Morgunblaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2009 Nýir ráðherrar í ríkisstjórn? Þó að ekki sé endanlega búið að mynda minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna stefnir allt í að fimm verði ráðherrar sem ekki hafa tekið sæti í ríkisstjórn áður, þar af þrír þingmenn Vinstri grænna og tveir sérfræðingar úr Háskóla Íslands. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is GYLFI Magnússon, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, hefur verið tíður gest- ur í fjölmiðlum síðustu vikur og mánuði og nýlega var hann meðal ræðumanna á útifundi á Austurvelli. Hann tekur nú við embætti viðskiptaráðherra í minnihlutastjórn Samfylking- arinnar og Vinstri grænna. Heimildarmenn minnast þess ekki að Gylfi hafi stutt op- inberlega nokkurn stjórn- málaflokk. Hins vegar benda þeir á að Valgerður Sverr- isdóttir hafi í ráðherratíð sinni bæði skipað hann árið 2005 formann stjórnar Samkeppniseftirlitsins og árið áður í nefnd um stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis. Les- endur verða síðan að gera upp við sig hvort þar með sé leyfilegt að draga nýja ráðherrann í dilk Framsóknarflokksins. Gylfi fæddist í Reykjavík 1966, hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1986, lauk kandídatsprófi við við- skipta- og hagfræðideild HÍ 1990 og doktorsprófi í hagfræði við Yale- háskóla í Bandaríkjunum 1997. Fjallaði doktorsritgerðin um byggðaþróun og byggðastefnu á Ís- landi. Gylfi hefur einnig ritað pistla í Morgunblaðið og brugðið ljósi hagfræðinnar á margvísleg mál. Einn þeirra var Hallinn á jólunum 1996, þar rakti hann rannsóknir bandarísks prófessors á heild- arkostnaðinum af því að oft væru gefnar jólagjafir sem viðtakand- anum þætti lítið til koma. Gjafir færu oft í súginn. Gylfi vann ýmis störf með námi, segist á heimasíðu sinni hafa stuðst „við ýmsar skóflur“ hjá Vegagerð- inni 1982-1985 (bætir samt við að þetta sé ekki satt, mönnum hafi verið haldið að verki) og var einnig blaðamaður á Morgunblaðinu sumrin 1986-1990. Hann hefur verið kennari við HÍ frá 1996, hefur ritað mikið um fræðigrein sína og efni er tengjast henni og er vinsæll fyrirles- ari. Eiginkona Gylfa er Hrafnhildur Stef- ánsdóttir og eiga þau fimm börn. Úr fræðunum á vígvöllinn Ráðherra Gylfi Magn- ússon á leið í ríkisstjórn. Í HNOTSKURN »Því er hins vegar ekki þannig farið aðlandið sé gjaldþrota eða að ríkið sé gjaldþrota, það er ekki þannig, en það eru allmörg innlend hlutafélög og þar með tal- ið bankarnir í reynd tæknilega séð gjald- þrota. Gylfi Magnússon í samtali við RÚV 3.10. 2008 »Ég held að það væri mjög óskyn-samlegt að bregðast við þessu með harkalegum niðurskurði á ríkisútgjöldum eða með mikilli hækkun skatta. Það myndi gera illt verra. GM í samtali við Mbl. 3.11. 2008 »Það var greinilega ríkjandi hug-myndafræði að Seðlabankinn og FME ættu ekki að hefta bankana. Stofnanirnar voru eins konar bakhjarl bankanna frem- ur en varðhundur. Og því fór sem fór.“ GM samtali við Mbl. 8.1. 2009 »Það hlýtur að vera einn eðlilegur liðurí enduruppbyggingunni að þeir sem voru við stjórnvölinn þegar skútan strand- aði stígi til hliðar og hleypi öðrum að.“ GM í samtali við Mbl. 18.1. 2009 Gylfi Magnússon hefur oft mundað pennann Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is VÆNTANLEGUR dómsmálaráðherra kynnt- ist misjafnri þjóðfélagsstöðu fólks af eigin raun þegar hún starfaði við ræstingar í Kaup- mannahöfn veturinn eftir útskrift úr MR vorið 1985, árið sem nokkurra ára blaðamennsku- ferill hófst. Björg Thorarensen var þá um tvítugt og hafði sóst námið vel í menntaskóla, þar sem hún var ári á undan jafnöldrum sínum. Þrátt fyrir góðan námsárangur lokaði hún sig ekki af yfir bókunum heldur lét sitt ekki eftir liggja í félagslífinu, þar sem hún var hrókur alls fagnaðar og uppátækjasöm í góðra vina hópi. Svona lýsir María Thejll, forstöðumaður Lagastofnunar Háskóla Íslands, Björgu á yngri árum, og bendir á að fræðilegur metn- aður Bjargar hafi komið snemma í ljós þegar hún gerðist ritstjóri Úlfljóts, tímarits laga- nema í HÍ, þaðan sem hún útskrifaðist með kandídatspróf í lögfræði árið 1991. Þaðan lá leiðin til Edinborgar þar sem hún útskrifaðist með meistarapróf í lögum frá Edinborgarháskóla í nóvember 1993, nánar tiltekið í stjórnskipunarrétti og samanburðar- lögfræði, alþjóðlegum mannréttindum og stjórnskipulagi Evrópusambandsins. Deildarforseti lagadeildar Að loknu framhaldsnámi hóf Björg stunda- kennslu við lagadeild Háskóla Íslands, þar sem hún er nú deildarforseti og prófessor. Elvira Méndez Pinedo, lektor í Evrópurétti við lagadeild Háskóla Íslands, tekur undir með Maríu að Björg sé mjög þægileg í samvinnu. „Hún er yfirmaður minn og ég er mjög, mjög sátt við hana. Hún er einstaklega kurteis og leggur sig fram um að mismuna ekki fólki. Það er alltaf hægt að banka hjá henni með hitt og þetta. Hún tekur hluti mjög alvarlega og er einkar dugleg. Sem kollegi Bjargar hef ég ekkert nema gott um hana að segja,“ segir Elvira. Björg er gift Markúsi Sigurbjörnssyni hæstaréttardómara og eiga þau þrjú börn. Ferðalög eru þeirra yndi og nota þau sumr- in gjarnan til ferðalaga innanlands. Þau eiga heimili við Tjörnina í Reykjavík. Morgunblaðið/Golli Á skrifstofunni Björg þykir afar iðin í starfi. Sá heiminn í nýju ljósi eftir skúringarnar Líklegur dómsmálaráðherra þykir mjög dugleg ÖGMUNDUR Jónasson, væntanlegur heilbrigð- isráðherra, er fæddur 17. júlí 1948. Hann lauk stúdents- prófi frá MR og síðan MA-prófi í sagnfræði og stjórnmálafræði við Ed- inborgarháskóla í Skot- landi árið 1974. Sama ár kvæntist hann Valgerði Andrésdóttur, eiginkonu sinni, og eiga þau þrjú börn. Ögmundur hefur m.a. starfað sem grunn- og háskólakennari og fréttamaður. Þá hefur hann gegnt formennsku BSRB frá árinu 1988. Hann hefur setið á þingi frá 1995, fyrst fyrir Alþýðubandalag og óháða en fyrir Vinstrihreyfinguna frá 1999, auk sæta í ýms- um nefndum. Þingmaður í 14 ár en aldrei í ríkisstjórn KATRÍN Jakobsdóttir, væntanlegur mennta- málaráðherra, er fædd í Reykjavík 1. febrúar 1976 og varð stúdent frá MS árið 1996. Þá lauk hún BA-prófi í íslensku við HÍ með frönsku sem aukagrein árið 1999 og síðar meistaraprófí í bókmenntum 2004. Síð- an hefur Katrín m.a. starfað sem málfarsráðunautur RÚV, við dagskrárgerð, ritstjórnarstörf og kennslu. Hún var varaborgarfulltrúi fyrir Reykjavík- urlistann 2002-6 og hefur m.a. átt sæti í fræðsluráði og verið formaður samgöngu- nefndar Reykjavíkur. Katrín er gift Gunnari Erni Sigvaldasyni og eiga þau tvo syni Verður yngsti ráðherrann í komandi ríkisstjórn KOLBRÚN Halldórs- dóttir, tilvonandi um- hverfisráðherra, er fædd 31. júlí 1955 í Reykjavík. Hún lauk verslunarprófi frá VÍ 1973 og burtfar- arprófi frá Leiklistarhá- skóla Íslands 1978. Að því loknu starfaði hún sem leikari og hvíslari hjá Leikfélagi Reykjavíkur, en auk þess hefur hún m.a. unnið sem dagskrárgerðarmaður, framkvæmdastjóri, ritstjóri og stjórnandi stórra menningarviðburða. Kolbrún hefur set- ið á þingi fyrir Vinstri græna frá 1999 og hef- ur m.a. setið í umhverfisnefnd, auðlindanefnd, vatnalaganefnd, Þingvallanefnd o.fl. Hún er gift Ágústi Péturssyni og eiga þau tvö börn. Úr leiklistinni í þingstörf- in og nú í ríkisstjórn Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is ÞAÐ hefur ekki farið framhjá neinum að þing- menn Vinstri grænna og almennir flokksmenn hafa verið óvenju brosmildir undanfarið, enda flokkurinn að komast til áhrifa í ríkisstjórn í fyrsta skipti í 10 ára sögu sinni. Gleðin kemur vel fram á myndum í blöðum og sjónvarpi og minnir óneitanlega á stemninguna sem mynd- ast hefur nokkrum sinnum í borgarstjórn Reykjavíkur undanfarin ár, þegar nýir meiri- hlutar hafa verið að taka við völdum. Jafn- framt er áberandi hve gleði Samfylkingarfólks er hófstilltari, enda það að koma úr ríkisstjórn. Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur seg- ist ekki vita til þess að rannsóknir hafi farið fram erlendis á viðbrögðum fólks þegar það eygir þann möguleika að fá mikil völd. „Allir stjórnmálamenn hafa sagt að þeir vilji völd, að þeir vilji hafa áhrif. Því er gleði Vinstri grænna skiljanleg,“ segir Jóhann Ingi. Stjórn- arandstaðan á Alþingi hafi lítil áhrif en ráð- herravald á Íslandi sé mjög sterkt. Því hljóti þingmenn VG að hafa verið orðnir mjög óþol- inmóðir að komast í stjórn. „Ég get ímyndað mér að þegar fólk hefur lengi staðið á hlið- arlínunni og telur sig eiga erindi inn á leik- vanginn sé þetta eins og að vera loksins valinn í landsliðið í íþróttum,“ segir Jóhann Ingi. Fyrsti leikurinn gegn heimsmeisturum „Þú ert búinn að æfa vel og telur þig öflugan leikmann en kemst aldrei að. Það eru aðrir fyr- ir í liðinu, öflugir leikmenn. Ég hef líka tekið eftir því að fólk reynir að leyna gleðinni svolít- ið svo þetta verði ekki Þórðargleði eins og stundum er sagt. Enda er þetta ekki létt verk sem bíður ráðherranna, svona eins og að spila fyrsta leikinn gegn ríkjandi heimsmeisturum.“ Jóhann heldur áfram líkingamálinu við íþróttir og segir að það að vera stjórnarand- stæðingur á Alþingi sé eins og að spila alltaf í íslensku deildinni og fá aldrei tækifæri til að spila gegn sterkari liðum. „Þú ert alltaf að tala um sömu hlutina og hefur engin áhrif. Ef þú fengir tilboð frá erlendu liði myndir þú vænt- anlega fyllast óstjórnlegri gleði. Þetta eru bara eðlileg viðbrögð,“ segir hann. „Þau hlakka eðlilega til að sýna hvað í þeim býr. Svo á eftir að koma í ljós hversu öflug þau eru undir álagi og í samvinnu og þá fyrst kem- ur í ljós úr hverju þau eru gerð. Öll verðum við á öllum tímum að óska nýrri stjórn velfarnaðar því það er allra hagur.“ Jóhann kveðst sjá líkindi með íþróttamönn- um og þingmönnum. „Íþróttamenn takast á í leik en eru vinir þess á milli. Mér sýnist það sama eiga við á Alþingi. Menn takast á í um- ræðum í þinginu en eru svo vinir þess á milli.“ „Eins og að komast loksins í landsliðið“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Bros og aftur bros Forystumenn Vinstri grænna hafa ekki getað leynt gleði sinni með væntanlega stjórnarþátttöku. Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur segir ánægju VG yfir því að komast í ríkisstjórn skiljanlega Stjórnarmyndun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.