Morgunblaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Karíus og Baktus
hræðast mest
Colgate tannbursta
og tannkrem
Krakkar! Nú getið þið
passað upp á að Karíus
og Baktus komist ekki í
tennurnar ykkar með því
að nota Colgate Smiles
tannkrem og tannbursta.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
70866
HANN leit upp frá vinnu sinni, netagerðarmað-
urinn þar sem hann vann að flutningi síldarnótar
Hákonar EA, aflahæsta skips landsins í fyrra,
frá verkstæði og til geymslu, í Grindavík gær.
Nótin var í viðgerð í nóvember og desember,
en um er að ræða úthafsnót sem er 218,5 metra
djúp. Jafngildir það hátt í þrefaldri hæð Hall-
grímskirkju. Hákon er nú á síldveiðum á Grund-
arfirði með litla loðnunót.
Aflaverðmætið Hákonar í fyrra nam um 2,5
milljörðum króna, sem var Íslandsmet. Var afli
skipsins þá samtals 46.900 tonn.
Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson leitar
nú að loðnu suðaustur af landinu. Vonir glædd-
ust í gær þegar áhöfnin fékk ábendingu um
loðnu vestur af Kvískerjum. Loðnan reyndist
hins vegar vera síld, að sögn Sveins Sveinbjörns-
sonar fiskifræðings sem er um borð í skipinu.
Morgunblaðið/RAX
Síldarnótin gerð klár á himinbláum vetrarmorgni
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
FÓLKSBÍLAR og ýmiss konar
flutningatæki til atvinnurekstrar á
landi voru á síðasta ári flutt út fyr-
ir tæplega 6,5 milljarða króna.
Þetta kemur fram í bráðabirgðatöl-
um Hagstofunnar fyrir árið 2008.
Mest af þessum útflutningi fór
fram á síðari hluta nýliðins ár og
fór mest af bílum og tækjum til
Hollands og Þýskalands. Fólks-
bílar voru fluttir út fyrir rúma 3,3
milljarða, langmest nýir bílar.
Flutningatæki til atvinnurekstr-
ar voru flutt út fyrir rúma 3,1
milljarð, mest vörubílar, nýir og
notaðir, en einnig kranabílar,
dembarar og vöru- og sendiferða-
bílagrindur með húsi.
Auður Ólína Svavarsdóttir,
deildarstjóri utanríkisversl-
unardeildar Hagstofunnar, áréttar
að um bráðabirgðatölur sé að
ræða, en segist telja að þessar töl-
ur verði nálægt lagi. Hún segir að í
gegnum tíðina hafi alltaf verið eitt-
hvað um útflutning á bílum, og þá
einkum notuðum. „Við hjá Hag-
stofunni höfum hins vegar aldrei
séð útflutning af þessari stærð-
argráðu,“ segir Auður.
Fólksbílar fluttir
inn fyrir 20,1 milljarð
Á síðasta ári voru fluttir inn
fólksbílar fyrir 20,1 milljarð króna
á fob-verði, samkvæmt bráða-
birgðatölum, og fyrir 28,2 milljarða
árið 2007. Flutningatæki til at-
vinnurekstrar voru flutt inn fyrir
9,2 milljarða króna í fyrra og fyrir
12,8 milljarða árið 2007. Þessar
upphæðir eru á verðlagi hvors árs.
Bílar út
fyrir 3,3
milljarða
„ÞAÐ er ljóst að það er talsvert
miklu dýrara að stoppa byggingu
Tónlistarhússins og klára það seinna
en klára það núna,“ segir Katrín Jak-
obsdóttir menntamálaráðherra, og
tekur fram að hún sjái því engan ann-
an kost í stöðunni en að klára húsið
með sóma. Stefnt er að því að ræða
áframhaldandi byggingu Tónlistar-
hússins á fundi ríkisstjórnarinnar á
morgun. Segir Katrín ljóst að fram-
kvæmdalokum muni a.m.k. seinka
um tvö ár þar sem hægt verði á fram-
kvæmdum, m.a. þar sem engin næt-
urvinna verði lengur unnin.
Katrín bendir á að nú þegar
sé verkið hálfnað, en
áætlað er að það taki
13 milljarða að klára
bygginguna. Segir
hún Austurhöfn
ehf. hafa lagt fram
hugmynd um
hvernig spara megi
megi á bilinu 400-500 milljónir króna í
útfærslu hússins, t.d. með breyttu
efnisvali, sem farið verði gaumgæfi-
lega yfir. Spurð hvernig fjármagna
eigi þá milljarða sem upp á vantar til
þess að hægt verði að ljúka byggingu
Tónlistarhússins segir Katrín ljóst að
ríki og borg muni ekki taka á sig frek-
ari ábyrgðir vegna hússins og því
þurfi að fjármagna bygginguna með
lánsfé. Spurð hvort hægt sé að fá
lánsfé á viðráðanlegum vöxtum í dag
segir Katrín að a.m.k. eitt tilboð sé til
skoðunar. silja@mbl.is
Klára húsið með sóma
Tónlistarhúsið tilbúið fyrir árslok 2011
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Á ÖFLUGUM og fjölmennum félagsfundi með
öryggisvörðum var samþykkt að leggja það til við
Keflavíkurflugvöll ohf. að fara í flatan niðurskurð
á launum í stað uppsagna og var þá rætt um 12,5-
15% niðurskurð á launum umfram 300.000 krónur
á mánuði. Starfsfólkið vildi sameiginlegt átak
vinnustaðarins um að gæta jafnræðis með þessum
hætti. Við fórum með þessi skila boð á fund með
yfirstjórninni og komum því á framfæri að SFR
legði á það ríka áherslu að farin yrði sú leið sem
fundurinn samþykkti,“ segir Þórarinn Eyfjörð,
framkvæmdastjóri SFR – stéttarfélags í al-
mannaþjónustu, um uppsagnir á 24 starfs-
mönnum í öryggisvörslu á vellinum.
Yfirstjórn fyrirtækisins, sem tjáir sig ekki um
málið, vísaði í undirskriftalista frá hluta starfs-
manna sem höfnuðu flatri launaskerðingu.
Hann segir trúverðugleika listans dreginn í efa.
„Það eru uppi efasemdir um að þessi listi sé
réttur og eigi sér eitthvert raunverulegt bakland
því það hefur enginn fengið að sjá hann. Þegar yf-
irstjórn fyrirtækisins var búin að fá þennan lista í
hendur taldi hún sér ekki lengur stætt á að fara í
flatan niðurskurð. Þetta finnst okkur vera fyrir-
sláttur,“ segir Þórarinn og heldur áfram.
„Síðan var mönnum stillt upp við vegg og þeim
sagt að annaðhvort yrði þeim sagt upp eða þeir
tækju 50% starf og þá kæmi Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður á móti. Þeir fóru mest eftir starfsaldri,
að sögn, og var yngri starfsmönnum boðin upp-
sögn strax eða 50% skerðing þegar í stað. Hér er
verið að setja starfsfólkinu afarkosti. Ríkis-
stjórnin sem á þetta fyrirtæki hefur sagt að hún
muni verja heimilin. Hvar er stjórnin núna?“
Efi um undirskriftalista
SFR gagnrýnir uppsagnir í öryggisvörslu á Keflavíkurflugvelli harðlega
Telja að starfsfólk hafi ekki hafnað þeirri leið að skerða launin tímabundið
Í HNOTSKURN
»Keflavíkurflugvöllur ohf. tók viðrekstri Keflavíkurflugvallar og Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar 1. janúar 2009 en
félagið var stofnað til að annast rekstur,
viðhald og uppbyggingu flugvallarins og
flugstöðvarinnar.