Morgunblaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 37
Menning 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009 Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Ásíðasta áratug 18. aldarvar nýklassíska tímabilið íevrópskri málaralist aðlíða undir lok. Árið 1793 málar David eitt af meistaverkum þeirrar aldar, myndina af Marat myrtum í baðinu. Þá styttist í róm- antíkina þar í landi. Árið 1796 var Goya farinn að vinna að hinni maka- lausu ætingaseríu Kenjunum suður á Spáni. Á sama tíma var frum- kvöðull í íslenskri málara- og skreytilist að mála atlaristöflu fyrir lítið bænahús á Jökuldal í einangr- uninni hér norður á Íslandi, eflaust án þess að hafa nokkra hugmynd um það hvað og hvernig menn mál- uðu annars staðar. Fólk ætti að heimsækja Þjóð- minjasafnið við Suðurgötu reglu- lega. Í erfðagóssi þjóðarinnar, sem þar er sýnt, er nefnilega alltaf eitt- hvað forvitnilegt að skoða. Í liðinni viku rakst ég aftur á þetta furðulega verk Jóns Hallgrímssonar. Þóra Kristjánsdóttir listfræð- ingur hefur fjallað ítarlega um verk- ið í bókunum Gersemar og þarfa- þing og Myndir á þili. Hún segir að handbragðið og fangamarkið í neðra horninu til vinstri taki af öll tvímæli að taflan sé eftir Jón. Einu sinni kom ég inn í kirkjuí bænum Chinchero á há-sléttu Perú. Hún var öll máluð að innan í bernskum og ein- lægum stíl, þar sem minni úr sögn- um og fornum átrúnaði indjánana blandaðist á forvitnilegan hátt sam- an við kaþólskar helgimyndir. Þar sá ég þessa mynd af Kristi sem hélt ofurblíður á svip á logandi hjarta. Hér uppi á Íslandi logaði einnig á hjarta hans seint á átjándu öld. Þóra segir í skrifum sínum um Jón að myndir af Kristi með logandi hjarta, tákn um kærleika hans til manna, hafi tíðkast síðan á 12. öld en orðið ofur vinsælar á þeirri 18. Hún segir að þær myndir eigi þó fátt sameig- inlegt með þessari mynd Jóns, því hér segi hann ákveðna sögu um ábú- andann á Brú, Guðmund Einarsson, en nafn hans er letrað stórum stöf- um neðst á myndinni. Færa megi rök fyrir því að kyrtilklæddu menn- irnir þrír sem rétta Kristi hjarta sitt séu bræðurnir Guðmundur, Þorkell og Einar, sem reistu bænahúsið á Brú. Þóra heldur því fram að þessi mynd eigi sér „enga hliðstæðu í ís- lenskri kirkjulist svo kunnugt sé, heldur ekki þótt víðar væri leitað“. Kristur og mennirnir þrír, sem hálfkrjúpa frammi fyrir honum, og eru minni en hann, standa á milli gylltra súlna einhvers staðar úti við. Á milli þeirra eru grænir gras- brúskar og þrjú hvít blóm, og yfir þeim þessi fallegu ský sem minna á rauðar perlur eða vínberjaklasa. Mennirnir þrír eru í stuttum serkj- um en Kristur í síðum kufli, með ljóst klæði um mitti og herðar og hinn ómissandi geislabaug. Kristur réttir sitt blæðandi og logandi hjarta mynduglega að þremenning- unum, sem lúta honum undirgefnir og þeir mætast með hjörtun á miðri leið. Yfir þeim eru þessi áletrun:Gief mier Son minn Hjartaðþitt, Sia eg Jesus Gief þier mitt. Þóra telur áletrunina sótta í Orðskviðina, þar sem segir: „Son minn, gef mér hjarta þitt …“ Anatómían í myndinni er klaufa- leg, vægast sagt, og stenst engan samanburð við þar sem sam- tímamenn Jóns, þeir David og Goya voru að bralla í sínu myndverki suð- ur í álfu. Hvernig Kristur stígur í fæturna, eða hvernig þeir eru mót- aðir undir kuflinum, er ráðgáta. Svo ekki sé minnst á önnur hlutföll í lík- ömum mannanna. En myndin er svo innileg í einfaldleika sínum og trú, að ekki er annað hægt en hrífast af og fagna endurfundum við hana. JÓN Hallgrímsson (1741-1808) málaði þessa altaristöflu árið 1794. Jón var sonur Hallgríms Jónssonar, smiðs og listamanns, og er sagður hafa numið handverk eða málaralist í Kaupmannahöfn. Eftir að hann kom aftur heim mun honum hafa verið falið að prýða nýju dómkirkjuna á Hólum. Tíu altaristöflur eftir Jón hafa varðveist, málaðar á árunum 1765 til 1806. Hinar níu sýna allar síðustu kvöldmáltíðina og eru greinilega málaðar eftir sömu fyrirmyndinni. Þessi er ólík hinum. Hún sýnir Jesú Krist rétta hjarta, sem bæði logar og blæðir úr, til þriggja manna sem krjúpa frammi fyrir honum og rétta logandi hjarta á móti. Samkvæmt skrifum Þóru Kristjánsdóttur listfræðings eru til heimildir um kirkjusmíði á Brú á Jökuldal árið 1786. Þar reistu bræðurnir Þorkell, Einar og Guðmundur Einarssynir bænahús, sem var lítil torfkirkja, byggð upp marg- sinnis, en endanlega rifin árið 1892. Kirkja stóð þó á Brú til 1911. Þjóðminjasafnið eignaðist altaristöfluna árið 1918 og er hún til sýnis á efstu hæð safnsins. Altaristafla úr bænahúsi á Brú á Jökuldal Með logandi hjarta MYNDVERKIÐ AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Fréttir í tölvupósti Þjóðleikhúsið Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is Hart í bak Jökull Jakobsson Hrífandi verk sem snertir okkur öll EB, FBL fös. 6/2 örfá sæti laus sun. 7/2 örfá sæti laus Sýningum lýkur í mars Sumarljós Jón Kalman Stefánsson leikgerð og leikstjórn Hilmar Jónsson Hrífandi, einlæg og æsandi sýning sun. 8/2 örfá sæti laus sun. 15/2 örfá sæti laus, síðasta sýning Kardemommu- bærinn Thorbjörn Egner Frumsýning 21. febrúar Miðasala í fullum gangi! ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Heiður Joanna Murray-Smith Drepur girndin ástina? JVJ, DV lau. 7/2 örfá sæti laus lau. 14/2 örfá sæti laus Sýningum lýkur 28/2 Skoppa og Skrítla snúa aftur í febrúar! Minnum á Samstöðukortin Fös 6/2 kl. 19:00 Fim 12/2 kl. 20:00 aukas. Lau 14/2 kl. 19:00 Fös 20/2 kl. 19.00 Lau 7/3 kl. 19:00 Fös 13/3 kl. 19.00 Lau 14/3 kl. 19.00 Sun 22/3 kl. 19.00 Fös 28/3 kl. 19.00 Yfir 130 uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins 2008. Fló á skinni (Stóra sviðið) Miðasölusími 568 8000 – midasala@borgarleikhus.is Rústað „Magnað - missið ekki af!“ - JVJ, DV Fim 5/2 kl. 20.00 4. kort Fös 6/2 kl. 20.00 5. kort Lau 7/2 kl. 20.00 6. kort Fim 12/2 kl. 20.00 Fös 13/2 kl. 20.00 Lau 14/2 kl. 20.00 Fim 26/2 kl. 20.00 Fös 27/2 kl. 20.00 Lau 28/2 kl. 20.00 Fös 6/3 kl. 20.00 Ath! Bannað innan 16 ára. Ekki fyrir viðkvæma. Aðeins sýnt í febrúar og mars. Fim 5/2 kl. 20.00 forss. Fös 6/2 kl. 20:00 frums. Lau 7/2 kl. 19:00 2. kort Lau 7/2 kl. 22:00 aukas. Sun 8/2 kl. 20:00 3. kort Mið 11/2 kl. 20:00 4. kort Fim 12/2 kl. 20:00 5. kort Fös 13/2 kl. 22:00 aukas. Lau 14/2. kl. 19:00 aukas. Lau 14/2 kl. 22:00 aukas. Sun 15/2 kl. 20:00 aukas. Fös 20/2 kl. 19:00 7. kort Fös 20/2 kl. 22:00 Lau 21.2 kl. 19:00 8. kort Lau 21/2 kl. 22:00 aukas. Sun 22/2 kl. 20:00 9. kort Mið 25/2 kl. 20:00 10. kort Fim 26/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 19:00 Fös 27/2 kl. 22:00 Leiklestrar á verkum Söru Kane. Ást Fedru - 10. febrúar. Hreinsun - 17. febrúar. Þrá - 24. febrúar. 4:48 geðtruflun - 3. mars – 1.500 kr. Sannleikurinn, einleikur Péturs Jóhanns (Litla sviðið) Sýningum lýkur í febrúar á vinsælasta söngleik leikársins. Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið) Lau 7/2 kl. 19:00 Lau 7/2 kl. 22:00 Fös 13/2 kl. 19:00 aukas. Fös 13/2 kl. 22:00 Lau 21/2 kl. 19:00 Lau 21/2 kl. 22:00 síð. sýn.  Lau 14/2 kl. 13:00 Lau 21/3 kl. 19.00 Lau 7/3 kl. 20.00 Fös 13/2 kl. 19:00 6. kort Sun 18/2 kl. 20:00aukas. Fim 19/2 kl. 20:00 aukas. Lau 21/2 kl. 22.00 aukas ■ Í kvöld kl. 19.30 Messiaen 100 ára Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba Einleikarar: Mario Caroli, Steven Osborne og Cynthia Millar Olivier Messiaen: Turangalîla-sinfónía Þuríður Jónsdóttir: Flutter Stærstu tónleikar starfsársins eru tvímælalaust flutningurinn á hinni mögnuðu Turangalila-sinfóníu eftir Messiaen og frumflutningur á Flutter sem var samið í tilefni af 100 afmæli hans. Vinafélagskynning á Hótel Sögu kl. 18. Ingibjörg Eyþórsdóttir kynnir verkin. Allir eru velkomnir. A.T.H. Tónleikar sem áttu að vera á föstudaginn 6. febrúar falla niður. ■ Fimmtudagurinn 12. febrúar Myrkir músíkdagar Stjórnandi : Daníel Bjarnason Einleikarar: Víkingur Heiðar Ólafsson og Einar Jóhannesson Daníel Bjarnason: Píanókonsert Haukur Tómasson: Dialogo Jón Ásgeirsson: Klarinettukonsert Þorkell Sigurbjörnsson: Ríma Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.