Morgunblaðið - 31.01.2009, Qupperneq 24
24 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2009
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Við Íslendingar höfum lifað íþeirri trú að stjórnarskrálýðveldisins, almenn lög ogrík réttarvitund almenn-
ings tryggði það sem í stjórn-
arskránni segði um að allir skuli vera
jafnir fyrir lögum og njóta mannrétt-
inda án tillits til kynferðis, trúar-
bragða, skoðana, þjóðernis, uppruna,
kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætt-
ernis og stöðu að öðru leyti.
Fyrir mörgum árum var þessi trú
svo útbreidd að stjórnvöld töldu litla
sem enga ástæðu til þess að finna
þessum góðu fyrirheitum þann stað í
lögum að efndir myndu fylgja fyrr-
greindum orðum. Og sú skoðun var
einnig útbreidd að best færi á því að
litlar og helst engar breytingar væru
gerðar á stjórnargerð. Þetta var og
er einlæg skoðun margra lögfræð-
inga,“ sagði Magnús Norðdahl, lög-
fræðingur Alþýðusambands Íslands,
á fjölsóttu málþingi um löggjöf gegn
mismunun á Íslandi sem fram fór í
Iðnó í gær.
Leiddi til ágreinings við Noreg
Magnús benti á að aðild Íslands að
alþjóðlegu- og fjölþjóðlegu samstarfi
hefði leitt til þess að mannréttinda-
ákvæði stjórnarskrárinnar hefðu tek-
ið hægfara breytingum í þá veru að
tryggja jafnt félagsleg, mannrétt-
indaleg og borgaraleg mannréttindi.
„Ein afleiðingin af þessu fjölþjóðlega
samstarfi sem Ísland tekur þátt í er
að upp á fjörur okkar rak, án þess að
nokkur hefði sérstaklega beðið um
það, tilskipanir Evrópusambandsins
frá árinu 2000 um bann við mis-
munun,“ sagði Magnús. Minnti hann
á að þegar Ísland gekk til samninga
um myndun Evrópska efnahags-
svæðisins ætluðu menn ekki að undir
þann samning féllu allar tilskipanir
ESB sem myndu líta dagsins ljós eft-
ir að EES samningurinn var gerður.
Þannig var ekki gert ráð fyrir því að
tilskipanir sem myndi varða félagsleg
og borgaraleg mannréttindi yrðu að
veruleika hér á landi.
„Þegar þessar tilskipanir ESB um
bann við mismunun litu dagsins ljós
var það mat íslenskra stjórnvalda að
þær væru að öllu eða verulegu leyti
þegar í gildi, auk þess sem þær voru
ekki taldar varða EES,“ sagði Magn-
ús og tók fram að þetta hefði leitt til
ágreinings við Noregs, því Norð-
menn vildu taka tilskipunina í gildi
strax en Íslendingar ekki. Nið-
urstaðan varð því sú að tilskipun
ESB um bann við mismunun varð
ekki hluti af EES-samningnum.
Á ekki að enda í ruslatunnu
Magnús minnti á að afstaða ASÍ
hefði verið sú að innleiða ætti strax
tilskipun ESB. Sagði hann að rök
ASÍ hefðu m.a. verið þau að öll lönd
sem við bærum okkur saman við
hefðu sett eða hygðust setja löggjöf
um þetta efni byggða á tilskipun
ESB. Noregur ætlaði að uppfylla öll
skilyrði tilskipunarinnar og ríki ESB
væru skuldbundin til að gera það og
væru sett undir agavald ESB í þeim
efnum. „Það væri mikilvægt fyrir
rekstur og þróun EES samningsins
og stöðu Íslands í Evrópusamvinn-
unni að tilskipunin yrði hluti af rétt-
indakerfi á íslenskum vinnumarkaði.“
Að sögn Magnúsar telur ASÍ að
niðurstöður starfshóps sem falið var
að skoða tilskipanir Evrópusam-
bandsins um bann við mismunun séu
ásættanlegar. „Verkið er þó ekki full-
unnið. Fyrir höndum er í raun
stærsta verkið og það er að semja
lögin. Því miður er staðan þannig í
stjórnmálunum núna að við erum
ekkert sérlega vongóð um að þetta
verði afgreitt á næstu tveimur mán-
uðum. Við leggjum áherslu á að fé-
lagsmálaráðherra setji þessa vinnu af
stað þannig að nýr félagsmálaráð-
herra geti fylgt henni eftir á næsta
kjörtímabili. Því ákvarðanir stjórn-
valda sem væru teknar eftir jafnlangt
og jafnmikið samráð og var haft um
þessar tvær tilskipanir eiga auðvitað
ekki að enda í ruslatunnu, heldur á að
vera einhvers konar samfella í stjórn-
sýslunni sem tryggir að haldið verði
áfram með þessa vinnu.“
Íslenska löggjöfin
brotakennd og ófullkomin
Þegar komið er út fyrir svið jafn-
réttis á grundvelli kynferðis er ís-
lenska löggjöfin afar brotakennd og
ófullkomin. Fjölmörg göt eru í rétt-
arverndinni hérlendis þegar kemur
að mismunun, bæði miðað við það
sem kveðið er á um í Evrópuréttinum
og einnig í þeim löndum sem við vilj-
um bera okkur saman við. Það er því
löngu orðið tímabært að endurskoða
almenna jafnréttislöggjöf á Íslandi
og auka réttarverndina til samræmis
við réttarsvið Evrópuréttarins. Þetta
er mat Oddnýjar Mjallar Arn-
ardóttur, lagaprófessors við Háskól-
ann í Reykjavík, sem fór í erindi sínu
á málþinginu yfir íslensku löggjöfina
gegn mismunun og mögulegar um-
bætur.
„Huga þarf vel að grundvöllum
mismununar. Þörfin fyrir að berjast
gegn mismunun á sér alltaf rætur í
félagslegum veruleika, þar sem
ákveðnir hópar eru settir í jaðarstöðu
í samfélaginu. Klassísku mismun-
unarástæðurnar tengjast kyni, kyn-
ferði, kynáttun, kynþáttum, lit-
arhætti, þjóðerni, fötlun, kynhneigð,
aldri, tungumáli, pólitískum skoðanir,
og félagslegri stöðu, svo eitthvað sé
nefnt. Það er mikilvægt að gera sér
grein fyrir því þegar fjallað er um
mismununarástæðurnar að við erum
að tala um félagslega skilgreiningu,
einkenni sem valda jaðarstöðu og
markmið lagasetningar ætti að vera
að bæta stöðu hópa sem eru í jað-
arstöðu í samfélaginu,“ sagði Oddný.
Að mati Oddnýjar virkar löggjöf
gegn mismunun ekki sem skyldi
nema að innleidd séu virk og skilvirk
eftirlitskerfi, t.d. stjórnsýslustofnun
sambærileg við Jafnréttisstofu.
Einnig þurfi að tryggja aðgang að
dómstólum eða stjórnsýslulega
kæruleið, þannig að það sé aðgengi-
legt fyrir borgara að leita réttar síns,
en það sé ekki staðan í dag. Þannig
þyrfti hérlendis að koma á nefnd sem
væri sambærileg við kærunefnd jafn-
réttismála fyrir allar mismununar-
ástæður. Einnig þurfi að útfæra virk
og raunhæf viðurlög við brotum.
Sagðist Oddný vera þeirrar skoðunar
að hver mismununarhópur þyrfti
klæðskerasaumuð ákvæði, en að þau
gætu öll vel rúmast innan einnar
heildarlöggjafar og á könnu eins eft-
irlitsaðila eða -stofnunar.
Íslendingar 15 árum á eftir
„Eftir því sem ég fæ best séð þá er
umræðan um löggjöf gegn mismunun
hérlendis svona 15 árum á eftir um-
ræðunni í Svíþjóð,“ sagði Anna T.
Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá
umboðsmanni Svía gegn mismunun, í
framsögu sinni. Bætti hún við að jafn-
réttisumræðan í víðum skilningi hefði
átt sér stað sl. 20-25 ár í Svíþjóð.
Sagðist hún þeirrar skoðunar að
þakka mætti það hversu framarlega
Svíar stæðu á þessu sviði því að Svíar
væru aðilar að Evrópusambandinu.
Þannig hefði þrýstingurinn á úrbæt-
ur í reynd komið utan frá.
Í máli Önnu kom fram að á sl. ár-
um hefði verið komið á umboðs-
mannaembættum á sviði t.d. kynja-
jafnréttis, kynþáttar og kynhneigðar,
en í upphafi þessa árs hefði tekið til
starfa embætti eins umboðsmanns
sem næði til allrar mismununar.
Sagði hún marga hafa haft efasemdir
um að jákvætt væri að sameina þetta
allt undir einum hatti þar sem óttast
var að einn málaflokkur mismununar
myndi kæfa annan. Þessar gagnrýn-
israddir væru hins vegar að mestu
þagnaðar, þar sem menn sæju nú
fleiri kosti við sameininguna þar sem
samstaðan gæti styrkt baráttuna.
Anna sagði það hlutverk stofnunar
umboðsmanns að hafa eftirlit með því
að lögum gegn mismunun væri fylgt
eftir, veita einstaklingum ráðgjöf og
taka á móti kærumálum er snúa að
mismunun og rannsaka þau. Sagði
hún að ætlað væri að sameinuðu
embætti umboðsmanns mundu ber-
ast 1500-2000 kærumál á ári. Sagði
hún reynt að leita sátta í öllum mál-
um, en reynslan sýndi að 15-20%
allra kærumálanna enduðu fyrir
dómstólum.
Morgunblaðið/Sverrir
Mismunun Fjölbreytileikinn í samfélaginu er mikill. Meðal þeirra þátta sem skipað geta fólki í jaðarhópa eru kynferði, kynþáttur, þjóðerni, fötlun, kynhneigð, aldur og tungumál.
Eigum enn langt í land
Sérfræðingar segja íslenska löggjöf gegn mismunun standa langt að baki því sem þekkist í nágranna-
löndum okkar Þeir telja mikilvægt að setja lög í samhljóman við tilskipanir ESB í málaflokknum
Starfshópur um tilskipanir Evr-
ópusambandsins um bann við mis-
munun hefur lagt til að á vegum
félags- og tryggingamálaráðuneyt-
isins verði samið frumvarp til laga
sem taki á efnisþáttum ESB frá
árinu 2000 er tengjast annars
vegar jafnri meðferð manna án til-
lits til kynþáttar eða þjóðernis og
hins vegar mismunun á vinnu-
markaði. Þetta var meðal þess
sem fram kom í máli Helga Hjörv-
ar, formanns starfshópsins, en
hann kynnti starf hópsins á mál-
þinginu í gær.
Starfshópurinn leggur til að
undir Jafnréttisstofu heyri starfs-
maður sem starfi við að veita þeim
sem telja sig hafa sætt mismunun
á grundvelli t.d. kynþáttar, trúar,
fötlunar, aldurs eða kynhneigðar,
óháða aðstoð við að framfylgja
kærum um mismunun.
Að sögn Helga töldu þeir sem í
starfshópnum sátu mikilvægt að
komast að tillögu sem allir gátu
samþykkt og því þurfti að sætta
ólík sjónarmið. Benti hann á að
þannig hefði starfshópurinn fallist
á þá skoðun atvinnurekenda að
ekki mætti leggja „óhæfilega mikl-
ar kvaðir á atvinnulífið“ á sviði
mismununar. Benti hann á færa
mætti rök fyrir því að með litlum
kvöðum á hendur atvinnulífsins,
eins og gilt hefði hérlendis, hefði
tekist að halda uppi mjög háu at-
vinnustigi sem aftur nýttist fyrr-
greindum jaðarhópum.
Spurður hvort ástæða væri til
þess að enduskoða þetta í ljósi
breyttra aðstæðna á vinnumarkaði
eftir að bankakreppan skall á benti
Helgi á að nefndin væri þegar búin
að skila skýrslu sinni. Sagði hann
starfshópinn hafa verið sammála
um að mikilvægt væri að innleiða
tilskipunina með jákvæðum hætti
til þess að sátt gæti náðst um
hana. Of miklar kvaðir, t.d. um til-
tekið hlutfall fatlaðra á vinnustað,
gætu skapað neikvætt viðhorf til
tilskipunarinnar sem ekki væri
gott.
Næst á dagskrá að semja sjálf lögin
Morgunblaðið/Þorkell
Blinda Tilskipun ESB frá 2000 tekur á mismunun á vinnumarkaði.