Morgunblaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 21
Daglegt líf 21ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009
Hinn 4. febrúar 1964 fór íslenskur
maður frá Vestur-Berlín yfir til aust-
urhluta borgarinnar með eftirfarandi
í farangrinum: 2 nælonskyrtur, 2 pör
af dömunælonsokkum, 20 smávindla,
250 grömm af kaffi og 1 kg af banön-
um. Hvernig veit ég þetta? Og hvað
kemur það Akureyri við? Kíktu að-
eins neðar til að komast að því…
Birgir Guðmundsson og Markus
Meckl, lektorar við Háskólann á Ak-
ureyri, sönkuðu að sér gögnum um
Ísland sem hægt var að nálgast úr
ógnarstóru skjalasafni Stasi í Austur-
Berlín og hafa afhent Héraðs-
skjalasafninu á Akureyri.
Í bunkanum eru ekki upplýsingar um
nafngreinda menn því slíkt er ekki
látið af hendi án samþykkis viðkom-
andi. Ýmissa grasa kennir þó en
Birgir segir e.t.v. merkilegast hve
upplýsingarnar eru lítilfjörlegar og
hversdagslegar …
Lektorarnir skrifuðu grein upp úr
skjölunum í hausthefti Sögu. For-
vitnum er bent á það merka rit, eða
að heimsækja Héraðsskjalasafnið.
Þar má m.a. sjá að íslenski nautna-
seggurinn áðurnefndi kom austur yf-
ir múrinn í ágúst þetta sama ár með 1
herraskyrtu, 150 grömm af prjóna-
garni og í nóvember 2 pör af döm-
unælonsokkum. Skyldi viðkomandi
vera kona?
Það er gaman að sjá auglýstar rútu-
ferðir upp í Hlíðarfjall héðan neðan
úr bæ. Ég man ekki eftir slíkum
formlegum ferðalögum síðan „Óli
rúta“ var og hét fyrir margt löngu þó
vel megi vera að aðrir hafi skutlað
skíðakrökkum uppeftir síðan; ég var
svo lengi að heiman að ég er ekki viss.
En Hópferðabílar Akureyrar bjóða
nú sem sagt upp á sætaferðir.
Haukur menningarfrömuður á
Græna hattinum býður upp á góð-
gæti um helgina. Annað kvöld verða
Megas og Senuþjófarnir á staðnum.
Leikflokkurinn Vanir menn, frá
Húsavík, verða á Græna hattinum á
laugardagskvöldið og sýna „Upprisa
holdsins.is“ eftir Hörð Þór Benónýs-
son en það hefur verið sýnt fyrir aust-
an við frábærar undirtektir. Leikritið
fjallar um útrásarmenn frá Reykja-
vík sem setja upp símaþjónustu í
tenglsum við byggingu álvers á Hús-
vík.
Hraðlína almennrar brautar í
Menntaskólanum á Akureyri verður
kynnt í dag á Hólum frá kl. 17. Nem-
endur 9. bekkar, sem hafa hug á að
hoppa yfir 10. bekk og fara rakleitt í
MA, forráðamenn þeirra og aðrir,
sem áhuga hafa á hraðlínunni, eru
velkomnir. Brautarstjóri kynnir kosti
þessarar námsleiðar og nemendur á
hraðlínu segja frá reynslu sinni af
náminu, skólastarfinu og lífinu og til-
verunni í MA. Auk þess munu náms-
ráðgjafar og kennarar vera til viðtals.
Dagur leikskólans er á morgun, föstu-
dag og af því tilefni verður opið hús í
leikskólum Akureyrar frá klukkan
8.30-15.30. Allir áhugasamir eru
hvattir til að nýta þetta tækifæri til að
skoða og fræðast um leikskólana.
Foreldrar með börn á umsóknarlista
eru sérstaklega hvattir til að heim-
sækja leikskólana.
Áhugamönnum um íþróttir á ekki að
þurfa að leiðast í höfuðstað Norður-
lands í kvöld. Þórsarar eiga heimaleik
í úrvalsdeildinni í körfubolta gegn
Grindvíkingum og Akureyri tekur á
móti Fram í N1-deildinni í handbolta.
Heimaleikir Þórs og Akureyrar eru í
íþróttahöllinni og það varð að sam-
komulagi milli forráðamanna þeirra
að gera úr þessu sameiginlega hátíð,
Tvíleik í Höllinni sem stendur frá kl.
17.30 til 21.00. Körfuboltaleikurinn
byrjar 17.30 og handboltinn 19.30.
Ámilli leikjanna verður boðið upp á
tónleika með hinum einu sönnu
Hvanndalsbræðrum. Gera má ráð
fyrir að þeir spili frá 18.45 til 19.20.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stasi Birgir Guðmundsson, Lára Ágústa Ólafsdóttir skjalavörður, Markus
Meckl og Páll Björnsson, annar ritstjóra Sögu, tímarits Sögufélagsins.
Hraðbanka var stolið í Hvera-gerði og það vakti Friðrik
Steingrímsson í Mývatnssveit til
umhugsunar:
Við afbrota fréttirnar ansi grófar
oftlega maður hrekkur við.
Þessir bíræfnu banka þjófar
bera með sóma réttnefnið.
Rúnar Kristjánsson á Skaga-
strönd orti eftir þing framsókn-
armanna:
Hress í bragði er Höskuldur,
hug til frama hvetur.
Þó er margur þröskuldur
þar sem hamlað getur.
Valdist ei sem vormaður,
við því mátti ei gera.
Í 5 mínútur formaður
fékk hann þó að vera!
Jóna Guðmundsdóttir á limru-
blogginu segir framsóknarmenn
geta dregið einn lærdóm af flokks-
þinginu:
Því fyrirhöfn fylgir og elja
formann til starfa að velja
og núna hver sér
það nauðsynlegt er
að kjörstjórnin kunni að telja.
Hún segir að Höskuldur Þór-
hallsson hafi borið sig furðu vel
þegar menn áttuðu sig á talning-
armistökunum. Hann sé ættaður
eða uppalinn í Hörgárdal og hún
gefur sér að þar hafi menn haldið
með sínum manni.
Það var hátíð í Hörgárdalnum
er hylltur um stund var í salnum,
uns frægðar af þröskuldi
fleygðu menn Höskuldi
og vaskur hann liggur í valnum.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af banka og Framsókn
Bónus
Gildir 5. - 8. febrúar verð nú verð
áður
mælie. verð
KF nýtt ferskt kjötfars .................. 399 499 399 kr. kg
KF kofareykt folaldakjöt .............. 399 599 399 kr. kg
Ali ferskur svínabógur ................. 399 499 399 kr. kg
GV ferskt grísahakk .................... 498 698 498 kr. kg
KB ferskt ungnautahakk ............. 899 1.349 899 kr. kg
KB ferskt ungnautagúllas............ 1.398 1.798 1.398 kr. kg
KB ferkst ungnautasnitsel ........... 1.398 1.798 1.398 kr. kg
Ali ferskur heill kjúklingur ............ 599 899 599 kr. kg
Ali ferskar kjúklingabringur ......... 1.798 2.398 1.798 kr. kg
KS frosinn lambabógur ............... 569 759 569 kr. kg
Krónan
Gildir 5. - 8. febrúar verð nú verð
áður
mælie. verð
Lambainnralæri ......................... 1.949 3.897 1.949 kr. kg
Lamba mínútusteik .................... 1.949 3.898 1.949 kr. kg
Ungnauta mínútusteik................ 2.399 3.198 2.399 kr. kg
Lamba sirloinsneiðar.................. 1.199 1.598 1.199 kr. kg
Goða sænskar kjötbollur ............ 998 998 998 kr. kg
Bautabúrs kindabjúgu ................ 384 549 384 kr. kg
Goða pítupakki, 6 stk. ................ 798 998 798 kr. pk.
Freschetta champ. pitsa, 2 stk.... 599 599 599 kr. pk.
Vatnsmelónur í sneiðum............. 179 179 179 kr. pk.
Sprite, 2 ltr................................ 129 186 129 kr. stk.
Nóatún
Gildir 5. - 8. febrúar verð nú verð
áður
mælie. verð
Goða 1/2 sag. lambaskrokkur .... 998 1298 998 kr. kg
Grísahakk ................................. 498 899 498 kr. kg
Kjúklingabitar............................ 99 149 99 kr. stk.
Ýsuhakk.................................... 899 899 899 kr. kg
ÍM kjúklingabringur skinnlausar... 1.727 2.698 1.727 kr. kg
Móa frosnir kjúklingabitar ........... 389 599 389 kr. kg
Myllu fitty samlokubrauð ............ 259 329 259 kr. stk.
Líf safi epla/appelsínu ............... 119 149 119 kr. ltr
Orville örbylgjupopp, 3 í pk. ........ 189 329 189 kr. pk.
Þín Verslun
Gildir 5. - 11. febrúar verð nú verð
áður
mælie. verð
Myllu heimilisbrauð.................... 298 315 298 kr. pk.
Emmes hnetutopp., heimilispak.. 559 759 559 kr. pk.
Merrild Senseo kaffi, 125 g ........ 398 529 3.184 kr. kg
Maggi kartöflumús, 90 gr ........... 135 179 1.500 kr. kg
Hunts tómatar heilir, 411 g......... 125 154 305 kr. kg
Pataks Tikka Masala sósa, 540 g 398 525 738 kr. kg
Pataks naan brauð, 2 stk............ 369 498 185 kr. stk.
Orville örbylgjupopp, 281 g ........ 249 379 887 kr. kg
Zendium tannkrem, 75 ml .......... 329 439 4387 kr. kg
helgartilboð
Lækkað verð á lambakjöti
Morgunblaðið/Golli
Kjöt Matvöruverslanir eru með tilboð á kjötvörum.