Morgunblaðið - 05.02.2009, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
HÚN ER girnileg grænmetissúpan í
pottinum hjá Kristbjörgu Ásmunds-
dóttur, sem nú mætir í Hlutverka-
setur tvisvar í viku og eldar hádeg-
ismat fyrir þá sem þangað koma.
Kristbjörg vann áður við bókhald,
hafði raunar starfað hjá sama fyrir-
tækinu í tíu ár, er henni var sagt upp
nú fyrir jól. „Fyrst fannst mér voða
gott að fá frí, en svo var ég byrjuð að
slá hlutunum á frest,“ segir Krist-
björg sem ákvað að bjóða fram mat-
reiðsluhæfileika sína eftir að hafa
hlýtt á hádegisfyrirlestur á vegum
VR með Elínu Ebbu Ásmundsdóttur
sem unnið hefur mikið og óeig-
ingjarnt starf á vegum Hlutverka-
seturs. „Þar kom Elín Ebba inn á
hvað það væri gaman að fá fólk í
Hlutverkasetrið sem væri tilbúið að
gera eitthvað og miðla af sinni kunn-
áttu. „Ég gat alveg hugsað mér að
elda,“ segir Kristbjörg sem áður
bakaði stundum brauð fyrir sinn
gamla vinnustað.
Hún segir það óneitanlega hafa
verið niðurbrjótandi að missa vinn-
una. „Maður fer að efast um sjálfan
sig og það getur verið erfitt að verj-
ast hugsunum á borð við: af hverju
var mér sagt upp en ekki ein-
hverjum öðrum?“ Nú kveðst hún
hins vegar mun orkumeiri. „Með því
að þurfa að mæta hingað tvisvar í
viku þá er allt í einu orðið alveg
brjálað að gera hjá mér og ég þarf að
drífa í hlutunum áður en ég fer hing-
að niður eftir.“ Viðtökurnar við
súpugerðinni hafa líka verið góðar
og hún segir hólið lyfta sér upp.
Á eigin forsendum
Fjölbreytt úrval námskeiða er nú
haldið á vegum Hlutverkaseturs,
t.a.m. tölvunámskeið í gerð bæði Po-
wer Pint og Photoshop, myndlist-
arnámskeið og leikræn tjáning, svo
dæmi séu tekin. Þá er farið í göngu-
ferðir á hverjum degi og vikulega
boðið upp á slökun. Að sögn Elínar
Ebbu eru þau hjá Hlutverkasetri
hins vegar opin fyrir breytingum
hvað námskeiðshaldið varðar. „Við
viljum gjarnan fá fleira fólk eins og
Kristbjörgu hingað. Fólk sem býr að
einhverri þekkingu og vill láta gott
af sér leiða.
En við viljum líka að fólk komi
hingað á eigin forsendum og að fólk
rjúfi þannig þá einangrun sem fylgt
getur atvinnumissi. Fólk þarf ekkert
að koma hingað á hverjum degi en
Hlutverkasetur getur hjálpað því að
búa sér til sína eigin rútínu. Hér get-
ur fólk til dæmis hitt aðra í svipaðri
stöðu úr sínu hverfi og búið þannig
til gönguhópa í sínu nærumhverfi,“
segir Elín Ebba.
Hún segir Reykjavíkurborg, heil-
brigðis- og félagsmálaráðuneyti
styðja starfið og þá sé Hlutverka-
setur komið í sambandi við Hljóma-
lind þar sem boðið sé upp á ýmsar
uppákomur gestum að kostnaðar-
lausu.
Kokkur Kristbjörg Ásmundsdóttir fær góð viðbrögð við matseldinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýtt hlutverk Leiklist í umsjón Trausta Valssonar er meðal þeirra námskeiða sem boðið er upp á hjá Hlutverkasetri.
Að miðla af eigin kunnáttu
Hlutverkasetur er
bæði fyrir gefend-
ur og þiggjendur
Í JANÚAR bárust Vinnu-
málastofnun 10 tilkynningar um
hópuppsagnir þar sem sagt var
upp samtals 167 einstaklingum.
Fjórar tilkynningar voru úr
mannvirkjagerð með samtals 50%
þeirra sem sagt var upp.
Helstu ástæður uppsagna eru
rekstrarerfiðleikar, verk-
efnaskortur og endurskipulagn-
ing.
Flestar uppsagnirnar sem til-
kynntar voru í janúar koma til
framkvæmda í maí. Ef litið er á
allar tilkynntar hópuppsagnir,
sem borist hafa síðustu mánuði,
má sjá að flestir misstu vinnu í
febrúar, eða yfir 1.100 manns.
Tæplega 500 manns misstu vinn-
una í byrjun mars, ríflega 200 í
byrjun apríl og um 100 manns í
maí. sisi@mbl.is
Margir munu
missa vinnuna
í febrúar
Hvernig námskeið er boðið
upp á hjá Hlutverkasetri?
Boðið er upp á ýmiskonar tölvu-
námskeið, myndlist og leiklist,
svo dæmi séu tekinn. Nám-
skeiðshaldið er þó mjög sveigj-
anlegt og aðstandendur Hlut-
verkaseturs opnir fyrir
hugmyndum þeirra sem áhuga
hafa á að bjóða upp á annars
konar fræðslu en þá sem nú er í
boði.
Er langur biðlisti?
Námskeiðin eru stutt, 4-6 skipti,
og því ætti ekki að þurfa að bíða
lengi eftir að nýtt námskeið hefj-
ist.
Þarf að hafa samband
fyrirfram?
Hlutverkasetur er opið á milli kl.
8 og 16 á daginn og þangað geta
allir kíkt inn, kynnt sér aðstæður,
rætt við starfsfólk og séð hvort
ekki er eitthvað í boði fyrir þá.
Hvar finn ég frekari
upplýsingar?
Á vefslóðinni hlutverkasetur.is,
svo er einnig hægt að hafa sam-
band í síma 517 3471.
S&S
HAUKUR Gunnarsson fyrrverandi
verslunarstjóri í Rammagerðinni,
lést á heimili sínu, Sóltúni 13, þriðju-
daginn 3. febrúar, 87 ára að aldri.
Haukur fæddist 18. júlí 1921 á
Reynimel við Bræðraborgarstíg í
Reykjavík. Hann var sonur Gunnars
Guðnasonar frá Dísakoti í Flóa og
Ingibjargar Hjartardóttur frá
Reynimel.
Haukur útskrifaðist frá Versl-
unarskóla Íslands árið 1939. Árið
1942 fór hann í tveggja ára versl-
unarnám til Bandaríkjanna og starf-
aði þar um tíma. Er heim kom hóf
hann störf hjá Ferðaskrifstofu rík-
isins og síðar í Orlofsbúðinni. Allan
sinn starfsaldur starfaði Haukur við
verslunar- og ferðaþjónustu, lengst
af sem verslunarstjóri í Ramma-
gerðinni í Hafnarstræti. Óhætt er að
segja að Haukur hafi verið braut-
ryðjandi í ferðaþjónustu á Íslandi.
Haukur var kvæntur Aðalbjörgu
Sigurðardóttur sem lést árið 2005.
Hann lætur eftir sig þrjú uppkomin
börn. Barnabörnin eru sjö og barna-
barnabörnin fimm.
Andlát
Haukur
Gunnarsson
NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK Ís-
lands segja, að fullyrðingar útgerð-
armanna um að verði hvalveiðar
ekki leyfðar tapist tugir milljarða
króna, sé hjáfræði. Landssamband
íslenskra útvegsmanna heldur því
fram að með skynsamlegri nýtingu
hvalastofna væri hægt að auka út-
flutningstekjur af þorski og öðrum
arðbærum tegundum um tugi millj-
arða króna.
Á heimasíðu Náttúruvernd-
arsamtakanna er m.a. vísað til um-
mæla Gísla Víkingssonar, hvala-
sérfræðings hjá
Hafrannsóknastofnun, í útvarps-
viðtali árið 2006. Þar kom fram, að
vísindamenn vissu ekki nóg til þess
að geta sagt með vissu, að hvalir
gengju umtalsvert á fiskistofnana
með þeim afleiðingum að minna
væri til skiptanna fyrir fiskiskipa-
útgerðirnar, þótt vissulega væru
vísbendingar í þá átt frekar en hitt.
Útreikningar
LÍÚ ekki réttir