Morgunblaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009 Fríða Hrönn Sigtryggs- dóttir ✝ Fríða Hrönn Sig-tryggsdóttir fæddist á Kleif í Breiðdal 11. maí 1946. Hún lést á Landakots- spítala að morgni 27. janúar síðastliðins og fór útför hennar fram frá Kálfatjarnarkirkju 4. febrúar. Meira: mbl.is/minningar Grímur Ársælsson ✝ Grímur Ársæls-son fæddist í Dölum í Vest- mannaeyjum 17. nóv- ember 1940. Hann lést á gjörgæsludeild Landsspítalans við Hringbraut 29. nóv- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hafnarfjarðarkirkju 9. desem- ber, í kyrrþey Meira: mbl.is/minningar Guðný Alberta Hammer ✝ Guðný AlbertaHammer fæddist í Albertshúsi á Bökk- unum á Ísafirði 30. október 1930. Hún andaðist á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi 27. janúar síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Árbæjarkirkju í Holtum 4. febrúar. Meira: mbl.is/minningar Margrét Oddsdóttir ✝ Margrét Odds-dóttir fæddist á Grænagarði á Ísafirði 3. október 1955. Hún lést á heimili sínu 9. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Grafarvogskirkju 16. janúar. Meira: mbl.is/minningar Minningar á mbl.is Elsku mamma, ég vil með fáum orðum fá að þakka þér fyrir árin sem við áttum saman. Það er margs að minnast, en síðasta stundin var á sunnudaginn. Það var frábært, þá komum við flest af þínum nánustu og fengum heitt súkkulaði og kræsingar og spiluðum púkk heima hjá þér. Það var myndarlegt eins og alltaf var í gegnum tíðina heima hjá ykkur pabba. Minningin er sú að það var alltaf fullt hús heima, vinir okkar systkinanna, fundir hjá öllum félögum ykkar pabba eða ætt- ingjar ykkar og þér leið best ef allir fóru saddir og sáttir frá ykkur. Alltaf varstu jafn myndarleg elsku mamma, það var sama hvað þú tókst þér fyrir hendur eins og að búa til snið og sauma föt, mála myndir, vinna í gleri, leðri, leir, þrykkja á efni og mála, gera kort, hekla, prjóna og allan mat sem þú framreiddir já það lék allt í höndunum á þér og ég gæti endalaust talið upp. En nú er komið að leiðarlokum hjá þér í þessu lífi. Það hefur ekki alltaf verið dans á rós- um og þá sérstaklega í veikindum þínum en nú eru þrautirnar búnar og þú ert komin til þeirra sem þú varst búin að sakna og ég veit að þau taka þér opnum örmum. Elsku mamma, takk fyrir að hafa verið til og alltaf til staðar. Ég á mik- ið eftir að sakna þín, megir þú hvíla í friði og ró. Ó, góði faðir, gef þú mér þann frið sem þú einn átt. Og leyf þú mér að hvílast hér við menn í friði og sátt. Og gef þú okkur gullna stund og gleðiríkan dag við lofum þig í ljóðamund og syngjum gleði brag. Ó, heimur þessi, heimur hér mér horfin birtan er ég gleðivana í hvílu fer því sorg í hjarta ber. Ég bið um frið, ég bið um grið í grimmum heimi hér mig bænarbirtan áfram ber svo enginn á mér sér. (Sigurveig Þorleifsdóttir) Kær kveðja, þín dóttir Ingibjörg. Elsku amma Lilla. Á sama tíma og við sitjum heima og syrgjum það að hafa misst þig rifjast upp fallegar og góðar minningar um hvaða mann- eskju þú hafðir að geyma. Það er gott að á þessum erfiðu tímum sé alltaf hægt að hugsa til þess hvað þú hafðir gefið okkur mikið einungis með því að vera í návist okkar í gegnum öll þessi ár. Það allra sterkasta í minn- ingunni var hvað þú varst gestrisin í verunni. Alltaf tilbúin til þess að taka á móti gestum með fullt af góðgæti á boðstólum. Við fórum alltaf södd og sæl heim eftir heimsóknir til þín. Þú Sigurveig Þorleifsdóttir ✝ Sigurveig Þor-leifsdóttir fæddist í Naustahvammi í Norðfirði 14. febrúar 1933. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja 13. janúar síðastliðinn og fór út- för hennar fram frá Keflavíkurkirkju 20. janúar. varst góðlynd og hlý manneskja sem auð- velt var að ræða við um lífið og tilveruna og leið öllum vel í návist þinni. Sumarbústaður- inn sem þú áttir situr sterkur í minningunni. Þegar við lékum okkur á túninu eða skelltum okkur í golf rétt hjá. Einnig var mjög gam- an að taka flugnaspað- ann og elta flugurnar inní sumarbústað. Það verður skrítið og tóm- legt án þín þó við vitum að nú ert þú komin á betri stað, laus við þín erfiðu og miklu veikindi sem þú hefur þurft að berjast við svo lengi sem við mun- um. Matarboð hjá mömmu annan í jólum þar sem þú varst alltaf hjá okkur var orðin stór partur af jól- unum og á maður eftir að hugsa til næstu jóla með trega og kökk í háls- inum vitandi það að þú kemur ekki til með að verja þeim degi með okkur nema í anda. Leiðinlegt þykir okkur að þú hafir ekki náð að kynnast barnabarni þínu henni Köru Mjöll betur. Okkur þykir líka leiðinlegt að hún skyldi ekki hafa náð að kynnast þér betur. Við munum sjá til þess að hún mun fá að kynnast þér í gegnum myndir og sögur sem munu segja henni hversu yndisleg manneskja þú varst. Elsku Lilla amma, við elskuðum þig svo mikið og það er alltaf jafn sárt að þurfa að horfa á eftir ástvini þegar hann kveður. Það var leiðin- legt að hafa ekki getað kvatt þig al- mennilega en vitandi að þér líður vel og að þú sért komin til annarra ást- vina sem gleðjast yfir að fá að sjá þig aftur, þá líður okkur vel líka. Þín barnabörn, Sveinn Þór, Stella og Hulda Sif. Elsku Lilla langamma. Nú er komið að því að ég þarf að kveðja þig og þykir mér það erfitt. Mér fannst gaman að mála með þér og þegar Hjalti og Arna voru með að mála dúkana. Þú komst í öll jólaboðin sem ég man eftir og gafst mér flottustu jóla- og afmælispakkana. Oftast bækur, og þær eru það sem ég hef mest gam- an af. Það var gaman að eyða sein- ustu jólunum með þér og takk fyrir jólapakkann. Elsku langamma ég elska þig og mun sakna þín. Takk fyrir allar stundir sem við áttum saman. Þín langömmustelpa Ólöf Björg. Elsku amma mín, nú er komið að kveðjustund hjá okkur og er sárt að hugsa til þess. Ég vil fá að minnast þín með nokkrum orðum. Amma ég man alltaf eftir því sem barn hvað það var gaman að koma til þín. Að fá að mála með þér í vinnuherberginu, hjálpa þér að fægja allt silfrið sem þú áttir og auðvitað var ofsalega gott að fá bíópoppið hjá þér. Ég dáðist alltaf að því hvað þú hugsaðir vel um þig, vildir vera fín eins og þú varst alltaf. Falleg kona með fallegt rautt hár og freknur, það varst þú amma mín. Dóttir mín dáðist alltaf að þér og var ofsalega montin þegar þú bauðst henni að koma að mála með þér. Ég er þakklát fyrir þær stundir því ég vissi að dóttir mín fengi að upplifa sömu stundir og ég átti með þér sem barn. Amma, það var æðislegt að fá að koma til þín í heimsókn þinn síðasta sunnudag og var það góður dagur sem við fjölskyldan öll áttum saman. Elsku amma mín, nú veit ég að þér líður betur og takk fyrir allar þær stundir sem við áttum saman. Kveðja Hólmfríður María. Elsku Lilla langamma. Nú er komið að því að ég þarf að kveðja þig og þykir mér það erfitt. Mér fannst gaman að mála með þér og þegar Hjalti og Arna voru með að mála dúkana. Þú komst í öll jólaboðin sem ég man eftir og gafst mér flottustu jóla- og afmælispakkana. Oftast bækur og þær eru það sem ég hef mest gaman af. Það var gaman að eyða seinustu jólunum með þér og takk fyrir jóla- pakkann. Elsku langamma ég elska þig og mun sakna þín. Takk fyrir all- ar stundir sem við áttum saman. Þín langömmustelpa, Ólöf Björg. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningargreinar ✝ Ástkær systir okkar, GUÐRÍÐUR SVEINSDÓTTIR, Kleppsvegi 120, Reykjavík, áður Hábæ í Vogum, lést þriðjudaginn 27. janúar. Útför hennar verður gerð frá Kálfatjarnarkirkju í dag, fimmtudaginn 5. febrúar kl. 14.00. Systkini hinnar látnu. ✝ Ástkær faðir minn og bróðir, GUNNAR ÞÓR ADOLFSSON rennismiður, Logafold 114, Reykjavík, sem lést föstudaginn 30. janúar, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 6. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands eða sjóðinn Blind börn á Íslandi. Grétar Kr. Gunnarsson og aðstandendur. ✝ Innilegt þakklæti til þeirra sem sýndu okkur samúð, hluttekningu og hlýhug við andlát og útför föður, afa og tengdaföður okkar, BERGS THORBERG ÞORBERGSSONAR, Lönguhlíð 3, Reykjavík, sem lést á heimili sínu sunnudaginn 25. janúar. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Rúnar Bergsson, Bergur Rúnarsson, Björn Rúnarsson, Dögg Árnadóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS KRISTINN FINNBOGASON vélstjóri, Álfhólsvegi 151, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítala, Landakoti föstudaginn 30. janúar. Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 6. febrúar kl. 13.00. Erlendur Magnússon, Steinunn Hlín Guðbjartsdóttir, Kristín Magnúsdóttir, Lárus Pálmi Magnússon, Sonja Lampa, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts föður okkar og tengdaföður, HELGA HÁLFDANARSONAR, Máshólum 19, Reykjavík. Hálfdan Helgason, Erla Benediktsdóttir, Ingibjörg Helgadóttir, Árni Björnsson, Sigurður Helgason, Kristín Magnúsdóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts móður minnar, tengdamóður, dóttur, systur, mágkonu og ömmu, ÍSÓLAR LINDAR COTTO, Stone Ridge, New York, Bandaríkjunum. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Erla Ósk Jónsdóttir, Eysteinn Þór Jónsson, Sigrún Ellertsdóttir, Jósep Valgeirsson, Fanney M. Jósepsdóttir, Magnús Eiríksson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.