Morgunblaðið - 05.02.2009, Side 17
Fréttir 17INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hefur
sýknað karlmann af ákæru um
kynferðisbrot gegn 12 ára dóttur
sambýliskonu sinnar. Dómurinn
leit m.a. til þess að engir aðrir
væru til frásagnar um meint atvik
en stúlkan og maðurinn, sem neit-
aði staðfastlega sök.
Ákæran gegn manninum var í
þremur liðum. Var hann sakaður
um að hafa brotið gegn stúlkunni
árið 2001, m.a. strokið kynfæri
hennar innan klæða og sett fingur
inn í kynfæri. Stúlkan greindi frá
ofbeldinu árið 2007.
Fjölskipaður héraðsdómur
komst að þeirri niðurstöðu að
framburður stúlkunnar væri ít-
arlegur og hún samkvæm sjálfri
sér. „Af framburði stúlkunnar er
hins vegar ljóst að engir aðrir en
þau ákærði geta verið til frásagn-
ar um atvik þau sem ákæra máls-
ins tekur til. Framburðir allra
annarra vitna [...] eru því marki
brenndir að vera endursagnir af
frásögn [stúlkunnar],“ segir í
dómnum.
Í niðurstöðu dómsins segir að
sönnunarbyrði um sekt sakborn-
ings og atvik, sem telja má honum
í óhag, hvíli á ákæruvaldinu. Þrátt
fyrir að meðferðaraðilar og nánir
aðstandendur telji andlegt ástand
stúlkunnar styðja að hún hafi orð-
ið fyrir brotum af hálfu mannsins
var það mat dómsins að ákæru-
valdinu hefði ekki tekist að sanna
gegn neitun mannsins að hann
hefði brotið af sér. andri@mbl.is
Framburður
fórnarlambs
nægði ekki
Ákærður fyrir
brot gegn barni
FIMMTÁN sóttu um stöðu skóla-
meistara við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti en umsóknarfrestur
rann út 30. janúar sl. Núverandi
skólameistari er Kristín Arnalds
sem lætur af störfum vegna ald-
urs. Umsækjendur eru: Anna
Jóna Guðmundsdóttir fram-
haldsskólakennari, Baldvin
Björgvinsson framhaldsskóla-
kennari, Björgvin Þórisson
framhaldsskólakennari, Guðrún
Hrefna Guðmundsdóttir fram-
haldsskólakennari, Gunnar M.
Gunnarsson framhaldsskóla-
kennari, Heimir Jón Guðjónsson
kennslustjóri, Helga Kristín Kol-
beinsdóttir áfangastjóri, Kol-
brún Kolbeinsdóttir framhalds-
skólakennari, Kristín Jónsdóttir
forstöðumaður, Kristján Bjarni
Halldórsson framhaldsskóla-
kennari, Magnús Ingvason
kennslustjóri, Ólafur Jónsson
sviðsstjóri, Sigfríður Björns-
dóttir framkvæmdastjóri, Val-
gerður Þ. E. Guðjónsdóttir
framhaldsskólakennari og Þór
Steinarsson gæðastjóri.
Fimmtán
sóttu um FB
VALNEFND í
Laufáspresta-
kalli, Þingeyj-
arprófastsdæmi,
hefur ákveðið að
sr. Bolli Pétur
Bollason verði
skipaður sókn-
arprestur í
Laufáspresta-
kalli. Sex um-
sækjendur voru
um embættið.
Bolli Pétur Bollason lauk guð-
fræðiprófi frá Háskóla Íslands
2000. Hann var vígður prestur til
Seljaprestakalls 2002 og hefur
þjónað þar síðan.
Sr. Bolli fékk
Laufás
Bolli Pétur
Bollason
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
KATRÍN Jak-
obsdóttir,
mennta-
málaráðherra,
hyggst fyrir
vikulok skipa
nýja fulltrúa
ráðuneytisins í
stjórn Lánasjóðs
íslenskra náms-
manna (LÍN).
Jafnframt hyggst
fjármálaráðherra skipa nýjan full-
trúa í stjórninni. Samtals skipa
ráðherrarnir tveir fjóra af átta
stjórnarmönnum.
„Nýju stjórninni verður falið að
fara yfir úthlutunarreglur sjóðsins í
ljósi þeirra aðstæðna sem uppi eru
í samfélaginu í efnahagsmálum“
segir Katrín og tekur til dæmis
fram að skoða þurfi hvernig gera
megi fólki það auðveldara að hverfa
frá vinnumarkaði og fara aftur í
skóla. Einnig þurfi að endurskoða
úthlutanir vegna neyðarlánanna
sem mikið var deilt um fyrir jól.
„Auk þessa vil ég líka að ný
stjórn fari í það að endurskoða
sjálft lánakerfið í heild sinni og
skoða hvort ástæða sé til þess að
breyta því til framtíðar,“ segir
Katrín og boðar kostnaðargrein-
ingu á því hvort það kosti meira að
taka upp samtímagreiðslukerfi
námslána í stað núverandi yf-
irdráttarkerfis sem fylgi eft-
irágreiðslum.
Samspil lána og bóta
Meðal þeirra verkefna sem gefið
hefur verið út að ný ríkisstjórn vilji
vinna að er aðlögun á lánareglum
LÍN þannig að atvinnulausir geti
stundað lánshæft nám í stað þess
að þiggja atvinnuleysisbætur.
Innt eftir því hvað þetta þýði í
reynd segir Katrín að ein hug-
myndanna sé að LÍN og Vinnu-
málastofnun vinni náið saman
þannig að fólk geti tekið námslán
og til viðbótar fengið hluta atvinnu-
leysisbóta greiddan á móti. Hugs-
unin þar að baki sé að það verði
gert fýsilegra fyrir fólk að nýta
tímann án atvinnu til þess að
mennta sig. Spurð hvort þetta kalli
ekki á það að ríkið veiti auknu fé til
LÍN segir Katrín það ekki í boði,
hins vegar megi nýta það fé sem
fyrir hendi sé betur, t.d. með sam-
spili námslána og atvinnuleysisbóta.
Líkt og sjá má í grafinu hér til hlið-
ar eru grunnatvinnuleysisbætur
tæpar 150 þús. kr. á mánuði.
Grunnframfærsla námsmanns, sem
hefur engar aðrar tekjur, eru
905.400 kr. á ári miðað við fullt
nám. Sé þessari fjárhæð deilt niður
á níu mánuði gera það rúmar 100
þús. kr. á mánuði, en takist náms-
manninum ekki að afla sér tekna
yfir sumarmánuðina þrjá yrði upp-
hæðin að duga til framfærslu allt
árið og þá yrðu rúmar 75 þús. kr.
til ráðstöfunar á mánuði.
Ráðherra skipar nýja
stjórn LÍN fyrir helgi
Boðar heildarendurskoðun á kerfinu
Katrín
Jakobsdóttir
&!'
!(
!
#
$
%
&
+((
# ()! ! !%!
) & 2
#(!
*+,'-./
+' 0+.
3
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
STURLA Böðvarsson tilkynnir á fundi með kjör-
dæmaráði á laugardaginn hvort hann hyggst gefa
kost á sér áfram til næstu alþingiskosninga.
Hann var ekki tilbúinn að láta það uppi nú.
„Það eru vandasamir tímar framundan og það
skiptir miklu máli að öflugt lið gangi til þings að
kosningum loknum.“
Sturla vék úr stóli þingforseta í gær fyrir Guð-
bjarti Hannessyni, þingmanni Samfylkingarinnar
í Norðvesturkjördæmi. Guðbjartur fékk 35 at-
kvæði og Sturla 25 í kjöri um stólinn. Einn skil-
aði auðu.
Taldi kjörið ekki vantraust
„Ég leit ekki á kjörið sem vantrauststillögu á
mig persónulega. Hins vegar var ég mjög ósáttur
við forsendurnar sem þeir settu fyrir breyting-
unni og að þeir teldu nauðsyn að þingmaður úr
stjórnarliðinu gæti einn verið forseti þingsins,“
segir Sturla.
„Rætt hefur verið á undanförnum árum, meðal
annars af forystumanni Vinstri grænna, að eðli-
legt væri að stjórnarandstæðingur gæti verið for-
seti þingsins. Þarna leit ég því svo á að þetta
væri kjörið tækifæri fyrir hann og hans flokk að
standa við það.“ Orð Sturlu enduróma gagnrýni
sjálfstæðismanna á þingpöllunum áður en til for-
setakosninganna kom. „Þegar á hólminn er kom-
ið verða beinin að brjóski,“ sagði Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins. Spaugilegt, sagði Guðlaugur Þór
Þórðarson. „Minnihlutastjórnin fellur á fyrsta
prófinu. Eftir allar ræðurnar um að styrkja þing-
ið er þetta þeirra fyrsta verk,“ sagði hann.
Stjórnarmenn vörðust
Minnihlutastjórnin og stuðningsmenn vörðust
og benti Þórunn Sveinbjarnardóttir á að forseta-
stóllinn hefði síðustu átján árin fallið sjálfstæð-
ismönnum í skaut. Aldrei hefði Sjálfstæðisflokk-
urinn skipað mann úr minnihluta yfir þingið. „Nú
vilja þeir brjóta hefðirnar.“ Mörður Árnason,
varaþingmaður Samfylkingarinnar í stað Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur sem er í veik-
indaleyfi, benti á að að sjálfstæðismenn hefðu
sjálfir stefnt á að skipta Sturlu út fyrir nýjan for-
seta í maí. Það væri allt traustið sem Sjálfstæð-
isflokkurinn sýndi Sturlu. Spurður um þetta
svarar Sturla. „Nei, ég gerði ekki ráð fyrir því
[að hætta]. Gert var ráð fyrir því að það yrðu að
sjálfsögðu áfram margvísleg störf, varðandi það
að stýra þinginu.“
Sjálfstæðismenn sögðu breytinguna á ábyrgð
framsóknarmanna, sem hefðu lofað Sturlu til
verksins á sínum tíma. Birkir Jón Jónsson,
varaformaður flokksins, sagði kjörið hins vegar
ekkert hafa með persónu Sturlu að gera. „Emb-
ætti forseta Alþingis er ekki séreign ákveðinna
flokka.“ Keyra þyrfti mörg brýn mál í gegn.
Guðbjartur Hannesson, nýr forseti þingsins,
segir að hann ætli ekki að stuðla að því að mál
verði keyrð í gegnum þingið. Hins vegar væri
minnihlutastjórn við stýrið og því þyrfti að
vinna heilt að því að mynda meirihluta með mál-
unum. Hann ætli ekki að gera miklar breytingar
á störfum þingsins. „Við skuldum þjóðinni að
hún sjái árangur. Það þýðir að þetta verða helst
nefndar- og þingdagar og eins langir og við
mögulega getum keyrt áður en við förum í
kosningar.“
Sturla felldur sem forseti
og íhugar framhaldið
Sturla Böðvarsson víkur úr þingforsetastóli fyrir Guðbjarti Hannessyni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Síðasti dagur þingforseta Sturla Böðvarsson lét stólinn til Guðbjarts Hannessonar í gær.
Sjálfstæðismenn voru minntir á að þeir hefðu
ekki gefið þingforsetastólinn eftir síðustu átján
árin. Hátt heyrðist í þingmönnum og sagði fjár-
málaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, frá-
hvarfseinkenni sjálfstæðismanna mögnuð.
Störf þingforseta sjálfstæðisflokksins voru
mærð og þeir sagðir hafa hafið starf þingsins til
vegs og virðingar. Fráhvarfseinkenni eða ekki.
Hlátur glumdi í salnum þegar fráfarandi forseti
bauð háttvirtum en bætti svo um betur, hæst-
virtum fjármálaráðherra í pontu. Erfitt að
breyta af vananum eftir átján ár?
Fráhvarfseinkenni?
Í JANÚAR fóru
125.359 ökutæki um
Hvalfjarðargöng
eða 1.200 fleiri en í
sama mánuði 2008.
Þetta er aukning
um 0,9% og kemur
nokkuð á óvart í efnahagsárferðinu
sem þjóðin býr við. Febrúartölurnar
munu væntanlega skera úr um
hvort umferð á þjóðvegum landsins
er að aukast á ný, eftir mikinn sam-
drátt á undanförnum mánuðum.
Á vef Spalar segir að nærtækt
væri að ætla að umferðin í janúar
2008 hefði verið óvenju lítil og að
það skekkti þennan samanburð en
svo sé ekki. Umferðin í janúar 2008
var tæplega 2% meiri en hún var í
janúar 2007.
Í apríl 2008 mældust fyrst um-
skipti í íslensku efnahagslífi í um-
ferðartölum Hvalfjarðarganga. Þá
fóru færri um göngin en í sama
mánuði árið á undan og sama gerð-
ist alla mánuði sem eftir lifðu af
árinu 2008.
Samdrátturinn í október í fyrra
var 10,5%, 6% í nóvember og 2,7% í
desember. sisi@mbl.is
Umferð
um göngin
eykst
Fyrstu merki um
aukna bílaumferð