Morgunblaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 4
ÓLAFUR Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, hefur fengið að láni fjóra starfsmenn lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu og embættis ríkislögreglustjóra. Er um að ræða þaulvana menn í rannsóknum efnahags- og auðg- unarbrota. „Ég gekk frá þessu við lögreglustjóra höfuðborgar- svæðisins, þ.e. að lána mér tvo menn, annars vegar yf- irmann auðgunarbrotadeildar og hins vegar lögfræðing yf- irstjórnar,“ segir Ólafur Þór. Mennirnir sem um ræðir eru Grímur Grímsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá auðgun- arbrotadeild, og Hólmsteinn Gauti Sigurðsson lögfræð- ingur. Einnig fékk Ólafur til liðs við sig Svein Ingiberg Magn- ússon, aðstoðaryfirlögregluþjón hjá efnahagsbrotadeild hjá ríkislögreglustjóra, og annan starfsmann embættisins sem kynntur verður síðar. „Ég var einnig í sambandi við ríkislögreglustjóra og merkti ekki annað en fyllsta stuðn- ing við starfsemi þessa nýja embættis.“ Ólafur segir mennina valda af kostgæfni. „Ég vildi fá inn menn með reynslu og þekkingu af rannsóknum mála af þessu tagi, þannig að það þurfi ekki á sama tíma og rann- sókn hefst að skóla þá til. Þetta er allt gert í því skyni að tryggja gæði rannsóknarinnar og að gögn séu með þeim hætti að ákærandi geti tekið ákvarðanir út frá þeim.“ Hinir nýju starfsmenn saksóknarans snúa aftur til emb- ætta sinna að loknum starfstíma þeirra. Alls óvíst er þó hvenær það verður, og eins hversu margir starfsmenn til viðbótar verði fengnir til embættisins. „Um leið og við sjáum umfang verkefnisins getum við frekar slegið á mannaflaþörfina.“ andri@mbl.is Valdir af kostgæfni Starfsmönnum fjölgar hjá embætti sérstaks saksóknara 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009 Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is „VIÐ höfum meðal annars velt því fyrir okkur hvort ekki mætti afla hagnýtra upplýsinga um göngur fiskistofna með því að merkja hvali með gervitunglasendum,“ segir Gísli Víkingsson, sérfræðingur hjá Haf- rannsóknastofnun. Hnúfubakur sem merktur var frá rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni fyrir austan land á sunnudag virtist þangað til í fyrri- nótt halda sig á hefðbundinni loðnu- slóð suður með austurströndinni, einmitt þar sem vísbendingar höfðu borist um loðnu. Strikið suður á bóginn Í fyrrinótt tók hnúfubakurinn hins vegar strikið suður á bóginn og var síðdegis í gær kominn djúpt suður af landinu. Gísli segir að merkin frá hvalnum séu misná- kvæm og því sé ekki hægt að full- yrða að síðustu merkin séu rétt. „Það er alveg hugsanlegt að við getum fengið hagnýtar upplýsingar með auknum merkingum á hnúfu- bak,“ segir Gísli. Með það meðal annars í huga var merkinu skotið í hnúfubakinn á þekktri loðnuslóð fyrir austan land. Hann tekur þó fram að megintilgangurinn sé að fræðast um ferðir hnúfubaksins. Gísli segir að kannski sé hnúfu- bakurinn á leið suður á bóginn þó seint sé. „Það er vitað að hluti stofnsins dvelur yfir vetrartímann í Karíbahafinu, en um það hvar hinn hluti stofnsins hefur vetursetu er nánast ekkert vitað,“ segir Gísli. „Ef þetta er rétt staðsetning á hvalnum þá fer ég að verða spennt- ur, en loðnukarlarnir kannski síð- ur,“ segir hvalasérfræðingurinn.  Í byrjun nóvember voru sendar festir á tvo hnúfubaka í Eyjafirði. Annar þeirra hélt vestur fyrir land og á síldarslóðir í Faxaflóa. Hagnýtar fréttir frá hnúfubak Hélt sig á þekktri loðnuslóð suður með Austfjörðum Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is HUGMYNDIR nokkurra fram- haldsskóla um inntökupróf vegna afnáms samræmdra prófa í 10. bekk grunnskólanna nú í vor voru slegn- ar af í menntamálaráðuneytinu. „Ráðuneytið lagðist gegn þeim. Í nýrri löggjöf um samfellu náms á fyrstu þremur skólastigum íslenska skólans, sem tók gildi í fyrrasumar, eru ákveðnar reglur, meðal annars um það með hvaða skilyrðum nem- endur eru teknir inn í framhalds- skóla. Þeir eiga að líta á skóla- einkunnir nemenda þegar þeir koma beint úr grunnskólum. Það er stóra viðmiðunin,“ segir Þórir Ólafsson, sérfræðingur á skrifstofu menntamálaráðuneytisins. Hann bendir jafnframt á að nú eigi 16 og 17 ára nemendur rétt á námi í framhaldsskóla. Í stað samræmdra prófa í 10. bekk verða samræmd könn- unarpróf í stærðfræði, íslensku og ensku sem eiga að vera í byrjun skólaársins. Framhaldsskólarnir fá ekki niðurstöður úr þeim könn- unum, heldur niðurstöður úr vor- prófum nemenda. Öllum hugmyndum velt upp Þorkell H. Diego, yfirkennari í Verzlunarskóla Íslands, segir að vegna afnáms samræmdu prófanna hafi menn velt upp öllum mögu- legum hugmyndum í sambandi við innritun nýrra nemenda, meðal annars inntökuprófi. „Framkvæmdin er dýr og menn sáu í hendi sér að hún gengi ekki upp fyrir þann fjölda sem við erum með. Afnám samræmdra prófa er ákveðinn þáttur sem við höfum áhyggjur af en við verðum að treysta því að skólarnir fari eftir námskrá og að einkunnin 7 í einum skóla sé sambærileg við einkunnina 7 í öðrum,“ segir Þorkell. Skólastjórnendur í Verzl- unarskólanum hafa þegar ákveðið hvernig valið verður inn í skólann fyrir næsta skólaár, að sögn Þor- kels. „Við gerum ráð fyrir að allir taki sama nám hjá okkur á fyrsta ári. Við tökum mið af fjórum skóla- einkunnum, íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku eða öðru Norð- urlandamáli þar sem íslenska og stærðfræði hafa tvöfalt vægi. Sumir skólar velja beint inn á brautir og hafa þá önnur viðmið.“ Gagnrýni á samræmdu prófin Kristinn Breiðfjörð, skólastjóri Foldaskóla í Grafarvogi og formað- ur stjórnar Skólastjórafélags Ís- lands, segir að samræmdu prófin hafi stýrt kennslunni töluvert. „Nú ætti að draga verulega úr því. Það var komin töluverð gagnrýni á sam- ræmdu prófin í því formi sem þau voru. Samræmdu könnunarprófin, sem verða í byrjun skólaárs, eiga að koma að gagni fyrir nemendur og skólann. Það verður þá hægt að bregðast við í samræmi við kunn- áttu nemenda.“ Að sögn Kristins verða sam- ræmdu könnunarprófin, sem fram- vegis eiga að vera í byrjun skólaárs, lögð fyrir nemendur í vor þar sem of skammur tími hafi verið til und- irbúnings frá því að nýja löggjöfin tók gildi. Inntökupróf slegin af  Framhaldsskólar fá ekki að hafa inntökupróf í kjölfar afnáms samræmdra prófa í 10. bekk  Samræmdu prófin þóttu stýra kennslunni talsvert Morgunblaðið/RAX Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÉG hef það bara fínt. Er reyndar smá marinn á lærinu og pínulítið aumur í öðru krossbandinu, en að öðru leyti er ég bara hress,“ sagði Fjölnir Þorgeirsson þegar blaðamað- ur Morgunblaðsins sló á þráðinn til hans í gær til þess að heyra hvernig hann hefði það eftir volkið í Reykja- víkurtjörn í fyrradag þar sem hann stóð sig eins og hetja við að bjarga fjölda hrossa sem fallið höfðu niður um ísinn í miðri ísreið. Fjölnir þurfti að baksa með hestana í ísköldu vatn- inu í hátt í hálftíma. Spurður hvað hann hafi gert eftir að hann loks kom upp úr segist Fjölnir hafa drifið sig í vinnuna, en hann heldur utan um vefinn hestafrettir.is, og því farið beint í það að skrifa fréttir og henda nýjum myndum inn á vefinn „Um kvöldið bakaði ég síðan lummur fyrir mig, kærustuna og pabba,“ segir Fjölnir. Spurður hvort hann hafi fengið einhverjar fréttir af líðan hestanna sem lentu í tjörninni svarar hann: „Hrossin eru bara öll við hesta- heilsu.“ Fjölnir telur ólíklegt að hest- arnir verði til frambúðar hræddir við að leggja aftur á ísinn, en auðvitað fari það eftir persónuleika dýranna. „Hrossin við hestaheilsu“ Svalt Fjölnir Þorgeirsson hlífði sér ekkert við að aðstoða hestana. Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti húsgögn ÚTSÖLULOK 20-80% AFSLáTTUR Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 Katrín Ragnarsdóttir og Sólrún Sif Guðmundsdóttir, sem eru í 10. bekk í Foldaskóla í Grafarvogi, eru fegnar því að samræmdu prófin hafi verið afnumin. „Nem- endur gátu ekki einbeitt sér því að það var búið að gera svo mikið mál úr þessu. Eitt próf gat breytt öllu varð- andi framtíðarnám,“ segir Sórún Sif sem er að hugsa um að sækja um í Menntaskólanum við Sund. Katrín, sem ætlar að sækja um í Versló, segir að samræmdu prófin hafi verið ofmetin. „Ég óttast samt að fram- haldsskólarnir geri núna hærri kröfur.“ 10. bekkingar fegnir afnámi samræmdu prófanna Sérstakur saksóknari hefur störf Fimm manna deild til að byrja með Reikna með mikilli vinnu á næstunni Vefsíða saksóknara opnuð senn FIMM fjárfestar uppfylltu skilyrði opins söluferlis Fyrirtækjaráð- gjafar Nýja Glitnis á hlutafé í Ár- vakri, útgáfufélagi Morgunblaðs- ins. Frestur til að skila óskuldbindandi tilboði rann út í gær. Söluferlið var opið öllum fjár- festum sem uppfylla skilyrði laga um fagfjárfesta. Að sögn Glitnis hefur fjórum fjárfestum af þessum fimm verið boðið að halda áfram í næsta hluta söluferlisins og ber þeim að leggja fram skuldbindandi tilboð eigi síð- ar en 17. febrúar nk. Staðfest hef- ur verið að Almenningshlutafélag um rekstur Morgunblaðsins er á meðal þeirra fjárfesta sem halda áfram og fá að skila bindandi til- boði. Gert er ráð fyrir að söluferl- inu ljúki hinn 19. febrúar. una@mbl.is Fimm gerðu boð í Árvakur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.