Morgunblaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 5
Skemmtileg sýning fyrir
alla fjölskylduna.
Halldór Kolbeins, ljósmyndari
Kallinn á bryggjunni er
ekkert smá raunverulegur!
Matthildur Sigurðardóttir, 14 ára
Fórum með strákana okkar
og fannst gaman að sjá sögu
félagsins, hún er merkileg.
Margrét Þórðardóttir,
húsmóðir
Í t i lefni af
95 ára afmæli
Eimskipafélags
Íslands
Hf. Eimskipafélag Íslands hefur í samvinnu við Sjóminjasafn Reykjavíkur sett upp sýningu á munum
og myndum úr sögu félagsins.
Leiðarstef sýningarinnar er þau dagatöl sem félagið hefur gefið út nánast samfellt í 80 ár eða frá árinu
1928. Margar glæsilegar ljósmyndir og teikningar prýða dagatölin sem gefa glögga mynd af tíðaranda
samfélagsins og jafnframt þeirri tækni sem notuð hefur verið við hönnun, ljósmyndun og prentun í þau
80 ár sem Eimskip hefur gefið þau út.
Opnunartími safnsins er frá klukkan 13 til 17 alla daga nema mánudaga. Ókeypis verður á sýninguna
til 18. febrúar. Sjóminjasafnið er að Grandagarði 8 við hliðina á Kaffivagninum.
1914 - 2009
í S j óm in j a s a f n i nu
Afmælissýning
Tryggvi Magnússon (6. júní 1900 - 7. sept.
1960) teiknari fæddist að Bæ í Steingríms-
firði á Ströndum. Hann lauk prófi frá
Gagnfræðaskólanum á Akureyri árið 1919
og stundaði því næst nám í Kaupmanna-
höfn í tvö ár. Hann fór svo til New York í
League of Art og var þar 1921–1922 við
nám í andlitsmyndagerð.
Hann stundaði nám í málaralist í Dresden
á árunum 1922–1923 og fluttist að námi
loknu til Reykjavíkur. Tryggvi var einn af
stofnendum Félags íslenskra teiknara.
Stundum er sagt að Tryggvi Magnússon hafi
verið fyrsti teiknarinn sem hafði atvinnu
af listgrein sinni. Tryggvi myndskreytti m.a.
jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum,
teiknaði íslensku fornmannaspilin, drög
að öllum sýslumerkjunum fyrir Alþing-
ishátíðina 1930 og skjaldarmerkið íslenska.
Hann var einna þekktastur fyrir skopmyndir
sínar, en hann var um árabil aðalteiknarinn
hjá skopritinu Speglinum.
Fy r s ta daga ta l
E imsk ipa fé lags ins 1928
Ókeypis
aðgangur
til 18. feb.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
0
1
0
4