Morgunblaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009 ✝ Elísabet Krist-jánsdóttir fæddist í Nýjabæ í Flatey á Skjálfanda 20. nóv- ember 1934. Hún lést á Landspítalanum, Hringbraut, 27. jan- úar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru þau Sigríður Sig- tryggsdóttir frá Flat- ey á Skjálfanda, f. 9. janúar 1894, d. 28. febrúar 1985 og Kristján Rafnsson frá Hóli í Bárðardal, f. 6. júní 1882, d. 19. maí 1938. Systkini Elísabetar eru: Sigurður, f. 2.5. 1918, d. 22.1. 2000; Ingibjörg, f. 13.11. 1919, d. 23.4. 2004; Jóhanna Kristín, f. 3.11. 1921, d. 12.10. 1996; Rafn, f. 19.5. 1924, d. 4.12. 1972; Guðrún Sigurbjörg, f. 27.10. 1928; og María, f. 25.10. 1931. Elísabet giftist 18. september 1954 Sigurði H. Stanleyssyni, vél- stjóra frá Vestmannaeyjum, f. 9. október 1931. Foreldrar hans voru Kristján Matthías Þorbjörn, f. 8.7. 1985. 6) Sigurður Heiðar, f. í Reykjavík 12.8. 1968. Börn hans eru Ingibjörg Eir, f. 29.12. 1994, og Kristján Davíð, f. 26.12.2004. Elísabet ólst upp í Nýjabæ í Flat- ey á Skjálfanda fram til ellefu ára aldurs. Þegar hún var þriggja ára missti hún föður sinn. Hann drukknaði og var það fjölskyldunni mikið áfall. Þá voru eldri bræður Elísabetar orðnir nær fulltíða og voru móður sinni stoð og stytta. El- ísabet var send til systur sinnar, Jóhönnu Kristínar í Vest- mannaeyjum á tólfta ári. Hún vann við ýmis störf þar til 1965 er hún flutti ásamt Sigurði til Reykjavíkur í Skipasund 5. Í Reykjavík vann hún í eldhúsinu á Kleppsspítala um langa tíð. Árið 1972 flutti fjöl- skyldan að Völvufelli 50 þar sem Elísabet hefur átt heima síðan. Ávallt hefur Elísabet unnið við störf tengd framreiðslu og mat- reiðslu, m.a. á Hótel Loftleiðum á annan áratug. Síðast vann hún í bý- tibúri á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Hún tók virkan þátt í félagsstarfi með systrum sínum er hún komst á aldur, og hafði jafnan mjög gaman af söng og tónlist. Útför Elísabetar fer fram frá Seljakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Sigrún Finnsdóttir og Stanley Alexander Guðmundsson. Börn Elísabetar og Sig- urðar eru: 1) Sigrún, f. í Vestmannaeyjum 24.10. 1954, maki Birgir Benediktsson, f. 22.1. 1953. Börn þeirra eru Benedikt, f. 27.11. 1973, El- ísabet Rós, f. 31.8. 1976, og Sigrún Heiða, f. 4.7. 1979. Þau eiga 4 barna- börn. 2) Sigtryggur, f. í Vestmannaeyjum 17.5. 1956. Börn hans eru Viktoría, f. 10.10. 1978, Antonía, f. 14.11. 1980, og Einar Sigurður, f. 12.12. 1995. 3) Óskírð- ur, f. 1961, d. 1961. 4) Óskar Stanl- ey í Vestmannaeyjum, f. 10.11. 1963. 5) Kristján Rafn, f. í Reykja- vík 30.11. 1965, maki Dagný Hjálm- arsdóttir, f. 9.11. 1970. Dætur þeirra eru Erla Björk, f. 30.12. 1995, Elísabet, f. 12.12. 2002, og Ey- dís Alma, f. 29.1. 2004. Fyrir átti Ó, mamma mín, nú leiðir skilja að sinni, og sorgartárin falla mér á kinn, en hlýjan mild af heitri ástúð þinni, hún mýkir harm og sefar söknuðinn. Í mínum huga mynd þín skærast ljómar, og minningin í sálu fegurst ómar. Þú móðir kær þér aldrei skal ég gleyma, þinn andi fylgi mér á lífsins strönd. Ég vil í hjarta heilræðin þín geyma og halda fast í Drottins styrku hönd. Með huga klökkum kveð ég góða móður. Ó, mamma mín, þú lífs míns stærsti sjóð- ur. (Árni Gunnlaugsson.) Þakka þér allar stundirnar sem við áttum saman. Megi guð geyma þig og hvíl í friði. Þín dóttir Sigrún. Elsku mamma. Mér þykir svo vænt um þig. Þú ert það besta sem ég hef átt. Alla tíð hef- ur þú verið ljósið í lífi okkar og ómet- anleg. Ég veit þú ert hér með okkur og ég mun ávallt reyna að breyta á réttan veg. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Þinn sonur Óskar Stanley. Ó, elsku besta mamma mín. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Stundirnar okkar saman veita mér mikinn styrk nú en í gegnum tíðina hefur þú sannarlega leitt mína litlu hendi, veitt hvatningu er á þurfti að halda, gleði á góðum stund- um og huggun þegar sorgin bankaði á dyr. Þegar litið er til baka og við hin sjáum hverju fórnfýsi þín, kraftur og óendanlegur dugnaður hefur áorkað verður mér orða vant. Því elsku mamma mín, þú hefur sent okkur leiðarljós til framtíðar með fyrir- mynd þinni. Ó, elsku besta mamma mín. Mér þótti vænt um að þú skyldir komast í afmæli dætra minna nú í janúar. Það hefur hjálpað þeim mik- ið, sérstaklega Erlu Björk sem sagði við mig í gær: „Ég ætla að koma í kistulagninguna pabbi og líka jarð- arförina og kveðja ömmu Betu.“ Mér sýnist ég sjá í Erlu Björk svolítið af ákveðni frá þér, elsku mamma mín. Elísabet sagði um daginn: „Hver á núna að prjóna ömmugammosíur á mig?“ Ég hefi hugleitt svarið með því að hugsa til þín: Amma Beta er alltaf hér og prjónar sokka handa þér. Á lífsins göngu lýsir hún og leiðir þig um heimsins tún. (krs.) Eydís Alma hugleiddi þessi tíðindi nokkuð og sagði mér hreint út að amma Beta væri sú stjarna sem væri björtust á himninum. Það er sem þú talir við þær: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Foersom/Sveinbjörn Egilsson.) Ó, elsku mamma mín. Ég veit þú ert farin, en þó ekki því hér allt um kring finn ég fyrir návist þinni og hugsa til þín um alla framtíð þar til við hittumst á ný. Þá verður glatt á hjalla ó, elsku mamma mín. Þinn sonur, Kristján Rafn Sigurðsson. Yndislega móðir mín. Þú varst einstök manneskja og ég sakna þín sárt. Í góðum félagsskap undir þú þér líkt og gestagangur heima bar með sér. Þú áttir góða vini og varst óeigingjörn, hvattir mig á erfiðum tímum, leiðréttir á stundum og lýstir mér um lífsins veg. Guð hef skapað gneista þann Og gert hann öðrum meiri Gott væri ef að gæti hann Gefið oss nokkra fleiri (Davíð Stefánsson.) Sigurður Heiðar. Elsku amma Beta. Mér finnst svo sárt að hugsa til þess að þú sért far- in. Hjarta þitt var orðið svo veikt og þú varst orðin svo þreytt, amma mín. Kannski var þetta bara þinn tími. Það er erfitt að sætta sig við það, því mér fannst þú eiga það svo skilið að fá að vera meira með okkur öllum. Það var alltaf svo gott að koma til þín og strákanna í Völvufellið, þar var svo mikil væntumþykja og alltaf allir velkomnir, nóg að borða og kaffið þitt var einstakt. Í Völvufellinu var ósjaldan sungið, sagðir brandarar, reynslusögur og þar var mikið hlegið. Amma Beta, þú varst svo falleg og tignarleg kona og barst þig svo vel þrátt fyrir allar þær erfiður þrautir sem þú þurftir að ganga í gegnum. Þú varst svo ynd- isleg, lífsreynd og sýndir það bæði í verki, svipbrigðum og orðum. Fólk dáðist að þér, fólk sem var að vinna með þér og vinir þínir, enda hafðir þú mikla útgeislun og æðislegan húmor.Ég man að þegar ég var lítil labbaði ég oft til þín í heimsókn, tíndi á leiðinni marglit blóm og gaf þér. Þér þótti alltaf jafngaman að fá blómin, stakkst þeim í vatnsglas og settir á borðið inni í eldhúsi. Takk fyrir allt sem þú prjónaðir handa mér og Sigurrós, peysurnar, ullarsokkana, ullarbuxurnar og vett- lingana. Þá sjaldan að ég bað þig um að gera eitthvað fyrir mig er mér of- arlega í huga að fyrir þremur vikum sagði ég þér að Sigurrós vantaði vettlinga. Daginn eftir varstu búin að prjóna fína bandavettlinga, síðan tókstu eftir að bandið var aðeins of stutt, þá fórstu heim og prjónaðir aðra vettlinga með lengra bandi og innan skamms varstu komin með þá til okkar. Þér þótti svo vænt um okk- ur, amma mín. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig fyrir ömmu, þú gafst mér svo mikið. Amma, þú kunnir að lifa lífinu með bros á vör og gleði sem án efa sýndi öðrum að lífið er fullt af ham- ingju. Þegar mér líður illa, hjálpar það mér að hugsa til þín, því þú kunnir að breyta því ófullkomna í eitthvað fullkomið á örskammri stundu. Amma, þú varst ljósið í fjöl- skyldunni, söngfuglinn okkar og klettur okkar allra. Takk fyrir allar góðu stundirnar, amma mín. Við andlátsfregn þína allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn tjáð var í bæn- unum mínum, en guð vildi fá þig og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því, sem frelsarinn hefur að segja, um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög, sem við höfum hlotið, það verð- ur að skilja. Svo auðmjúk og hljóð við lútum að frels- arans vilja. Þó sorgin sé sár og erfitt sé við hana að una, við verðum að skilja og alltaf við verðum að muna, að guð, hann er góður og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért og horfin burt þessum heimi. Ég minningu þína þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína ég bið síðan guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Jónsdóttir.) Þín Heiða. Mig langar að skrifa nokkur orð um hana Betu, ömmu Kristjáns son- ar míns, og fyrrum tengdamóður. Ég kynntist Betu 2003, er ég fór að vera með syni hennar Sigurði. Mér þótti undir eins vænt um hana. Hún var hlý og gjafmild og mjög atorku- söm þrátt fyrir veilt hjarta, hafði far- ið í erfiða aðgerð nokkrum árum áð- ur. Beta hafði alltaf nóg fyrir stafni, eldaði, bakaði, prjónaði, söng í kór, gætti barnabarna, hélt heimili, og var að læra á orgel (orðin sjötug). Ég var stolt að geta hjálpað henni er hún æfði sig heima á gömlu fótstigs- orgeli, og gekk henni það vel eins og annað. Hún hafði fallegustu hand- skrift sem ég hef séð, en heima er myndaalbúm sem hún færði syni mínum í skírnargjöf, með svo fallega skrifuðu skírnarkorti, sem ég mun varðveita sem gull. Sjaldan hef ég séð jafn atorku- sama prjónakonu. Hún prjónaði heilu ósköpin af peysum, húfum, sokkum og vettlingum sem hún gaf barnabörnunum. Kristjáni gaf hún um jólin eitt slíkt sett. Nú fær hann ekki fleiri fallegar peysur frá ömmu Betu. Eftirtektarverðast við Betu var hversu kærleiksrík hún var og hjálp- söm, einkum við börn sín og barna- börn, sem hún var afar stolt af. Hún keyrði oft út úr bænum til að passa barnabörn sín ef á þurfti að halda og fannst það sjálfsagt. Beta fæddist í Flatey á Skjálf- anda, og bar sterkar taugar þangað. Ég var svo heppin að fara með henni (að vísu ekki til Flateyjar) en inn Flateyjardal, þar sem hún gisti með okkur í sæluhúsi orðin 71 árs. Þegar Flateyjardalur er ekinn á enda sér maður Flatey í allri sinni dýrð. Úr þessari ferð á ég ógleymanlegar minningar. Beta var ómissandi ferðafélagi, létt og kát, tók oft lagið en hún átti gott með að létta lund fólks, og því leið vel í návist hennar. Stutt í hlátur, sem var smitandi, og þurfti lítið til að gleðja hana. Að fá að kynnast Betu var mér mikill heiður. Hún veitti mér styrk á erfiðum tímum, og sá ég hvernig hún tók raunum af æðruleysi. Beta bjó í nágrenninu, og áttum við ósjaldan leið hjá mæðginin, þá var gaman að koma við, fá hlýjar móttökur og kaffi. Kristján var far- inn að hlaupa yfir til ömmu aðeins þriggja ára, og vissi ég að þá gat ég verið alveg róleg. Nú er amma þar ekki lengur til að taka á móti honum, og veit ég að hann mun eiga erfitt með að skilja það. Ég votta allri fjöl- skyldu hennar mína dýpstu samúð og bið guð að styrkja þau í sorg sinni. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Kristín R. Sig. og synir. Meira: mbl.is/minningar Mig langar að skrifa nokkur orð um hana ömmu Betu, ömmu Krist- jáns Davíðs, sonar míns, og fyrrver- andi tengdamóður, sem lést hinn 28. janúar síðastliðinn, en andlát hennar bar mjög brátt að og veit ég að eng- inn hefur verið búinn undir þessa óvæntu brottför hennar. Ég kynntist Betu fyrst haustið 2003, er ég fór að vera með syni hennar Sigurði. Mér þótti undir eins vænt um hana. Hún var alveg ein- staklega hlý og gjafmild manneskja, og tók vel á móti mér í fjölskylduna. Mér fannst alveg sérstakt við hana hvað hún var atorkusöm og dugleg, og alltaf á ferðinni, þrátt fyr- ir að ég vissi að hún var veil fyrir hjarta og hafði farið í erfiða aðgerð fyrir nokkrum árum. Beta hafði alltaf nóg fyrir stafni, var í raun alveg óstöðvandi, eldaði, bakaði, prjónaði, heklaði, söng í kór aldraðra í Gerðubergi og tók þátt í félagsstarfi þar, gætti barnabarna, hélt heimili ásamt tveim sonum sín- um og sonarsyni og var að læra á orgel þá (orðin sjötug). Ég var mjög stolt að geta hjálpað henni pínulítið við það, er hún æfði sig heima á milli tíma á gömlu fótstigs-orgeli sem hún átti, og lék spilamennskan í höndum hennar, eins og allir þeir hlutir sem hún tók sér fyrir hendur. Hún hafði þá fallegustu handskrift sem ég hef nokkurn tímann séð, en heima er til myndaalbúm sem hún færði syni mínum Kristjáni í skírnargjöf, með svo fallega skrifuðu skírnarkorti til hans, sem ég mun varðveita eins og gull. Sjaldan hef ég séð jafnatorkusama prjónamanneskju, en hún prjónaði heilu ósköpin af peysum, húfum, sokkum og vettlingunum sem hún gaf öllum barnabörnunum, og m.a. Kristjáni Davíð litla sem fékk um nýliðin jól frá henni nýprjónaða peysu, sokka og vettlinga í stíl. Nú fær Kristján litli ekki fleiri fallegar peysur frá ömmu Betu. En það sem mér fannst samt allra eftirtektarverðast við Betu var hversu einstaklega kærleiksrík manneskja hún var, hjálpsöm við allt og alla, en þó auðvitað sérstaklega börn sín og barnabörn, sem hún var mjög stolt af, öllum með tölu. Þegar eitthvað bjátaði á eða ef hún vissi af einhverjum sem þurfti hjálparhönd, kom hún færandi hendi, en hún mátti ekkert aumt sjá. Ég vissi af því að hún keyrði dag eftir dag í Borg- arnesið til að passa þrjú barnabörn sín þar, þegar börnin voru veik, og virtist finnast það sjálfsagðasti hlut- ur í heimi. Hún var afar gjafmild og lét engar smágjafir duga ef henni þótti tilefni til. Beta var unnandi lista, hafði mjög gaman af tónlist og söng og var dug- leg að sækja tónleika. Eins þeim sem hún tók þátt í sjálf með Gerðubergs- kórnum sem hún var að byrja að syngja með þegar kynni okkar hóf- ust, með Gunnu systur sinni, og hafði greinilega mjög gaman af. Beta var mjög óspör á að láta fólk finna hvað hún mat það mikils og þótti vænt um, og sýndi hún það í verki og það svo um munaði! Beta fæddist og ólst upp í Flatey á Skjálfanda, en þar bjó hún fram á unglingsár er hún fluttist til Vest- mannaeyja þar sem hún bjó í mörg ár. Hún bar greinilega mjög sterkar taugar til Flateyjar, þar sem hún ólst upp, og var ég svo heppin að fara með henni í síðustu ferð sína, að vísu ekki til Flateyjar, en inn Flateyjar- dalinn, þar sem hún gisti með okkur í sæluhúsi orðin 71 árs og lét sig ekki muna um að hvíla í hörðum rúmum sæluhúsanna. Þegar maður keyrir Flateyjardalinn á enda getur maður séð Flatey í allri sinni dýrð. Úr þess- ari ferð með henni og fjölskyldunni á Elísabet Kristjánsdóttir ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN ÞÓRISSON, Háeyrarvöllum 6, Eyrarbakka, verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju laugar- daginn 7. febrúar kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabba- meinsfélag Íslands. Þuríður S. Tómasdóttir, Guðríður Kristjánsdóttir, Þröstur Bjarnason, Þórir Kristjánsson, Þórey Gylfadóttir, Tómas Kristjánsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Guðfinna Kristjánsdóttir, Snorri G. Sigurðarson, Sigríður Kristjánsdóttir, Guðmundur M. Hermannsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.