum í landinu til bjargar. Í drögunum var hins veg- ar fyrst og fremst rætt um markmið, frekar en hvernig þeim skyldi náð. Ósáttir framsóknarmenn Sigmundur Davíð hitti Steingrím J. og Jóhönnu Sigurðardóttur á fundi eftir að framsóknarmenn höfðu rætt um drögin. Þar gerði hann þeim grein fyrir því að Framsóknarflokk- urinn gæti ekki sætt sig við sáttmál- ann. Því næst ráðfærðu framsókn- armenn sig við ráðgjafa sína, þar á meðal hagfræðingana Jón Daní- elsson og Ragnar Árnason, sem sögðu efnahagsaðgerðir sem nefndar væru í drögunum ekki vera raunhæf- ar, að því er Sigmundur Davíð upp- lýsir í viðtali í Morgunblaðinu í dag. Eftir að Sigmundur Davíð hafði komið þessum skilaboðum til for- ystumanna Samfylkingarinnar og Vinstri grænna var ljóst að flokk- arnir gátu ekki kynnt nýja rík- isstjórn á Austurvelli eins og til stóð. Nokkur órói einkenndi fundahöld í herbergjum Alþingis eftir þetta. Þingmenn komu og fóru. Ótt og títt. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins voru forystumenn Sam- fylkingarinnar ekki sáttir við þá óvæntu stefnu sem stjórnarmynd- unarviðræðurnar tóku. Töldu þeir Framsóknarflokkinn, með Sigmund Davíð sem helsta mann, vera að mis- skilja það yfirlýsta hlutverk sitt að vera tilbúnir að verja ríkisstjórnina falli. Í þannig stöðu væri hlutleysi flokksins, sem verði stjórnarflokk- ana falli, gagnvart sjálfum stjórn- arsáttmálanum, grundvallaratriði. Sigmundur Davíð svaraði fullum hálsi og sagði Framsóknarflokkinn gera kröfu um raunhæfar leiðir og úrræði við bráðavanda. Hann gæti ekki samþykkt eitthvað bara til þess að halda flokkum við völd. Allra síst í því ástandi sem nú ríkti í þjóðfélag- inu. Eftir fundahöld, bæði í baklandi flokkanna og meðal forystumanna þeirra, færðist meiri ró yfir umræð- urnar eftir því sem leið á daginn. Í gærkvöldi funduðu fulltrúar frá öll- um flokkum um stöðuna sem upp væri komin. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru framsókn- armenn bjartsýnir, strax eftir kvöld- mat í gær, á að viðunandi lausn myndi nást sem tryggði það að rík- isstjórnin gæti orðið að veruleika innan skamms tíma. Þá voru flokks- menn sem sagt orðnir vissir um að niðurstaða gæti fengist í viðræður sem gerði Framsóknarflokknum mögulegt að verja hana falli. Hvenær á að kjósa? Þingflokkur Framsóknarmanna var einnig undrandi á því að ekki væri fjallað um það í drögunum að stjórnarsáttmála hvenær kosningar ættu að fara fram. Um það hafði ver- ið deilt frá upphafi viðræðna. Í þeim rökræðum hefur verið alvarlegur undirtónn þar sem breytt landslag í kjölfar bankahrunsins og endurnýj- unar á forystu Framsóknarflokksins setur flokkanna alla í harða sam- keppni um fylgismenn í komandi kosningum. Sjálfur kjördagurinn getur skipt sköpum í því samhengi. Eftir umræður í gær var helst talið, samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins, að 25. apríl yrði líklegur kjördagur. Kynningin sem aldrei varð  Framsóknarmenn voru ósáttir við ónákvæm drög  Ráðgjafar Framsóknarflokksins sögðu leiðir Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í efnahagsmálum óraunhæfar  Ekki minnst á kjördag í drögum Morgunblaðið/Árni Sæberg Alþingi Ekki er talið líklegt að Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. myndi nýja ríkisstjórn fyrr en eftir helgi. Í HNOTSKURN » Eins og greint var frá íMorgunblaðinu í gær er einblínt á það í drögum að stjórnarsamstarfi að komið verði til móts við erfiðleika heimila og fyrirtækja í land- inu. » Þá er einnig stefnt aðbreytingum á gjald- þrotalögum. Einnig er vilji hjá báðum flokkum til þess að reyna að efla atvinnulíf, eink- um í iðngreinum, meðal ann- ars með tímabundnum skatta- afslætti. Endanleg útfærsla á því lá ekki fyrir í gær. INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, fráfarandi utanríkisráðherra, kvaddi í gær þá Helga Ágústsson og Eið Guðnason, fyrrum sendi- herra, sem láta nú báðir af störfum vegna aldurs. Segja má þó að kveðjuhófið hafi ver- ið fleirum til handa því Ingibjörg sjálf lét þau orð falla að þetta væri líklega hennar síðasta embættisverk í þessari lotu. Ingi- björg er ekki fyrsti ráðherrann sem þeir Helgi og Eiður starfa með, því á 40 ára ferli sínum kynntist Helgi þrettán utanrík- isráðherrum en Eiður sex á sinni 16 ára tíð. Hann státar m.a. af því að hafa verið sendi- herra í fjölmennasta ríki heims, Kína, og ræðismaður í einu því fámennasta, Fær- eyjum þar sem hann vann síðustu starfs- árin. Helgi hefur að síðustu starfað sem prótókollsstjóri í utanríkisráðuneytinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kveðjuhóf með sendi- herrum Síðasta embættisverk Ingibjargar Sólrúnar „í þessari lotu“ Stjórnarmyndun Fundi for- manna Vinstri grænna og Samfylkingar- innar, Stein- gríms J. Sig- fússonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sem fram fór í fyrrakvöld, lauk skömmu eftir miðnætti. Um klukkan eitt um nóttina voru drög að stjórn- arsáttamála send til þingflokka og helstu forystumanna beggja flokka. Umræður hefjast Í gærmorgun hófust fundir beggja flokka. Tekið var til við að laga drögin og var mið tek- ið af athuga- semdum. Um klukkan tíu bárust fréttir af því að ríkis- stjórnin yrði kynnt seinnipart dags. Samstaða hefði náðst um stjórnarsáttmála og ekkert væri til fyrirstöðu. Stjórnin kynnt? Skömmu fyrir hádegi bárust þær fréttir úr herbúðum beggja flokka að stjórnin yrði kynnt seinni- part dags, klukkan sex. Klukkan hálftvö fengu framsókn- armenn drög að stjórn- arsáttmála í hendurnar og lögðust strax gegn veiga- miklum atriðum. Kynningin á ríkisstjórninni var þá fljótlega slegin af. Atburðir í gær breyttu viðræðum Steingrímur J. Jóhanna Sigurðardóttir Sigmundur Dav- íð Gunnlaugsson Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.