Morgunblaðið - 05.02.2009, Síða 18
18 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BARACK Obama, forseti Banda-
ríkjanna, kveðst vilja koma í veg
fyrir lög um efnahagsaðgerðir
sem gefi til kynna að bandarísk
stjórnvöld taki upp verndarstefnu
og geti leitt til viðskiptastríðs.
Þetta er svar Obama við gagn-
rýni ráðamanna í öðrum löndum
á umdeilt ákvæði í lagafrumvarpi
um aðgerðir til að blása lífi í
efnahag Bandaríkjanna. Í frum-
varpi, sem fulltrúadeild þingsins
hefur samþykkt, er kveðið á um
að aðeins megi nota bandarískt
járn og stál við framkvæmdir
sem Bandaríkjastjórn fjár-
magnar. Í frumvarpsdrögum, sem
lögð hafa verið fyrir öld-
ungadeildina, er víðtækara
ákvæði um að nota beri banda-
rískan varning.
„Mjög hættulegt fordæmi“
Evrópusambandið mótmælti
ákvæðinu og sagði að með því
væru Bandaríkin að senda
„verstu mögulegu skilaboð“ um
að þau hygðust taka upp vernd-
arstefnu sem gæti stuðlað að enn
meiri efnahagssamdrætti í heim-
inum. Talsmaður framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins
sagði að hún myndi skjóta málinu
til Heimsviðskiptastofnunarinnar
(WTO) ef ákvæðið yrði í lögunum.
„Við teljum að lögin skapi mjög
hættulegt fordæmi nú þegar
heimsbyggðin stendur frammi
fyrir alþjóðlegri kreppu,“ sagði
John Bruton, sendiherra ESB í
Washington. Hann bætti við að
ákvæðið gæti orðið til þess að
önnur lönd tækju upp vernd-
arstefnu sem gæti að lokum
stuðlað að enn meira atvinnuleysi
í Bandaríkjunum og víðar.
Viðskipti hluti af lausninni
Stjórnvöld í Kína, Kanada og
fleiri löndum hafa tekið í sama
streng og nokkrir frammámenn
bandarískra repúblikana hafa
varað við því að ákvæðið geti leitt
til viðskiptastríðs í heiminum.
Obama tók undir þessar viðvar-
anir í viðtali við ABC-sjónvarpið í
fyrrakvöld og sagði að það væri
rangt að halda ákvæðinu vegna
hættu á viðskiptastríði. „Ég tel
að það væru mistök, nú þegar
heimsviðskiptin dragast saman,
að við förum að senda þau skila-
boð að við hugsum aðeins um eigin
hagsmuni og skeytum ekki um
heimsviðskipti,“ sagði forsetinn.
Catherine Ashton, sem fer með
viðskiptamál í framkvæmdastjórn
ESB, fagnaði orðum Obama.
„Hann áttar sig á því, eins og við í
Evrópu, að við þurfum að auka
viðskiptin til að sigrast á efna-
hagsþrengingunum. Viðskipti eru
hluti af lausninni,“ sagði hún.
AP
Skólaheimsókn Barack Obama og eiginkona hans, Michelle, með nemendum barnaskóla í Washington.
Obama kveðst vilja koma
í veg fyrir viðskiptastríð
Leggst gegn verndarstefnu í frumvarpi um aðgerðir til að blása lífi í efnahaginn
Stjórnvöld í mörgum ríkjum heims hafa boðað aðgerðir, sem fela í sér
aukin ríkisútgjöld eða skattalækkanir, til blása lífi í efnahaginn.
Heimild: Fréttir fjölmiðla Ath.: Fleiri lönd hafa boðað efnahagsaðgerðir
Evrópusambandið
* Að meðtöldum framkvæmdum
á vegum héraðsstjórna
EFNAHAGSAÐGERÐIR RÍKJA HEIMS
Bandaríkin
993
BOÐAÐAR AÐGERÐIR
í milljörðum Bandaríkjadala, miðað við gengið
2. febrúar.
Japan
484,6
Taívan
5,4
S-Kórea
10,1
Ástralía
36,1
Nýja Sjáland
3,5
Indland
10
Singapúr
13,5
Noregur 2,8
Holland 7,7
Bretland 28,6
Frakkland 33,4
Spánn 89,9
Portúgal 2,8
Ítalía 102,8
Svíþjóð
2,7
Taíland
8,6
Ungverjaland
6,1
Þýskaland
104,1
Kanada
32,2
Rússland
20
ESB
256,9
Kína*
2.046,6
ÞEGAR fólk horfir á auglýsingu á skjá í versl-
unarmiðstöð, líkamsræktarstöð eða mat-
vöruverslun í Bandaríkjunum er hugsanlegt að
auglýsingamiðillinn fylgist líka með áhorfand-
anum. Líkurnar á því eru að vísu ekki miklar en
fara vaxandi.
Þróuð hefur verið tækni sem byggist á því að
litlum myndavélum er komið fyrir á skjánum eða
nálægt honum til að fylgjast með fólkinu sem
horfir á hann. Framleiðendur búnaðarins segja
að notaður sé hugbúnaður sem geti greint kyn
áhorfandans, áætlað aldur hans og í sumum til-
vikum greint kynþátt hans. Búnaðurinn getur
síðan skipt um auglýsingu á skjánum í samræmi
við upplýsingarnar um áhorfandann.
T.a.m. er hugsanlegt að á skjánum birtist aug-
lýsing um rakvélar ef áhorfandinn er karl,
dömubindi ef kona horfir á skjáinn, eða um
tölvuleiki ef áhorfandinn er unglingur. Jafnvel
þótt auglýsingarnar breytist ekki getur þessi
tækni verið gagnleg fyrir auglýsendur sem vilja
vita að hve miklu leyti auglýsingar þeirra ná til
markhópsins.
Búnaðurinn hefur ekki enn verið settur á
markað en búist er við að hann verði tekinn í
notkun víða í Bandaríkjunum og fleiri löndum á
næstu árum. Framleiðendurnir segja að bún-
aðurinn geti nú greint kyn áhorfendanna í um
85-90% tilvika.
Búnaðurinn minnir á atriði í kvikmyndinni
„Minority Report“ þar sem söguhetjan, sem Tom
Cruise leikur, gengur inn í verslunarmiðstöð þar
sem sjónhimnumyndavél ber kennsl á hann og
sýnd er auglýsing þar sem viðskiptavinurinn er
ávarpaður með nafni. Framleiðendur búnaðar-
ins leggja þó áherslu á að hann geti ekki borið
kennsl á áhorfendur eða safnað persónulegum
upplýsingum um þá. bogi@mbl.is
Auglýsingamiðill sem
fylgist með áhorfandanum
Greinir kyn og aldur þeirra sem horfa á skjáinn
AP
Á gægjum Auglýsingaskjár í verslunarmiðstöð.
HRUKKUR eru ekki bara arfbund-
in ættarfylgja, heldur á mikil
streita líka sína sök á þeim. Ýmsar
ástæður geta verið fyrir þeim, til
dæmis skilnaður, skyndilegt þyngd-
artap eða notkun þunglyndislyfja.
Kemur þetta fram í nýrri rannsókn.
„Erfðir ráða að sjálfsögðu miklu
um það hvernig fólk eldist en síðan
kemur margt annað til sem getur
flýtt fyrir öldruninni. Reyni fólk að
sneiða hjá þessum þáttum getur
það líka dregið úr öldrunar-
einkennunum,“ segir Bahaman Gu-
yuron, prófessor og yfirmaður lýta-
lækningadeildar University
Hospitals Case Medical Center í
Cleveland í Ohio.
Rannsóknin beindist að eineggja
tvíburum og það sýndi sig að elli-
merkin voru meiri á þeim sem átt
hafði í einhverjum erfiðleikum.
svs@mbl.is
Streita flýtir
fyrir elli-
merkjunum
VÍSINDAMENN
við Cambridge-
háskóla hafa þró-
að nýja aðferð
við framleiðslu
ljósdíóða sem
eiga að geta enst
í 60 ár. Boða þeir
byltingu sem
muni ekki aðeins
útrýma glóð-
arperunni, held-
ur einnig sparperunni.
Ljósdíóður endast miklu lengur
en aðrir ljósgjafar, allt að 50.000
klst., og nota miklu minna rafmagn
en þær hafa verið nokkuð dýrar.
Nýja uppgötvunin gerir hins vegar
hvorttveggja, að lengja enn end-
inguna og gera framleiðsluna ódýr-
ari. Það er því útlit fyrir að margir
þurfi ekki að skipta um peru nema
einu sinni á ævinni.
svs@mbl.is
Boða tilkomu
eilífðarperu
Munu þær báðar
heyra sögunni til?
PÁFAGARÐUR
hefur skipað svo
fyrir að bisk-
upinn Richard
Williamson, sem
neitaði því að
helförin hefði átt
sér stað, verði að
taka þau orð sín
aftur vilji hann
vera í þjónustu
kirkjunnar.
Williamson var einn fjögurra
biskupa sem páfi hafði bannfært
fyrir aðrar sakir en fyrir skömmu
voru þeir leystir úr banni og líka
Williamson. Olli það miklu uppnámi
og nú hefur honum verið skipað að
iðrast orða sinna.
svs@mbl.is
Skipað að taka
orð sín aftur
Richard William-
son biskup.
ÞÆR eru ungar, fallegar og því
vanastar að fá meira en lítið fyrir
sinn snúð þegar þær auglýsa tísku-
fatnað, hvort sem það er á tískusýn-
ingum eða í auglýsingum. Nú eru
þær komnar á útsölu og búið að
lækka verðið um helming.
Um þessar mundir stendur tísku-
vertíðin sem hæst í París, Mílanó,
New York og víðar en fyrirsæt-
urnar hafa ekki sloppið við krepp-
una fremur en aðrir. Helstu hönn-
uðirnir hafa fækkað verulega í
fyrirsætnahópnum sínum og mörg-
um verið sagt upp.
„Nú erum við bara á hálfvirði,“
var haft eftir fyrirsætu, sem þakk-
aði þó fyrir að hafa enn vinnu.
svs@mbl.is
Fyrirsætur
með afslætti
„Ég klúðraði þessu,“ sagði Bar-
ack Obama í viðtali við CBS-
sjónvarpið. „Ég tel að ég hafi
klúðrað þessu og axla ábyrgð á
því,“ sagði hann við CNN.
Þannig voru viðbrögð Obama
við því að Tom Daschle ákvað að
gefa ekki kost á sér í embætti
heilbrigðisráðherra eftir að
skýrt var frá því að hann hefði
ekki talið afnot af bíl fram til
skatts á árunum 2005 til 2007.
Hann greiddi 140.000 dollara í
skatt og vexti í síðasta mánuði
vegna þessa máls og sagði að
sér hefðu orðið á mistök.
Obama viðurkenndi að hann
hefði verið seinn að átta sig á
þýðingu málsins.
Ég klúðraði þessu