Morgunblaðið - 05.02.2009, Page 1
F I M M T U D A G U R 5. F E B R Ú A R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
34. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
DAGLEGTLÍF
SKRIFAR UM ÍSLEND-
INGA Í VESTURHEIMI
BREYTINGAR Í GRUNNSKÓLUM
Fegnar að losna við
samræmdu prófin
VIÐSKIPTI
Fjárfestingarbankinn Straumur
tapaði 105 milljörðum króna á síð-
asta ári og er það stærsta tap ís-
lensks félags á einu ári. Stór hluti
tapsins kemur til vegna afskrifta á
útlánum og viðskiptavild.
Stærsta tap íslensks
fyrirtækis til þessa
Með því að setja upp eignarhalds-
félög erlendis gátu Íslendingar
komist hjá því að greiða skatt hér-
lendis, en sumir gengu lengra en
lögin heimiluðu og hafa gerst sekir
um skattsvik.
Skattsvik með
erlendum kortum
Cayman-
eyjar
Jómfrúar-
eyjar
Samkeppniseftirlitið telur að
Teymi, móðurfélag Vodafone og
annar eigenda Tals, hafi virt að
vettugi ákvörðun þess um að stjórn-
armenn Teymis víki úr stjórn Tals.
Verða lagðar dagsektir á Teymi.
Hunsa ákvörðun
Samkeppniseftirlits
RÍKISSTJÓRNIN ætlar í næstu viku að gera grein fyrir fyrirætlunum sínum
um endurreisn fjármálakerfisins. Nefnd undir forystu Mats Josepsson mun
gera grein fyrir fyrstu tillögum sínum í lok þessarar viku. Þetta sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í stefnuræðu á Alþingi. Þingmenn
tókust á um grundvallarmál en töluðu einnig fyrir mikilvægi samstöðu. | 6
Jóhanna lagði línurnar
Morgunblaðið/Kristinn
KOSTNAÐUR við biðlaun þriggja bankastjóra
Seðlabankans verður 44 milljónir, að mati fjár-
lagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Þetta
kemur fram í umsögn með Seðlabanka-
frumvarpi forsætisráðherra. Reglur bankaráðs-
ins um 12 mánaða biðlaun eigi ekki við þegar
um skipulagsbreytingar er að ræða. „Sam-
kvæmt því er gert ráð fyrir að tveir bankastjór-
anna eigi rétt til 12 mánaða biðlauna, sem
myndast eftir 15 ára störf í þjónustu ríkisins
sem embættismenn, en einn til 6 mánaða þar
sem starfstími alþingismanna og ráðherra telst
ekki með þjónustualdri hjá ríkinu […].“
Biðlaunin verða 44 milljónir
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
ÖLL innlán vegna Kaupþing Edge-
reikninga í Noregi, Finnlandi og
Austurríki hafa verið greidd upp og
verið er að vinna úr málum sem
tengjast slíkum reikningum þýskra
innstæðueigenda. Steinar Þór Guð-
geirsson, formaður skilanefndar
Kaupþings banka hf., segir ljóst að
ekkert falli á ríkissjóð eða skattgreið-
endur vegna reikninganna.
Reikningarnir voru gerðir upp
þannig að samkomulag var gert við
yfirvöld viðkomandi landa og komið í
veg fyrir brunaútsölur á eignum.
Stór hluti eigna útibúanna hefur í
kjölfarið verið fluttur til Íslands.
Bókfært verð Kaupþings banka
hf., sem er erlendi hlutinn sem varð
eftir við uppskiptingu bankans, er nú
tæpir þrjú þúsund milljarðar. Virði
bankans var sex þúsund milljarðar
við bankahrunið og þar af voru 1.500
milljarðar færðir í Nýja Kaupþing.
Sá hluti var svo færður niður.
Steinar upplýsir að skipurit Kaup-
þings banka hf. líti nú þannig út að
fjögur svið hafi verið mynduð; eigna-
stýringarsvið, lögfræðisvið, fjármála-
svið og kröfuhafasvið. Framkvæmda-
stjóri er yfir hverju sviði fyrir sig.
Þessu til viðbótar eru erlendir ráð-
gjafar á lögfræðisviði og í fjárhags-
ráðgjöf. 30 manns vinna í bankanum
fyrir skilanefnd.
Kröfuhafar á bankann hafa lýst því
yfir að þeir kæri sig ekki um bruna-
útsölur á eignasafninu, heldur vilji
þeir að nægur tími gefist til að vinna
úr eignunum, sem eru helst útlán, og
virði þeirra verði þannig hámarkað.
Vilja ekki brunaútsölur | 14
Ekkert fellur
á skattgreið-
endur hér
Kaupþing Edge-reikningar gerðir
upp í Noregi, Austurríki og Finnlandi
Í HNOTSKURN
»Í dag er haldinn fundurmeð öllum kröfuhöfum á
Kaupþing banka hf., erlendum
sem innlendum.
»Þar verður farið yfirhvernig efnahagsreikning-
urinn lítur út núna, þ.e. hverj-
ar eru helstu eignir, hvert sé
líklegt verðmæti eignasafns-
ins og lagt mat á hvert fram-
haldið geti orðið.
Skólastúlkur í
Afganistan halda
sig í auknum
mæli heima við
af ótta við vax-
andi ofbeldi og
áreitni gegn kon-
um á götum úti.
Óttast er að þró-
unin geti orðið sú
að heil kynslóð
afganskra stúlka
verði af menntun, meira að segja í
hinni frjálslyndu höfuðborg Kabúl.
Ferðafrelsi kvenna í Afganistan
var skert verulega í valdatíð talib-
ana fram til ársins 2001. Þær hafa
nú sótt í sig veðrið en finna fyrir
vaxandi óöryggi. Í nóvember varð
hópur unglingsstúlkna fyrir
brennisteinssýruárás úti á götu þar
sem þær voru á leið í skóla. »22
Konur í Afganistan óttast
vaxandi ofbeldi og kúgun
Konur Vilja mennt-
un og ferðafrelsi.
Hugmynda-
ráðuneytið kall-
ast verkefni sem
Guðjón Már Guð-
jónsson kom á
laggirnar í jan-
úar til að styrkja
frumkvöðla-
starfsemi í land-
inu. Ráðuneytið
er öllum opið og rekið algjörlega í
sjálfboðastarfi.
„Eftir hrun bankanna var mikið
talað um mikilvægi nýsköpunar en
mér þótti vanta að fólk hittist raun
og kæmi hugmyndunum í fram-
kvæmd.“ »9
Hefur opnað útungunar-
stöð fyrir góðar hugmyndir
Hljóðið í smábátasjómönnum er
þungt vegna lækkandi fiskverðs og
segjast sumir trillukarlar vera
farnir að borga með sér í vinnu.
Menn héldu í þá von að gengis-
hrun á krónunni myndi halda uppi
verðinu á markaðnum en sú virðist
ekki vera raunin. Sem dæmi má
nefna að á rúmri viku lækkaði með-
alverðið á slægðum þorski um heil
25%. Þessi mikla verðlækkun kem-
ur verst niður á þeim sem eru á
leigumarkaðnum og er talið að
margir smábátasjómenn íhugi að
hætta útgerð ef ástandið batnar
ekki. Lítil viðskipti með kvóta setja
þeim þó þröngar skorður auk þess
sem lítið er um vinnu í landi. »16
Sumir trillukarlar segjast
borga með sér í vinnu
„VIÐ fengum aldrei viðbrögð við
áætlun okkar um endurskipulagn-
ingu Baugs sem hafði það að mark-
miði að tryggja verðmæti félagsins
og greiða allar skuldir. Gríðarleg
verðmæti tapast vegna þessarar
ákvörðunar Landsbankans og nú
Glitnis,“ sagði Jón Ásgeir Jóhann-
esson, stjórnarformaður Baugs Gro-
up, í gærkvöldi.
Þá hafði skilanefnd Glitnis til-
kynnt að öll lán Baugs og tengdra
félaga hjá bankanum yrðu gjald-
felld. Við blasti að félagið myndi
ekki geta greitt skuldir sínar.
Skilanefnd Landsbankans fór
fram á að BG Holding, dótturfélag
Baugs Group, færi í greiðslustöðvun
í Bretlandi á þriðjudag.
Formenn skilanefnda bankanna
segja báðir að hugmyndir stjórn-
enda Baugs um fjárhagslega end-
urskipulagningu félagsins hafi ver-
ið óraunhæfar og þessar ákvarðanir
miði að því að hámarka virði eigna.
Beiðni Baugs Group um að fá
greiðslustöðvun hérlendis verður
tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í dag en báðar skilanefndirnar
hyggjast leggjast gegn þeirri
beiðni.
thordur@mbl.is/bjorgvin@mbl.is
Landsbanki og Glitnir
vilja Baug í greiðslustöðvun