Morgunblaðið - 05.02.2009, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 05.02.2009, Qupperneq 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2009 ✝ Ólafur EiðurÓlafsson fæddist í Reykjavík 5. apríl 1966. Hann lést á heimili sínu 26. jan- úar síðastliðinn. Foreldrar hans eru Ólafur Þorgrímsson, f. 10.09.1926 og Val- gerður Eiðsdóttir, f. 7.3.1929. Systkini hans eru Hulda Ósk Ólafsdóttir, f. 12.12.1953, Þor- grímur Ólafsson, f. 19.6.1955 og Birgir Ólafsson, f. 30.7.1961, og hálf- bróðir sammæðra er Davíð Krist- jánsson, f. 12.1.1948. Ólafur Eiður kvæntist 17. júní 1989 Líneyju Björk Ívarsdóttur, f. 26.4. 1966. Foreldrar hennar eru Ívar S. Guðmundsson, f. 29.6. 1937, og Lovísa Tómasdóttir, f. 13.6. 1938. Börn Ólafs Eiðs og Líneyjar Bjarkar eru Bjarki, f. 6.5.1987, Eva Hrund, f. 23.1.1989 og Val- gerður Dröfn, f. 28.4.1992. Ólafur Eiður var fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hann vann mestallan sinn starfsaldur við smíð- ar og rak eigið fyr- irtæki frá árinu 1985. Ólafur stund- aði hestamennsku frá unga aldri, en hún skipaði ávallt stóran sess í lífi hans. Fyrstu hjú- skaparárin bjuggu Ólafur og Lí- ney í Reykjavík en árið 1996 fluttu þau ásamt börnum sínum til Nor- egs þar sem þau bjuggu til ársins 2001, þegar þau sneru aftur til Ís- lands. Ólafur Eiður verður jarðsung- inn frá Langholtskirkju í dag og fer athöfnin fram kl. 13. Þú barðist eins og hetja í 14 mánuði við banvænan sjúkdóm en kvartaðir aldrei og talaðir okkur í gegnum þetta svo þetta myndi ekki verða okk- ur eins erfitt. Þú varst svo sterkur og raunsær og sagðir okkur að eyða ekki miklum tíma í að syrgja þig, sagðir okkur að halda áfram með líf okkar. Við munum reyna það, elsku pabbi, við munum reyna á hverjum degi að vera sterk fyrir þig og minnast sterka persónuleika þíns, muna hláturinn þinn og húmorinn sem mun seint gleymast. Við erum rosalega stolt af þér og við munum alltaf líta upp til þín. Þú verður alltaf besti pabbi í heimi. Við hefðum viljað fá meiri tíma, en það er mikil huggun að vita til þess að þú ert á betri stað eins og þú átt skil- ið. Þú munt alltaf eiga stað í hjörtum okkar. Hvíldu í friði, elsku pabbi. Bjarki, Eva Hrund og Valgerður. Alltaf varstu hvers manns hugljúfi, brosmildur og traustur. Seinn til að biðja um aðstoð en fljótur að bjóða. Varst lítið fyrir seremoníur og til- stand, það stóð sem þú sagðir. Stað- fastur með létta lund. Hestamaður varstu af lífi og sál, með óvenju mikla næmi sem reið- maður. Það var eftirtektarvert hve hestum leið vel í návist þinni og sóttu til þín styrk. Þegar þú fæddist þá glöddumst við öll en þú varst sá eini sem grést. Þeg- ar þú kvaddir þá grétum við en þú varst sá eini sem ekkert tár felldir, slíkur var skapstyrkur þinn og æðru- leysi. Elsku bróðir, þakka þér fyrir allar góðu samverustundirnar okkar. Í huga mínum ertu ekki horfinn að fullu heldur kominn á undan, þangað sem við síðar hittumst. Þorgrímur Ólafsson. Símtalið kom, sem við höfðum kviðið svo fyrir að fá. Við vissum að það kæmi, en samt kom það okkur öllum í opna skjöldu, þar sem við virkilega trúðum á kraftaverkið. Þeg- ar Óli greindist vorum við viss um að hann myndi sigrast á þessum veik- indum, af því að hann var jú hraust- mennið í fjölskyldunni og okkur fannst að ekkert gæti bugað hann. Hann þoldi ekki að vera veikur, vera allt í einu orðinn sjúklingur, og von- aðist til að þetta tæki fljótt af þegar að því kæmi. Hann bar sig vel allan tímann og lét ekkert stoppa sig í því að gera það sem hann hafði ánægju af, fór t.d. á hestbak fyrir ekki svo löngu. En svo kom að því að þessi andstyggilegi sjúkdómur fór að taka yfirhöndina og við gátum ekkert gert, annað en að horfa upp á hann lúta í lægra haldi. Að eðlisfari var Óli létt- lyndur og mátulega kærulaus, og hef- ur það örugglega hjálpað honum mik- ið í sínum veikindum. Ég man fyrst þegar ég sá hann, þegar Líney kom með hann heim 17 ára gamlan, þá skildi ég ekkert í því hvað hún sá við þennan strák. Hann var bólugrafinn unglingur á miðju gelgjuskeiðinu. En mér skjátlaðist hrikalega. Það rættist heldur betur úr þessum strák. Hann reyndist bæði frábær eiginmaður og einn sá besti pabbi sem börnin hans hefðu getað eignast. Þau voru hans líf og yndi og hann gerði allt fyrir þau. Þau gátu yfirleitt fengið já frá pabba sínum, þó að mamma væri búin að segja nei. Elsku Óli minn, nú ert þú farinn frá okkur og við vitum að þú munt fylgjast með henni Líneyju þinni og rétta hjálparhönd þegar á þarf að halda. Þín verður ávallt sárt saknað meðal fjölskyldunnar. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Elsku Líney, Bjarki, Eva og Val- gerður, Guð gefi ykkur styrk til að halda áfram. Þín mágkona, Dagný. Elsku hjartans mágur minn, hann Óli, er nú dáinn, aðeins 42 ára. Mér finnst enn að þetta sé bara vondur draumur en því miður er það ekki svo. Rúmt ár er síðan hann greindist með krabbamein og einhvern veginn héldum við alltaf í vonina um að hann myndi læknast. Hann tókst á við meinið af þvílíku æðruleysi að ótrú- legt er. Ég kynntist Þorgrími bróður hans fyrir 36 árum þegar Óli var 6 ára, fallegur, hress og alltaf brosandi. Þannig var hann alltaf. Bónþægur og alltaf tilbúinn að hjálpa. Samrýndari bræður hef ég ekki þekkt, þeir töluðu yfirleitt í síma nokkrum sinnum á dag og hittust nær alltaf daglega, á Brúsastöðum, en það kölluðu þeir heimili mömmu þeirra. Þegar ég hitti þá þar var alltaf glatt á hjalla. Við Óli sameinuðumst gegn stóra bróður sem alltaf var fljótur til svars og „sú gamla“ eins og þeir kölluðu mömmu sína fékk líka sinn skerf. Þvílík skemmtun og yndislegar minningar þaðan sem verða seint frá mér tekn- ar. Líney mín, Bjarki, Eva Hrund og Valgerður. Guð veri með ykkur og fjölskyldunni allri. Ykkar vinur Sólveig Ólafsdóttir. Óla bróður, eins og hann var kall- aður á okkar heimili, verður minnst sem höfðingja. Honum fylgdi alltaf jákvæð orka og það var alltaf gaman að vera í návist hans. Þeir pabbi voru ekki bara bræður heldur bestu vinir og gaman að sjá hvað sterkt var á milli þeirra. Hestarnir, pabbi og Óli voru eitt og erfitt að tala um annað við þá. Bjarki, Eva og Valgerður hafa hvert og eitt sína útgáfu af Óla og mun hann lifa sterkt í gegnum þau með alla sína góðu kosti. Við munum ávallt líta upp til þín, kæri frændi, þvílíkan styrk sem þú sýndir í gegn- um veikindin þín. Minningin um þig er okkur kær og þín verður sárt saknað. Elsku fjölskylda, hugur okkar er hjá ykkur. Ólafur og Sólrún. Ég trúi varla að þú sért farinn frá okkur, elsku Óli minn. Þú varst rétt að verða 43 ára og algjörlega í blóma lífsins, mikið rosalega finnst mér eitt- hvað erfitt að trúa þessu. Það sem einkenndi þig var allt það jákvæða, þú varst alltaf svo hress og kátur þeg- ar ég hitti þig og alltaf í góðu skapi og brosið þitt er mér ógleymanlegt. Það var nú ósjaldan sem við hitt- umst í kaffibolla uppi í Þórufelli hjá ömmu hérna áður fyrr, og þá gátum við spjallað um allt á milli himins og jarðar og það var alltaf svo gott að tala við þig, þú varst svo skilnings- ríkur og settir þig svo vel inn í alla hluti, alveg sama hvað það var. Ég man svo vel þegar þú komst í heim- sókn til ömmu þegar þú varst búinn að vera á skyttiríi og komst með alla fuglana heim og hengdir þá alla út á svalir og ég þorði aldrei út á svalir þá og þú hlóst svo mikið að því og skildir ekkert í þessum aumingjaskap í mér. Þú varst alltaf svo mikið hörkutól og alltaf á fullu, alltaf á hestbaki og lifðir svo heilbrigðu lífi og mér fannst þú alltaf svo ferskur. Svo er nú erfitt að gleyma þegar við kíktum út á lífið saman, þá mátti nú ekki hver sem er tala við hana frænku þína, þú þurftir sko að vita hverra manna þetta fólk var og þó svo ég segði að þetta væri nú allt í lagi og ég þekkti viðkomandi þá stóðstu samt og horfðir allan tímann til að vita hvort allt væri nú í lagi, þú varst eitt- hvað svo mikill verndari í þér, elsku frændi minn. En þér var greinilega ætlað eitt- hvert miklu stærra hlutverk hinum megin og ég veit að núna líður þér vel og veikindin hætt að setja strik í reikninginn hjá þér. En mikið á ég eftir að sakna þín og ég mun alltaf muna hversu yndislegur þú varst, mér þykir svo mikið vænt um þig og þú munt ávallt eiga stóran hlut í mínu hjarta. Ég bið góðan guð að styrka fjöl- skylduna á þessum erfiðu tímum. Þín frænka Berglind. Á fallegu janúarkvöldi, eftir snjó- komu í stillu og kyrrð, kvaddi Óli þennan heim. Baráttunni var lokið. Óli glímdi við krabbamein af miklu æðruleysi og sýndi ótrúlegan styrk í þeirri baráttu. Í veikindum hans gerði Líney hon- um mögulegt að vera heima þar til yf- ir lauk. Þannig vildu þau hafa það. Hann kvaddi í faðmi fjölskyldunnar umvafinn ástúð Líneyjar og barnanna. Óli var glæsilegur á velli, ímynd hreystinnar, glaðlyndur og snar í snúningum. Hann var þægilegur í samskiptum, allra manna hugljúfi og átti gott með að láta fólki líða vel í ná- vist sinni. Prjál og tilgerð átti ekki við hann og leið honum einna best í hestagall- anum eða vinnugallanum, reiðubúinn að sinna verkefnum dagsins. Hann var vinnusamur með afbrigðum og var endurnýjun húsa í senn vinnan hans og áhugamál. Hestamennska var honum í blóð borin og stundaði hann ræktun og tamningar af kappi. Fátt fannst hon- um skemmtilegra en að ríða út á uppáhaldsgæðingnum en þeir voru nokkrir sem hann átti. Samband Óla og Líneyjar var afar fallegt og einkenndist af virðingu, vináttu og mikilli væntumþykju. Það var alltaf notalegt að koma á heimili þeirra. Þar ríkti afslappað andrúms- loft og oft mikið líf og fjör, því fjöl- skyldan stundaði ekki einungis hesta- ræktun heldur einnig ræktun hunda. Alltaf var pláss fyrir alla, tvífætlinga jafnt sem fjórfætlinga. Börnin og fjölskyldan skiptu Óla mestu máli í lífinu. Hann var stoltur af börnunum sínum og þakklátur fyr- ir að hafa fengið að sjá þá stefnu sem þau hafa markað sér í lífinu. Minningin um Óla verður alltaf tengd þeim mikla krafti sem bjó í honum og hann nýtti til fullnustu. Hann var bjartsýnismaður og horfði fram á við fremur en um öxl. Það er sárt að verða að sætta sig við að komið sé að kveðjustund. Við Árni og fjölskylda kveðjum með þakklæti fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt í gegnum árin. Elsku Líney systir, Bjarki, Eva og Valgerður. Megi Guð hugga ykkur og styrkja á þessari stundu. Blessuð sé minning Óla. Karitas Ívarsdóttir. Elsku Óli minn, þú ert farinn og ég á svo erfitt með að trúa því að þetta sé raunveruleikinn. Þú, stoðin mín og stytta í lífinu, ert allt í einu horfinn. Ég var búin að kvíða þessum degi frá því þú greindist í lok ársins 2007 og nú er þetta að gerast. Tíminn var allt- of stuttur. Þú tókst veikindum þínum svo vel, barðist hetjulega við þennan illvíga sjúkdóm og hélst þínu striki allan tímann. Það bjó svo mikill kraft- ur og orka í þér og núna eftir að þú ert farinn þá þarf ég ekki annað en að loka augunum og hugsa um faðm þinn þá finn ég fyrir styrknum frá þér. Þú hugsaðir alltaf svo vel um okkur, fjölskylduna þína. Fórst strax í að undirbúa hvernig þú gætir hag- rætt hlutunum, þannig að við hefðum það sem best þegar þú værir farinn. Það varst þú sem hughreystir okkur og sagðir börnunum okkar frá því í hvað stefndi. Þú baðst mig um að vera sterk og reyndir að sannfæra mig um að ég gæti haldið áfram án þín. Í veikindum þínum tókst þér allt- af að líta á björtu hliðarnar og þú varst þakklátur fyrir að þú fékkst tíma til að sinna áhugamálinu þínu, hestunum og fékkst að sjá börnin þín vaxa úr grasi og sjá hvert þau stefndu í lífinu. Þú varst svo stoltur af þeim. Þú yfirgafst þennan heim með mik- illi reisn og óttaðist aldrei að deyja. Þú ræddir dauðann bæði við mig og börnin okkar af miklu æðruleysi, sem er okkur mikil huggun núna eftir að þú ert farinn. Ég veit þú vakir yfir okkur og heldur áfram að styðja okk- ur eins og þú hefur alltaf gert. Ég trúi því að þú munir taka á móti okkur þegar þar að kemur. Ég sakna þín svo sárt. Ég elska þig. Líney. Það fyrsta sem kemur upp í hug- ann þegar ég hugsa til þín, elsku stóri frændi, er kraftur, tryggð og heiðar- leiki. Þú varst sönn hetja og fyrir- mynd. Þú varst alltaf brosmildur, glaður eða hlæjandi. Þær eru margar minningarnar sem ég á og ekki er hægt að taka í burtu. Ein af mínum fyrstu minningum um þig var þegar þú varst 11 ára, ég var þá 4 ára, okkur var þá leyft að syngja inn á kassettu með míkrófón. Þú söngst þá lagið: Ég var að rúnta í ræfilslegum Ford 57, og þú lifðir þig svo mikið inn í það og varst svo mikill gaur. Ég leit svo mikið upp til þín þá, og alla tíð. Ég efast ekki um að vel hafi verið tekið á móti þér, elsku Óli minn, því þú varst svo gegn og góður maður. Ég sé fyrir mér að þín hafi beðið eitt- hvert stórt verkefni á öðrum stað, sem enginn nema þú getur gert. Því þú varst sannarlega hörkutól. Þú verður ávallt í mínum huga og hjarta, elsku frændi minn. Og ég bið góðan Guð um að þér líði vel. Ég kveð þig nú með miklum sökn- uði og virðingu, og vona að við mun- um hittast á ný þegar minn tími kem- ur. Þín frænka Guðrún. Vinur okkar Óli sem nú hefur kvatt og við syrgjum svo mjög var þeirra gerðar að návist hans var gefandi, glaðvær og þroskandi. Ekki var Óla sýnt um að þóknast fólki. Hann var hlédrægur og frekar feiminn við fyrstu kynni, en lagði háum sem lágum gott til ef svo bar við. Hjálpsemi og greiðvikni var hon- um sjálfsögð svo auðvelt var hverjum að njóta hennar. Veturinn 2002 ákváðum við hjónin að láta á það reyna hvort hesta- mennska gæti ekki orðið það tóm- stundagaman og sá lífsstíll sem tæki við þegar tíma barnauppeldis og óhóflegrar vinnu lyki. Heppnin var okkur hliðholl. Þorgrímur bróðir Óla leigði okkur pláss í hesthúsi sínu og reyndist okkur ómetanleg hjálpar- hella. Óli, sem einnig hafði sína hesta hjá Þorgrími, hélt sér til hlés og fylgdist með byrjendatilburðum okkar úr fjarlægð. Óli var afburðahestamaður, gæddur næmum skilningi á öllum þáttum hestamennskunnar, nærgæt- inn og umhyggjusamur um sína hesta. Aldrei var nóg að gert svo þessir vinir hans nytu bestu aðhlynningar. Þetta sást ekki síst í því þegar leitað var til Óla með tortryggin og baldin trippi sem fæstir treystu sér til að tjónka við. Hlý, styrk og fumlaus umgengni leiddi oftast til árangurs á undra- skömmum tíma. Ekki hvarlaði að okkur á þessum tíma að þetta yrði upphaf vinskapar við Óla og seinna Líneyju konu hans. Þrátt fyrir hóværð og yfirvegun var Óli maður skjótra ákvarðana. Viljið þið koma í sleppitúr? Viljið þið koma í hestaferð? Eruð þið til í að kaupa hesthús? Eigum við að kaupa jarðarpart? Sannfæringin og gleðin sem fylgdi þessum uppástungum ásamt gagn- kvæmu trausti leiddu undanbragða- lítið til samþykkis. Um ókomin ár munum við minnast með þakklæti allra þeirra gleðistunda sem okkur gáfust með honum. Áfram munum við njóta samveru í Bolholti og hesthúsinu í Faxabóli með Líneyju og hennar börnum. Fjölskyldu Óla vottum við okkar dýpstu samúð. Fanney og Finnur. „Ólafur Eiður, viltu koma út úr skápnum,“ sagði kennarinn okkar Óla, en bætti svo við: „Nei, annars er kannski best að þú sért þarna inni, það er þá friður.“ Þetta er eitt af því sem rifjast hefur upp fyrir mér síðustu daga eftir að ég frétti af andláti Óla. Ég fór að hugsa um tímann sem ég hef ekki hugað að lengi. Þetta var skemmtilegur tími. Við vorum klíka, ég, Óli og Stjáni. Við vorum saman í skólanum og eftir skóla. Síðar bættist Gunni í hópinn. Við gerðum ýmislegt, uppgötvuð- um margt og prófuðum ýmislegt saman. Í Fellaskóla var borin virðing fyrir Óla. Krakkarnir kölluðu hann Óla stóra en kennararnir nefndu hann alltaf Ólaf Eið. Eitt af því sem við Óli gerðum sam- an var að æfa júdó. Vegna þess hve Óli var stór og kröftugur vorum við færðir upp í fullorðinsflokk. Þar var ég notaður sem gólftuska á meðan Óli stóð uppi í hárinu á körl- unum. Þjálfarinn taldi sig hafa fundið framtíðar-ólympíufara í honum en fljótlega hætti Óli þar sem hann mátti ekki vera að þessu. Hann varð að sinna hestunum en strax á unglings- árunum var það stór partur af lífi hans. Endalausar minningar koma upp, minningar um það þegar Óli vildi ekki hlusta á neina tónlist nema Gary Numan og söng með falsettu „Her is mæ kar“. Ógleymanlegt þeim er fengu að njóta. Óli átti skellinöðru í nokkra mánuði og var hún nánast allan tíman hljóðkútslaus svo maður vissi með góðum fyrirvara hvenær hann kæmi. Fermingarárið var stórt ár hjá okkur og um það sem gerðist þá væri hægt að skrifa heila bók. Eitt af því sem einkenndi Óla var að hann var alltaf að flýta sér. Hann var alltaf á undan okkur hinum og það skil ég svo vel núna. Hann stofnaði fjölskyldu sína ung- ur. Hann gerði alla hluti fyrr en við hinir. Það gerðist með okkur félagana eins svo marga æskuvini að við urð- um uppteknir af öðru og hittumst sjaldnar og oftast þá á hlaupum. Því miður er mér það ekki fært að fylgja þér til grafar, minn gamli vin- ur, og það er sárt. En ég á minning- arnar um þig og þær tekur enginn frá mér þó svo þú hafir svo ranglega ver- ið tekinn frá okkur. Árin sem við átt- um saman eru mér mikils virði og til- hugsunin um þau kallar fram bros og ásjónu þína. Líneyju og börnunum sendi ég og fjölskyldan mín innilegustu samúðar- kveðjur. Jóhannes Bjarni Eðvarðsson. Ólafur Eiður Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.